Fréttablaðið - 08.10.2001, Blaðsíða 1
KVÓTAKERFi
Fleiri gallar
en kostir
bls 6
FRAMiÐlN
Keikó
borgi sjálfur
KLÆÐSKERi
Staurblankur
eftir samninginn
bls 22
þlNBHOLT
oáo»rt!itiN
533-3444
FRETTABLAÐIÐ
117. tölublað - 1. árgangur
MÁNUDACUR
Fjör á þingi
umræður Flestir ráðherrar ríkis-
stjórnarinnar verða til svara á Al-
þingi í dag þegar þingmenn geta
spurt þá beint í óundirbúnum
spurningatíma.
Funda um
skattamál
Aform Miðstjórn Alþýðusambands
íslands kemur saman til að ræða
áform ríkisstjórnarinnar í skatta-
málum. Fram hafa komið verulegar
efasemdir um að þessar aðgerðir
muni hafa þau áhrif sem æskiieg-
ust væru í efnahagslífinu við nú-
verandi aðstæður.
) VEÐRIÐ I PAG |
BEYKJAVÍK Hæg austan átt og
léttskýjað i fyrstu. Síðan sun-
nan 5-8 m/s og þykknar upp
siðdegis. Hiti 6 til 11 stig.
VINDUR ÚRKOMA HITI
(safjörður Q 1-3 Léttskýjað {8
Akureyri O '-3 Léttskýjað £58
Egilsstaðir © 1-3 Léttskýjað Ql
Vestmannaeyjar Q 1-3 Léttskýjað Q 9
Átök í Englandi
STtÓRNMÁL Þing
breska íhalds-
flokksins verður
sett í dag. Það sem
hefur vakið mesta
athygli á þinginu er
áhugaleysi almenn-
ings.
Hver með sínu nefi
sýninc Nýtt gallerí, Gallerí Skuggi
Hverfisgötu 39, hefur opnað sína
fyrstu sýningu. Það eru listamenn-
imir; Birgir Andrésson, Guðmund-
ur Oddur Magnússon, Lilja Björk
Egilsdóttir og AKUSA sem sýna
verk sín.
1KVÖLPID í KVÖLD|
Tónlist 18 Bíó 16
Leikhús 18 (þróttir 14
Myndlist 18 Sjónvarp 20
Skemmtanir 18 Útvarp 21
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
FRFTTARI AOIfí
Hvað les fólk
á aldrinum
40 til 49 ára?
85,2°/o|
78,2<>/o
Meðallestur 40 til 49
ára á virkum dögum
samkvæmt könnun
PriceWaterhouse-
Coopers frá
september 2001
70.000 eintök
78% fólks les blaðið
Ifjölmiðlakönnun pricewaterhousecoopers var I
I FRAMKVÆMD DACANA 17. TIL 28. SEPTEMBER 2001. |
HMMHBnHMnHMi
Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500
Mánudagurinn 8. október 2001
Flugskeytaárás er
hafin á Afganistan
Flugskeytum skotið frá herskipum og kafbátum á fjölmörg skotmörk í Afganistan, meðal annars
Kabúl, Kandahar og Jalalabad. Upphaf samræmdrar herferðar, sagði Bush í sjónvarpsávarpi.
Æfmgabúðir hryðjuverkamanna og stjórnstöðvar talibana helstu skotmörkin.
AráS A AFGANI5TAN. Bandaríkja-
menn og Bretar hófu loftárásir á
fjölmarga staði í Afganistan síð-
degis í gær. Cruise-flugskeytum
var skotið frá bandarískum her-
skipum og breskum kafbáti, auk
þess sem hermt var að árásir
hefðu verið gerðar með sprengju-
flugvélum.
„Árásunum er ætlað að koma í
veg fyrir að Afganistan sé notað
sem aðsetur hryðjuverkasamtaka
og jafnframt að draga úr hernað-
armætti talibanastjórnarinnar,"
sagði George W. Bush, Banda-
ríkjaforseti í sjónvarpsávarpi síð-
degis í gær.
Hann sagði talibana hafa dauf-
heyrst við öllum kröfum um fram-
sal hryðjuverkamanna. „Nú
taka þeir afleiðingunum,"
sagði forsetinn. „I þessu
stríði er enginn hlutlaus."
Hann sagði að árásunum
yrði fylgt eftir með sam-
ræmdum, fjölþjóðlegum að-
gerðum.
Árásanna varð fyrst vart
í Kabúl þegar sprengingar
heyrðust í borginni klukkan
16.27. að íslenskum tíma.
Fyrstu árásum var beint að loft-
varnarstöðvum og miðstöðvum
talibana í grennd við höfuðborg-
ina Kabúl og borgina Kandahar,
miðstöð Talibana, að því er CNN
hafði eftir heimildarmönnum í
Pentagon. BBC greindi einnig frá
sprengingum í borginni Jalalabad.
Sendiherra talibana í Pakistan
brást við fregnum af árásunum
með því að lýsa því yfir að Tali-
banar mundu berjast til síðasta
blóðdropa. BBC greindi frá því að
trúarleiðtogar í Pakistan hefðu
fordæmt árásirnar og sagt þær
grimmúðlegar og tilefnislausar.
VMIiliic .\ weRKOK*
tltlm: * winöf ÞÍSWÍÉ MJIÁiUi ífr&fjnA.1*
NIJC * (O ÍMÓtWrw?**-*:
FIMMTlU FLUCSKEYTUM SKOTIÐ Fimmtlu Tomahawk flugskeytum var skotið á skotmörk í
Afganistan í gær. Árásirnar voru gerðar frá herskipum og flugvélum bandarlkjahers og úr breskum
kafbáti. Innfellda myndin er sú eina sem borist hafði frá Afganistan i gær og var tekin af
eldglæringum frá sprengingunum sem urðu í borginni.
Þeir lýstu stuðningi við talibana
og heiiagt stríð við Bandaríkin.
Engar fregnir höfðu í gær-
kvöldi borist af mannfalli og litlar
og mótsagnakenndar fregnir af
tjóni á mannvirkjum. BBC greindi
frá því að í viðtölum við íbúa í
Kandahar hefðu þeir sagst hafa
heyrt þrjár sprengingar í nokk-
urri fjarlægð og töldu sprengjun-
um hafa verið varpað í grennd við
flugvöllinn, sem er nokkru utan
borgarinnar. Dregið var í efa að
höfuðstöðvar tTalibana við flug-
völlinn hefðu orðið fyrir skemmd-
um því þangað náðist símsamband
við menn sem sögðust engar
sprengjur hefðu fallið þar.
Myndband af Osama bin Laden
var sýnt á sjónvarpsstöðinni A1
Jaazera í Qatar í gærdag. Þar fag-
naði hann árásunum 11. septem-
ber, án þess að taka á þeim
ábyrgð, og sagði að Bandaríkja-
menn mundi ekki finna til öryggis
í sínu landi fyrr en múhameðstrú-
armenn fyndu til öryggis í sínum
löndum.
Nánar bls. 2.
BIN LADEN
Á myndbandi sem sýnt var í gær fagnaði
hann árásunum 11. september.
George W. Bush um aðegrðirnar í Afganistan:
„Nú taka þeir afleiðingunum“
breskar hersveitir hófu síðdegis í
gær loftárásir á Afganistan. Geor-
ge W. Bush Bandaríkjaforseti
sagði í sjónvarpsávarpi í gær að
árásunum væri annars vegar
beint gegn þjálfunarbúðum Al-
Qaida, hreyfingar Osama bin
Ladens, og hins vegar gegn her-
búðum talibana. „Árásunum er
ætlað að koma í veg fyrir að
Afganistan sé notað sem aðsetur
hryðjuverkasamtaka og jafnframt
að draga úr hernaðarmætti tali-
banastjórnarinnar," sagði Banda-
ríkjaforseti.
BANDARfKJAFORSETI
Jafnframt árásunum er lyfjum, matvælum
og birgðum varpað úr lofti til Afgana.
Talibanar hefðu daufheyrst við
öllum kröfum um framsal hryðju-
verkamanna. „Nú taka þeir afleið-
ingunum," sagði forsetinn.
Hann sagði að breskar her-
sveitir hefðu tekið þátt í árásun-
um með bandaríkjaher. Ástralía,
Kanada, Þýskaland og Frakkland
hefðu heitið liðsafla þegar aðgerð-
inni vindur fram. 20 aðrar þjóðir í
Afríku, Mið-Austurlöndum og
Evrópu hefðu heitið stuðningi við
liðsflutninga. Bush sagði að í kjöl-
far árásanna yrði staðið að öflugri
og víðtækri herferð til að hrekja
hryðjuverkamenn úr landinu og
draga fyrir dóm. Árásunum væri
ekki beint gegn íbúum Afganistan
og sagði að jafnframt árásunum
yrði varpað matvælum, lyfjum og
öðrum birgðum til hungraðra og
hrjáðra íbúa landsins úr lofti. ■
JVTorðurbandalagið ræktar mest
JL\1 af hráefni til ópíumfram-
leiðslu. bls. 6
—♦—
Yfir 600 hafa skráð sig úr Þjóð-
kirkjunni frá áramótum.
bls. 6
—♦—
Forstjóri Rannsóknastofnunar
fiskiðnaðarins segir framtíð-
armöguleika felast í afurðum
sem unnar eru úr efnum úr haf-
inu. bls. 8
—♦—
Unnið er að þróun vélar sem
bæði talar og skilur íslensku.
bls. 12