Fréttablaðið - 17.08.2001, Blaðsíða 16
16
FRÉTTABLAÐIÐ
17. ágúst 2001 FÖSTUDAGUR
BESTA PLflTAN
RACNAR KJARTANSSON
myndlistarmaður
í stofunni hjá Rubin
„Það hefur enginn loðað jafn lengi við
mig og Johnny Cash. Hann er eini mað-
urinn i heiminum sem ég ber virðingu
fyrir. Ég var að keyra um landið og tók
16 Cash diska með. Best ér American
Recordings trílógían, sem Rick Rubin
tók nýlega upp. Ég mæli með henni, þá
sérstaklega fyrsta hlutanum. Þar er
Cash upp á sitt besta, með kassagítar-
inn í stofunni hjá Rubin." ■
DAUÐI YFIR HUNDA!
Hinn valdasjúki persneski köttur, Mr. Ting-
les, brýtur vopnahléð, sem kettir og hund-
ar höfðu gert með sér, og hyggst leiða sína
tegund til heimsyfirráða.
Kettir og hundar
frumsýnd:
Gereyðingar-
stríð í stofunni
KVIKMYNPIR Kettir og hundar fjallar
um gereyðingastríð milli katta og
hunda, sem hefur verið í gangi frá
örófi alda að mönnunum óaðvit-
andi. Jeff Goldblum leikur prófess-
or, sem er að vinna að lyfi gegn
hundaofnæmi. Neðanjarðarsamtök
katta koma sér upp miðstöð ger-
eyðingarstríðsins á heimili hans og
konunnar hans, sem Elizabeth
Perkins leikur. Sá eini sem getur
bjargað bæði hundum og mönnum
er litli hvolpurinn Beagle.
Leikstjórinn Lawrence Guterm-
an er hámenntaður, bæði í eðlis-
fræði, hreyfimynda- og kvik-
myndagerð. Hans fyrsta verkefni
var að leikstýra nokkrum senum í
Antz og fljótlega eftir það fór hann
að undirbúa Cats & Dogs. Ákveðið
var að gera myndina sambland af
tölvubrellum og venjulegum leik,
með áherslu á að allt væri sem
raunverulegast. Það tók tvö og
hálft ár að gera myndina.
Fjöldi leikara kom að ensku tal-
setningu myndarinnar, en hún er
að sjálfsögðu einnig sýnd hér á ís-
lensku. Þar má nefna Tobey
Maguire, Alec Baldwin, Sean
Hayes, Susan Sarandon, Michael
Clarke Duncan, Jon Lovitz og
Charlton Heston. Myndin er sýnd í
Bíóhöllinni, Kringlubíó, Háskóla-
bíó og Nýjubíóum í Keflavík og Ak-
ureyri. ■
www. krakkabonki. is
/ r r r
HASKOLABIO
Sam Neill Wílliam H. Macy Téa Leoni
Þar sem allir salir eru stórir
ALLT A FULLT EFTIR KEPPNINA
Jörgen Olsen, 51 árs, og Niels „Noller" Olsen, 47 ára. Myndin er tekin á Tenerife. „Við fórum þangað til að fá hita, sól og smáslökun
eftir hasar síðasta árs," segir Jörgen.
Olsen bræður á skýi
Hinir geðþekku Danir Olsen bræður halda tvenna tónleika á Broad-
way um helgina. Vinsældir í kjölfar Söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva eru ennþá blússandi.
tónleikar Síðan Olsen bræður
unnu Söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva í fyrra með lag-
inu Wings Of Love hafa vinsæld-
ir þeirra stóraukist og samnefnd
plata selst mikið út um alla Evr-
ópu. Þeir gáfu út nýja plötu í vor,
Walk Right Back, og eru búnir að
vera á tónleikaferðalagi í sumar
að kynna hana.
„Það var ótrúlegt að vinna
keppnina, við þutum upp á him-
inhvolfið eins og eldflaug. Við
bjuggumst alls ekki við þessu,
vorum ánægðir að fá að taka
þátt. Tveir gamlir gaurar sem
höfðu bara gaman að þessu. Veð-
bankarnir sögðu líkurnar á því
að við myndum vinna vera 100 á
móti einum. Þess vegna græddu
margir vina okkar fullt af pen-
ing. Danska Lottóið tapaði mikl-
um upphæðum vegna þess að
Danir veðjuðu auðvitað á okkur.“
Bræðurnir áttu eftir að undr-
ast enn meira. Þó fordæmin séu
mörg er það ekki sjálfgefið að
slá í gegn eftir sigur í keppninni.
„Þetta kom okkur í opna skjöldu.
Við fórum strax ofarlega á vin-
sældarlista í níu Evrópulöndum
og erum ennþá í góðum málum.“
Á eftir Broadway spila þeir í
Kreml í Moskvu. Síðan tekur
m.a. við St. Pétursborg, Singapo-
ur, Þýskaland og Svíþjóð.
Olsen bræður eru búnir að
vera í bransanum frá 1962.
„Fyrstu stóru tónleikarnir voru
þegar við hituðum upp fyrir The
Kinks ‘65. Við slógum í gegn
1971. Þá lékum við báðir í söng-
leiknum Hárinu með Eddie
Skoller. í kjölfarið fengum við
fyrsta plötusamninginn og fór-
um til London til að taka upp. Þar
unnum við með Peter Knight,
upptökustjóra Moody Blues. Úr
krafsinu varð fyrsta danska plat-
an sem seldist í fleiri en 100 þús-
und eintökum. Þetta var rosa-
legt. Við vorum algjör poppgoð,
keyrðum í eðalvögnum og stelp-
urnar öskruðu af aðdáun,“ segir
Jörgen og hlær.
Bræðrunum skaut aftur upp á
yfirborðið í byrjun níunda ára-
tugarins. Þá náði lagið Marie
Marie miklum vinsældum í
Þýskalandi og allri Skandinavíu.
Þjóðverjar hafa ekki gleymt
þessu því þeir njóta enn mikilla
vinsælda í Þýskalandi. „Við höf-
um alltaf sungið tvíraddað á
ensku vegna þess að breskar
hljómsveitir sjöunda áratugar-
ins veittu okkur fyrst innblástur.
í Þýskalandi syngjum við hins-
vegar á þýsku. Útgáfufyrirtækið
okkar, EMI, sá til þess að við tök-
um upp plötu á þýsku á næst-
unni.“
Bræðurnir hafa aldrei áður
komið til íslands en hlakkar til.
„Við spiluðum að vísu í Færeyj-
um um daginn. Það er nú ekki
langt á milli ykkar. Það var gam-
an, sveitin æðisleg og fólkið
skemmtilegt. Annars erum við
ánægðir með að spila á tvennum
tónleikum á Broadway. Þetta er
langt ferðalag þannig að það er
um að gera að nýta ferðina."
halldor@frettabladid.is
Forsýning kl. 12 IBLINKANDE LYGTER kl. 5.45,8 o* 10.151
JCATS AND DOGS m/ensku tali 6,8, 10 og 12.151 THE VIRGIN SUICIDE kl. 6 og 101
IbRIDCETJONES'S DIARY kl. 6, 8, 10 og 12| fflLL SAMMANS Íd 8 j
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 vrr 258 IJURASSIC PARK III_______kl. 4,6,8 og lol;u"
jSHREK m/íslensku tali kl. 4 og6i v" |BRIDGET jones DIARIES kl.4,6,8og,0|^l
[SHREK m/ensku tali kl. 4.6.8 og 101 R’ýj fPEARL HARBÖR
' FRÉTTIR AF FÓLKll
Amerísk bók sem var nýlega
gefin út og fjallar um ástar-
líf William jjrins greinir illa frá
og er algjörlega
fyrirliteg sam-
kvæmt yfirlýs-
ingu úr St.
Jámes’s höll. The
New York Post
birti grein á
þriðjudag með
fyrirsögninni
„Glaumgosinn
William er kynlífsvél: bók“. Þar
er fjallað um bókina' „Strákarnir
hennar Díönu: William og Harry
og móðirin sem þeir elskuðu“,
sem er eftir Christopher Ander-
sen. í bókinni er sagt að William,
sem er 19 ára, hafi nú þegar öðl-
ast orðstír sem „eins manns
jarðýta meðal stúlknanna" og að
hann hafi verið duglegur við að
hoppa úr einu rúmi í annað þær
vikur sem hann vann sjálfboða-
starf í Chile á síðasta ári. Skrif-
stofa föður hans, Karls prins, í
St. James’s höll þar sem allir
feðgarnir búa, brást fljótt og
reiðilega við útgáfunni. Hún
sagði bókina innihalda hlægileg-
ar ásakanir. Smáatriði hennar
hafa ekki enn komist í fyrirsagn-
ir breskra dagblaða og útgefand-
inn í New York segir það ekki á
döfinni að gefa hana út í Bret-
landi.
Mikið getur það verið pirr-
andi þegar fólk lendir á
snekkjunni manns fyrir slysni.
Tískukóngurinn
Valentino veit
það manna best.
Hafnarlögreglan
í Ibiza fékk upp-
hringingu frá
honum um helg-
ina þar sem hann
kvartaði sáran
undan því að
ókunnug þyrla lækkaði flugið
óþægilega nálægt snekkjunni
hans og gerði sig líklega til að
lenda á þilfarinu. Hann róaðist
þó niður þegar það kom í ljós að
allt var þetta misskilningur.
Flugmaður þyrlunnar er erfingi
Barilla pasta auðæfanna og rugl-
aðist á snekkju Valentino og
snekkju vinar síns Massimo
Gatti, sem er ítalskur auðjöfur.
„Þær eru líkar ... úr lofti,“ út-
skýrði pastaflugmaðurinn
skömmustulega.
NABBI