Fréttablaðið - 17.08.2001, Page 9
FÖSTUDAGUR 17. ágúst 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
9
Stéttakerfi hindúa í Nepal:
Mismunun bönnuð
KATMflNDÚ. nepal. ap Forsætisráð-
herra Nepals skýrði í gær frá því að
mismunun gagnvar Dalítum, hinum
stéttlausu, yrði bönnuð með með
lögum.
„Frá og með deginum í dag verð-
ur ósnertanleiki og sérhver mis-
munun byggð á honum talin afbrot
sem sætt getur þungri refsingu,"
sagði Sher Bahadur Deuba, forsæt-
isráðherra. Hann skýrði þó ekki frá
því hver refsingin væri. Yfirlýsing-
in kom mjög á óvart og stjórnar-
andstæðingar hafa hrósað forsætis-
ráðherranum fyrir þetta skref.
Deuba komst til valda í síðasta
mánuði eftir að óvinsæll forveri
hans hafði sagt af sér í kjölfar
harmleiksins í konungshöllinni þar
NÝJU KONUNGSHJÓNIN
Gyanendra konungur og Komal drottning
á tali við einn þegna sinna.
sem konungsfjölskyldan var öll
myrt. Á Indlandi hefur mismunun
gagnvart Dalítum verið bönnuð í
stjórnarskrá frá því 1950, en það
hefur þó ekki komið í veg fyrir að
Dalítum er enn í dag gróflega mis-
munað þar í landi og nánast úthýst
úr öllu samfélagi Indverja. ■
%% Æ& fð j
T ■
! fj 'jf,. 4 s J|
h " -fji
Ji ^ i • ;j
-. /v?
JÓN MAGNÚSSON
Vilji starfsmaður fylgjast
með einstaklingnum þá
er hægt að sjá hvort
hann er að kaupa þetta
eða hitt og hefur pánast
innsýn ofan í ruslatunnu,
hVað þá'trieira."
Fráleitt fyrirkomulag
Upplýsingar um viðskiptavini banka liggja fyr-
ir hunda og manna fótum.
persónuvernd Það ei’ gjörsamlega
fráleitt að ef þú ert í viðskiptum við
banka þar sem starfa t.d. þúsund
starfsmenn, að allir geti skoðað ein-
staklingsbundnar færslur," segir
Jón Magnússon, hæstaréttarlög-
maður, sem hefur meðal annars
tekið þátt í nefndarstarfi um per-
sónuvernd og rafræna greiðslu-
miðla.
Fréttablaðið sagði frá því í gær
að dæmi væru um að starfsmenn
fjármálafyrirtækja fylgdust með
færslum á reikningum viðskipta-
vina, en þar er hægt að sjá hvað er
keypt, hvar, hvenær og fyrir hve
mikið. „Megin hluti af viðskiptum
fólks fer í gegnum rafræn kerfi og
sjást sem færslur á reikningum
viðskiptavina. Vilji starfsmaður
fylgjast með einstaklingnum þá er
hægt að sjá hvort hann er að kaupa
þetta eða hitt og hefur nánast inn-
sýn ofan í ruslatunnu, hvað þá
meira. Það er alveg fráleitt að það
skuli ekki vera meiri hömlur á
þetta aðgengi," segir Jón. Yfirmenn
viðskiptabankanna segja að að-
gangsstjórnun sé viðhöfð. Misjafnt
sé hve mikinn aðgang hver starfs-
maður hafi og sé nauðsynlegur svo
hann geti sinnt þjónustu fyrir við-
skiptavini. Þarna togist því á tveir
hlutir; að geta sinnt upplýsingagjöf
fyrir viðskiptavini og vernda per-
sónuupplýsingar.
Ingi Örn Geirsson, forstöðumað-
ur tölvudeildar Búnaðarbankans,
segir alla helstu stjórnendur útibú-
anna hafa þennan aðgang auk fólk í
bakvinnslu, sem nauðsynlegt sé svo
það geti sinnt sínu starfi. í einstaka
tilfellum er hægt að sjá hvaða
starfsmaður er að skoða tilteknar
upplýsingar eins og myndaskrá
Reiknistofu bankanna.
Benedikt Geirsson, fram-
kvæmdastjóri rekstrarsviðs
SPRON, segir þá starfsmenn sem
þjónusta viðskiptavini hafa aðgang
til að geta brugðist við hans fyrir-
spurnum. Rétt sé að starfsmenn í
hverju útibúi sjái reikninga allra
viðskiptavina SPRON en það sé
nauðsynlegt svo hægt sé að leita
eftir þjónustu í öllum útibúum
sparisjóðsins.
Jón Þórisson, framkvæmda-
stjóri útibúasviðs íslandsbanka,
segir íslandsbanka veita hluta af
starfsmönnum sínum takmarkaðan
aðgang og þannig sé reynt að stýra
aðgangi starfsmanna að það sé í
samræmi við þá vinnu sem sinnt er.
Þá sé ekki hægt að sjá hreyfingar
eða stöðu reikninga viðskiptavina.
Allir voru þeir sammála um mikil-
vægi þessara upplýsinga og sögðu
starfsfólk skrifa undir staðfestingu
á fullum trúnaði við viðskiptavini,
sem reglulega væri minnt á. Ekki
hefur komist upp um brot á þessum
trúnaði hingað til.
Enginn í Landsbankanum var til-
búinn til að tjá sig um málið.
bjorgvin@frettabladid.is
SAMBÝLIÐ TINDASELI
Veðrið lék við heimilisfólkið á Tindaseli og gesti þeirra þegar þau fögnuðu því að kominn
er heitur pottur við húsið.
Sambýlið Tindaseli:
Keyptu heitan pott
fatlaðir Sannkölluð karnival-
stemmning var þegar heimilisfólk-
ið í sambýlinu að Tindaseli 1 bauð
velunnurum sínum til fagnaðar en
tilefnið var að þakka fyrir veittan
stuðning vegna kaupa á heitum
potti. Að sögn Sigrúnar Þorvarðar-
dóttur, forstöðuþroskaþjálfa að
Tindaseli var þetta mögulegt að til-
stuðlan André Bachmann og Stein-
unnar Friðgeirsdóttur, móður eins
piltanna sem býr á sambýlinu.
Sagði hún þau hafa rekið málið
áfram en kaupin voru fjármögnuð
með framlögum foreldra heimilis-
fólksins, velvilja Húsasmiðjunnar
og iðnaðarmanna sem að verkinu
komu. „Þetta er þýðingarmikið og
eins má segja fyrir alla hreyfingu
því fjölfatlaðir eiga mun betra með
að athafna sig í vatni.“ Sigrún vildi
þakka þeim sem að málinu og
komu og þá sérstaklega André
Bachmann. ■
Já, svona gengur þetta,
sumarfríið er varla byrjað þegar það er
búið. En nýtt skólaár þýðir líka ný
ævintýri, nýirvinir, nýirsigrar. Nú þarf
að gera allt klárt fyrir skólann og það er
góð hugmynd að hefja undirbúninginn
í IKEA. Við komum þér á óvart með
frábærum skólavörum: Allt frá •
hugmyndabönkum til skáldsöguskapara.
Komdu við í IKEA.
Verslun IKEA er opin
sem hér segir:
Virka daga kl. 10-18.30
Laugardaga kl. 10-17
Sunnudaga kl. 12-17
Skáldsöguskapari
Hugmyndabanki
Biðstöðubakki
Skólahjólabretti
Langar
frímínútur