Fréttablaðið - 17.08.2001, Side 22
22
FRETTABLAÐIÐ
17. ágúst 2001 FÖSTUPAGUtt
HRADSOÐIÐ
ÁGÚST ÞORSTEINSSON,
framkvæmdastjóri
Þrjú þúsund í
Reykjavíkur-
maraþoni
HVAÐ búist þið við mörgum þátttak-
endum í Reykjavíkurmaraþoninu?
Við búumst við því að um 3.000
manns taki þátt þegar allt er talið.
Um 200 manns taka þátt í maraþon-
inu en langflestir taka þátt í
skemmtiskokkinu. Þar tekur jafnvel
öll fjölskyldan þátt.
HVERNIG
hefur undirbúningurinn
gengið?
Þetta er allt að smella saman. Á
föstudagskvöld [í kvöld] verðum við
með pastaveislu í Laugardagshöll og
þá lýkur skráningu í Reykjavíkur-
maraþonið. Reynsla okkar er sú að
flestir íslendingar skrá sig þá. Þar
verða þátttakendum einnig afhent
gögn fyrir hlaupið.
HVERSU margir útlendingar koma
til landsins til að taka þátt?
Það hafa um 400 manns skráð sig og
hafa þeir aldrei verið fleiri. í fyrra
voru þeir um 300 þannig að fjölgun-
in er töluverð. Þessi fjölgun hlýtur
að sýna að Reykjavíkurmaraþonið
hafi fest sig rækilega í sessi.
Þess má geta að þrír Kenýubúar
munu taka þátt í maraþoninu, einn í
hálfmaraþoni og tveir í maraþoni.
Þeir eru boðsgestir okkar í ár.
HVAÐ hefur Reykjavikurmaraþon ver-
ið haldið í mörg ár?
Þetta er í átjánda sinn sem Reykja-
víkurmaraþon fer fram. í ár verður
maraþonið haldið í annað sinn á
sama degi og Menningarnótt.
ERU
einhverjar breytingar í ár?
í ár hefur hlaupaleið maraþonsins
verið breytt og hálfmaraþoninu að
hluta til. Skemmtiskokkið verður
hins vegar á sömu slóðum og áður.
Eins og fyrr fylgist lögreglan með
því að allt gangi vel auk þess sem
hjálparsveit og læknar verða á staðn-
um ef eitthvað skyldi fara úrskeiðis.
HVENÆR hefst hlaupið?
Maraþonið verður ræst af stað klukk-
an ellefu af Ingibjörgu Sólrúnu Gísla-
dóttur, borgarstjóranum í Reykjavík.
Klukkan tólf verður 3 km og 7 km
hlaupið ræst, klukkan 12:10 hálf-
maraþon, tíu km hlaup og línuskauta-
hlaupið. Lagt verður upp frá Lækjar-
götu og þar lýkur hlaupinu einnig.
Ágúst Þorsteinsson er framkvæmdastjóri
Reykjavíkurmaraþons. Auk þess að skipuleggja
það sér hann um Laugavegshlaupið og fleiri
langhlaup hér á landi.
Bandaríkin:
A1 Gore
breytir
um stíl
nashville. ap. A1 Gore, varafor-
seti Bandaríkjanna í tíð Bills
Clintons, hefur breytt um stíl í
útliti síðan hann lét af embætti.
Gore skartaði alskeggi þegar
hann mætti til fundar á dögun-
um með ungu fólki í Vanderbilt-
háskólanum í Nashville í
Tennisee. Gore var ávallt rakað-
ur og tilhafður í varaforsetatíð
sinni. Nokkrum mánuðum eftir
að hann tapaði forsetakosning-
| FRÉTTIR AF FÓLKlj
Það hefur ekki farið fram hjá
neinum að Menningarnótt er
framundan en undirbúningur
hennar er nú í fullum gangi.
Finnski áhættuleikarinn Iiro er
kominn til landsins og er búinn
að kíkja á aðstæður á Hafnar-
bakkanum. Þar mun hann flytja
áhættuatriði klukkan sjö á Menn-
ingarnótt, sem að sögn kunnugra
er alveg magnað.
Gallerí og söfn eru opin á
Menningarnótt nú sem
endranær. Myndlistamaðurinn
Wfíxtr;; Pétur Gautur
heldur eins og
t *JL- ingu á Menning-
, '^f’ % arnótt. Gestir og
_... . I rekið inn nefið og
1 skoðað málverk
Péturs Gauts og spjallað við lista-
manninn. Undanfarin ár hefur
verið mjög góð stemming hjá
Pétri Gaut og ekki við öðru að bú-
ast í ár. Nokkrir listamenn munu
troða upp á vinnustofunni, sem er
á horni Niálsgötu og Snorra-
brautar. Alfheiður Hanna Frið-
riksdóttir söngkona syngur við
undirleik Steingríms Þórhallsson-
ar, Einar Örn Gunnarsson rithöf-
undur les úr verkum sínum og
Bjarni Bjarnason sömuleiðis.
Ahugasamir um sjónlistir hafa
úr nógu að velja á morgun.
Fyrir utan gallerí, söfn og vinnu-
stofur listamanna,
verða gluggar við
Laugaveg lagðir
undir myndlist.
Gallerí Hlemmur
hefur haft umsjón
um það að boðið
verður upp á
öðruvísi útstill-
ingar í nokkrum gluggum við
Laugaveg. í glugga hárgreiðslu-
stofunnar Rauðhettu og úlfsins
verður og sýnt verk um ferðir
halastjörnustúlkunnar. Stúlkan
sú á erfitt með svefn, sem er við-
eigandi á Menningarnótt, þegar
fáir fara snemma í háttinn.
Verkið sem er unnið af Sigur-
björgu Þrastardóttur, Jean-Marie
Babonneau og Ómari Sverriss-
syni
Næturhrafnar hafa úr ýmsu að
velja á Menningarnótt en
nokkrum böllum verður slegið
upp út um bæinn. Magga Stína og
Hringir verða í Þjóðleikhúskjall-
aranum og hljómsveitin í svörtum
fötum heldur uppi fjörinu í Iðnó.
Karl Bretaprins:
A leið í hnapphelduna?
NÝTT ÚTLIT
Al Gore með skegg.
unum bárust af því fregnir að
hann hefði bætt á sig mörgum
kílóum. Kílóin eru kannski fokin
en skeggið er komið í staðinn. ■
kóngafólk. Karl Bretaprins og
Camilla Parker-Bowles eru á leið
upp að altarinu ef marka má grein
breska blaðamannsins Peter Oborne
í breska tímaritinu The Spectator. í
greininni, sem Oborne segir að hann
mikil rannsókn liggi á bak við kemur
fram að Elísabet drottning hafi þeg-
ar veitt Karli blessun sína, með sem-
ingi þó. Talsmenn konungshallarinn-
ar báru fréttina til baka í samtali við
BBC í gær. í frétt BBC af málinu
segir einnig að miklar vangaveltur
séu um það innan konungsfjölskyld-
unnar hvaða titil Parker-Bowles
komi til með að bera. Öruggt sé að
það verði a.m.k. ekki prinsessan af
Wales því það væri óvirðing við
minningu Díönu prinsessu. ■
MÁ ÉG GIFTA MIC MAMMA?
Karl Bretaprins og móðir hans, Elísabet
drottning, stinga saman nefjum.
Hornfirsk brot af því besta
Hornfirðingar eru sérstakir gestir Menningarnætur í ár. Þeir bjóða
íbúum höfuðborgarsvæðisins upp á sýnishorn hornfirskrar
menningar og náttúru í tilefni dagsins.
HORNFIRÐINGAR ÆTLA AÐ FJÖLMENNA
„Það verður varla þverfótað fyrir Hornfirðingum í bænum," segir Gísli sem hér er ásamt
Ingu Jónsdóttur, formanni menningarmálanefndar Hornafjarðar.
MENNINGARNÓTT „Við ætlum að
flytja til Reykjavíkur úrval af
því besta sem til er fyrir austan,
bæði í menningu og í náttúru,"
segir Gísli Sverrir Arnason, for-
stöðumaður Menningarmiðstöðv-
ar Hornafjarðar. „Það er náttúru-
lega Vatnajökull sem setur mest-
an svip á Hornafjörð og við ætl-
um að flytja brot af honum til
Reykjavíkur. Nánar tiltekið ætl-
um við að veiða tíu tonna ísstykki
upp úr Jökulsárlóninu. Það verð-
ur flutt til Reykjavíkur aðfara-
nótt laugardags og komið fyrir í
litlu tilbúnu tjörninni við Ráðhús
Reykjavíkur."
Skýring tilstandsins er sú að
Hornfirðingar hafa verið valdir
sérstakir gestir Menningarnætur
í ár og í tilefni af því bjóða þeir
upp á skemmtidagsskrá í Ráð-
húsi Reykjavíkur og víðar á
Menningarnótt.
Jökulstykkið verður afhjúpað
kl. ellefu en formleg dagsskrá
Hornfirðinga hefst kl. tvö. „Með-
al efnis verður söngur karlakórs-
ins Jökuls, sem m.a. mun syngja
lög við texta Þórbergs Þórðars-
sonar, sem ættaður er úr hérað-
inu. Inn í þetta verður fléttað
upplestri úr verkum Þórbergs.
Klukkan fjögur verður svo opnuð
sýning á verkum Svavars Guðna-
sonar, sem eru í eigu Hornfirð-
inga, í Grófarhúsinu við
Tryggvagötu. Við viljum minna á
þessa tvo risa í íslenskri menn-
ingarsögu sem eiga rætur sínar
að rekja í héraðið."
Stórbrotin náttúra Horna-
fjarðar verður einnig í brennid-
epli í Ráðhúsinu, myndband um
Vatnajökul verður sýnt og nátt-
úrugripir.
„Síðan ætlum við að sprella
aðeins með söguna. Ingólfur
Arnarson, landnámsmaður og
Hrollaugur Rögnvaldsson, land-
námsmaður í Hornafirði verða á
ferðinni um bæinn og ætla að
kynna sér menninguna í Reykja-
vík,“ segir Gísli.
Klukkan átta standa Hornfirð-
ingar síðan fyrir æsispennandi
keppni í Ráðhúsinu en þá ætlar
Albert Eymundsson, bæjarstjóri
Hornafjarðar að skora á Ingi-
björgu Sólrúnu Gísladóttur,
borgarstjóra Reykjavíkur í
Hornafjarðarmanna. Ekki er
ljóst hver þriðji þátttakandinn
verður, en eins og kunnugir vita
þá er Hornafjarðamanni þriggja
manna spil. „Bæjarstjórinn okk-
ar hefur staðið fyrir mikilli end-
urvakningu Hornafjarðarmanna
þannig að þetta er viðeigandi
keppni."
sigridur@frettabladid.is
Dagsskrá Menningarnætur
hefst með Reykjavíkur-
maraþoni klukkan tólf á hádegi.
Mörg þúsund
manns taka þátt í
hlaupinu og ef-
laust margir sem
gera það fyrst og
fremst vegna fé-
lagsskaparins,
með öðrum orð-
um til að sýna sig
og sjá aðra. Guðmundur Andri
Thorsson rithöfundur mun hafa
líkt Reykjavíkurmaraþoninu
einhvers staðar við Keflavíkur-
gönguna sem herstöðvaand-
stæðingar héldu um árabil og
halda enn. Munurinn er hins
vegar sá að áhugi á göngunni er
ekki sérlega mikill í dag, áhug-
inn á Reykjavíkurmaraþoni fer
hins vegar sívaxandi. Skyldi
vera eitthvað samhengi þar á
milli?
Mörkinni 3, sími 588 0640
Útsalan
hefst í dag
Opið virka daga 10 til 18 og laugardaginn 18. ágúst 10-16