Fréttablaðið - 24.08.2001, Blaðsíða 14
14
FRÉTTABLAÐIÐ
24. ágúst 2001 FÖSTUDAGUR
Meiðsl í herbúðum KH:
Sigurður
Orn úr leik
KNATTSPYRNA Sigurður
Örn Jónsson, varnar-
maðurinn sterki úr
KR, leikur ekki
meira með liði sínu á
þessari leiktíð. Á
heimasíðu KR kemur
fram að hann hafi
ekki náð sér af hné-
meiðslunum sem hafa
angrað hann í allt
sumar. Þetta er blóð-
taka fyrir íslandsmeistarana sem
eiga í harðri baráttu á botni deildar-
innar en Sigurður hefur verið einn
sterkasti leikmaður liðsins undan-
farin ár. ■
SIGURÐUR
Leikur ekki
meira með Is-
landsmeisturun
um f sumar.
Evrópukeppnin:
Fylkir
áfram
knattspyrna Fylkir er komið áfram
í Evrópukeppni félagsliða eftir 1-1
jafntefli við Pogon Szczecin í Pól-
landi. Fylkir vann fyrri leikinn með
tveimur mörkum gegn einu og
kemst því áfram á samanlögðum
úrslitum 3-2. Pólverjarnir hófu leik-
inn af krafti og skor-
uðu strax á 6. mín-
útu. Kjartan Sturlu-
son, markvörður
Fylkis, átti stórleik í
; markinu og varði
hvað eftir annað
meistaralega. Á síð-
ustu mínútu leiksins
skoraði Pétur Björn
Jónsson eftir eina
slíka og jafnaði leikinn og Fylkir
komið áfram. Skagamenn tóku á
móti Club Brugge á Laugardalsvelli
í UEFA-keppninni. ÍA tapaði fyrri
leiknum í Belgíu með f jórum mörk-
um gegn engu og áttu því litla
möguleika á að komast áfram.
Andri Karvelsson kom Skagamönn-
um yfir á 30. mínútu leiksins en
þegar 23. mínútur voru eftir kom
fyrsta mark Belgana. Þeir bættu
síðan fimm mörkum við, sex mörk-
um í allt og eru því komnir áfram á
samanlagðri markatölu 1-10. ■
KJARTAN
STURLUSON
Átti stórleik í
markinu í gær.
!L<fí<G+
1©C> IiWt>
í Hagkaupum
Smáranum og
þjónustumiðstöð
'' ESSO Gagnvegi
24. ágúst milli
klukkan 16 -18.
www krakkobonki. is
Meistaradeild Evrópu:
Liverpool mætir Dortmund
riðlar Dregið var í riðla í Meist-
aradeild Evrópu í gær og lentu
bæði Liverpool og Arsenal í riðl-
um með þýskum liðum. Liverpool
mætir Dortmund og Arsenal mun
etja kappi við Schalke.
Af ensku liðunum lítur út fyrir
að Man. Utd. hafi verið heppnast í
drættinum en sterkasta liðið sem
þeir mæta er Deportivo la Cor-
una. A-riðill er einkar athyglis-
verður þar sem spænsku og ítöl-
sku meistararnir mætast. Fyrir-
fram virðist Bayern Munchen
hafa lent í léttasta riðlinum. ■
A-RIÐILL: C-RIÐILL: E-RIÐILL: G-RIÐILL:
Real Madrid Arsenal Juventus Manchester United
AS Roma Real Mallorca Porto Deportivo la Coruna
Lokomotiv Moscow Schalke 04 Rosenborg Olympiakos
Anderlecht Panathinaikos Celtic Lille
B-RIÐILL: D-RIÐILL: F-RIDILL: H-RIÐILL:
Liverpool Lazio Barcelona Bayern Munich
Dortmund Galatasaray Lyon Spartak Moskva
Dynamo Kiev PSV Leverkusen Feyenoord
Boavista Nantes Fenerbahce Sparta Prag
MEISTARARNIR
Oliver Kahn og félagar hans í Bayern
Wlunchen voru heppnir í drættinum í gær.
ÍA eða ÍBV meistarar
Arnór Guðjohnsen spáir því að IA muni vinna Islandsmeistaratitilinn en Asgeir Elíasson hefur
trú á því að Vestmannaeyingar muni hampa titlinum. Báðir telja þeir að Breiðablik muni falla
en segja ómögulegt að spá fyrir um það hverjir muni fylgja þeim niður í 1. deild.
ARNÓR
„Ólafur Þórðarson
heldur uppi hefð-
inni á Skaganum."
knattspyrna Arnór Guðjohnsen,
þjálfari og leikmaður Stjörnunn-
ar, spáir því að ÍA muni standa
uppi sem sigurvegari í Símadeild-
inni þann. 22. september, en Ás-
geir Elíasson, fyrrverandi lands-
liðsþjálfari og núverandi þjálfari
Þróttar, segir Vestmannaeyinga
vera líklegasta til að hampa Is-
landsmeistaratitlinum.
„Mótið hefúr
verið nokkuð jafnt
og ég tel að fjögur
lið muni berjast
um titilinn, ÍA,
ÍBV, Fylkir og
FH,“ sagði Arnór.
„Ungu strákarnir
í Skagaliðinu hafa
verið að gera góða
hluti í sumar og
það er greinilegt
að Ólafur Þórðar-
son (þjálfari ÍA)
heldur uppi hefðinni á Skaganum.
Eins og þetta virðist vera að þró-
ast núna virðist mér Skaginn vera
sigurstranglegastur, en það gæti
skorist úr þessu í síðustu umferð-
inni.“
Arnór sagði að KR-ingar hefðu
valdið sér mestum vonbrigðum.
„Þeir eru búnir að vinna síð-
ustu tvö ár og því er hungrið
kannski ekki til staðar núna. Það
lá gífurlega vinna að baki þessum
titlum og þeir þurftu að leggja
mikið á sig. Það gildir síðan um öll
lið að það þýðir ekkert að slappa
af. Það eru ekki mörg lið í deild-
inni, tímabilið er ekki langt og
hlutirnir því fljótir að gerast. Það
er því mjög stutt á milli topp- og
fallbaráttu á íslandi."
Að sögn Arnórs eiga miklar
væntingar í Vesturbænum einnig
sinn þátt í slæmu gengi liðsins.
„Eg hef það á tilfinningunni að
leikmennirnir hafi bara ekki þol-
að þessa pressu. Þeir byrjuðu illa
og hafa ekki náð að rífa sig upp og
þegar hlutirnir ganga ekki vel er
mjög erfitt að fást við utanaðkom-
andi pressu."
Um fallbaráttuna sagði Arnór
að síðan hann hefði komið heim úr
atvinnumennsku hefði aldrei ver-
ið minni spenna á botninum en á
toppnum.
„Breiðablik á þungan róður
fyrir höndum. Það virðist ekkert
ganga hjá þeim, þannig að ég er
svartsýnn fyrir þeirra hönd og
held að þeir fari niður. Ég þori
hins vegar ekki að spá um það
hvaða lið kemur til með að falla
með þeim.“
Arnór sagði að KR-ingar væru
náttúrlega í mikilli hættu. Fram
væri komið með visst sjálfstraust
sem gæti fleytt þeim áfram. Vals-
menn þyrftu einn sigur í viðbót til
að halda sér uppi og hann teldi lík-
legt að þeir gerðu það. Þá sagði
hann að Keflavík og Grindavík
væru ekki laus við falldrauginn,
en hann hefði þó enga trú á að
Grindavík myndi falla.
Ásgeir sagði að
mótið væri búið
að vera mjög
skemmtilegt og
spennandi og að
allt liti út fyrir að
æsispennandi
lokaumferðir.
„Árangur KR
og Grindavík hef-
ur kannski komið
mest á óvart í
sumar, en flestir,
þar á meðal ég,
reiknuðu með
þeim í toppbaráttunni," sagði Ás-
geir. „Annað kemur kannski ekki
á óvart. Þessi lið sem eru að berj-
ast á toppnum eru samt lið sem
maður vissi að gætu vel blandað
■ €láeÍ'<£-'
MEISTARAEFNI
Ásgeir Elíasson sagðist hafa trú á því að ÍBV yrði (slandsmeistari. Arnór Guðjohnsen sagði
að Framarar væru komnir með mikið sjálfstraust sem gæti fleytt þeim áfram, þannig að
þeir héldu sæti sínu í deildinni.
ÁSGEIR
„Það lið sem fær
smáheppni með
sér mun klára
mótið."
sér í baráttuna, þó menn hafi
kannski ekki reiknað með Skagan-
um á toppnum á þessum árstíma
með ungt lið og nokkuð breyttan
mannskap."
Að sögn Ásgeirs eiga FH, Fylk-
ir, ÍBV og ÍA, öll möguleika á titl-
inum.
„Það verða allir leikir erfiðir
núna. Liðin eru annaðhvort að
leika við önnur lið í toppbarátt-
unni eða lið í fallbaráttunni. Mér
sýnist að það lið sem fær smá hep-
pni með sér muni klára mótið og
ég hef trú að að Vestmannaeying-
ar muni gera það. Þeir eiga bæði
ÍA og Fylki eftir á heimavelli."
Varðandi fallbaráttuna sagði
Ásgeir að erfitt yrði fyrir Breiða-
blik að bjarga sér frá falli.
„Manni finnst líklegt að þeir
þurfi að bíta í það súra epli að fara
niður, en það er ómögulegt að spá
fyrir um það hvaða lið muni fylg-
ja þeim. Eg man þá tíð þegar lið
gat fallið með 22 stig og það segir
manni að Keflavík er enn í fall-
hættu, en þeir ættu að vera búnir
að bjarga sér ef þeir vinna einn
leik í viðbót. KR-ingarnir eru nátt-
úrlega í næstneðsta sæti og þurfa
því hagstæðustu úrslitin til að
bjarga sér, en þetta á eftir að ráð-
ast í síðustu umferðinni." ■
Ólafur Stígsson hefur
náð sér vel á strik
knattspyrna Þegar þeir Arnór og
Ásgeir voru spurðir að því hvaða
leikmaður hefði komið þeim mest á
óvart í sumar, sagði Arnór að gam-
an væri að sjá hvað fyrrum félagi
hans hjá Val, Ólafur Stígsson, sem
Smiðir oq verkamenn
Óskum eftir að ráða metnaða-
fulla smiði og verkamenn til
fjölbreyttra starfa úti og inni.
Uppl. í síma 896 7825.
nú leikur með Fylki, hefði náð sér
vel á strik í sumar.
„Maður sá alltaf að það bjó mik-
ið í þessum strák, en hann er búinn
að vera óheppinn með meiðsli,"
sagði Arnór. „Þá hefur Ólafur Ingi
Skúlason hjá Fylki einnig verið
mjög góður og ekki má gleyma
markaskoraranum uppi á Skaga,
Hirti Hjartarsyni. Það er geysilega
mikilvægt fyrir lið að hafa svona
leikmann - týpískan markaskorara.
Það er einmitt það sem KR-inga
hefur vantað." Ásgeir sagðist ekki
hafa séð nægilega marga leiki til að
geta dæmt um það hver hefði stað-
ið upp úr. Hann sagði að Hjörtur
hefði sýnt góða leiki og skorað mik-
ið af mörkum, en að það hefði ekki
komið sér á óvart. Hann hefði verið
að gera það síðustu ár með Borg-
nesingum. ■
Símadeild karla:
Fjórar umferðir
eftir hjá körlunum
15. UMFERÐ: 17. UMFERÐ:
KR - Valur 26.8. 18.00 KR - Fram 16.9. 14.00
Keflavík - fBV 26.8. 18.00 Valur - ÍBV 16.9. 14.00
FH - Breiðablik 26.8. 18.00 FH - Grindavík 16.9. 14.00
lA - Fram 27.8. 18.00 Keflavík - Breiðablik 16.9. 14.00
Fylkir - Grindavík 27.8. 18.00 ÍA - Fylkir 16.9. 14.00
16. UMFERÐ: 18. UMFERÐ:
fBV - Fylkir 8.9. 14.00 Breiðablik - Valur 22.9. 14.00
Grindavík - ÍA 8.9. 14.00 IBV - ÍA 22.9. 14.00
Valur - Keflavík 8.9. 14.00 Fram - Keflavík 22.9. 14.00
Breiðablik - KR 8.9. 16.00 Fylkir - FH 22.9. 14.00
Fram - FH 9.9. 20.00 Grindavlk - KR 22.9. 14.00