Fréttablaðið - 24.08.2001, Qupperneq 6
6
FRÉTTABLAÐIÐ
24. ágúst 2001 FÖSTUPAGUa
HIV-veiran:
Fimm grein-
dust með smit
heilbrigðismál Fimm manns
greindust með HlV-veiruna hér á
landi á fyrri hluta árs, fjórir karl-
menn og ein kona. Af þeim fimm
sem greindust með HlV-veiruna
voru fjórir gagnkynhneigðir. Á
sama tíma lést einn sjúklingur af
völdum alnæmis.
Alls hefur verið tilkynnt um
148 tilfelli HlV-sýkinga hérlendis,
þar af hafa 52 greinst með alnæmi
og 34 sjúklingar látist af völdum
sjúkdómsins. Nýgengi HlV-smits
hefur farið vaxandi síðustu átta
árin en á sama tíma hefur dregið
úr nýgengi alnæmis og dánartala
lækkað. ■
Söngvarinn George Michael:
Skilaði Lennon-píanói
LONDON.flP, Breska poppstjarnan
George Michael, hefur nú staðið við
loforð sitt um að skila Bítlasafninu
í Liverpool aftur hvíta píanóinu
sem John Lennon gerði heimsfrægt
þegar hann notaði það við upptökur
á hinu sígilda lagi „Imagine." Mich-
ael keypti píanóið, sem er af gerð-
inni Steinway Model Z, á uppboði
fyrir ári síðan fyrir um 200 milljón-
ir króna og lofaði þá að píanóið
skyldi verða sett aftur til sýnis í
safninu, þar sem það hafði verið í
láni þar til fyrrverandi eigandi þess
ákvað að selja það. Michael sagði
píanóið ekki eiga það skilið að vera
lokað einhvers staðar inni, heldur
ætti almenningur að fá að berja það
augum. Michael sagði, eftir að hann
GEORGE MICHAEL
Píanóið var smíðað árið 1970 í Hamborg
og keypti Lennon það sama ár. Pianóið var
nýlega flutt frá heimili George Michael í
lögreglufylgd á Bitlasafnið í Liverpool.
keypti píanóið í fyrra, að hann vildi
taka upp nýtt lag á það fyrir næstu
plötu sína, en ekki er vitað hvort
hann hafi látið af því verða. ■
Dómsúrskurður í Japan:
15 Kóreumenn fá 40
milljónir í bætur
tókýó.ap. Dómsvöld í Japan úr-
skurðuðu í gær að ríkisstjórn
landsins skuli greiða tæpar 40
milljónir króna til 15 Kóreumanna
sem lifðu af sprengingu um borð í
skipi japanska sjóhersins sem
varð til þess að hundruð landa
þeirra létust þann 24. ágúst 1945.
Þetta er fyrsti dómsúrskurðurinn
sem kveðinn er upp vegna máls-
ins, en skipið var að flytja um
4000 Kóreubúa sem þrælað höfðu
í Japan í síðari heimstyrjöldinni
til síns heima þegar sprengingin
átti sér stað í Maizuru höfninni í
Kyoto. Að minnsta kosti 524
Kóreumenn létu lífið ásamt 25
japönskum skipsverjum.
Það var árið 1992 sem um 80
Kóreumenn, sem lifðu sprenging-
una af eða voru skyldir þeim sem
létust, kærðu japanska ríkið fyrir
atburðinn og hljóðaði krafan upp
á 2,5 milljarða króna í bætur aulc
opinberrar afsökunar japanska
ríkisins. í dómsúrskurðinum kom
fram að aðeins var hægt að sanna
að 15 Kóreumenn hefðu verið um
borð í skipinu og þar sem ekki er
vitað hvað olli sprengingunni þá
væri japanska ríkið ekki skyldugt
til að biðjast afsökunar. ■
Drífa Hjartardóttir:
Þrír til fimm
bátar hætta
veiðum
Tapar af 250 milljónum
Hraðfrystihús Hellissands missir 350-400 tonn til trillukarla 1. september. Vestfirðingar eru
aldrei ánægðir. Þeir sem seldu allt frá sér eru nú komnir í smábátakerfið.
DRÍFA HJART-
ARDÓTTIR
Líst illa á málið
og ætlar að ræða
við sjávarútvegs-
ráðherra.
sjávarútvegur „Mér líst alls ekki
nógu vel á þetta því að Vestmann-
eyingar hafa haft töluverðan ýsu-
kvóta.og það ligg-
úr við að það séu
jafnvel þrír til
fimm bátar sem
verða að hætta
veiðum,“ sagði
Drífa Hjartardótt-
ir, þingmaður
Sjálfstæðisflokks-
ins á Suðurlandi,
um breytingar
sjávarútvegsráð-
herra á reglum
fyrir næsta fisk-
veiðiár. Hún bætti
því við að aðgerðir
ráðherrans kæmu til með að hafa
margfeldis áhrif á landvinnsluna.
„Þetta er gert á afleitum stað
og skiljanlegt að menn séu mjög
sárir og reiðir vegna þessa. Ég
mun koma mínum skoðunum á
framfæri við sjávarútvegsráð-
herra vegna þessa máls,“ sagði
Drífa og benti á að þetta væru
ekki einu atvinnutækifærin sem
verið væri að færa frá Suðurlandi
þar sem einnig væri verið að færa
stóran vinnustað frá Hellu í Mos-
fellsbæ og vísaði þar til flutnings
kjúklingavinnslu Reykjagarðs frá
Hellu.
„Það er mikill vandi varðandi
fiskveiðarnar yfir höfuð þar sem
veiðigetan er gífurleg og eykst ár
frá ári en fisknum í sjónum fer
frekar fækkandi heldur en fjölg-
andi,“ sagði Drífa. ■
LÖGREGLUFRÉTTIR
Bifreið fór út af Reykjavegi í
Biskupstungum um níuleyt-
ið í fyrrakvöld. Fjórir voru í
bílnum, hjón með tvö börn, og
var farið með þau á heilsu-
gæslustöðina í Laugarási en
meiðsl þeirra voru talin minni-
háttar. Tildrög slyssins voru
þau að ökumaður missti stjórn
á bifreiðinni í beygju á malar-
vegi. Að sögn lögreglunnar á
Selfossi var eitt dekkjanna
vindlaust og gæti sprunginn
hjólbarði verið orsök slyssins.
Svo virðist sem innbrotarfar-
aldur í bíla einskorðist ekki
við höfuðborgarsvæðið því
brotist var inn í sex bíla á Sel-
fossi í fyrrinótt. Hljómtækjum
og ýmsu lauslegu var stolið,
auk þess sem rúður voru brotn-
ar og aðrar skemmdir unnar á
bílunum. Þjófarnir eru ófundn-
ir.
Vinnuslys varð í slippnum á
Akureyri í fyrradag þegar
málningarsprautubrúsi sprakk
framan í starfsmann. Maðurinn
var fluttur á sjúkrahúsið þar
sem hann fékk aðhlynningu.
sjávarútvegur „Trillui’nar fengu
ákveðna hlutdeild í upphafi en það
er búið að hleypa þeim frjálsum í
__kerfið sýknt og
heilagt og þannig
hirða þetta af bát-
unum hjá okkur,“
sagði Ólafur Rögn-
valdsson, fram-
kvæmdastjóri
Hraðfrystihúss
Hellissands. Ólaf-
ur er einn þeirra
manna sem hefur
keypt mikinn
kvóta dýru verði
og nú þegar nýtt
fiskveiðiár hefst 1.
september munu
350-400 tonn - um
250 milljóna króna
virði - verða tekin
af honum og rétt
trillukörlum.
„Það er alltaf
verið að taka af
okkur og þessi
350-400 tonn sem um ræðir eru
bara í þorski - bæði ýsa, ufsi og
steinbítur er óátalin. Við erum
með tvo báta og höfum ekki getað
gert út á ýsu þar sem hún er bara
meðafli hjá okkur og nú heimta
Vestfirðingar restina. Þessir
sömu menn eru búnir að selja allt
frá sér og eru nú komnir í smá-
„Við erum
með tvo báta
og höfum ekki
getað gert út
á ýsu þar sem
hún er bara
meðafli hjá
okkur og nú
heimta Vest-
firðingar rest-
ina. Þessir
sömu menn
eru búnir að
selja allt frá
sér og eru nú
komnir í smá-
bátakerfið og
ætla að ríða
öllu til helvítis
þar líka."
—♦.........-
ÓLAFUR RÖGNVALDSSON
Vill ekki fara i trilluútgerð.
TRILLUFISKUR SLÆMUR
„Þeir menn sem vilja fyrningarleiðina eru sömu menn og vilja leggja sjávarbyggðirnar af," sagði Ólafur Rögnvaldsson, útgerðarmaður á
Hellissandi. Hann telur að menn muni reyna að aðlagast breytingum í kvótakerfinu þegar þær ganga í garð 1. september. Hann er
ómyrkur í máli þegar hann ræðir um trillukarlana og segir að honum myndi ekki henta að fara í trilluútgerð þar sem hráefnið er ekki
hentugt til útflutnings.
bátakerfið og ætla að ríða öllu til
helvítis þar líka,“ sagði Ólafur og
bætti því við að eina lausnin væri
að loka kerfinu - rétt eins og ver-
ið er að gera núna - til þess að út-
gerðarmenn töpuðu ekki meiru.
Rekstrargrundvöllur útgerðar-
staða muni hverfa á sterkum út-
gerðarstöðum haldi sjávarútvegs-
ráðuneytið áfram að ganga á afla-
heimildir útgerðarfyrii'tækjanna:
„Það er verið að lama þessi sveit-
arfélög."
Er útgerðarmönnum einhver
vorkunn þar sem þeir fengu kvót-
an geflns ?
„Hverjir fengu hann gefins?
Við höfum keypt aflaheimildir
upp á milljarð. Því miður þá spil-
uðum við ekki með kvótakerfinu
frá upphafi og hölluðum okkur að
Vestfirðingum - illu heilli - en við
höfum spilað með kvótakerfinu
undanfarin ár þar sem við sjáum
að það verður aldrei hróflað við
því. Það er ekki hægt að hrófla við
því. Þess vegna kaupum við afla-
heimildir til þess að styrkja okkur
í því og það geta allir gert,“ sagði
Ólafur og bætti því við að hann
sæi ekki að til væri betra kerfi en
kvótakerfið þrátt fyrir galla þess.
omarr@frettabladid.is
Lúðvík Bergvinsson:
Hvað er ráðherrann að gera?
sjávarútvegur „Ilvað er ráðherrann
að gera akkúrat núna?“ spyr Lúðvík
Bergvinsson, þingmaður Sunnlend-
inga fyrir Samfylk-
inguna, um breyt-
ingar sjávarútvegs-
ráðherra, Árna M.
Mathiesen, á regl-
um fyrir næsta fisk-
veiðiár: „Hann virð-
ist hafa tekið
ákvörðun um að
taka tegundir úr
kvóta - þær eru aft-
ur komnar í kvóta -
hann virðist hafa
tekið ákvörðun um
að afhenda trillukörlum hluta var-
anlega og hluta ekki. Ég tel það al-
gjörlega nauðsynlegt að fá fyrst
LÚÐVÍK BERG-
VINSSON
Vill að ráðherr-
ann skýri aðgerð-
ir sínar betur.
upp gefið hvað ráðherrann er að
gera því hringlandahátturinn er
slíkur að engin áttar sig á því hvað
hann er að gera.“
Lúðvík sagði að hann hefði heyrt
í útgerðarmönnum og þeir hefðu
sagt honum að ekki stæði til að
skoða ákvarðanir ráðherrans fyrr
en eftir 1. september „því þá er
fyrst orðið líklegt að þær taki gildi
einhvern tíma.“
Lúðvík sagði að Vestmannaey-
ingar hefðu áhyggjur af gjörðum
Árna og bentu á það að þeir sem
byggju til kerfið þyrftu ekki að
starfa í því.
„Og síðan að hafa þennan ráð-
herra sem virðist vanta áttavita því
hann veit ekkert hvað hann er að
gera,“ sagði Lúðvík. ■
Uppfmning bandarískra vísindamanna :
Nikótíndropar í drykki
heilsa. Bandarískir vísindamenn
hafa nú þróað sérstaka nikótín-
dropa sem hægt er að setja í dryk-
ki til að hjálpa fólki að hætta að
reykja. Hugmyndin er sú að kæfa
niður sígarettuþörf reykingar-
fólks á þeim tímapunkti er þeir
reykja hvað mest, þ.e. í kaffi-
pásum eða á barnum. 1 dropunum,
sem hægt er að taka nokkrum
sinnum á dag, ku vera meira
nikótínmagn en í nikótínplástrum
eða tyggigúmmíi, að því er segir á
fréttavef BBC. ■
REYKINGAR
Brátt geta menn farið að setja
nikótíndropa út í bjórinn sinn til
þess að þurfa ekki að draga upp
sígarettupakkann á barnum.