Fréttablaðið - 03.12.2001, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 03.12.2001, Blaðsíða 2
2 3. til 10. desember 2001 Heimilisblaðið Er dálítil búkona í mér Þeir sem muna lengur en nokk- ur ár, minnast tveggja húsa sem stóðu á planinu á móti Ráð- húsinu. Annað þeirra var grænt tvílyft hús byggt á kjallara en hitt var rautt, einnig tvílyft en án kjallara. í daglegu tali gengu hús- in undir nöfnunum rauða og græna húsið. AA samtökin höfðu þessi hús til ráðstöfunar en þau voru í eigu borgarinnar. Eftir að bygging ráðhússins hófst urðu húsin að víkja og annað þeirra var flutt í Skerjafjörðinn. Þar hafa þau Edda Heiðrún Bach- mann leikkona og Jón Axel Björnsson myndlistarmaður kom- ið sér vel fyrir. „Við keyptum húsið fyrir nokkrum árum og komum því í það horf sem við vildum,11 segir Edda Heiðrún. Á aðalhæðinni er stór stofa og mjög rúmgott eldhús, auk hols þaðan sem gengið er upp á efri hæðina. í kjallaranum er vinnustofa Jóns Axels og þar vinnur hann að list sinni. Edda segist vera afar ánægð með staðsetningu hússins. Það stendur ofarlega á lóðinni og milli götunnar og hússins er lítið torg. „Hér er einstök veðursæld og fuglakvak og mér finnst húsið vera baðað sólskini á alla vegu. Það er alveg sama hvar ég set nið- ur plöntu, þær vaxa og dafna í öll- um áttum,“ segir hún. Hún talar einnig um hve gott sé að ala upp börn í litla Skerjafirðinum. Þessi staður er hálfgerð vin í borginni og mér finnst dásamlegt að þetta litla „þorp“ okkar skuli fá að njóta sín eins og það er. Edda Heiðrún og Jón Axel eiga þrjú börn frá þriggja til tólf ára. ENGIR EFRI SKÁPAR Svartar mósaikflísar ná alveg upp i loft og þekja veggina I stað skápana. Stálgrindurn- ar nýtast vel og breyta má röðuninni eftir því sem hentar. Pönnukökur skipuðu öndvegi á bernskuheimili Eddu Heiðrúnar Bach- mann. A hennar eigin heimili eru þær ekki síður vinsælar og bak- ar hún þær gjarnan ef gesti ber að garði. MIKIL KAFFIKONA Edda Heiðrún á veglega kaffikönnu og gestir er ekki sviknir af því tári. Þau eldri stunda nám í Melaskóla og eru sótt og þeim ekið til baka í skólabíl. Yngsta barnið er í leik- skóla sem er aðeins nokkrum skrefum frá heimili Eddu Heiðrúnar. „Vinnutími okkar er frábrugðinn því sem tíðkast hjá flestum fjölskyldum. Jón Axel á sína vinnustofu heima og minn vinnutími er að stórum hluta á kvöldin. Stundum er ég að æfa verk á daginn og sýna á kvöldin og þá gefst ekki langur tími til samveru með fjölskyldunni. Það kemur líka fyrir að ég er ein- göngu að sýna eitt til tvö kvöld í viku og ekki á æfingum og hef þá meiri tíma aflögu. I heildina vinn ég samt talsvert mikla aukavinnu og er í talsetningum og ýmislegu til að drýgja tekjurnar," segir hún. Fyrir viku kom út geisladiskur Eddu Heiðrúnar sem ber nafnið „Fagur fiskur í sjó“ og er með lögum Atla Heimis Sveinssonar. Edda segir vinnuna við hann hafa verið ögrandi og skemmtilegt verkefni sem hún vonast til að verði vel tekið. „Atli Heimir sem- ur yndisleg lög sem hann sjálfur kallar gjarnan eyrnaorma og þar á meðal er lagið um fuglana eftir Davíð Stefánsson sem svo margir þekkja." Heimili þeirra Eddu Heiðrún- ar og Jóns Áxels ber þess merki að þar búa listamenn. Veggir eru skreyttir myndum hans og píanó- ið fær sitt rými. Edda segir eldri börnin vera í tónlistarnámi, ball- ett og karate og oft hafi þeyting- urinn verið mikill við að koma þeim til og frá í tíma en nú séu þau komin á þann aldur að þau fari sjálf. Ilún segir ennfremur að þau hafi gaman af gömlum hefðum eins og að búa til sinn mat sjálf og Edda fer gjarnan til berja á haustin og býr til sultur, saft og vín. „Heima hjá mér á Akranesi voru þjóðleg gildi í heiðri höfð og ég er alin upp við búkonusýsl. Ég hef til að mynda sérlega gaman af að baka pönnukökur og þær eru vinsælar af heimilisfólkinu. Ekki ILMANDI PÖNNUKÖKUR Edda Heiðrún er snillingur við baksturinn og þær eru þunnar og bragðgóðar. STÓR OG ÞÆGILEG STOFA Séð yfir stofuna sem er stór og óskipt. Á veggnum hangir listaverk eftir eiginmanninn. það að ég sé að velta fyrir mér hvort það borgi sig að búa til sult- ur heldur höfum við svo gaman af þannig sýsli." Hún segir þau hjón vera heimakær og séu ekki mikið á ferðinni heldur njóti samvist- anna hvort við annað. „Við ferð- umst hins vegar talsvert um land- ið okkar á sumrin og höfum mikla ánægju af.“ Edda Heiðrún er þeirrar skoð- unar að grunnur þess að njóta lífsins sé að heimilisfólkið fái að njóta sín sem einstaklingar í sam- hentri fjölskyldu. „í dag veltir fólk sér upp úr allsnægtum á meðan aðrir líða skort. Við ættum að staldra við og njóta þess sem við höfum, rækta vini og vanda- menn og þau andlegu verðmæti sem eru allt í kringum okkur.“ ■ ijy>\ ?rm j

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.