Fréttablaðið - 19.09.2001, Side 15
IWIÐVIKUPAGUR 19. september 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
15
Yfirlýsing frá Liverpool:
Banna öðrum félögum
að ræða við Houllier
knattspyrna Enska knatt-
spyrnufélagið Liverpool
hefur sent út yfirlýsingu
þess efnis að önnur lið megi
ekki ræða við Gerrard
Houllier, stjóra liðsins. Yfir-
lýsingin kemur í kjölfar
þess að ítalska stórveldið
Lazio hafði samband við
þjálfarann með starfstilboð
í huga, en liðinu hefur ekki
gengið sem skyldi í ítölsku
deildinni og styttist í að nú-
verandi þjálfara liðsins, Dino Zoff,
verði sagt upp.
Samkvæmt fréttum frá Ítalíu
ætlar Sergio Cragnotti, for-
seti Lazio, að gera Houllier
tilboð, sem hann getur ekki
hafnað. Liverpool brást
snarlega við þessum frétt-
um og segir að framtíð
Houlliers sé í Bítlaborg-
inni. Hann skrifaði undir
nýjan fimm ára samning
við liðið á síðastu leiktíð og
sagði þá að hann vildi vera
þar í áratug til viðbótar.
Lazio eru að leita að lík-
legum arftaka Dino Zoff sem tók
við af Sven Göran Eriksson en
hann þjálfar enska landsliðið. ■
GERARD
HOULLIER
Framtíð Houlliers
er hjá Liverpool.
Yfirvöld í Suður-Kóreu:
Hræðast hryðjuverk á HM
HEIM5MEI5TARAKEPPNI Yfirvöld í Suð-
ur-Kóreu ætla að auka samstarf sitt
við Bandaríkin og Bretland vegna
hugsanlegrar hættu á hryðjuverk-
um á meðan heimsmeistarakeppnin
í knattspyrnu fer þar fram. Að sögn
talsmanns keppninnar óttast skipu-
leggjendur að hryðjuverkamenn
nýti sér stærsta íþróttaviðburð
heims til ófremdarverka en keppn-
in fer fram í Suður-Kóreu og Japan
daganna 31. maí til 30. júní, árið
2002.
Leyniþjónusta Suður-Kóreu fer
með öryggismál á keppninni en þar
koma herinn og lögreglan einnig
við sögu. Að sögn Jeon Young-soo,
talsmann keppninnar, mun leyni-
þjónustan vmna með CIA, leyni-
þjónustu Bandaríkjanna og MI5,
leyniþjónustu hennar hátignar, til
að afla upplýsinga um hryðjuverka-
menn og boltabullur.
„Leyniþjónusturnar hafa unnið
saman en við ætlum að auka sam-
starfið í kjölfar hryðjuverkanna í
Bandaríkjunum," sagði Young-soo.
í allt verða 32 leikir spilaðir í
hvoru landi og ætla öryggisnefndir
landanna að hittast í næsta mánuði
og fara sameiginlega yfir málin. ■
HERTAR ÖRYGGISKRÖFUR
( kjölfar hryðjuverkanna í Banda-
ríkjunum hafa öryggiskröfur verið
hertar til muna á flugvöllum.
Meistaradeild Evrópu:
Erfitt verkefni fram-
undan hjá þeim þýsku
knattspyrna Átta leikir í Meistara-
deild Evrópu fara fram í kvöld.
Real Madrid byrjaði vel þegar lið-
ið lagði ítölsku meistaranna í AS
Roma með tveimur mörkum gegn
einu. Sömu sögu er ekki að segja af
árangri þeirra í spænsku deildinni
IVIEISTARAPEILD EVRÓPU
Leikir kvöldsins
Lið Riðill
Anderlecht- Roma A
Real Madrid- Loko. Moscow A
Boavista- Dynamo Kiev B
Borusia Dortmund- Liverpool B
Arsenal- Schalke C
Panathinaikos- Mallorca C
Lazio- Nantes D
PSV Eindhoven- Galatasary D
en liðið hefur aðeins náð einu stigi
úr þremur leikjum og um helgina
tapaði það fyrir Jóhannesi Karli
Guðjónssyni og félögum í Real
Betis með þremur mörkum gegn
einu.
„Ég er ekki smeykur við stöðu
okkar í deildinni," sagði Vicente
Del Bosque, þjálfari Madrídarliðs-
ins en hann hefur stýrt liði sínu til
sigurs í spænsku deildinni s.l. tvö
ár.
„Við þurfum að vera jarðbundn-
ir og líta á stöðuna í heild sinni.“
Ef liðið sigrar Lokomotiv
Moskow í kvöld munu áhorfendur
gleyma slöku gengi liðsins í deild-
inni að sinni, en liðið mun spila án
Zinedine Zidanes í kvöld þar sem
hann er í leikbanni. Frakkinn fékk
fimm leikja bann fyrir að skalla
mótherja þegar hann lék með
Juventus í Meistaradeildinni í
fyrra.
ítölsku meistararnir hafa ein-
nig byrjað deildakeppnina illa og
hafa líkt og Madrid gert eitt jafn-
tefli en tapað tveimur leikjum.
Þeir fara til Belgíu í kvöld og
mæta Anderlecht.
„Ég er orðinn áhyggjufullur,"
sagði Fabio Capello, þjálfari Roma.
„Staða okkar í deildinni er ekki
góð og við höfum verið að spila illa.
Okkur skortir samhæfingu og bar-
áttu. Ég er hræddur um að þetta
BARÁTTA
Alexandre Goulart, leikmaður Boavista, og Danny Murphy, leikmaður Liverpool, eigast hér
við I leik I Meistaradeild Evrópu en liðin skildu jöfn. Boavista mætir Dynamo Kiev í Portú-
gal í kvöld en Liverpool fer til Þýskalands og spilar við Borusia Dortmund.
eigi eftir að hafa áhrif á sigur-
möguleika okkar.“
Einn stærsti leikur kvöldsins er
leikur Liverpool og Bourissa Dort-
mund í B-riðli. Liverpool vann
Bayern Munchen í leik Meistara
meistaranna fyrir skömmu. Þjóð-
verjarnir eru án efa minnugir út-
reiðarinnar sem landslið þeirra
fékk gegn því enska í undankeppni
HM en lærisveinar Gerard Houlli-
ers skipa helming byrjunarliðsins.
í hinum leik B-riðils spila Dyna-
mo Kiev og Boavista.
Arsenal tekur á móti Schalke í C-
riðli en Lundúnarliðið tapaði fyrir
Real Mallorca í fyrsta leiknum og
Schalke fyrir Panathinaikos, með
tveimur mörkum gegn engu.
í D-riðli mætast annarsvegar
PSV Eindhoven og Galatasary og
Lazio og Nantes hinsvegar. ■
www.goknrtJs\
GoKart í Reykjanesbæ
VJAV.V.V.VV.V.VV.V.W.V.V.V.'.V,
Körtubraut Reisbíla
Reykjanesbæ S: 893-1992