Fréttablaðið - 08.10.2001, Blaðsíða 3
Mislæg gatnamót Breiðholtsbrautar, Nýbýlavegar og Reykjanesbrautar
iiiii
t. 'v ,>
Opnar brautir til framtíðar
Mánudaginn 8. október verða mislæg gatnamót Breiðholtsbrautar,
Nýbýlavegar og Reykjanesbrautar tekin formlega í notkun. Þá verða
allar akreinar ásamt að- og fráreinum opnar fyrir umferð bifreiða.
Ætla má að 50 þúsund bifreiðarfari um gatnamótin á hverjum sólarhring
og er gert ráð fyrir að þeim fjölgi í 100 þúsund innan þriggja áratuga.
Nýju gatnamótin stuðla að greiðri og öruggri umferð og markar opnun
þeirra tímamót i samgöngum á höfuðborgarsvæðinu.
Öryggi gangandi vegfarenda verður einnig tryggt á gatnamótunum.
Lagðir verða göngustígar um svæðið og halda framkvæmdir því áfram
í vetur en öllum frágangi lýkur næsta sumar.
Vegagerðin, Reykjavíkurborg og Kópavogsbær standa saman að
framkvæmdunum. Aðstandendur óska verktökum til hamingju með
mannvirkið og vegfarendum heilla í umferðinni.
A
Kort af gatnamótunum með framtíðarskipulagi göngustíga er að finna á upplýsingavefnum gatnamot.is
runcuo