Fréttablaðið - 02.01.2002, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 02.01.2002, Blaðsíða 6
SPURNING DAGSINS Strengdirðu nýársheit? Þau voru nokkur en ætii það helsta hafi ekki verið að vera duglegur á nýja árinu. Halldór Smári Elísson, nemi BSRB mótmælir hækkunum: Nær væri að lækka gjöld heilbrigðismái BSRB mótmælir harðlega hækkun komugjalda í heilbrigðisþjónustunni og aukinni hlutdeild sjúklinga í lyfjakostn- aði. í tilkynningu bandalagsins segir að með hækkununum hygg- ist ríkisstjórnin bæta stöðu ríkis- sjóðs um allt að hálfan milljarð króna. Þá segir að mjög brýnt sé að fólk kynni sér reglur um end- urgreiðslur til tekjulágra fjöl- skyldna sem jafnframt eru ráð- gerðar. „í úttekt BSRB á kostnaðar- þátttöku sjúklinga í heilbrigðis- þjónustu kom fram að hlutur sjúk- linga hefur margfaldast á undan- förnum áratug. í stað þess að hækka kostnaðarhlut sjúklinga nú væri nær að vinda ofan af þessari þróun og lækka þau gjöld sem sjúklingum er ætlað að bera,“ seg- ir í tilkynningu BSRB til fjöl- miðla. ■ IlögreglufréttirI Snjóflóð féll á Óshlíðarveg á gamlársdag og var vegurinn lokaður milli 17.30 og 21 á gamlárskvöld. Að sögn varðstjóra lögreglu á ísafirði féllu spýjur all- an gamlársdag á veginn og einnig á Súðavíkurveg sem var lokaður stutta stund milli kl. 14 og 15. Um hádegisbil á gamlársdag valt níu manna bíll á Fljóts- heiði, miili Bárðardals og Reykja- dals. Mikil hálka var á veginum og fór bíllinn niður 6 til 7 metra kant og endaði á hliðinni. Öku- maður og farþegar voru útlend- ingar en sumir búsettir hér á landi. Tveir farþeganna voru fluttir á sjúkrahús með sjúkrabíl en meiðsl þeirra reyndust þó minniháttar. FRÉTTABLAÐIÐ 2. janúar 2002 IVIIDVIKUDAGUR VÞI lækkar gengi Síldarvinnslunnar um 15%: Klaufaskapur verðbréfamiðlara markaður Verðbréfaþing íslands lækkaði sl. föstudag, síðasta við- skiptadag ársins 2001, gengi bréfa Síldarvinnslunnar úr 4,60 krónum niður í 4,00 vegna gruns um að sam- svarandi hækkun þann daginn hafi borið að með óeðlilegum hætti. Á undanförnum árum hafa oftsinnis vaknað grunsemdir um að félög leitist við að lagfæra stöðu sína í lok uppgjörstímabila, en Finnur Sveinbjörnsson, framkvæmda- stjóri VÞÍ, segir ákvörðun sl. föstu- dags ekki snerta Síldarvinnsluna sjálfa. Lækkunin á dagslokageng- inu komi hinsvegar til vegna við- skipta ónefnds verðbréfamiðlara sem gengu gegn reglum þingsins. Finnur vildi hvorki greina frá því hvaða fjármálafyrirtæki átti í hlut né viðkomandi f járfesti. Samkvæmt heimildum blaðsins gekk miðlarinn að háu sölutilboði á genginu 4,60 í stað þess að gæta hagsmuna umbjóðanda síns með því leita hagstæðara verðs og hækkaði þannig gengi félagsins um 15%. FINNUR SVEIN- BJÖRNSSON Ekkert bendir til þess að Síldar- vinnslan hafi viljað fegra árs- reikning sinn með ólögmæt- um hætti. Þetta í annað skipti sem Verð- bréfaþingið lækkar gengi eftirá en fyrra tilvikið átti sér stað í júní sl. og varðaði bréf Útgerðafélags Ak- ureyringa. Þá var Búnaðarbankinn sakaður um að hafa stuðlað að óeðlilegri hækkun með því að eiga viðskipti við sjálfan sig á síðasta degi fyrri helmings ársins. ■ 142 menn í Sádi-Arabíu: Hýddir fyrir ad áreita konur sakamál 137 sádi-arabískir karlmenn og 5 karlmenn af erlendu bergi brotn- ir voru nýverið hýddir í Sádi-Arabíu fyrir að áreita konur. Þetta kemur fram í þarlendu dagblaði. Sá sem hafði yfirumsjón með hýðingunni „varaði brotamennina við því að þeir sem endurtaki afbrot sitt eigi yfir höfði sér fangelsun og (frekari) hýð- ingu.“ Þess má geta að Amnesty International-samtökin hafa fordæmt stöðug mannréttindabrot í Sádi-Arab- íu í skýrslu þeirra fyrir árið 2001, að því er segir á fréttavef reuters. ■ Dýrara að vera veikur á þessu ári Fyrir helgina voru kynntar hækkanir á komugjöldum til lækna og á hlut- deild almennings í lyQakostnaði sem tóku gildi nú um áramót. Tekjulágar fjölskyldur geta sótt um endurgreiðslu til Tryggingastofnunar. heilbrigðismál Kostnaður fólks vegna veikinda og sjúkdóma jókst nú um áramót þegar gildi tóku reglugerðir sem kveða á um breyt- ingar á kostnaðarhlutdeild einstak- linga við læknisþjónustu og aukna hlutdeild í lyfjakostnaði. Þá tóku gildi nýjar reglur sem rýmka end- urgreiðslurétt til tekjulágra föl- skyldna og lækka kostnað vegna langveikra barna. Jón Kristjánsson, heilbrigðisráðherra, kynnti breyt- ingarnar á blaðamannafundi fyrir áramótahelgina. Almenn komugjöld á heilsu- gæslustöðvar hækkuðu um 150 krónur, úr 700 krónum í 850. Komu- gjöld fyrir börn, elli- og örorkulíf- eyrisþega hækkuðu um 50 krónur og er nú 350 krónur. Sambærilegar breytingar urðu á gjöldum utan dagvinnutíma og hjá Læknavakt- inni. Komugjald til sérfræðilækna hækkaði um rúm 14 prósent, fór úr 1.800 krónum í 2.100. Það mun gert til að mæta samningsbundinni 7,77 prósenta hækkun einingaverðs sér- fræðilæknisþjónustu. Sem áður greiða sjúklingar 40 prósent kostn- aðar sem umfram er. Þá hækkaði grunnkomugjald barna og lífeyris- heilbrigðisráðherra kynnti breytingarnar fyrir helgi Jón Kristjánsson sagði að áhrif hækkananna á verðbólguvísitölu ættu ekki að vera mikil en sagði jafnframt að þau hefðu ekki verið reiknuð nákvæmlega út. þega úr 600 krónum í 700 og há- marksgjald fyrir hverja komu til sérfræðing hækkaði úr 6.000 krón- um í 18.000 krónur. Þá var hlutdeild fólks í lyfjakostnaði einnig aukin og hækkuðu algengustu lyf um 1 til 10 prósent og greiðsluþak lífeyrisþega fyrir B-merkt lyf var hækkað úr 950 krónum í 1.050 krónui’. Ráðherra sagði að til að draga úr áhrifum þessara hækkana á þá sem verst væru staddir hafi reglur um HÆKKUN NOKKURRA GJALDA NÚ UM ÁRAMÓT í KRÓNUM OG PRÓSENTUM TALIÐ: 2001 2002 Prósentuhækkun Almenn komugjöld á heilsugæslustöð 700 kr. 850 kr. 21,4% - börn og lífeyrisþegar 300 kr. 350 kr. 16,7% Almennt grunnkomugjald til sérfræðings 1.800 kr. 2.100 kr. 16,7% - börn og lífeyrisþegar 600 kr. 700 kr. 16,7% Hámarksgjald fyrir komu til sérfræðings 6.000 kr. 18.000 kr. 300% ureiosiupaK iiTeyrispega vegna | ts-merKira lytja ybu Kr. 1 .OÞO kr. 10,5% endurgreiðslur verið rýmkaðar með það fyrir augum að koma sér- staklega til móts við tekjulágar fjöl- skyldur. T.a.m. fái fjölskyldur með 1,5 milljónir í árstekjur 90 prósent af lækniskostnaði greiddan fari hann yfir 10.800 krónur í þrjá mán- uði. Sótt er um endurgreiðslu til Tryggingastofnunar. Eins eru gerð- ar breytingar á komugjöldum lang- veikra barna og þau lækkuð í að vera 150 krónur til heilsugæslu- læknis en 350 krónur til sérfræði- læknis. Jón sagði að breytingarnar ættu að færa heilbrigðiskerfinu um 500 milljónir króna, þar af færu um 200 til að mæta rekstrarvanda Ríkis- spítalanna sem orðið hafi fyrir miklum kostnaði vegna gengis- breytinga og vegna sameiningar spítalanna í borginni. oli@frettabladid.is Þjóðhagsstofnun: Sjötíu milljarðar í upplýsinga- tækni efnahagsmál Upplýsingatækni- greinar á Islandi munu velta um 70 milljörðum króna á þessu ári samkvæmt áætlun Þjóðhagsstofn- unar. Gangi þetta eftir hefur velt- an í þessum atvinnurekstri aukist um 8 milljarða frá því á síðasta ári. Um 40% veltunnar í upplýs- ingatækni er hjá heildsölunni en tæp 30%, eða um 20 milljarðar eru vegna hugbúnaðargerðar og ráðgjafar. Hefur síðarnefndi þátt- urinn vaxið mest allra þátta í greininni frá því í ársbyrjun 1998, eða um 370%. Velta síma- og fjarskiptaþjón- ustu óx um 42% frá því í byrjun árs 1998 og er áætluð velta grein- arinnar á þessu ári um 20 millj- arðar króna. ■ Lögreglan trúir ekki á jólasveina: Eru góðir ef þeir eru til svíþjóð Maður nokkur í Smálönd- um fullyrðir að jólasveinninn hafi stungið sig með hnífi. Þessu á lög- reglan bágt með að trúa. Til átaka á að hafa komið milli mannsins og jólasveinsins í íbúð hins fyrr- nefnda. Maðurinn var nokkuð drukkinn og ævai’eiður þegar hann kærði jólasveininn. Gert var að sárum mannsins sem ekki reyndust alvarleg, en lögreglan hyggst yfirheyra hann aftur um atburðinn. Talsmaður lögreglu segir að það sé bjargföst trú lög- reglunnar að ef jólasveinninn sé til, þá sé hann góður og fremji ekki slík afbrot. ■ Þorrinn í Nesbuð á NesjavöH- um er staðurinn fyrir þorrabiötin. • Hin landsþekktu þorrahlaðborð Jóru. • Gistirými fyrir 120 manns • Heitir pottar úti við • Mikil náttúrufegurð • Sérstakt tilboð á þorramat og gistingu VníkttiiMii Nesbúð, Nesjavöllum, Sími: 482 3415. Tíu ár frá falli Sovétríkjanna: Pútín er maður ársins í Rússlandi árið 2001 Fyrir nákvæmlega tíu árum, þann 1. janúar árið 1992, liðu Sovétríkin undir lok. í kjöl- farið fylgdi nánast algert hrun efnahagslífsins í fyrrverandi sovétlýðveldum, þar á meðal í Rússlandi þar sem Boris Jeltsín réð ríkjum lengi vel. Rússar virðast þó vera að rétta úr kútnum og stæra sig nú af 5 prósent hagvexti. Jafnframt virðast þeir býsna ánægðir með forseta sinn og arftaka Jeltsíns, Vladimír Pútín. Pútín var í það minnsta kosinn maður ársins í Rússlandi í skoð- anakönnun sem birt var rétt fyr- ir áramót. 57 prósent Rússa grei- ddu honum atkvæði sitt í þeirri könnun. Sömuleiðis sögðu 50 pró- sent Rússa að þeir myndu kjósa Pútín ef forsetakosningar færu fram núna. Einungis 13 prósent myndu kjósa Gennadí Sjúganov, FORSETINN AÐ STÖRFUM Vladimir Pútín Rússlandsforseti gerði sér ferð til hafnarborgarinnar Primorsk við Eystrasalt í siðustu viku þar sem hann opnaði nýja höfn fyrir olíuflutningaskip. leiðtoga Kommúnistaflokksins. Athygli vekur þó að sá maður, sem næst á eftir Pútín kom helst til greina sem maður ársins í Rússlandi, var George W. Bush Bandaríkjaforseti. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.