Fréttablaðið - 17.08.2001, Page 11
FÖSTUPAGUR 17. ágúst 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
11
Seyðisfjörður:
ERLENl
Fjórir handteknir við hasssmygl
smycl Fjórir menn eru í haldi lög-
reglu á Seyðisfirði en þeir voru
handteknir í gær þegar þeir
reyndu að smygla nokkrum kíló-
um af hassi inn í landið.
Einn mannanna fjögurra var
um borð í Norrænu og henti hann
pakkningu með hassinu fyrir
borð. Menn um borð í skipinu
urðu varir við að pakkanum var
hent fyrir borð og sáu mann á
sæsleða hirða pakkann og þeysa á
brott. Smyglararnir virðast hins
vegar ekki hafa gert ráð fyrir að
varðskipið Týr væri statt í firðin-
um en varðskipsmenn veittu sæs-
leðanum eftirför á gúmbáti.
Sæsleðinn kom að landi í Mjóa-
firði og tóku þar tveir menn á
móti manninum. Þremenningarn-
ir komust hins vegar ekki langt
því lögregla sat fyrir þeim þar
sem þeir voru að keyra upp úr
firðinum og færðu þá til yfir-
heyrslu. Fjórði maðurinn, sem var
um borð í skipinu, var handtekinn
síðar í gær og færður til yfir-
heyrslu ásamt félögum sínum.
Lögreglumaður sem Fréttablaðið
ræddi við í gær sagði að vissulega
hefðu menn stundum reynt að
smygla efni með Norrænu en
sagði að menn hefðu aldrei séð
nokkuð þessu líkt áður. ■
NORRÆNA
Atburðirnir við lok ferðar Norrænu minna einna helst á hasarmynd.
Tuttugu og þrír farþegar, þar
af 10 börn, létu lífið í rútu-
slysi í Kenýa. Rúta fór út af veg-
inum og ofan í á skammt frá höf-
uðborginni Nairobi í gær. Rútan
hafði leyfi til að flytja 23 farþega
en 58 farþegar voru í rútunni
þegar slysið varð.
I apríl síðastliðnum létust 35
manns þegar tvær rútur skullu
saman á brú nærri strandbænum
Malindi, en árlega látast u.þ.b.
2.000 manns í umferðarslysum í
Kenýa. Ástæðan er sögð
hraðakstur og virðingarleysi fyr-
ir umferðarlögunum, en einnig sú
staðreynd að fólki er endalaust
troðið inn í yfirfullar flutninga-
bifreiðar til að tryggja eigendum
þeirra sem mestan gróða.
Hætta á misnotkun
Störf í boði
alltaf fyrir hendi
Tölvukerfi geta verið misnotuð af starfsmönnum sem og „innbrotsþjóf-
um", Siðferðislega kröfur og undirskrift um trúnað eina trygging fyrir
auknu öryggi. Beiðni Símans um lögreglurannsókn barst í gær.
samskipti „í raun mundi ég segja að
starfsmaðurinn, sem grunaður er
um að hafa lesið póst viðskiptavin-
ar Landssímans, hafi gert okkur
greiða með því að vekja fólk til vit-
undar um að þetta sé ekki traust
flutningsleið,“ segir Guðmundur
Ragnar Guðmundsson, formaður
Netverja, sem er hagsmunafélag
fólks sem notar Netið.
„Þegar upp er staðið er ekki
hægt að líta svo á að Netið sé full-
komlega áreiðanlegur miðill hvað
varðar öryggi með tölvupóst eða
hvort pósturinn berist yfir höfuð.
Það er ekki hægt að ætlast til þess
með þessum samskiptaaðferðum
sem eru notaðar," segir Guðmund-
ur.
Fréttablaðinu hafa borist vís-
bendingar um að fjöldi lykilorða
veffyrirtækis á íslandi hafi verið
aðgengileg á vefnum. Viðskiptavin-
ur fyrirtækisins, sem átti eitt lykil-
orðið sem notað var til að komast
inn í póst hans, fékk þá skýringu
hjá þjónustufulltrúa fyrirtækisins
að svona væri alltaf að gerast og
öðrum kvörtunum hans var ekki
svarað.
Guðmundur segir að brotist hafi
verið inn á alla helstu vefþjóna sem
vitað er um og sú hugmynd, að
hægt sé að geyma lykilorð í skrá á
nettengdri tölvu, sé fráleit. Það er
ekkert sem heitir algilt öryggi. Ut-
anaðkomandi menn, starfsmenn,
menn í ábyrgðastöðum eða kerfis-
stjórar geta alltaf komist yfir eða
misnotað upplýsingar.
Það eru gerðar ríkar siðferðis-
legar kröfur til þeirra sem þurfa að
hafa þennan aðgang til að laga það
sem fer úrskeiðis. Þessir aðilar, eða
þeir sem brjótast inn í tölvukerfi,
geta samt sem áður komið málum
þannig fyrir að tekið sé afrit af öll-
um tölvupósti, sem sendur er
EKKERT ER ÖRUGGT A NETINU
Brotist hefur verið inn á alla helstu vefþjóna í heiminum. Við verðum að gera okkur grein
fyrir áhættu sem fylgir gagnaflutningi um Netið. Eins er með umferðina, en fráleitt er að
álykta sem svo að hún sé örugg leið til að ferðast þó við nýtum okkur okkur ýmsa far-
kosti. Það verður bara að fara varlega; bæði í umferðinni og á Netinu.
ákveðnum einstaklingum, eða lesið
póst sem vistaður er á tölvu fyrir-
tækisins.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglustjóranum í Reykjavík
hefur beiðni um opinbera rannsókn
frá Landssímanum, vegna gruns
um að starfsmaður hafi lesið tölvu-
póst viðskiptavinar, borist embætt-
inu. Beiðnin hefur verið send
skýrsludeild þar sem hún fær
málsnúmer og eftir það hefst rann-
sókn.
bjorgvin@frettabladid.is
Útvarp Kántrýbær:
Telur Skjá einn
hafa brotið á sér
útvarpssendincar „Síminn hefur
ekki stoppað frá því það var klippt
á útsendingar okkar og áheyrend-
ur mínir í Reykjavík eru allt annað
en sáttir við þetta“, segir Hall-
björn Hjartarson útvarpsstjóri Út-
varps Kántrýbæjar en Skjár einn
sagði í síðustu viku upp samning-
um við hann um útsendingar
stöðvarinnar í Reykjavík og hófu
útsendingar á Muzik á sömu tíðni í
staðinn.
Hallbjörn segir stjórnendur
Skjás eins hafa brotið samninga á
sér. Annars vegar hafi þeir sagt
samningnum upp með dags fyrir-
vara þegar kveðið væri á um það í
samningnum að gagnkvæmur upp-
sagnarfrestur væri þrír mánuðir
og hins vegar með því að hefja út-
sendingar á nýrri útvarpsstöð á út-
sendingartíðni sem væri skráð á
Útvarp Kántrýbæ og öðrum
óheimil afnot af henni.
Aðspurður um hvað hann
hyggðist gera í framhaldinu sagð-
ist Hallbjörn hafa krafið stjórn-
endur Skjás eins um að fá tíðnina
aftur og að hann hafi við sama
tækifæri lýst því yfir að hann
hyggðist leita alls þess réttar sem
hann ætti. ■
HALLBJÖRN HJARTARSON
Ég læt ekki traðka á mér með þessum
hætti.
Starfsfólk vantar í Póstmiðstöð íslands-
pósts á Stórhöfða við skráningu og flokk-
un bréfa og böggla. Um er að ræða
vaktavinnu í góðu starfsumhverfi.
Umsóknir liggja á skrifstofu Póstmið-
stöðvar íslandspósts að Stórhöfða 32.
Einnig er hægt að sækja um á heimasíðu
íslandspósts http://www.postur.is
V.
Nánari uppiýsingar fást
í síma 580 1250
J
Iblrilú.J.J.lúifl/'LÍI'
Aðstoðarfólk óskast í prentsal,
dag og næturvaktir.
V6 Magnum 3,9L ekinn 82 þús. sjálfskiptur, líknarbelgir,
ABS, cruse control, aksturstölva og dráttarkrókur.
Verð 1660 þúsund stgr. Upplýsingar í síma 896-7825.
Topp hjói
Suzuki
GSXR 1100 92
ekið 40.000 km
Er í toppstandi
Verðhugmynd
400 þúsund
Uppl.s.
564 1512 &
863 0012