Fréttablaðið - 17.08.2001, Side 14
14
FRÉTTABLAÐIÐ
17. ágúst 2001 FÖSTUDACUR
Enska Úrvalsdeildin að hefjast:
Fjórir Islendingar leika
með Urvalsdeildarliðum
Real Madrid spart
á budduna:
Anelka enn
óborgaður
■ KNATTSPYRNA Real
Madrid skuldar
Arsenal ennþá fyrir
Frakkann Nicolas
Anelka. Hann fór til
Madrid fyrir tveim-
ur árum og kostaði
um 22 milljónir
punda. Madrid á að borga fjórar
milljónir árlega en hefur ekki
ennþá borgað fyrstu afborgun. Ef
þeir bæta ekki sitt ráð fá þeir átta
milljón punda höfuðverk að ári.
Anelka gekk í millitíðinni til liðs
við Paris St Germain. ■
KNATT5PYRNA Keppni í ensku Úrvals-
deildinni hefst um helgina með 11
leikjum. Alls munu fjórir íslenskir
leikmenn leika með liðum í ensku
Úrvalsdeildinni í vetur. Guðni
Bergsson mun leika með Bolton, Eið-
ur Smári Guðjohnsen með Chelsea,
Hermann Hreiðarsson með Ipswich
og Arnar Gunnlaugsson með
Leicester.
Flestir spá því að Man. Utd. muni
standa uppi sem sigurvegari í lok
tímabilsins, enda hefur liðið ekki
misst neina leikmenn heldur styrkt
hópinn með kaupum á tveimur öflug-
um leikmönnum, þeim Hollendingn-
um Ruud van Nistelrooy og Argent-
ínumanninum Sebastian Veron. Þeir
kostuðu samanlagt um 48 milljónir
punda.
Margir athyglisverðir leikir
verða á morgun, en þar ber líklega
hæst leik Man. Utd. gegn nýliðunum
í Fulham, sem unnu 1. deildinna með
fádæma yfirburðum á síðasta tíma-
bili. Fulham með Jean Tigana við
stjórnvölinn hefur styrkt leikmanna-
hóp sinn verulega í sumar m.a. með
kaupum á hollenska landsliðsmark-
verðinum Edwin van der Sar. Aðrir
athyglisverðir leikir eru leikir Midd-
lesbro og Arsenal, Tottenham og
Aston Villa og Liverpool og West
Ham. Á sunnudaginn mætast síðan
Chelsea og Newcastle. ■
AFTUR Á MEÐAL BESTU
Cuðni Bergsson mun leika með Bolton i
ensku Úrvalsdeildinni í vetur, en liðið vann
sér sæti í deildinni í vor.
TVÖ MÖRK GEGN ENGU
Roberto Acuna frá Paragvæ reynir að ná
boltanum af Brasilíumanninum Roberto
Carlos.
Undankeppni HM 2002:
Brasilía bæt-
ir stöðuna
knattspyrna Brasilía sigraði
Paragvæ með tveimur mörkum
gegn engu í undankeppni HM 2002
á miðvikudagskvöld. Fyrra markið
skoraði Marcelinho Paraiba, fram-
herji Hertha Berlin, eftir aðeins
fjórar mínútur. Hann skallaði bolt-
ann í mark eftir fyrirgjöf frá Juli-
ano Belletti, leikmanni Sao Paulo.
Stjarnan Rivaldo bætti síðan sein-
na markinu við þegar stutt var eft-
ir af leiknum. Hann skallaði einnig
í mark, í þetta skiptið eftir fyrir-
gjöf frá Denilson, leikmanni Real
Betis.
Vörn Paragvæ var sterk og
leyfði mótherjunum ekki að skapa
mörg færi. Þá var Rivaldo heppinn
að fá ekki dæmt á sig víti eftir að
hafa rekið hendina í boltann þegar
hann var að hreinsa í horn. Sigur-
inn er þýðingamikill fyrir Brasilíu,
sem er ennþá í fjórða sæti í sínum
riðli en fjögur efstu liðin komast
beint á HM. Úrúgvæ er þremur
stigum á eftir í fimmta sæti.
Argentína sigraði Ekvador ein-
nig með tveimur mörkum gegn
engu á miðvikudag. Juan Sebasti-
an Veron og Hernan Crespo skor-
uðu mörkin. Argentína er enn í
fyrsta sæti riðilsins og öruggt inn
á HM þar sem liðið getur ekki fall-
ið niður í fimmta sæti í þeim fjór-
um leikjum sem eftir eru. ■
Formúla 1:
Schumacher
gagnrýndur
kappakstur Ron Dennis, fram-
kvæmdastjóri McLaren-liðsins í
Formúlul, segir að stjórn keppn-
innar leyfi Michael Schumacher
að komast upp með meira en aðrir
ökumenn. Flann geri hluti, sem
aðrir fengju ekki að gera.
Dennis gagnrýnir helst ökulag
Schumacher í upphafi keppni sem
hann segir oft vera ansi vafasamt,
sérstaklega þegar komið er að
fyrstu beygjunni eftir startið.
Hann segir að Ayrton Senna heit-
inn hafi einnig alltaf fengið að
njóta vafans á sínum tíma.
„Ég styð ekki svona mismunun
en ég skil hana,“ sagði Dennis.
„Ég hef ekkert á móti Michael en
maður spyr sig að því hvort ekki
sé alltof mikil virðing borin fyrir
honum." ■
„Þetta er fínt en ég veit
ekki hvort ég verð rík“
Margrét R. Olafsdóttir hefur leikið með Philadelphia Charge í bandarísku atvinnumannadeild-
inni í knattspyrnu í sumar. Liðið leikur í undanúrslitum keppninnar um helgina en Margrét
ákvað að leika frekar með landsliðinu gegn Rússum á morgun.
knattspyrna Margrét R. Ólafs-
dóttir er nú í þann mund að ljúka
sínu fyrsta tímabili með banda-
ríska atvinnumannaliðinu Phila-
delphia Charge, en þar hefur hún
leikið í sumar ásamt Rakel Ög-
mundsdóttur. Charge hafnaði í
fjórða sæti deildarinnar og vann
sér þar með sæti í undanúrslitum,
þar sem liðið leikur gegn Atlanta
Beat, sem hafnaði í efsta sæti
deildarinnar. Undanúrslitaleikur-
inn verður um helgina, en í stað
þess að taka þátt í honum ákvað
Margrét að koma heim og leika
með landsliðinu gegn Rússum á
morgun. Rakel ákvað hins vegar
að leika með Charge.
„í rauninni var það bara mitt
að ákveða hvort ég kæmi eða
ekki,“ sagði Margrét, sem verður
fyrirliði í leiknum á morgun. „Að
sjálfsögðu var það erfitt, en
landslið er landslið og ég tók þá
ákvörðun að lokum að koma hing-
að.“
Margrét sagði að þjálfari
Charge hefði ekki sett neina pres-
su sig, heldur hefði hann sagt að
þetta væri alfarið undir henni
komið og að hann myndi virða
ákvörðun hennar, þar sem lands-
leikir væru alltaf mjög sérstakir.
Margrét sagðist vera mjög
ánægð með dvölina úti í Banda-
ríkjunum. Sérstaklega það hver-
su mörg tækifæri hún hefði feng-
ið með byrjunarliðinu í upphafi
leiktíðar, en hún byrjaði inni á í
fyrstu átta leikjunum.
„Það eru tuttugu góðar stelpur
í liðinu og barátta á hverri ein-
ustu æfingu um að komast í 16
manna hóp. Ég held ég hafi feng-
ið mikla reynslu út úr þessu og
bætt mig að einhverju leiti. Þetta
hefur verið gífurlega gaman.“
Margrét sagðist telja að mögu-
leikar Charge á að komast í úr-
slitaleikinn væru ágætir.
„Við erum að spila á móti Atl-
anta sem við höfðum þrisvar leik-
ið gegn í sumar. Við höfum gert
tvö jafntefli og tapað einum leik
fyrir þeim. Þær eru með mjög
sterkt lið eins og öll fjögur efstu
liðin. Ég er að vonast náttúrlega
til þess að við komumst í úrslit
þannig að ég geti tekið þátt í úr-
slitaleiknum, sem fer fram 25.
ágúst.“
Umgjörð bandarísku deildar-
innar er mjög góð og um 5.000 til
10.000 áhorfendur mæta á leiki
liðanna.
„Þetta er allt annað en hérna
heima. Áhuginn þarna úti er al-
veg gífurlega mikill og það er
mikil lífsreynsla að vera þarna
úti og sjá þetta allt saman og
verða vitni að því sem er að ger-
ast þarna.“
Margrét sagði að áhuginn í
Philadelphia væri mjög mikill og
að liðið fengi alltaf góðan stuðn-
ing frá áhorfendum. Þegar hún
var spurð að því hvort hún væri
orðið þekkt andlit sagði hún að
það væri ótrúlegt hvað margir
þekktu hana.
„Áhorfendur virðast þekkja
alla í liðinu og þeir vita jafnvel
heilmikið um mann.“
Margrét gerði eins árs samn-
ing við Charge, en hún sagðist
fastlega gera ráð fyrir því að hún
yrði áfram hjá liðinu. Tímabilinu
íyki 25. ágúst, eins og áður sagði,
og að undirbúningstímabilið hæf-
ist síðan í febrúar og ný deildar-
keppni í maí. Hún sagðist hins
vegar ekki hafa rætt formlega við
þjálfarann um áframhaldandi
veru sína hjá liðinu.
„Hann spurði mig að vísu að
því í sumar hver væri mín stefna
og hvað ég héldi um mitt fram-
ÞJÁLFARINN OG FYRIRLIÐINN
Jörundur Áki Sveinsson, þjálfari íslenska
kvennalandsliðsins, er eflaust ánægður
með þá ákvörðun Margrétar Ólafsdóttur
að leika frekar með landsliðinu gegn
Rússum en Philadelphia Charge gegn
Atlanta Beat..
hald og ég gaf honum það bara í
skyn að ég hefði áhuga á að vera
þarna áfram. Eitt ár er bara ekki
nóg finnst mér. Ef ég verð ekki
áfram hjá Charge held ég að það
sé alveg möguleiki á því að ég
komist að hjá öðru liði.“
Aðspurð vildi Margrét ekki tjá
sig mikið um það hvort það væru
miklir peningar spilinu í banda-
rísku atvinnumannadeildinni.
„Ég veit ekki hvort ég sé að
verða rík en þetta er mjög fínt.
Það er hægt að segja að þetta sé
eins og góð vinna hérna heima og
síðan er ég að gera það það sem
mér þykir skemmtilegt."
trausti@frettabladid.is"
Ísland-Rússland í undankeppni HM 2003:
Fimm nýliðar í liðinu
knattspyrna íslenska kvenna-
landsliðið í knattspyrnu leikur
sinn fyrsta leik í undankeppni
Heimsmeistaramótsins í knatt-
spyrnu, sem fer fram í Kína árið
2003, gegn Rússlandi á KR-vellin-
um á morgun kl. 14. íslendingar
leika í 3. riðli en auk þeirra og
Rússa eru ítalir og Spánverjar í
riðlinum.
Jörundur Ákason, þjálfari ís-
lenska liðsins, sagðist búast við
erfiðum leik, þar sem Rússarnir
væru með gríðarlega sterkt lið.
ísland hefur þrisvar leikið gegn
Rússlandi, tapað tvisvar en einu
sinni náð jafntefli. Að sögn Jör-
undar er mikið um meiðsli í her-
búðum íslenska liðsins og því eru
5 nýliðar í hópnum, þær Erna B.
Sigurðardóttir og Eva S. Guð-
björnsdóttir úr Breiðabliki,
Katrín H. Jónsdóttir og Laufey Jó-
hannsdóttir úr Val, og Elín Jóna
Þorsteinsdóttir úr KR.
ísland leikur tvo leiki í viðbót á
þessu ári. Gegn ítölum á heima-
velli þann 8. september og gegn
Spánverjum á útivelli þann 30.
september.
Riðlar 1 til 4 í undankeppni HM
eru skipaðir liðum í efri styrk-
leikaflokki Knattspyrnusambands
Evrópu. Sigurvegararnir fara
beint í úrslitakeppnina í Kína, en
liðin í 2. sæti leika aukaleiki um
eitt laust sæti í úrslitakeppninni.
Liðin sem enda í neðstu sætunum
leika síðan aukaleiki um fall í
neðri styrkleikaflokk. ■
NÝTT MÓT
(sland leikur sinn fyrsta leik í undankeppni HM í knattspyrnu gegn Rússum. Liðin hafa
þrisvar mæst. Tveimur leikjanna lauk með tapi, en einum með jafntefli.