Fréttablaðið - 09.07.2001, Síða 18
18
FRÉTTABLAÐIÐ
9. júll 2001 MÁNUPACUR
HVAÐA BÓK ERTU AÐ LESA
Hellalist í Frakklandi:
Stórmerkur
fornleifafundur
HESTUR FRÁ FORSÖGULEGUIVI TÍMA
Myndirnar ná yfir mörg hundruð metra og á þeim má sjá menn og dýr, vísunda, hesta og
nashyrninga .
Kolbrún Bergþórsdóttir
biaðamaður
Ég er alltaf að lesa. Auk bóka sem ég
les eftir því sem andinn býður hef ég
þann sið að númera alla höfunda sem
ég á bækur eftir, 1. hvers mánaðar dreg
ég tvö númer og les þrjár bækur eftir
hvorn. Að þessu sinni dró ég John
Steinbeck og Irish Murdock og er núna
að lesa Austan Eden sem er ótrúlega
dramatísk bók, reyfarakennd og stór-
skemmtileg. Það er ekki furða að af
Nóbelshöfundum nýtur Steinbeck hvað
mestrar alþýðuhilli. ■
perigeux. ap. Hellir með allt að
30.000 ára gömlum myndum hef-
ur verið uppgötvaður í vestur-
hluta Frakklands. Fornleifafræð-
ingar segja fundinn stórmerkileg-
an en auk myndanna fundust
nokkrar grafir í hellinum. Það var
áhugamaður um hellaskoðanir
sem fann hellinn í september síð-
astliðnum en það var ekki fyrr en
í þessari viku sem fundurinn var
kynntur.
Talið er að myndirnar, sem eru
ristar í hellisveggina, séu eldri en
þær sem hingað til hafa verið tald-
ar elstu málverk heims í Lascaux
hellinum. Embættismenn segja
myndirnar í einstaklega góðu
ástandi.
Báða hella er að finna í Dor-
dogne-héraði, sem frægt er fyrir
hellalist sína.
Myndristurnar eru þó að öllum
líkindum ekki þær elstu í heimi því
árið 1994 fundust hellar með teikn-
ingum og myndum ristum í veggi
sem taldar eru 32.000 ára gamlar.
Ekki er vitað hversu gamlar
grafirnar eru en verið er að rann-
saka þær. ■
METSÖLULISTI
Mest seldu bækurnar í
harðspjaldaútgáfum á amazon.com
O Anner Tyler:
BACK WHEN WE WERE GROWNUPS
Richard Russo:
EMPIRE FALLS
Robert B. Parker:
GUNMAN' S RHAPSODY
Q Amy Tan:
THE BONESETTER'S DAUGHTER
P.D. James:
PEATH IN HOIY ORDERS
Anita Shreve:
THE LAST UME THEY MET
ffþ John Grisham:
A PAINTED HOUSE
John Sandford:
CHOSEN PREY
Michael Chabon:
THE AMAZING ADVENTURE OF._
fpl Chuck Palahniuk
CHOKE
Frá Bakkaúrum til
Borgundarhólmsklukku:
Tikk takk
sýningar í borðstofu Hússins á Eyr-
arbakka hefur verið sett upp sýn-
ingin Tikk tikk takk takk - frá
Bakkaúrum til Borgundarhólms-
klukku. Þar gefur að líta gamlar
klukkur og gömul úr í eigu safn-
anna á Eyrarbakka. Meðal sýning-
argripa eru vasaúr, armbandsúr,
úrfestar, gömul skipsklukka, tíma-
mælir úr símstöð, stofuklukkur,
verkstæði úrsmiðs og gólfklukkur.
Margar klukknanna eru gangfær-
ar eins og heiti sýningarinnar ber
vott um.
Á síðasta aldarfjórðungi 19. ald-
ar urðu vasaúr og stofuklukkur al-
menningseign á Islandi. Frá þeim
tíma eru þekkt Bakkaúrin - vasaúr
sem seld voru í miklu magni í
Lefolii-verslun á Eyrarbakka.
Merkasti gripur sýningarinnar og
sennilega sá elsti er Borgundar-
hólmsklukka úr búi Bjarna
Thorarensens skálds og amt-
manns. Sýningin er opin kl. 10-18
alla daga vikunnar og stendur
fram á haust. ■
MÁNUDAGURINN
9. JÚLÍ
FYRIRLESTRAR________________________
13.30 Borgþór Kjærnested skjalaþýð-
andi og túlkur heldur fyrirlesturinn
íslenskt samfélag í Norræna hús-
inu. Fjallað verður um ýmsa þætti
sem tengjast íslensku samfélagi
svo sem launakerfi, félagslegt
kerfi, skólakerfi, stjórnmál og
fleira. Að loknum fyrirlestrinum
gefst viðstöddum kostur á að
bera fram spurningar. Fyrirlestur-
inn verður fluttur á sænsku.
TÓNLEIKAR___________________________
Hljómsveitin Gang bang ætlar að
skemmta gestum Gauksins í kvöld.
SÝNINGAR____________________________
Á efri hæð Hafnarborgar stendur Þjóð-
minjasafn íslands fyrír sýningu á Ijós-
myndum eftir Hans Malmberg frá því
um 1950. Sýningin nefnist ísland 1951,
en það ár kom út Ijósmyndabók með
myndum Malmbergs sem talinn var
einn fremsti heimildarljósmyndari Svía á
sinni t(ð. Á sýningunni verða sýndar nýj-
ar stækkanir af Islandsmyndum Hans
Malmberg og frumkópíur af nokkrum ís-
landsmynda hans. Sýningin er opin alla
daga nema þriðjudaga og henni lýkur 6.
ágúst.
í Sverrissal Hafnarborgar er sýning á
skotskífum úr fórum Det Kongelige
Kjobenhavnske Skydeselskab og
Danske Broderskab. Það er eitt elsta
starfandi félag I Danmörku og margir Is-
lendingar og Islandskaupmenn hafa ver-
ið meðlimir þess. Sýndar eru um 15
skotskífur með islensku myndefni eða
frá íslenskum félögum skotfélagsins.
Skífurnar eru frá árunum 1787-1928.
Þjóðminjasafn fslands stendur fyrir
þessari sýningu. Sýningin er opin alla
daga nema þriðjudaga og henni lýkur 6.
ágúst.
Kanadíski Ijósmyndarinn Arní Haraids-
son sýnir Ijósmyndir frá sex löndum I
Gallerí Klaustri að Skriðuklaustri. Sýn-
ingin stendurtil 15. júlí.
I Árbæjarsafni standa yfir nokkrar sýn-
ingar. I Lækargötu 4 er sýningin Saga
Reykjavíkur - frá býli til borgar. I Kjöt-
húsi er sýningin Saga byggingatækn-
innar. I Líkn er sýningín Minningar úr
húsi. Þar er sýnt innbú frá fjölskyldu
Vigfúsar Guðmundssonar búfræðings
sem bjó á Laufásvegi 43. Sýningin í
Suðurgötu 7 ber yfirskriftina: Til fegurð-
arauka. Sýning á útsaumi og hannyrð-
um. lEfstabæ má sjá hvernig tvær fjöl-
skyldur bjuggu i húsinu um 1930, þar af
önnur barnmörg.
I Ljósmyndasafni Reykjavíkur stendur
Ijósmyndasýning Henri Cartier-Bresson
í Grófarsal, Grófarhúsi, Tryggvagötu 15.
Sýnd eru verk þessa franska Ijósmynd-
ara sem nú er á tíræðisaldri og hefur
oftast verið kenndur víð stílinn „hið af-
gerandi augnablik". Sýningin er opin
virka daga frá kl. 12-17 og um helgar kl.
13-17 og stendur til 29. júlí.
Ari Magg sýnir Ijósmyndir á Atlantic í
Austurstræti og er þetta er fyrsta einka-
sýning Ara. Þema sýningarinnar á Atlant-
ic er íslenski fáninn. Gengið er inn frá
Austurvelli.
I Byggðasafni Hafnarfjarðar standa yfir
sýningarnar Blóðug vígaferli og Götulif
Bónstöðin TEFLON jfl
GSM 821 4848 Sími 567 8730 ■
Lakkvörn
2. ára ending
Teflonhúðun Djúphreinsun
Blettanir Mössun Alþrif
Opiö alla virka daga 8.30-18.00
www.teflon.is • Krókhálsi 5 • Toughseal umboðið
z
0
_1
IL
U
I-
Orðið er framtíðin
- ekki skrúfumar
Guðrún Magnúsdóttir segir mikla framtíð búa í tungutækni í
upplýsingasamfélagi sem byggir á orðum.
ÚR MÁLVfSINDUM I TÆKNI
Guðrún Magnúsdóttir er málamanneskja. Hún hóf nám í málvisindum í háskólanum í
Gautaborg en sneri sér svo að námi þar sem málvísindi og tölvutækni eru fléttuð sam-
an. Ný stýrir hún fyrirtæki Esteam I Aþenu sem hefur sérhæft í sjálfvirkum þýðingum
milli tungumála Evrópusambandsins.
tungutækni í tölvu- og upplýsinga-
samfélaginu dafnai' ný fræði- og
tæknigrein sem kallast tungu-
tækni. í þeirri tækni er fengist
við meðferð málsins í tölvum og
hugbúnaði og eru vélrænar þýð-
ingar líklega þekktasta dæmið
um þessa tækni.
Guðrún Magnúsdóttir er
stödd á íslandi og hélt fyrirlest-
ur þar sem hún kynnti störf sín á
sviði tungutækni. „Upplýsinga-
samfélagið byggist á orðum og
þessar upplýsingar séu verð-
mætar,“ segir Guðrún og á meðal
annars við upplýsingar á Netinu,
í söfnum og stórum tölvubönk-
um. „Nú getum við farið að tala
um upplýsingasamfélag vegna
þess að á síðustu 10 árum hefur
allur heimurinn tölvuvæðst."
Fyrirtæki Guðrúnar hefur
þróað hugbúnað sem þýðir sjálf-
virkt milli tungumálana sem töl-
uð eru í Evrópusambandinu. „Við
erum með sjálfvirkan hugbúnað
sem þýðir sjálfvirkt milli allra
11 tungumálanna í allar áttir.
Þetta er stærsti hugbúnaður sem
til er á þessu sviði.“ Þessi hug-
búnaður byggir á svokölluðu
reglukerfi þannig að mun auð-
veldara er að bæta inn nýju
tungumáli en í eldri hugbúnað á
sviði þýðinga sem byggir á orða-
söfnum.
Af öðrum möguleikum á sviði
tungutækni nefnir Guðrún þann
að gera Netið þýðingarhlaðnara
og þannig skipulagðara. „Til
dæmis má nefna það sem kallað
er „infomation filtering" sem
gengur út á að fólk fái eingöngu
þann tölvupóst sem það vill fá og
sömuleiðis að maður fái bara þá
leit sem maður vill á netinu."
Með þessari tækni er líka hægt
að koma upp hugbúnaði á innra
neti fyrir tækja sem stýrir því til
hvaða starfsmanns tölvupóstur
berst, eftir því hvað stendur í
honum. Að mati Guðrúnar er
þetta mjög gagnlegt í stórum
fyrirtækjum. Hún nefnir einnig
aðra upplýsingastjórnun, svo
sem að láta tölvu gera útdrátt úr
texta og að nýta hugbúnað til að
leita eftir ákveðnum orða-
strengjum eftir merkingu orð-
anna en ekki beint eftir orðunum
sjálfum.
Þýðingar milli mála er áreið-
anlega umfangsmesta svið
tungutækninnar og á því sviði
mun tæknin að mati Guðrúnar
koma að miklum notum hér
heima. „Þýðingariðnaðurinn er
að byrja að blómstra hér og það
er mikilvægt fyrir þýðendur að
eiga kost á hjálpartækjum sem
gefa þeim til dæmis möguleika á
að sjá hvernig tiltekið orð er þýtt
í öðru samhengi og gefur þeim
hráþýðingar sem þeir geta end-
urskipulagt.“
steinunn@frettabladid.is
víkinganna í York . Um er að ræða
tvær sýningar, annars vegar endurgerð á
götu I víkingaþorpi þar sem hægt er að
sjá fólk við vinnu sína og hins vegar sýn-
ingu þar sem má sjá beinagrind og
hauskúpur víkinga sem féllu í bardög-
um. Á sýningunni eru raunverulegar lík-
amsleifar sem geta valdið óhug. Sýning-
arnar eru opnar alla daga frá 13 til 17
og standa til 1. október.
í Sjóminjasafninu í Hafnarfirði stendur
handverkssýning Ásgeirs Guðbjartsson-
ar. Sjóminjasafnið er opið alla daga frá
kl. 13 til 17. Sýningin stendur til 22. júlí.
Ljósmyndasýning grunnskólanema
sem í vetur hafa unnið undir hand-
leiðslu Marteins Sigurgeirssonar
stendur yfir í Gerðubergi. Sumar
myndanna eru Ijóðskreyttar en aðrar
segja sjálfar allt sem segja þarf. Opnun-
Fjölskyldugarðurinn:
Uppgötvun-
armiðstöð
BARNASTARF í Fjölskyldu- og hús-
dýragarðinum er kominn vísir að
uppgötvunarmiðastöð fyrir
börnin. Vísir að henni varð
upphaflega til í Kiébergsskóla á
Kjalarnesi. í ráði er að miðstöðin
verði til frambúðar í Fjölskvldu-
og húsdýragarðinum. ■
artími sýningarinnar er virka daga frá 12
til 17 og stendur sýningin til 17. ágúst
MYNPLIST____________________________
Sýning sem nefnist Eden var opnuð um
helgina í Gula húsinu á horni Frakka-
stígs og Lindargötu. Sýnd eru mynd-
bandsverk, málverk, skúlptúrar og inn-
setningar. Sýnendur eru Björg Melsted,
Þorgerður Jörundsdóttir, Anna Sóley
Þorsteinsdóttir, Marta María Jónsdóttir,
Kristín Elva Rögnvaldsdóttir og Elina Sör-
enson. Sýningin er opin kl. 15.00 til
18.00 og henni lýkur föstudaginn 13.
júlí.
Þóra Sigurþórsdóttir leirlistarkona sýnir
í Gullsmiðju Hansínu Jens að Lauga-
vegi 20b (gengið inn frá Klapparstíg).
Þóra hefur skipað sér í fremstu röð ís-
lenskra leirlistarmanna á undanförnum
árum og haldið fjölmargar sýningar.
Meðal annars nýtir hún sér hrosshár og
horn í verkum sinum.
LEIKHÚS
Aleitin skemmtun
Söngleikurinn Hedwig er sett-
ur upp eins og rokktónleikar.
Þarna er þó á ferðinni leikhús
með mörgum glæsilegum út-
færslum. Öll umgjörð sýningar-
innar flott, tónlistin sem tekur á
móti manni þegar í leikhúsiö
kemur, veggjakrotið hér og þar
sem minnir á Berlínarmúrinn,
áhrifamikil lýsing sýningarinnar
og áfram mætti telja.
Björgvin Franz Gíslason
leikur burðarhlutverk sýningar-
innar af krafti. Það er vanda-
verk að koma Hedwig til skila
sem raunverulegri manneskju
því það er svo auðvelt að falla í
klisjupyttina. Björgvin Franz
var bæði sannfærandi og ein-
HEDWIG:_____________________________
Höfundar: John Camcron og Stephen Trask
Þýðandi: Gísli Rúnar Jónsson
Leikstjóri: Magnús Geir Þórðarson
Aðalleikari: Björgvin Franz Gíslason
Leikfélagi íslands sýnir í Loftkastalanum
lægur á frumsýningunni. Ragn-
hildur Gísladóttir var óborgan-
leg. Loks er að nefna hljóm-
sveitina sem bæði stóð sig frá-
bærlega bæði í flutningi og
framgöngu og myndaði sann-
færandi umgjöi'ð um Hedwig.
Steinunn Stefánsdóttir