Fréttablaðið - 03.12.2001, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 03.12.2001, Blaðsíða 10
Heiiitilisblaðið R. Sœngurgjaflr med nafnl og bœn 3. til 10, desember 2001 Fór létt með að töfra fram veislu í tBarónsstfg 59 ; L 551 3584 Textílkjallarinn FÓTBOLTASPIL Stórkostlegur leikur lyrir alla fplskylduna Eg á Moulinextæki sem ég keypti fyrir nokkrum árum í Fríhöfninni og nota það mjög mik- ið. Það stendur á eldhúsborðinu mínu ævinlega tilbúið til taks og það er ekki ósjaldan," segir Hlín Agnarsdóttir leikskáld og rithöf- undur um spurningu Heimilis- blaðsins um hvað sé hennar uppá- haldsheimilistæki. Hún segist eitt sinn hafa galdr- að fram fimmtíu manna veislu og nær eingöngu notað tækið við þá matseld,- Þá var ég nýlega komin heim frá Spáni og hafði keypt tækið á heimleiðinni. Spænskir tapasréttir voru mér ofarlega í huga og ég ákvað að bjóða til mín öllum þeim sem stóðu að sýningu á leikriti mínu, „Konur skelfa“ í Borgarleikhúsinu. Þá hafði það verið sýnt í fimmtíu skipti og mig langaði að halda upp á það með þessari veislu. Tapasréttir urðu fyrir valinu og ég fór létt með að töfra fram þessa veislu með nýja Moulinextækinu mínu.“ Hún seg- ir veisluna hafa tekist vel og síðan hafi hún mjög oft notað tækið við matseld einkum þegar hún býður gestum í mat. „Mér finnst oft að þetta litla tæki búi yfir töfrum því Bauð fimmtíu manns og eldaði allan mat- inn með hjálp litla Moulinextækisins það er svo einfalt í notkun, auð- velt að þrífa það og síðan ég eign- aðist það er ég ekki í vandræðum með að taka á móti fólki. Kannski að ég fari út í það í ellinni, ef ég verð blönk, að elda fyrir fólk. Þá get ég komið í hús vopnuð tækinu og tekið að mér að töfra fram veislur með aðstoð þess.“ ■ HLÍN AGNARSDÓTTIR Hún er á því að þetta litla tæki búi yfir einhvers konar töfrum, svo einfalt er það í notkun. Vitund þeirra sem halda dýr er að vakna Ef einhver hefur staðið í þeirri trú að mannfólkið væri eitt um að þurfa snyrtingu fyrir jólin, er sá hinn sami á miklum villigötum. Dýrin okkar stór og smá við Kleppsveg 150 er eins og nafnið ber með sér verslun og hunda- snyrtistofa. Það er Sóley Halla Möller sem þar ræður ríkjum og auk þess að hafa á boðstólum nátt- úruvænt fóður, vítamín og bætiefni er einnig snyrtistofa fyrir dýrin. Sóley Halla lærði í Bretlandi og hefur unnið við fagið síðastliðin átta ár. Hún hóf starfsemina í bíl- skúrnum heima en fyrir tveimur árum opnaði hún stofuna við Kleppsveginn. „Ég erum að byrja að finna fyrir auknu álagi en það hefur aukist jöfnum höndum ár frá ári. Það er greinilegt að fólk er far- Ljósakrónur Kertastjakar • íkonar Fataskápar -Sðtofhnð munít Borðstofusett í úrvali Klapparstíg 40 . Sími 552 7977 Dýrahald er að aukast og fólk hugsar betur um dýrin og er að átta sig á að þau tilheyra fjölskyldunni. ið að hugsa betur um hundana sína og kemur með þá í snyrtingu enda er það betra fyrir þá,“ segir Sóley Halla. Hún segir það liggja í aug- um uppi að hundunum líði mun bet- ur ef klær séu klipptar reglulega og þeir snyrtir. „Þeir eru ekkert frábrugðnir mannfólkinu hvað það varðar enda er hundurinn einn af heimilisfólkinu og þannig ber að líta á hann. í því sambandi er gam- an að segja frá því að fólk kemur með hundana sína í snyrtingu fyrir stórviðburð innan fjölskyldunnar s.s. afmæli eða brúðkaup. Mjög al- gengt er að þeir séu snyrtir fyrir myndatökur og í fermingarmynda- tökunum hefur fólk hundinn gjarn- an með á fjölskyldumyndum. Ein- BÖÐUÐ OG KLIPPT Sóley Halla leggur lokahönd á snyrtinguna á Cavaliertíkinni Birtu. Hún þarf því ekki að skammast sín fyrir útganginn um jólin. Fasteignaþjónustan ^ 552-6600 Lovísa Kristjánsdáttir. löggiHHjr-fastíianasali Skútuvogur 12 Mjög gott atvinnuhúsnæði alls 440 fm. Sala - Leiga Skiptist í lager með innkeyrsludyrum og góðri lofthæð. Á 2 hæð eru rúm- góð skrifstofurými sitt hvoru megin við stigapall. Mögulegt er að skipta eigninni upp. Húsið er vel staðsett við endalóð og hefur mikið athafnasvæði, þar sem hægt er að setja niður gáma. Malbikað plan. Eign í góðu ástandi, laus um áramót. HÁRGREIÐSLAN VERÐUR AÐ VERA í LAGI Það má ekki vera flóki I þessu fína hári sem hver dama gæti verið fullsæmd af.. hverjum kann að þykja það bros- legt en þeir sem eiga hunda sjá ekki neitt óeðlilegt við það, Það sama á við um hirðinguna, snyrt- ingin er ekki eitthvað pjatt. Hund- unum líður einfaldlega betur vel snyrtum og hreinum" Sóley Halla segist bjóða upp á böðun, klippingu, snyrtingu á klóm og innan úr eyrum. Það sé misjafnt hvað hver hundategund þurfi og sumir hundar þurfa alls ekki klipp- ingu; aðeins lítilsháttar snyrtingu á feldi. „Það fer allt eftir þeim staðli sem upp er gefinn fyrir hverja teg- und. Vitaskuld gerum við þó það sem eigandinn vill og ef hann vill eitthvað annað þá geri ég það svo lengi sem það ekki er óþægilegt fyrir dýrið sjálft. Það eru tísku- Heimiiisdýrln þtrfa iika að vera fln um jóiín sveiflur í þessu eins og öðru og ég reyni að fylgjast mjög vel með því sem er að gerast í útlöndum í þeim efnum. Hér á stofunni er einnig hægt að fá alla almenna ráðgjöf um uppeldi, þrif og næringu. Við not- um eingöngu náttúruvænar sápur sem ekki menga umhverfið.“ Sóley segist ennfremur snyrta ketti og baða en það sé að aukast að fólk komi með kisurnar sínar. „Mér finnst áberandi hvað vitund þeirra sem eru með dýr á heimilinu er að vakna um að hirða dýrin sín vel og fara vel með þau. Betur má þó ef duga skal og það eru slóðarnir sem koma óorði á hina sem hugsa vel um gæludýrin sín. Það er ábyrgð að taka að sér dýr; þau eiga engan að nema eiganda sinn og verða al- gjörlega að treysta á hann. Ef eig- andinn bregst geta þau ekkert leit- að.“ VANDASAIMT VERK AÐ KLIPPA Hann er ósköp lítill þessi litli Chihuahua hundur. Hann heitirTaco Bell og er aðeins fimm mánaða. NOTALEGT OG HLÝTT Honum þykir það ekki slæmt þessum litla Pommeranian hundi þegar vatnið dynur á honum. Hundarnir eru misjafnlega ró- legir á meðan Sóley Halla fer um þá höndum. Sumir titra heil reið- innar býsn en aðrir eru pollrólegir og taka því sem að höndum ber með æðruleysi. „Ég nota alltaf þol- inmæðina og mjúku handtökin því það borgar sig og ég er á móti því að nota hörku. Það má vel vera að það taki styttri tíma en ég er alfar- ið á móti hörku við uppeldi eða meðhöndlun hunda. Vissulega ber að vera ákveðinn en það er allt annar hlutur. Ég hef tileinkað mér að nota táknmál sem er komið úr atferlisfræði úlfa og eru skýr skilaboð. Það skilja hundarnir og það er ótrúlegt hvað það virkar vel.“ Sóley segir það sína skoðun að fólk leiti ekki nægilega oft til fag- aðila varðandi dýrin sín. „Þó allt standi þetta til bóta þá er enn nokk- uð um að menn ali á gömlum bábilj- um. Fólk á óhikað leita til okkar og ég veiti hér alla mögulega ráðgjöf varðandi meðhöndlun á hundum ef menn óska.“ ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.