Fréttablaðið - 17.08.2001, Síða 18
18
FRÉTTABLAÐIÐ
17. ágúst 2001 FÖSTUDAGUR
HVER ER TILCANGUR
LÍFSINS?
Guðlaugur Þór Þórðarson
borgarfulltrúi
Tilgangur lífsins er að vera betri maður í
dag en i gær.
Gallerí Sævars Karls:
Óður til
frelsisins
MYNDiisT Steinunn Þórarinsdóttir
myndhöggvari opnar í dag sýningu
í Galleríi Sævars Karls í Banka-
stræti. Verkin á sýningunni eru öll
ný af nálinni. Inntak sýningarinnar
er óður til frelsisins og er í verkun-
um að finna ákveðnar hugmyndir
um þörf mannsins til að fljúga bæði
í eiginlegri og óeiginlegri merk-
ingu. Verkin eru þó fyrst og fremst
til að njóta og upplifa á eigin for-
sendum.
Verk Steinunnar er að finna á
söfnum bæði hér heima og erlendis
en hún hefur starfað að myndlist í
rúma tvo áratugi og sýnt víða um
heim á undanförnum árum. Á næst-
unni verða settar upp höggmyndir
eftir Steinunni í nýjum högg-
myndagörðum í Bandaríkjunum.
Annar þeirra er í Kaliforníu og hinn
í Texas. Garðarnir eru báðir í eigu
þekkts listaverkasafnara og opnir
almenningi. Sýningin stendur til
30.ágúst. ■
Flugslysið Skerjafirði.
Söfnunarsímar
Ef hringt er í eftirtalin númer
gjaldfærist af reikningi símans,
sem hringt er úr, sem hér segir:
Sími 907 2007 - 1.000,-kr
Sími 907 2008 - 2.000,- kr
Sími 907 2009 - 5.000,- kr
Bankar. er no. 1175-05-409940
Er skammturinn búinn?
Hafðu samband við mig
ef þig vantar vörur.
Kjartan Sverrisson,
sjálfstæður Herbalife
dreifingaraðili
simi 897 2099
Menningarnóttin mín:
Andinn og stemningin
skipta mestu
MENNiNCflRHÁTip „Það er þrautin þyn-
gri að velja og hafna,“ segir Kristín
A. Árnadóttir framkvæmdastjóri
Þróunar og fjölskyldusviðs Reykja-
víkurborgar. „Upplesturinn á Súfist-
anum er orðinn fastur punktur hjá
mér. Kór íslensku óperunnar ásamt
Jóhanni Friðgeiri Valdimarssyni og
Sigrúnu Pálmadóttir finnst mér
mjög spennandi ásamt samsöngnum
sem fylgir í kjölfarið."
Hornfirðingar eru gestir menning-
arnætur í ár. „Mér er afar hlýtt til
þeirra og ætla að mæta á dagskrá
þeirra klukkan 14 í Ráðhúsinu."
Kristín hefur komið nálægt
MEÐ FRÁ
UPPHAFI
Krístín A. Árna-
dóttir merkir við
það sem hún vill
alls ekki missa af.
og stemningin
ingarnótt." ■
menningarnóttinni
frá upphafi og seg-
ist merkja við það
sem hún vilji alls
ekki missa af, en
láti svo hitt ráðast.
„Jafnvel þótt mað-
ur hafi kynnt sér
dagskrána vel, þá
er alltaf svo margt
sem kemur manni
á óvart. Það sem
skiptir svo mestu
er auðvitað andinn
sem alltaf er á menn-
Menningamóttin mín:
Hárin rísa undir regnhlífinni
mennincarhátíð „Ég et’ að hugsa
um að hefja Menningarnóttina á
því að láta hárin rísa undir regn-
hlífinni og horfa ásamt fjöl-
skyldu á áhættuatriði heims-
þekkts fjöllistamanns," segir Sif
Gunnarsdóttir aðstoðarforstöðu-
maður menningarmiðstöðvarinn-
ar Gerðubergs. Hún segir að í
þetta sinn höfði tónlistaratriðin
sterkt til sín. „Næst ætla ég að
fara á rímnaflæðikeppni á Ing-
ólfstorgi enda rímurnar það sem
koma skal. Þar á eftir ætla ég að
fara á stofutónleika hjá Önnu
Pálínu og Aðalsteini. Sif segir að
þegar líði á kvöldið verði hún
ekki eins skipulögð. „Mig langar
hins vegar að hitta Kára Túliníus
og kaupa af hon-
um ljóð. Svo lang-
ar mig líka til að
sjá og heyra kór
íslensku óperunn-
ar sem ég missti
af í fyrra og taka
þátt í samsöngn-
um með þeim. Svo
ætla ég ekki að
missa af ásláttar-
hópnum Böndu
sem ég hef séð
áður og er æðis-
legur. Það ætti
enginn að missa
af því. Svo endar maöur þetta að
sjálfsögðu með flugeldasýning-
unni.“ ■
LANGAR AÐ
KAUPA LJÓÐ
Sif Gunnarsdóttir
nýtur Menningar-
nætur með og án
regnhlífar.
Vesturport við Vesturgötu:
Frumsýning í nýju leikhúsi
LEIKARAR í DISKÓPAKKI
Nanna Kristín Magnúsdóttir og Víkingur Kristjánsson fara með hlutverkin tvö í
Diskópakki
leikhús Vesturport nefnist nýtt
leikhús á horni Vesturgötu og
Norðurstígs sem tekur til starfa
á morgun. Að baki Vesturporti
stendur ungt leikhúsfólk, leikar-
ar, sviðsmyndahönnuðir, ljósa-
hönnuðir, tónlistarfólk og hljóð-
maður. „Þetta verður mikið
menningar- og listahús," segir
Nanna Kristín Magnúsdóttir
leikkona. „Kannski aðallega fyr-
ir okkur, til að þroska okkur sem
listamenn. Innan þessarar vegg-
ja getum við prófað okkur áfram
á annan hátt en við mundum
gera á opinberum vettvangi."
Aðstandendur Vesturports
eru flestir í annarri vinnu þannig
að nýja leikhúsið er tómstunda-
vettvangur þeirra. „Margir leik-
arar eiga hesta og eru á kafi í því
en við erum greinilega svona
takmörkuð að hobbíið okkar er
bara meiri leiklist og öðruvísi
leiklist," segir Nanna Kristín
sem er fastráðin leikari við Þjóð-
leikhúsið.
Við opnun Vesturports verður
frumsýnt leikritið Diskópakk
eftir írska leikskáldið Enda
Walsh en aðrar sýningar eru
ekki komnar á dagskrá leikhúss-
ins. Leikarar í Diskópakki eru
Nanna Kristín og Víkingur
Kristjánsson. Leikstjóri verks-
ins er Egill Heiðar Anton Páls-
son en dramatúrg sýningarinnar
er Magnús Þór Þorbergsson,
ljósahönnuður er Björn Krist-
jánsson og Árni E. er DJ sýning-
arinnar. Karl Ágúst Úlfsson
þýddi verkið.
Leikritið er skrifað árið 1996
og fjallar um tvo unglinga sem
eru að halda upp á 17 ára afmæl-
ið sitt. „Þetta eru krakkar sem
hafa þekkst frá fæðingu og hafa
lifað sínu lífi saman frá því að
þau muna eftir sér. Strax á ung-
um aldri tengjast þau sérkenni-
legum vinaböndum og búa til
sinn eigin heim sem lýtur þeirra
lögmálum," segir Víkingur. „Þau
líta á umhverfið og fólk í kring-
um sig á mjög kaldhæðinn hátt
og kannski sannan,“ heldur hann
áfram. „Unglingar eru mjög
hreinskilnir og segja hlutina ná-
kvæmlega eins og þeir eru,
hvort sem það er gott eða vont,“
segir Nanna Kristín. „Þetta er
leikrit sem ber allar klisjurnar
sem sagðar eru um leikrit," seg-
ir Víkingur að lokum.
Uppselt er á frumsýningu
Diskópakks á morgun kl. 18 en
leikritið verður sýnt aftur kl. 21.
Það verður svo sýnt öll kvöld
nema mánudaga kl. 20 fram til 6.
september.
steinunn@frettabladid.is
FÖSTUDACURINN
17. AGUST
LEIKHÚS____________________________
20.00 Stórsöngleikurinn Wake Me Up
eftir Hallgrim Helgason er sýndur
í Borgarleikhúsinu i kvöld.
20.30 Söngleikurinn Hedwig er sýndur í
Loftkastalanum i kvöld. Aðalhlut-
verkið er í höndum Björgvins
Franz Gíslasonar en Magnús Geir
Þórðarson leikstýrir sýningunni.
Höfundur er John Cameron
Mitchell.
20.30 Light Nights í Iðnó í kvöld. Sýning-
in er flutt á ensku.
SKEMMTANIR_________________________
Snillingarnir verða i góðum gír á Kaffi
Reykjavík í kvöld.
I kvöld leikur Á móti sól á Gauki á
Stöng.
SÝNINGAR___________________________
Forn tré í Eistlandi er yfirskrift sýningar
á Ijósmyndum sem eistneski Ijósmynd-
arinn Hendrik Relve hefur tekið. I Nor-
ræna húsinu eru 18 Ijósmyndir til sýnis
í anddyri hússins. Sýningin er sett upp í
tengslum við Menningarhátíð Eystra-
saltsríkjanna á Norðurlöndum sem
stendur yfir frá 1. september til 1. nóv-
ember 2001. Sýningin er opin daglega
kl. 9 til 17, nema sunnudaga kl. 12 til 17.
Sýningin stendur til 23. september.
Hans Malmberg, en hann var á sinni tíð
í hópi fremstu blaðaljósmyndara Svía.
Ljósmyndasýningin fsland 1951 sýnir ís-
lendinga við leik og störf jafnt í sveit
sem í borg á árunum 1947-1951. Sýn-
ingin er í samvinnu Hafnarborgar og
Þjóðminjasafns (slands og er opin alla
daga nema þriðjudaga frá kl. 11 til 17.
Sýningin stendur til 27.ágúst
MYNDLIST___________________________
Myndlistarmaðurinn Díana Hrafnsdóttir
hefur opnað sýningu á verkum sínum í
Selinu, Galleri Reykjavík, Óðinsgötu-
megin. Díana sýnir tréristur sem unnar
eru á þessu ári og ber sýningin yfirskrift-
ina Undir niðri. Sýningin er opin frá kl.
13 til 18 virka daga og kl. 13 til 16 laug-
ardaga. Á menningarnótt verður sýning-
in opin til miðnættis. Sýningin stendur
til 25. ágúst 2001.
Margrét Reykdal sýnir málverk f
Sverrissal Hafnarborgar, menningar-
og listastofnunar Hafnarfjarðar, sýning á
málverkum Margrétar Reykdal. Sýningin
er opin alla daga nema þriðjudaga og
hún stendur til 27. ágúst.
í Stöðlakoti, Bókhlöðustíg 6 standa
Ljósálfar fyrir Ijósmyndasýningunni Ljós
og skuggar. Myndirnar á sýningunni
voru allar teknar í sumar í Skuggahverf-
inu í Reykjavík. Ljósálfar eru Einar Óli
Einarsson, Friðrik Þorsteinsson, Lars
Björk, Svavar G. Jónsson og Vilmundur
Kristjánsson. Sýningunni lýkur 26. ágúst
[ Gula húsinu stendur myndlistarsýning
Maríu Pétursdóttur, Gula húsinu tjald-
að. Sýningin er innsetning með hljóði
en verkið byggir á viðtölum við þrjár
kynslóðir fólks sem þekkja sögu hússins
eða hafa dvalið þar. Sýningin er opin
mánudaga, miðvikudaga, föstudaga og
sunnudaga frá kl. 14.00 til 18.00 og
stendur til 24. ágúst.
Max Cole sýnir nú í i8gallerí. Myndir
hennar byggjast á láréttum línum sem
myndaðar eru með smágerðum lóðrétt-
um hreyfingum. Samspil láréttra forma
og einsleitra litaflata mynda taktfastan
samhljóm. Sýningin er opin alla daga
nema sunnudaga og mánudaga frá kl.
13 til 17 og lýkur henni 15. september.
Thomas Ruppel sýnir i neðra rými
i8gallerí. Sýningin er opin alla daga
nema sunnudaga og mánudaga frá kl.
13 til 17 og lýkur henni 15. septem-
ber.
Á Sjóminjasafni fslands í Hafnarfirði
stendur nú sýning grænlenska listamanns-
ins Johannesar Kreutzmann. Hann sýnir
málaðar tréskurðarmyndir. Sýningin er opin
milli kl. 13 og 17 og lýkur 2. september.
Birtan í rökkrinu nefnist sýning Huldu
Vilhjálmsdóttur í Gallerí Horninu í
Hafnarstræti. Sýningin stendur til 9.
september.
Ungur Norðmaður, Stian Rönning, sýnir
nú í Gallerí Geysi við Ingólfstorg. Sýning-
in hefur yfirskriftina Sérð Þú það sem
Ég sé. Hann sýnir Ijósmyndir sem eru
teknar á Thailandi, Laos, Noregi og
Island á árunum 1999 til 2001. Sýningin
stendur til loka ágúst.
Þóra Sigurþórsdóttir leirlistarkona sýnir
í Gullsmiðju Hansínu Jens að Lauga-
vegi 20b.
Islenskar þjóðsögur og ævintýri er
þema sumarsýningar Safns Ásgríms
Jónssonar við Bergsstaðastræti 74 í
Reykjavík. Á sýningunni eru margar af
frægustu þjóðsagnamyndum lista-
mannsins og þar má sjá vinnustofu,
heimili og innbú hans. Sýningin stend-
ur til 1. september. Opið alla daga
nema mánudaga kl. 13.30 til 16.00.
Yfirlitssýning Errósafnsins stendur í
Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi. Sýn-
ingin er opin alla daga kl. 10 til 17 en til
kl. 19 á miðvikudögum. Hún stendur til
7. október.
Stórdansleikur
með Hilmari og Pétri á CATALINU
Hamraborg 11, Kópavogi
Föstudags- og laugardagskvöld
Örleikrit á Menningarnótt:
Leikið undir berum himni
leikhús Á Menningarnótt í Reykjavík
verður útileikhús í Öskjuhlíðinni.
Það er Leikfélagið Sýnir sem flytur
örleikrit eftir félagsmenn. Þetta er
hópur fólks sem starfað hefur í
áhugaleikfélögum víða um land,
eins konar sérsveit í heimi áhuga-
leikfélaganna. Fólk sem er burðarás
sinna leikfélaga. „Þessi hópur er af-
sprengi Leiklistarskóla Bandalags
íslenskra leikfélaga,“ segir Hrund
Ólafsdóttir, félagi í hópnum og höf-
undur eins leikritanna.
Hópurinn sýndi í Öskjuhlíðinni í
vor og hélt því næst í leikför út á
land. „Við erum 18 manns í leik-
hópnum og við tókum fjölskylduna
með, vorum í tjöldum og upplifðum
okkur svona eins og alvöru farand-
leikhóp." Hrund segir að sýning-
unni hafi verið feikilega vel tekið.
„Við fengum sérstaklega hlýlegar
móttökur í Hrísey og þar fundum
við hvað fólk var ánægt með að við
skyldum koma til þeirra."
Örleikritin eru sjö talsins eftir
sex höfunda og eru sjö mismunandi
leikstjórar að þeim. Alls standa 30
manns að sýningunni sem er klukk-
an 16 á laugardag við tankasár hers-
Á BEKK f ÖSKJUHLÍÐINNI
Leikfélagið Sýnir bregður á leik í sjö örleik-
ritum I Öskjuhlíðinni í tilefni að menning-
arnótt í Reykjavík.
ins í Öskjuhlíð. Auðveldast er að
aka frá Loftleiðahótelinu í átt að
Nauthólsvík og leggja á bílastæðið
við Flugvallarveginn. ■