Fréttablaðið - 24.08.2001, Síða 8
FRÉTTABLAÐIÐ
24. ágúst 2001 FÖSTUPACUR
| LÖGREGLUFRÉTTIR
Leigubifreið ók á ljósastaur á
Reykjanesbraut á móts við
Stekk í Njarðvík í fyrrinótt. Öku-
maður, sem var einn á ferð,
kvartaði undan eymslum í
skrokknum og var því fluttur til
Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja
til læknisskoðunar.
Sautján ára piltur hefur játað að
hafa smíðað og sprengt röra-
sprengju í Hafnarfirði um síðustu
helgi. Brot úr sprengjunni höfnuðu
í bíl, sem ekið var framhjá þegar
sprengjan sprakk. Pilturinn sagðist
hafa sprengt sprengjuna í húsa-
sundi við Strandgötu til þess að
valda sem mestum hávaða en ekki
til að meiða eða valda skemmdum.
RÚV greindi frá.
Fallhlífarmaður
í New York:
Fastur á
kyndli Frels-
isstyttunnar
new york. ap Maður nokkur sem
heldur betur ætlaði að skemmta
sér við að svífa í fallhlíf yfir höfn-
inni í New York í gærmorgun var-
aði sig ekki á kyndli Frelsisstytt-
unnar og hékk þar fastur í góða
stund þangað til lögregluþjónar
komu honum til bjargar.
Maðurinn var ómeiddur, en
rauð fallhlífin hékk í um það bil
hálftíma á kyndlinum eftir að
manninum hafði verði bjargað. ■
HANGANDI Á KYNDLINUM
Óskemmtileg endalok á svífflugí í fallhlíf.
Sjálfstæði
Ey stras altsrí kj anna:
10 ára afmælis
heimsókn
tíiviaiviót Utanríkisráðherrar Eist-
lands, Lettlands og Litháens koma
hingað til lands á morgun og taka
þátt í afmælisdagskrá á vegum ís-
lenskra stjórnvalda þar sem þess
verður minnst að tíu ár eru um
þessar mundir liðin frá því ísland
varð fyrst ríkja til að taka upp
formlegt stjórnmálasamband við
ríkin.
Afmælisdagskráin hefst með
samráðsfundi utanríkisráðherra ís-
lands og Eystrasaltsríkjanna. í kjöl-
farið verður athöfn í Höfða þar sem
undirritað verður skjal til að minn-
ast atburðanna fyrir tíu árum. ■
LÖGREGLUFRÉTTIR
ð sögn lögreglunnar á Nes-
kaupstað komst farsímasam-
band á seinnipartinn í fyrradag en
símasambandslaust varð í kjölfar
vatnavexta á dögunum. Sagði við-
mælandi Fréttablaðsins bagalegt
ástandið á Norðfjarðarbrúnni sem
hamlaði öllum þungaflutningum
og væru menn að bera saman ráð
sín hvað gera skuli.
—♦-...-
Bíll brann til kaldra kola á
Vopnafjarðarheiðinni um
þrjúleytið í fyrrinótt. Að sögn lög-
reglu er talið að skammhlaup hafi
valdið því að bíllinn brann en hann
hafði staðið mannlaus síðan á
sunnudagskvöld þar sem hann bil-
aði en eigandi bílsins er staddur í
sumarleyfi á Kýpur.
Á SLÓÐUM KARADZICS
Franskur hermaður á eftirlitsferð í bænum
Nevesinje í Bosniu, en þar um slóðir er
talið að Radovan Karadzic sé í felum.
Bosníu-Serbar:
Snúa baki
við Mladic
og Karadzic
nevesinje. bosníu. ap Bosníu-Serbar,
sem i eina tíð studdu nánast allir
sem einn stríðsherrana Radovan
Karadzic og Ratko Mladic, eru nú
tvískpitir í afstöðu sinni.
Frá því Milosevic, fyrrverandi
forseti, var framseldur til stríðs-
glæpadómstólsins, hafa æ fleiri
talið líklegt að friðargæslusveitir
Nató freisti þess að handtaka
Karadzic og Mladic, sem voru í
forystu Bosníu-Serba í Bosníu-
stríðinu á árunum 1992-95.
Allar tilraunir í þá átt gætu
mætt harðri mótspyrnu í austur-
hluta serbneska yfirráðasvæðisins
í Bosníu, þar sem talið er að þeir
Karadzic og Mladic séu í felum. Á
hinn bóginn fer stuðningur við þá
félaga óðum dvínandi vestan til í
serbneska hlutanum af Bosníu og
mælist nú nánast enginn. ■
Upptökur flugturns
ganga gegn niðurstöðu
Obirtar segulbandsupptökur úr flugturninum í Reykjavík frá því í SkerjaQarðarslysinu stangast
á við þá niðurstöðu flugslysanefndar að flugmaður TF-GTI hafi komið of fljótt inn til lendingar.
Friðrik Þór Guðmundsson segir upptökurnar leiða til þess að skýrsla RNF hrynji til grunna.
SKERIAFJARÐARSLYSIÐ Flugumferð-
arstjórinn sem var á vakt þegar
Skerjafjarðarslysið varð sagðist
hafa þurft að skipa flugvélinni
sem fórst að hætta
við lendingu vegna
Átján sekúnd- þess að flugvélin
um síðar virt- sem lent var á
ist flugum- undan var of lengi
ferðarstjóran- að rýma brautina.
um hins vegar Þetta kemur fram
verða Ijóst að á óbirtum segul-
Dorniervélin bandsupptökum úr
frá íslandsflugi flugturninum í
væri enn á Reykjavík sem
brautinni gerðar voru mín-
^ úturnar eftir flug-
slysið. Rannsókn-
arnefnd flugslysa segir flugmann
vélarinnar sem fórst hafa komið
of fljótt inn til lendingar eftir að
hafa verið látinn víkja fyrir vél-
inni sem síðan lenti heilu og höld-
nu.
Friðrik Þór Guðmundsson, fað-
p^jáesm
169
FLUGTURNINN í REYKJAVÍK
„Hann var svo lengi að fara út, Dornierinn. Ég gat ekki réttlætt að púlla honum ekki upp.
Ha?" segir flugumferðarstjóri fáum mínútum eftir flugvél af Cessna gerð með sex manns
um borð hrapaði í Skerjafjörðinn.
ir pilts sem fórst af völdum slyss- Þegar TF-GTI var komin yfir
ins, segir segulbandsupptökurnar Tjörnina hafði Mohamad sam-
úr flugturninum í Reykjavík fyrir
og eftir Skerjafjarðarslysið leiða í
ljós að skýrsla Rannsóknarnefnd-
ar flugslysa um slysið sé ómark-
tæk.
Mohamad Daglas, flugmaður
Cessnu vélarinnar sem bar ein-
kennisstafina TF-GTI, hafði flogið
með fimm farþega sína frá Vest-
mannaeyjum og var yfir olíutönk-
unum í Órfirisey og á lokastefnu
til lendingar á Reykjavíkurflug-
velli þegar honum barst skipun
frá flugturninum um að hætta við
aðflugið. Mohamad átti að víkja
fyrir stærri og hraðfleygari Dorn-
ier farþegavél íslandsflugs sem
kom á hæla honum í blindflugi.
Mohamad sveigði till austurs og
flaug einn hring áður en hann
komst á lokastefnu að nýju.
band við flugturninn og fékk
skipun um að halda aðflugi áfram
hjá flugumferðarstjóranum sem
síðan skipaði Dorniervélinni að
rýma brautina. Þannig virðist
ekkert hafa verið bogið við aðflug
Cessnunar örfáum hundruðum
metra flugbrautinni.
Átján sekúndum síðar virtist
flugumferðarstjóranum hins veg-
ar verða ljóst að Dorniervélin frá
íslandsflugi væri enn á brautinni
og skipaði TF-GTI að hætta við
lendingu en þá var vélin yfir
brautarendanum. Flugmaðurinn
Iyfti vélinni upp og yfir byggðina
í Skerjafirði. Fáum sekúndum
síðar steyptist vélin ofan í Skerja-
fjörð með alkunnum afleiðingum.
í skýrslu Rannsóknarnefndar
flugslysa segir um þessa atburða-
rás: „Hringurinn sem TF-GTI
flaug og flugið á lokastefnunni
varð þannig að þegar TF-GTI var
að koma til lendingar yfir braut-
arendann var ICB-753 (Dornier-
vélin) að aka til vinstri út af flug-
brautinni“. Nefndin segir með
öðrum orðum að Mohamad Da-
glas hafi ekki gætt þess að halda
nægum aðskilnaði á milli sinnar
vélar og þeirrar næstu á undan.
Þessi niðurstaða kemur ekki
heim og saman við orð flugum-
ferðarstjórans sem sjálfsagt er sá
einstaki maður sem besta yfirsýn
hafði yfir gang mála við Reykja-
víkurflugvöll þetta kvöld. Á áður-
nefndum segulbandsupptökum
kemur fram að átta mínútum eft-
ir slysið sagði flugumferðarstjór-
inn:
„Ég púllaði hann upp. Hérna,
Dornierinn var svo lengi að
rýma.“
Fjórum mínútum síðar hnykk-
ir þetta höfuðvitni Skerjafjarðar-
slyssins á stöðumati sínu:
„Hann var svo lengi að fara út,
Dornierinn. Ég gat ekki réttlætt
að púlla honum ekki upp. Ha?“
„Skýrslan er endanlega hrun-
in,“ segir Friðrik Þór Guðmunds-
son. „Vangaveltur flugslysa-
nefndarinnar um að TF-GTI hafi
komið of fljótt inn til lendingar
vegna ætlaðs eldsneytisskorts
eru að engu orðnar. Lykilvitnið,
stjórnandi flugumferðarinnar,
segir í tvígang að vandamálið hafi
verið Dorniervélin en ekki TF-
GTI, sem fékk grænt ljós um að
halda áfram á stuttri lokastefnu
yfir Tjörninni. Við höfum beðið
um afrit innanhússathugunar
Flugmálastjórnar á flugumferð-
arstjórnuninni, sem Þorgeir Páls-
son flugmálastjóri staðhæfði að
farið hefði fram, en ekki fengið
enn. Samgönguráðherra hefur
verið greint frá þessum stað-
reyndum."
gar@frettabladid.is
Milosevic:
Kominn í mál við dómstólinn
haag. hollandi. ap Lögfræðingar
Slobodans Milosevic, fyrrverandi
Júgóslavíuforseta, fóru fram á það
fyrir dómstól í Hollandi í gær að
stríðsglæpadómstóll Sameinuðu
þjóðanna, sem hefur Milosevic í
haldi, verði úrskurðaður ólögmæt-
ur og þess vegna beri að leysa
Milosevic strax úr haldi, enda sé
verið að brjóta á honum mannrétt-
indi með því að halda honum í fang-
elsi á vegum dómstólsins.
Verjendur stríðsglæpadómstóls-
LÖGFRÆÐINGARNIR
Slobodan Milosevic hefur fengið þessa
þrjá lögfræðinga til þess að flytja mál sitt
gegn stríðsglæpadómstólnum, sem hann
hefur kært til hollensks dómstóls
ins sögðu hann hins vegar vera utan
lögsögu hollenskra dómstóla og
þess vegna ætti dómarinn að vísa
málinu samstundis frá. Dómarinn
tók sér hins vegar frest til 31. ágúst
til þess að kveða upp úrskurð sinn.
Milosevic var ekki viðstaddur
réttarhöldin í gær, en afstaða hans
hefur frá upphafi verið sú að stríðs-
glæpadómstóllinn sé ólögmætur
vegna þess að hann er stofnaður af
Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna
en ekki Allsherjarþinginu. ■