Fréttablaðið - 09.07.2001, Qupperneq 24
FRETTABLAÐ
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00 Ritstjórn: 515 7515, símbréf: 515 75 06, rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - símbréf 515 75 16 - rafpóstur auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 20
VlÐ SEGJUM FRÉTTIR Fréttavefurinn á VÍslr.ÍS Fyrstur með fréttirnar
Officelsuperstore
OPfÐ VÍRKA DAGA KL 8-19 • LAUGARDAGA KL 10-16
SkmSfunni 17, 108 Rmykjavík I
Furuvöllum 5, 600 Akurmyri
Sími 550 4100
T&knival
NY FARSIMAÞJONUSTA • LÆGRA MINUTUVERÐ
Bakþanka
ÞRÁINS BERTELSSONAR
Evrur eða
álnir vaðmáls
Nú er mikið verið að spekúlera í
því hvort við eigum að taka upp
evru sem gjaldmiðil og segja skilið
við krónuna hafandi sogið úr henni
allan kraft. Fyrir mína parta væri ég
alveg til í tuskið því að tilfinninga-
samband mitt við krónuna hefur
verið vægast sagt stormasamt gegn-
um tíðina. Ef mönnum finnst evran
ekki nógu íslensk mætti líka lækna
þjóðina af ákveðinni krónuþreytu
með tilbreytingu sem fælist í því að
taka upp eitthvað þjóðlegt og gott
sem gjaldmiðil eins og álnir vað-
máls, smérfjórðunga, merkur silf-
urs, kúgildi, fiskivættir eða vikur
sjávar.
GALLINN Á EVRUNNI er sá að
við megum ekki taka hana upp sem
gjaldmiðil nema með leyfi Evrópu-
sambandsins og leyfi Evrópusam-
bandsins til þess fáum við ekki
nema við sækjum um og fáum fyrst
aðild að téðu sambandi. Ástæðan
fyrir því að við erum ekki í þessu
Evrópufélagi er mestan part sú að
við íslendingar höfum hingað til
talið það fyrir neðan virðingu okkar
að vera í selskap með þjóðum eins
og Þjóðverjum, Frökkum og Eng-
lendingum, Dönum og Svíum og
kjósum heldur að vera í kompaníi
með forfeðrum okkar í Noregi og
Lígtensteinungum.
..~
ANNAR GALLI á evrunni er sá að
ef við tökum hana upp sem gjald-
miðil getum við ekki lengur sagt
þegar við erum alveg hlessa: „Nú á
ég ekki krónu!“ - „Nú á ég ekki
evru!“ hljómar ekki eins nærri því
eins vel. Og í nafni allrar sanngirni
verður að geta þess að ýmsar aðrar
þjóðir, einkum eyþjóðir, eru hikandi
við að taka upp evruna og ber þar
fyrst að nefna Englendinga. í sjón-
varpsfréttum sá ég enskan vörubíl-
stjóra hafna evrunni með þeim
ágætu rökum að hann fengi minna
fyrir eina evru heldur en eitt pund
og það váeru vond skipti.
——
MEÐ SÖMU RÖKUM ætti það
að vera mikill búhnykkur fyrir okk-
ur íslendinga að taka upp verðmæta
evru í staðinn fyrir verðlausa krónu,
en þó er mér það ljóst að verulega
góður hagfræðingur gæti flækt
þetta mál býsna lengi. Hin endan-
lega spurning er því einfaldlega sú,
hvort við teljum okkur betur borgið
í félagi með 480 milljón Evrópubú-
um og evrunotendum ellegar hvort
við ætlum bara að halda áfram að
spila þetta eftir eyranu. ■
Nú kostar aóeins
9
&ó hrin^ja til rtokkurra helstu vidskiptalanda
okkar meó sparnaðarleióum Simans.
Sijninn heiur laekkad verd á símtölum tii 12 ianda, í adra sxma en farsima. Nu kostar mínútan
aðeins 17,91 kr, til Danmerkur, Sviþjóöar, Noregs, Kanada og Færeyja með sparnaðaxleiðirmi
Vinunt & vandatnonnniu í útiönduin.
Vegna bxeytinga á þjónustugj öidum erlendxa farsimafyrirtæk] a munu sinttöl i farsima í útlöndun
hiVkka.
Nánaxi upplýsmgar u:m verðbreytingar á simtölum til útlanda er að firma á simiim.is
wwwMl!ialfev*atcjiiinig5ÍK
HVALASKOÐUN
frá Reykfavíkurhdfn, alla daga kl. 10:30
HfoMMCÉœtfflíI a'tnii ‘UW-'MM