Fréttablaðið - 24.07.2001, Page 11
PRIÐJUPAGUR 24. júlí 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
11
Smáralind:
Menningarrými
í Vetrargarði
smáralind „Vetrargarðurinn verður
eins konar afþreyingar- eða skemmti-
vettvangur, þetta getur verið ráð-
stefnu og sýningarsalur, þarna verða
tónleikar, menningarfyrirlestrar og
ýmsar aðrar uppákomur. Hér verður
hámenning lágmenning og alþýðu-
menning allt í senn og tilgangurinn er
að trekkja að fólk. Opna gólfsvæðið er
á stærð við gólfrými í Laugardalshöll-
inni. Á svæðinu, sem verður umkringt
veitingahúsum á borð við Friday’s,
Subway og Pizza Hut, verður rými
fyrir 2000 manns auk 1000 manns á
nokkurs konar svölum.” Pálmi
Kristinnsson segir mikið eiga eftir að
gera á þessu svæði á skömmum tíma.
Það sama gildir um sumargarðinn,
þar sem fólk getur verið undir beru
lofti og fengið þjónustu frá veitinga-
stöðum út. Undir stéttinni verða hita-
lagnir og eftir verslunarmannahelgi
verður farið að gróðursetja þar fyrir á
milli 20 og 30 milljónir. ■
Innan skamms tíma verða starfsmenn á vegum verslananna komnir til undirbúningsvinnu
við opnun þeirra. Verktakinn istak, er mjög langt kominn með sina vinnu á þessu svæði.
Smáralind:
U ndirbúningur
hófst fyrir 6 árum
smáwalind „Það má segja að flestir
þættir hússins, sem varða markaðs-
mál, tryggingamál, fjármögnun,
hönnun, skipulagningu og verslunar-
mál, séu í raun alþjóðleg vinna. Und-
irbúningur að þessu verkefni hefur
staðið yfir í tæp 6 ár og þar af voru
fyrstu 2-3 árin nær eingöngu unnin
erlendis með erlendum ráðgjöfum"
segir Pálmi Kristinsson fram-
kvæmdastjóri Smáralindar.“Bygg-
ingin er mjög áþekk byggingu í
Bristol, sem opnuð var fyrir 2-3 árum
síðan. Hún hefur hlotið öll helstu
verðlaun, sem hægt er að fá, fyrir
verslun, arkitektúr, umhverfismál,
skipulagningu og þess háttar. „Til
dæmis er þakglugginn með sama
sniði, þar sem lögð er áhersla á að
skapa útiandrúmsloft eða götulíf,
með því að nota dagsbirtuna. Við
gerum ráð fyrir að þurfa ekki að
nota ljóskastara þá sem hér eru,
stærsta hluta ársins.” ■
Smáralind:
Ný kynslóð kvik-
myndahúsa
smáralind „Það má segja að þarna
verði komin ný kynslóð kvikmynda-
húsa, í takt við það nýjasta í Evrópu
og Bandaríkjunum. Þetta verða fimm
sýningarsalir, sá stærsti 420 sæti,
sem er tæplega hálfur stóri salur í
Háskólabíói. Þarna verður lúxussal-
ur, sem tekur 75 í sæti, á svæði sem
venjulega myndi rýma 150 sæti, svo
það verður mjög rúmgott þar. Stólana
verður hægt að leggja niður, langt er
á milli bekkja og armpúðar breiöir,"
sagði Pálmi Kristinsson fram-
kvæmdastjóri Smáralindar. Mikill
halli verður í öllum kvikmyndasöl-
um, svo hnakkinn á næsta manni
ætti ekki að byrgja sýn. Kvik-
myndasalir þessir mynda síðan
stórt ráðstefnu og sýningarsvæði í
heild þeirri sem kölluð er Vetrar-
garðurinn.
Rekstraraðilar kvikmyndahúss-
ins hafa sýnt því áhuga að fá vín-
veitingaleyfi. Pálmi segir það ekki
vera komið enn, en auðvelt verði að
koma því við. ■
Vopnahlé í Makedóníu virt að vettugi:
Átök í borginni Tetovo
movo. MAKtDóNlA. ap. Að minnsta kosti
fjórir óbreyttir borgarar særðust, þar
af einn alvarlega þegar albanskir upp-
reisnarmenn börðust við makedónís-
ka hermenn í gær, aðeins nokkrum
dögum eftir að viðræður um að koma
í veg fyrir borgarastríð í landinu
sigldu í strand. Að sögn yfirmanns úr
röðum lögreglunnar lögðu uppreisn-
armennirnir undir sig aðal knatt-
spyrnuleikvang borgarinnar áður en
þeir réðust til atlögu að lögreglunni. ■
TC/RBO
Dalvegur 16a
MHG söluaðilar á Islandi
1 201 Kópavogur • Pósthólf 564 • Sími: 544 4656 Fax: 544 4657 • Netfang: mhg@mhg.is
maSLiJMl BtoJl® TUJJBOB)
iiin> mxO’
Öryggiskerfi-ISDN og analog símar-símkerfi
5^
ÖRYGGISKERFI: Stöð og hnappaborð-Hreyfiskynjari
Hurðaseglar-Fiarstýring-Bjalla og uppsetning.
Kr. 65.000 eoa 5.417 x 12 mánuðir.
ISDN tenging: NT box ásamt stofngjaldi símans ISDN
sími með tvo analog útganga uppsetning á NT boxi
og sima.
Kr. 29.000 eða 4.833 x 6 mánuðir.
Iffl
RAFLAGNIR ISLANDS ehf.
VERSLUN - HEILDSALA
Hamarshöfða 1-110 Reykjavík - Sími 511 1122 - Fax 511 1123
Verkstæði og vörulager: 511 1124 - ris@simnet.is - www.simnet.is/ris