Fréttablaðið - 17.08.2001, Blaðsíða 1
MENNING
Frumsýnt
í nýju
leikhúsi
bls 18
SJÓRINN
Ráðherra
breytir
reglum
bls 12
VIÐSKiPTI
Markaðurinn
lengi að
jafna sig
bls 10
HEIMAGÆSLA
Sfmi 530 2400
FRETTAB
:
81. tölublað - 1. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Föstudagurinn 17. águst 2001
FOSTUÐACUR
Halldór hittir
starfsbróður
HEIMSÓKN LOUÍS
Michel, utanríkis-
ráðherra Belgíu,
kemur í opinbera
heimsókn hingað til
lands í dag og hittir
Halldór Ásgríms-
son, starfsbróður
sinn að máli í Þjóðmenningarhús-
inu. Þeir ræða samskipti íslands
við Belgíu og ESB, sem nú lýtur
forystu Belga.
Heiðruð fyrir
hús og lóðir
Þjóðleikhúsið fékk
40 milljónir án leyfis
Ríkisendurskoðandi átelur yfirstjórn Þjóðleikhússins fyrir að hafa ekkert aðhafst þótt henni
mætti vera ljóst að byggingarnefnd hússins ráðstafaði í heimildarleysi um 40 milljónum króna til
hluta sem ekki tengdust nefndinni heldur rekstri leikhússins. Þjóðleikhússtjóri gerði sjálfur
tillögur um útgjöldin.
umhverfi Borgarstjóri veitir í dag
viðurkenningar fyrir fegurstu lóðir
í borginni og endurbætur á eldri
húsum við athöfn í Höfða.
ÍVEÐRIÐ í DAG[~~
REYKJAVÍK Norðlæg átt eða
breytileg átt 3-8 m/s.
Léttskýjað í kvöld og nótt.
Hiti 7 til 14 stig.
VINDUR ÚRKOMA HITI
ísafjörður O '-3 Skýjað Qio
Akureyri o 3-8 Skýjað ©15
Egilsstaðir O ’-3 Skýjað On
Vestmannaeyjar Q 3-8 Skýjað 014
Hver selur
stiórnsýsla Ríkisendurskoðun
segir að forsvarsmönnum Þjóð-
leikhússins hefði átt að vera ljóst
að um þriðjungur þess fjár sem
byggingarnefnd Þjóðleikhússins
ráðstafaði fór til venjubundins
reksturs leikhússins en ekki til
verkefna á starfssviði byggingar-
nefndarinnar.
Á tímabilinu sem ríkisendur-
skoðandi hafði til skoðunar, þ.e.
árin 1996 til 2001, var veitt 146
milljónum króna úr Endurbóta-
sjóði menningarbygginga til
byggingarnefndar Þjóðleikhúss-
ins. Um 115 milljónir króna hafa
verið nýttar og segir ríkisendur-
skoðandi að af bókhaldi nefndar-
innar megi ráða að áður-
nefndur þriðjungur upp-
hæðarinnar, eða nálægt 40
milljónir króna, hafa farið
til annarra verkefna í Þjóð-
leikhúsinu en heimildir
voru fyrir og gagnrýnir
forsvarsmenn leikhússins
fyrir að láta það viðgang-
ast.
Stefán Baldursson þjóð-
leikhússtjóri hefur verið
annar tveggja meðlima
byggingarnefndarinnar
auk formannsins Árna
Johnsens. Ríkisendurskoðandi
segir í skýrslu sinni um Árna að
þótt svo virðist sem nefndin hafi
haldið fjölmarga fundi liggi
ekkert fyrir um efni þeirra
því til þeirra hafi jafnan ver-
ið boðað með óformlegum
hætti og engar fundargerðir
haldnar. Ríkisendurskoðandi
tekur fram að þjóðleikhús-
stjóri hafi ekki verið boðað-
ur á og setið ekki nema hluta
fundanna.
„Ljóst er þó að verka-
skipting innan nefndarinnar
virðist frá byrjun hafa verið
með þeim hætti að þjóðleik-
hússtjóri gekk úr skugga um,
gjarnan með eða í samráði við sitt
starfsfólk, hvað brýnast væri að
endurbæta eða kippa í liðinn og
kom með tillögur þar að lútandi,"
segir ríkisendurskoðandi. Sam-
kvæmt þessu hefur það verið
þjóðleikhússtjórinn sjálfur sem
gerði flestar tillögur um útgjöld
byggingarnefndarinnar. Hvort
þær tillögur fólu í sér útgjöld sem
ekki voru á verksviði byggingar-
nefndarinnar kemur ekki fram í
skýrslu ríkisendurskoðanda sem
hann segir þó að verkefnin hafi
markast af athugasemdum ýmissa
opinberra eftirlitsaðila, eins og
t.d. eldvarnareftirlits, um nauð-
synlegar úrbætur í byggingunni.
Ekki náðist í Stefán Baldursson
í gær.
gar@frettabladid.is
STEFÁN
BALDURSSON
Þjóðleikhús-
stjóri gerði jafn-
an sjálfur tillög-
ur um útgjöld.
fótbolti KA sækir Víking heim í
fyrstu deild karla í kvöld klukkan
19. Einnig mætast Leiftur og
Stjarnan og ÍR og Tindastóll.
KA er efst í deildinni og Stjarnan
þarf að sigra til að halda sér meðai
efstu liða.
|kvöIdið í kvöld!
Tónlist 18 Bió 16
Leikhús 18 (þróttir 14
Myndlist 18 Sjónvarp 20
Skemmtanir 18 Útvarp 21
"1 ÞETTA HELST |
Björn Bjarnason mennta-
málaráðherra segir skort á
reglum valda agaleysi. bls. 2
—4—
Kaffi Austurstræti veldur deil-
um. Vertinn er sakaður um
að lána áfengi gegn örorkubót-
um. bls. 2
..♦..-
Hasssmyglarar voru hand-
teknir í Mjóafirði eftir að
hafa reynt að koma hassi frá
Norrænu. bls. 11
—♦—
Hallbjörn segir Skjá Einn hafa
brotið á sér eftir að
sendingum frá útvarpi hans var
hætt í Reykjavík. bls. 11
Landsbankann?
Bók fyrir bók
Skiptibókamarkaður
Pennans-Eymundsson
er opinn á eftirfarandi
tímum:
í Austurstræti:
Mán.-fös: 9-22,
lau: 10-22, sun: 13-22.
í Kringlunni:
Mán.-mið: 10-18:30,
fim: 10-21, fös: 10-19,
lau: 10-18, sun: 13-17.
HLUTABRÉF Eftir há-
degi í dag verður
tilkynnt hverja
einkavæðinganefnd
ræður sem ráð-
gjafa við sölu á hiut
ríkisins í Lands-
banka íslands. Sex
tiiboð bárust sem öll uppfylltu sett
skiiyrði.
KA kemur
í Fossvoginn
BÖRN AÐ LEIK í NAUTHÓLSVÍK Blíðviðri hefur verið síðustu daga og þeir sem hafa
haft tök á að leika sér og baða í Nauthólsvík hafa sannarlega notið lífsins. Börnin á
myndunum eru hugfangin að leik og skemmtan - en senn er sumarfríið á enda og al-
vara námsins tekur við.
Veðurfar:
Veðrið lék við höfuðborgarbúa
veður Veðrið lék við höfuðborgar-
búa í gær og var bjart veður allan
daginn. Mikil stemmning ríkir
jafnan í Nauthólsvíkinni í góðu
veðri og var engin undanteking á
því í gær.
Þangað leitar fólk til að gera
sér glaðan dag og til að njóta al-
mennrar útiveru. Veðurstofan
gerir ráð fyrir léttskýjuðu í dag
og norðlægri eða breytilegri átt
3-8 m/s. Á morgun er gert ráð fyr-
ir skýjuðu með köflum og stöku
skúrum. Hiti á bilinu 7-14 stig. Á
sunnudag verður austan- og suð-
austanátt og rigning með köflum.
Hiti 10 til 17 stig, hlýjast norðan-
lands. ■
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
FRÉTTABLAÐIÐ
Hvaða fréttamiðla notar fólk
á aldrinum 25 til 59 ára?*
89% 88%
(/» <-H
50%
* Höfuðborgarbúar sem nota miðlana einhvern tlmann
70.000 eíntök
70% fólk'. Ies blaðíð
Í72,5% IBUA HOFUÐBORGARSVÆÐISINS A ALDRINUM
5 TIL 67 ÁRA LESA FRÉTTABLAÐIÐ AÐ MEÐALTALI SAMKVÆMTI
KÖNNUN PRICEWATERHOUSECOOPERS FRÁ JULl 2001. |