Fréttablaðið - 17.08.2001, Side 4
4
FRÉTTABLAÐIÐ
17. ágúst 2001 FÖSTUDACUR
SVONA ERUM VIÐ
RÍKISÚTGJÖLD TIL LANDBÚNAÐAR
FRÁ 1988 TIL 1998 (»/o)
Hér sést þróun ríkisútgjalda til landbúnað-
ar sem hlutfall af heildarútgjöldum ríkis-
sjóðs frá 1988 til 1998. Af þessu má ráða
að landbúnaðarframleiðsla hafi síðasta
áratug færst nær markaðslögmálum. Hag-
ræðing varð til dæmis I mjólkurframleiðslu
og bændur fengu ekki lengur greitt fyrir
framleiðslu sína óháð sölu til neytenda.
Skoðanakönnun:
Bush óvinsæll í Evrópu
washington- ap Meirihluti Evrópu-
búa er ósáttur við það hvernig Ge-
orge W. Bush tekur á utanríkis-
málum og telja ákvarðanir ein-
göngu byggðar á bandarískum
hagsmunum. Þeir telja hann jafn-
framt hafa minni þekkingu á mál-
efnum Evrópu en forverar hans í
embætti. Skoðanakönnunin var
gerð í Frakklandi, Ítalíu, Þýska-
landi og Bretlandi, og kom í ljós
að tveir þriðju Þjóðverja, sex af
hverjum tíu Frökkum, helmingur
Breta og helmingur ítala hafa lít-
ið álit á utanríkisstefnu Banda-
ríkjaforesta. ■
FORSETINN SPERRIR EYRUN
Skyldi hann taka mark á skoð-
anakönnunum?
Lögreglan í Reykjavík:
Rauf ekki þagnarskyldu
lögreglumál Ríkissaksóknari
hefur komist að þeirri niðurstöðu
að lögreglumenn hafi ekki rofið
þagnarskyldu þegar þeir veittu
tollvörðum upplýsingar úr lög-
regluskrám. Taldi Ríkislögreglu-
stjóri ástæða til að fá úr þessu
skorið en tilefnið var umræða í
fjölmiðlum um það að lögreglu-
menn hefðu veitt upplýsingar um
umsækjendur um störf hjá ís-
landspósti hf. sem þeir væri að
lögum óheimilt.
í niðurstöðu ríkissaksóknara
kemur fram að samkvæmt fram-
burði lögreglumanna hafi toll-
vörðum einungis verið veittar
upplýsingar úr lögregluskrám í
samræmi við samstarfssamning
ríkislögreglustjóra og ríkistoll-
stjóra. Einnig kemur fram að nið-
urstaðan var fengin með hliðsjón
af lýsingu lögreglustjórans í
Reykjavik á fyrirkomulagi upp-
lýsingamiðlunar og að samkvæmt
samningnum þykir ekki vera
ástæða til að ætla að lögreglu-
menn, hvorki þeir sem voru yfir-
heyrðir við rannsóknina né aðrir,
hafi í samskiptum sínum við
starfsmenn tollstjórans í Reykja-
vík rofið þagnarskyldu þannig að
varði við almenn hegningarlög
eða önnur lagaákvæði um trúnað-
ar- og þagnarskyldu opinberra
starfsmanna. ■
Sérstakur viðbúnaður
UNDIRBÚNINGUR AÐ HEFJAST
Nefnd um einkavæðingu gengur til samn-
inga við fjármálafyrirtæki um ráðgjöf við
sölu á hlut ríkisins I Landsbankanum og
eftir það verður hafist handa við að undir-
búa söluna.
Sala Landsbankans:
Ráðgjafarfyr-
irtækið fundið
einkavæðing Einkavæðingarnefnd
hefur komist að niðurstöðu hverj-
ir verða ráðgjafar nefndarinnar
við sölu á Landsbanka íslands.
Síðustu daga hafa fulltrúar nefnd-
arinnar rætt við fjármálafyrir-
tækið og verður gengið frá samn-
ingum á næstu dögum. í fram-
haldi af því hefst undirbúningur
að sölu á hlut ríkisins í Lands-
bankanum. Tilkynnt verður eftir
hádegi í dag við hvaða fyrirtæki
verður samið.
Sex fyrirtæki sendu inn tilboð í
ráðgjöfina og uppfylltu þau öll
þau skilyrði sem voru sett í útboð-
inu. Fjögur þeirra voru endur-
skoðendafyrirtæki og tvö fjár-
festingabankar og höfðu öll þekk-
ingu á fjármálaþjónustu á al-
þjóðamarkaði. Nefndarmenn eru
mjög ánægðir með þessi tilboð en
hafa valið eitt úr sem talið er að sé
best til þess fallið að vinna með
nefnd um einkavæðingu. ■
Voðaskot í Bandaríkjun-
um:
Tveggja ára
drengur skýt-
ur afa sinn
erlent. Tveggja ára gamall dreng-
ur skaut afa sinn til bana í Ohio-
fylki í Bandaríkjunum nýlega.
Drengurinn hafði verið að leika
sér með hlaðna .45 kalibera
skammbyssu sem var í eigu afans
á heimili hans þegar atvikið átti
sér stað. Hafði stráksi verið með
byssuna á bakvið stól sem afinn
sat í þegar skot hljóp skyndilega
af. Að því er segir á fréttavef
BBC fór það umsvifalaust í sætis-
bak stólsins svo að hinn 55 ára
gamli afi lét lífið nokkrum stund-
um síðar af sárum sínum. ■
1 erlent f
Að minnsta kosti 25 manns lét-
ust og þónokkrir slösuðust
eftir að sprenging varð í ríkisrek-
inni birgðarstöð fyrir sprengiefni
í Tamil Nadu á suðurhluta Ind-
lands. Málið er nú í rannsókn lög-
reglunnar. ■
á Menningarnótt
Tuttugu og tveir löggæslumenn verða eingöngu í því að sinna umferðarmálum.
Gert er ráð fyrir að 60-75 þúsund manns verði í miðborginni. Hverfisgatan hugsuð sem neyðar-
lína úr miðborginni.
Umferðardeild mun sinna eftirliti með lokun gatna I tengslum við Menningarnóttina og nota til þess öll sln lögreglubifhjól og einnig má
búast við lögreglumönnum á reiðhjólum.
LÖGGÆSLA Lögreglan í Reykjavík
hefur ákveðið að vera með sér-
stakan viðbúnað á Menningarnótt
sem haldin er á morgun. Þetta er
gert í ljósi atburða síðasta árs þeg-
ar töluverð umferðarteppa mynd-
aðist þegar flugeldasýningu lauk.
Talið er að 100.000 manns hafi séð
þá flugeldasýningu samkvæmt
skoðanakönnun Gallups. Lögregl-
an gerir ráð fyrir að 60-75 þúsund
manns verði í miðbænum og mun
umferðarlöggæsla aukast til muna
til að liðsinna fólki að komast leið-
ar sinnar úr miðborginni eftir að
hefðbundinni dagskrá lýkur.
Við umferðarlöggæslu verða
um 22 löggæslumenn og munu
þeir aðallega sinna umferð um
Sæbraut, Hringbraut/Miklabraut
og Bústaðaveg að Suðurhlíð.
Verða lögreglumenn á öllum
gatnamótum Hringbrautar frá
Melatorgi að Háaleitisibraut. Þá
verða lögreglumenn á gatnamót-
um á Bústaðarvegi frá Snorra-
braut til og með Suðurhlíð. Sam-
hliða umferðarstjórninni verða
umferðarljós á Sæbraut og Hring-
braut/Miklabraut tekin úr sam-
bandi.
Fjölmörgum götum verður lokað
á laugardeginum bæði i tengslum
við Reykjavíkurmaraþonið og
Menningarnóttina. Hefur lögreglan
ákveðið að loka Hverfisgötu fyrir
allri umferð nema lögreglu, slökkvi-
liði, sjúkrabifreiðum og strætis-
vögnum. Er gatan hugsuð sem
svokölluð neyðarlína með öryggis-
hagsmuni í huga. Lögreglan hefur
haft samband við leigubifreiða-
stöðvar og er þeim bent á að aka
Fríkirkjuveg og inn í Lækjargötu en
þær götur verða lokaðar fyrir allri
almennri umferð. Lögreglan vill
einnig beina þeim tilmælum til öku-
manna að leggja bílum sínum í ná-
grenni miðborgar og nefndi m.a.
Vatnsmýrina, bílastæði við Háskóla
íslands og Skúlagötuna.
Tvöföld löggæsla verður að
störfum þessa nótt en að sögn
Geir Jóns Þórissonar, yfirlög-
regluþjóns, er ekki búist við að
sama ástand skapist og varð 17.
júní sl. Sagði hann Menning-
arnóttina vera meira fjölskyldu-
hátíð en þrátt fyrir það yrði fylgst
mjög vel með allri hópsöfnun ung-
linga. Geir Jón sagði að þrátt fyr-
ir þennan viðbúnað lögreglunnar
á Menningarnótt yrði fólk samt að
gera ráð fyrir því að það yrði
lengur úr miðborginni en almennt
gerðist og beindi þeim tilmælum
til fólks að sýna þolinmæði.
kolbrun@frettabladid.is
flugdjarfir Filipseyingar:
Ráðast til atlögu við eldfjall
SANTA JULIANA. FILIPSEYJUM, AP Á
annan tug manna af ættflokknum
Aeta á Filipseyjum hélt í gær,
fimmtudag upp hlíðar eldfjallsins
Pinatubo, sem hvað eftir annað
hefur valdið óbætanlegu tjóni þar
í landi. Ætlun hópsins er að þur-
rka upp allstórt stöðuvatn sem
myndast hefur í gíg fjallsins, en
þorpin við rætur fjallsins búa vjð
stöðuga flóðahættu vegna þessa
stöðuvatns sem nú er orðið fimm
metra djúpt.
Ætlunin er að höggva skarð í
lægsta hluta gígbarmsins, þannig
að vatnið renni úr honum og af-
stýra með því flóðahættunni.
Hef jast átti handa í dag, föstudag,
en fyrsta verkið verður þó að
fórna grísi sem hafður var með-
ferðis til að friða máttarvöldin.
Raymundo Punongbyan, yfir-
maður eldfjalla- og jarðskjálfta-
stofnunar Filipseyja, sagðist
halda að þetta væri í fyrsta sinn
sem gerð er tilraun til þess að
tæma vatn úr gíg eldfjalls með
þessum hætti. A Indónesíu hafi
svipað stöðuvatn reyndar verið
tæmt með því að bora gegnum
gígbarminn, en sú aðferð þótti of
kostnaðarsöm. ■
AP /AARON FAVILA