Fréttablaðið - 24.08.2001, Page 24
FRETTABLAÐIÐ
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00 Ritstjórn: 515 7515, símbréf: 515 75 06, rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - símbréf 515 75 16 - rafpóstur auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 20
VlÐ SEGiUM FRÉTTIR Fréttavefurinn á VÍSÍV.ÍS Fyrstur með fréttirnar
Grensásvegur10
Sími 553 88 33
OfficelSuperstore
OPK) VIRKA DAGA KL 8-18 • LAUGARDAGA KL 1016
Skeifunni 17, 108 Reykjavík I Simi' 550 4100
Furuvöllum 5, 600 Akureyri I Sími 461 5000
Skóladagar! j
Bakþankar
STEINUNN STEFÁNSDÓTTIR 1
Hænan og
eggið
Oft er talað um að ungt fólk láti
dólgslega þegar það kemur sam-
an en ég held að það sé bara ef það
kemur saman og líður ekki nógu vel.
Á miðvikudagskvöld voru um fimm
þúsund manns á tónleikum Coldplay
í Laugardalshöll. Meirihlutinn var
unglingar og mjög ungt fólk. Þessir
tónleikar voru bæði afar skemmti-
legir og fóru einkar vel fram. Tónlist
Coldplay er enda þannig að manni
líður bara ógnarvel þegar maður
hlýðir á hana og notalegt breskt grín
söngvarans spillti ekki fyrir.
MÓÐIR UNGLINGA fylltist
óneitanlega bjartsýni við að standa
baka til í Laugardalshöllinni og finna
fyrir þessum jákvæða anda sem
sveif yfir vötnum. Stemningin var
gríðarleg og salurinn lét vel í sér
heyra. Fyllirí var ekki sýnilegt þótt
drukkinn væri bjór og ég gat róleg
leyft nýbökuðum táningnum mínum
að fara allra sinna ferða. Tónleikarn-
ir fengu mig til að velta fyrir mér
hvernig framkoma fólks endurspegl-
ar líðan þess. Þetta gildir um börn,
unglinga og fullorðna líka. Ef manni
líður vel hefur maður ekki ástæðu
til annars en að vera vinsamlegur
við næsta mann. Ef eitthvað er hins
vegar að plaga sálartetrið er maður
vís til að taka það út á fólkinu í
kringum mann.
--4---
ÞEGAR FJALLAÐ ER UM nei-
kvæða hegðun, sérstaklega barna og
unglinga, vill brenna við að áhersla
sé lögð á refsingar fyrir slæma
framkomu. Einhvers konar refsing-
ar kunna að vera nauðsynlegar í
sumum tilvikum en mér finnst samt
eðlilegra að líðan fólks sé í brennid-
epli í umræðunni um hegðun. Auð-
vitað verða börn og unglingar að fá
mjög skýr skilaboð um hvaða hegð-
un er í lagi og hvaða hegðun er ekki
í lagi. Refsingar eru hins vegar
vandmeðfarnar og geta aukið á van-
líðan og þá jafnvel alið á óæskilegri
hegðun í stað þess að draga úr henni
eða koma í veg fyrir hana.
NÚ ÞEGAR NÝR KAPÍTULI er
að hefjast í lífi barnanna okkar með
nýju skólaári er gott að skerpa sig í
að hlúa enn betur að börnunum, gera
það sem í okkar valdi stendur til að
láta þeim líða sem best og gefa þeim
skýr skilaboð um hvað ætlast er til
af þeim. ■
Grillsneiðar
Hryggur
Úrvals Súpukjöt
5 x A DAG tfyrír kroppinn
amm
no|at{un
Mundu Blt|
eftir
grænmetinu V
með
lambakjötinu t
I SKOL&LANN
Létt & laggott er viðbit með litlu
fituinnihaldi og tilvalið á brauðið
í skólann. Nú á
20% afslætti í
næstu verslun.