Fréttablaðið - 17.08.2001, Blaðsíða 13
FÓSTUDAGUR 17. ágúst 2001
FRETTABLAÐIÐ
13
Sauðárkrókur:
Bakkað
áungan
dreng
umferðarslys Ungur drengur fót-
brotnaði þegar hann varð fyrir
bifreið þar sem hann var að leik á
hjóli sínu á Sauðárkróki á sjötta
tímanum í gær. Ökumaður bif-
reiðarinnar varð drengsins ekki
var þar sem hann var að hjóla á
bílastæði og bakkaði á hann með
fyrrgreindum afleiðingum. Piltur-
inn var fluttur með sjúkrabíl til
Akureyrar þar sem gert var að
meiðslum hans. ■
Islandsbanki vegna
Islandssíma:
Gengið
frá sölu-
tryggingu
viðskipti Sölutrygging íslands-
banka, vegna útboðs .á íslands-
síma, verður greidd Íslandssíma
eftir að niðurstaða Verðbréfa-
þings var ljós. Eftir það mun
bankinn innheimta sjálfur það
sem eftir stendur í samræmi við
skilmála samnings um sölutrygg-
ingu.
I tilkynningu frá bankanum
minnist hann sérstaklega á mál-
efni Fjarskiptafélagsins Títan hf.
Þar segir að afkomuviðvörun fyr-
irtækisins hafi komið bankanum
jafn mikið á óvart og öðrum fjár-
festum í útboðinu.
íslandsbanki hafnar því að
hann hafi ekki byggt útboðslýs-
inguna á nýjustu upplýsingum
enda hafi verið kallað eftir ítar-
legum gögnum um rekstraráætl-
anir Íslandssíma. Miðað við þau
göng, sem bárust bankanum, var
ekki tilefni til annars en að ætla
að þau væru efnislega rétt og full-
nægjandi.
Bankinn minnir á að í útboðs-
lýsingunni hafi verið að finna sér-
stakan kafla með ítarlegri greina-
gerð um þá óvissu og áhættu sem
fólgin er í fjárfestingu í íslands-
síma. Samkvæmt öllu þessu ítrek-
ar íslandsbanki að öll vinna við
skráningu Íslandssíma hafi verið
unnin eftir bestu vitund og vit-
neskju bankans. ■
| LÖGREGLUFRÉTT |
Tveir erlendir ferðamenn slös-
uðust lítilsháttar í bílveltu
sem varð um þrjúleytið í gærdag
í Mjóafirði í ísafjarðardjúpi.
Talið er víst að ökumaður hafi
misst stjórn á bifreiðinni í lausa-
möl. Farið var með hina slösuðu á
Fjórðungssjúkrahúsið á ísafirði
en að sögn lögreglunnar hafði
annar mannanna handleggs- og
fingurbrotnað, en hinn hlaut
minniháttar höfuðmeiðsl.
Kongó:
Lögreglan
skaut dreng
handtökur Lögreglan í Kinasha,
höfuðborg Kongó, handtók í gær
a.m.k. 80 heimilislaus börn sem
gerðu aðsúg að lögreglustöð í
bænum eftir að lögreglumaður
skaut dreng til bana fyrir að
stela.
Amigo Gonde, talsmaður
Mannréttindasamtaka Afríku,
sagði að 15.000 börn, sem búa á
götunni í Kinshasa, sættu iðu-
lega illri og harkalegri meðferð
lögreglunnar, en börnin eru
fórnarlömb bágs efnahags-
ástands í landinu, ofbeldis og
sjúkdóma. Eyðni er til dæmis
mjög útbreidd. ■
Flensborgarskólinn auglýsir
upphaf skólaársins 2001-2002
Nemendur athugið:
Stundatöflur verða afhentar
mánudaginn 20. ágúst kl. 13:00 - 16:00 og
þriðjudaginn 20. ágúst kl. 9:00 - 16:00.
Um leið verður innheimt endurinnritunargjald hjá þeim
sem það eiga að borga.
Nýnemar eru boðaðir til fundar í skólanum
mánudaginn 20. ágúst kl. 13:00.
Kennsla hefst samkvæmt sérstakri stundatöflu
miðvikudaginn 22. ágúst kl. 8:05 og stendur til um ki. 12.
Kennt verður skv. stundatöflu frá og með
fimmtudeginum 23. ágúst.
Kennarar athugið:
Kennarafundur hefst kl. 9.00 mánudaginn 20. ágúst.
Fundir í deildum, samráðsfundir og aðrir fundir verða
mánudag til miðvikudag.
Umsjónarkennarar nýnema hitta nemendur
mánudaginn 20. ágúst kl. 13:00.
Skólameistari
FLENSBORGARSKÓLINN
í HAFNARFIRÐI
BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR
BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVlK • SlMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219
Auglýsing um
deiliskipulag í Reykjavík
í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997, með síðari breytingum, eru hér með
auglýstar til kynningar tillögur að eftirtöldum deili-
skipulagsáætlunum í Reykjavík;
Skólavörðuholt, deiliskipulag.
Skipulagssvæðið afmarkast af Bergþórugötu í
norðaustur, Barónstíg í suðaustur og Eiríksgötu suð-
og norðvestur.
Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að lóð Hallgrímskirkju
minnki, lóð Eiríksgötu 5 stækki, bílastæðum á
svæðinu fjölgi auk þess sem gerð er grein fyrir frá-
gangi bílastæða, gönguleiða og öðrum minniháttar
breytingum.
Laugarás, Hrafnista, deiliskipulag.
Skipulagssvæðið afmarkast af Sæbraut í norður,
lóðum húsa við Norðurbrún og Kleppsveg í austur,
Brúnavegi og Austurbrún í suður og lóðum húsa við
Selvogsgrunn í vestur.
Tillagan gerir ráð fyrir töluverðri uppbyggingu á
lóðinni m.a. að við Brúnaveg verði heimilt að byggja
nýtt hjúkrunarheimili fyrir allt að 60 vistmenn og
heilsugæslustöð fyrir svæði 104 auk þess sem heimilt
verði að byggja íbúðarhús með 12 íbúðum norð-
austurhorni lóðarinnar. Tillagan gerir jafnframt ráð
fyrir ýmsum viðbyggingarmöguleikum við eldri
byggingar, breytingum á bílastæðum, skilgreiningu
lóðarmarka o.fl.
Tillögurnar liggja frammi í sal Borgarskipulags og
byggingarfulltrúa í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga
kl. 10.00 - 16.00 frá 17. ágúst til 14. september 2001.
Ábendingum og athugasemdum skal skila skriflega til
Borgarskipulags Reykjavíkur eigi síðar en 28.
september 2001. Hagsmunaaðilar eru hvattir til að
kynna sér tillögurnar.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins
frests, teljast samþykkja tillögurnar.
Reykjavík, 17. ágúst 2001.
Borgarskipulag Reykjavíkur
M0SFELLSBÆR
Leikskólinn Hlaðhamrar
Viltu starfa með góðu starfsliði og hressum krökkum?
Eigum enn eftir óráðið í lausar stöður næsta skólaár.
Leitum eftir leikskólakennurum, þroskaþjálfa og öðrum
áhugasömum einstaklingum. Um er að ræða heildags
stöðu og stöðu hluta úr degi.
í leikskólanum er lögð áhersla á gæði í samskiptum og
skapandi starf í anda Reggió stefnunnar.
Kjör leikskólakennara eru samkvæmt kjarasamningi
FÍL og launanefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Kjör annarra eru samkvæmt kjarasamningi STAMOS og
Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Nánari upplýsingar veitir undirrituð í síma 566-6351
Leikskólastjóri
BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR
I BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVÍK • SlMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219
Auglýsing um
deiliskipulag í Reykjavík
í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997, með síðari breytingum, eru hér með
auglýstar til kynningar tillögur að eftirtöldum
deiliskipulagsáætlunum í Reykjavík;
Skeifan, deiliskipulag.
Skipulagssvæðið afmarkast af Suðurlandsbraut í
norður, Skeiðavogi í austur, Miklubraut í suður og
Grensásvegi í vestur.
Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að svokallaðri Iðngarðalóð
(Skeifan 11-19 oddatölur og Faxafen 8-14 sléttar
tölur) verði skipt upp á milli núverandi eigenda húsa
á lóðinni, skilgreindar verði götur og gönguleiðir
innan hennar (sem verða í eigu Reykjavíkurborgar)
sem og á svæðinu öllu, ákvarðað hámarksbyggingar-
magn fyrir hverja lóð á svæðinu og bílastæðakrafa
skilgreind. Tillagan gerir jafnframt ráð fyrir að lóðar-
mörk nokkurra lóða, auk Iðngarðalóðarinnar, breytist
vegna breytinga á gatna- og göngustígakerfi auk
ýmissa smá breytinga frá núverandi fyrirkomulagi.
Samkvæmt tillögunni verða mestu viðbyggingar-
möguleikar, miðað við núverandi ástand, á lóðunum
nr. 1 og 11 við Grensásveg og lóðum nr. 5, 9, 13 og
15 í Skeifunni auk þess sem heimilt verður að byggja
allt að 8 hæða bílageymslu- og skrifstofuhús á
sameiginlegri bílastæöalóð Iðngarða, norðan
Skeifunnar 13.
Vatnagarðar 4-28, deiliskipulag.
Skipulagssvæðið afmarkast af Vatnagörðum í norður,
Sægörðum í austur, Sæbraut í suður og vestari lóðar-
mörkum Vatnagarða 4 í vestur.
Tillagan skilgreinir m.a. viðbyggingarmöguleika á
reitnum, sem að mestu eru sunnan við núverandi
hús, bílastæðafjölda, lóðarmörk o.fl.
Tillögurnar liggja frammi í sal Borgarskipulags og
byggingarfulltrúa í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga
kl. 10.00 - 16.00 frá 17. ágúst til 14. september 2001.
Ábendingum og athugasemdum skal skila skriflega til
Borgarskipulags Reykjavíkur eigi síðar en 28.
september 2001. Hagsmunaaðilar eru hvattir til að
kynna sér tillögurnar.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins
frests, teljast samþykkja tillögurnar.
Reykjavík, 17. ágúst 2001.
Borgarskipulag Reykjavíkur