Fréttablaðið - 02.01.2002, Blaðsíða 16
16
FRÉTTABLAÐIÐ
2. janúar 2002 MIÐVIKUDAGUR
HÁSKÓLABÍÓ
"•/ifífiV aio
Sýnd ki. 1.45, 3.40 og 6 m/ ísl. tali jHy
|HARRY POTTER kL 2,5og8 Sýndkl. 5.40, 8 og 10.30
Imáváhlatúr kl. 2, 4 og 8 lELLING kl. 4.15,6, 8 og 10 j
[amelie kL 3, 530,8 og 10.30 (ÓTHERS Idio]
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20
Sýnd kl. 2.30, 5.30, 8 og 10.30 m 51
Sýnd kl. 1.50 og 3.55 m/ ísL talí V,T 520 •
Sýnd kL 2,4,6,8 og 10.10 m/.ens. tali
jHARRYPOITER m/isltali kUog4|pj
03 KMUv mi,
Mt tl ;- «st »•«•» «nurMt>n m
IREPLIKATE kl. 6, 8 og 10.10 itTO] jHARRYPOTTERm/ens.tali l,4og8|P|
ZOOLANDER kl. 8 og 10.10 j F'Yj iSKÓLALÍF m/ísUali !<L2ogT5Ö1P]
FRÉTTIR AF FÓLKI
Digranesvegi 10 Kópavogi
(fyrir ofan Sparisjóö Kópavogs)
s. 533 1111 - fax.533 1115
Andrés Pétur Rúnarsson
löggiltur fasteignasali.
Einar sölum Gsm 690 0152.
Hinnrik sölum. Jónas sölum.
ATVINNUHUSN/EDl
TIL SÖLU
Austurstræti, 500 fm. 180 m.
Kaplahraun, 225 fm. 14,3 m.
Skipholt, 200 fm. Leiga.
Akralind, 900 fm. 81 m.
Lyngháls, 2100 fm. Leiga.
Stórhöfði, 2300 fm. 179 m.
Lyngás, 65 fm.Leiga
Brautarholt, 1800 fm. 155 m.
Brautarholt, 560 fm. Leiga
Vesturvör, 5000 fm. 310 m.
Stórholt, 135 fm. 10,5 m.
Suðurhraun, 200 fm.
ATVINNUHUSNÆÐI
TIL SOLU EÐA LEIGU
Glæsíleg skrifstofa c. 60 fm.
á efstu (9) hæð í stærri turnin-
um í Kringlunni. Útsýni yfir alla
R.vík.
Ármúli, 300 fm.
Akralind 2x300 fm.
Kothús Garður, 1600 fm. 40 m.
Lækjamelur, 1560 fm. 60 m.
Gnoðavogur, 62 fm. 6 m.
FYRIRTÆKI
Blómaverslun. 2,5 m.
Bar í miðbænum 14 m.
Kaffi og veitingahús
Húsgagnaverslun Hafnarf.
Gott fyrirtæki fyrir sendif. bílstj.
Sólbaðsstofur 5-14 m.
Bifreiðav. Bílapartasala. 3,5 m.
Matsölustaður.
Framköllunarþjónustan
Höfum kaupendur og leigj-
endur að öllum tegundum
af fyrirtækjum, atvinnu og
leiguhúsnæði.
Söngkonan Gloria lYevi, hin
mexíkóska Madonna, fær að yf-
irgefa fangaklefa sinn til þess að
fæða barn sitt á
spítala samkvæmt
úrskurði dóms-
stóla í Brasilíu.
Söngkonan hefur
verið í fangelsi þar
í tæp tvö ár og
varð ófrísk á dul-
arfullan hátt innan
veggja þess. Hún
hefur barist gegn því að verða
framseld til Mexíkó þar sem bíða
hennar kærur, m.a. fyrir að mis-
nota unga stúlku.
Kanslari Þýskalands, Gerhard
Schröder, og borgaryfirvöld í
Berlín heiðruðu minningu leik- og
söngkonunnar
Marlene Dietrich á
hundrað ára af-
mælisdegi hennar.
Borgarstjóri
Berlínar baðst ein-
nig afsökunar á
slæmum móttök-
um sem leikkonan
fékk þegar hún
snéri aftur til Berlínar eftir seinni
heimsstyrjöldina. Haldin var sér-
stök minningarathöfn við leiði
hennar í Berlín.
Kristinn ofsatrúahópur í Banda-
ríkjunum stóð fyrir bruna á
bókunum um Harry Potter á gaml-
ársdag. Halda trú-
| arleiðtogar hans
j því fram að bæk-
urnar „kenni
i krökkum að tilbiðja
j kölska“. Höfundur
l bókanna JK Rowl-
l ing varði hugar-
; fóstur sitt og sagð-
ist ekki enn hafa
hitt það barn sem væri staðráðið í
því að verða norn eða galdramaður
eftir að hafa lesið bækur sínar.
Julia Roberts ætlar að giftast
kærasta sínum, kvikmyndatöku-
manninum Dan Moder. Pilturinn
bað hennar yfir jólahátíðina og gaf
hún honum grænt á kirkjubjöllurn-
ar. Það eina sem stendur í vegi
þeirra er eiginkona Moders, en
hann stendur víst í skilnaði þessa
dagana. Roberts kynntist tilvon-
andi eiginmanni sírium við tökur
myndarinnar The Mexican.
Það er galdur að syngja
„O, ó, Regíííínaaaaaaaa'*, var það sem kom upp í hugann þegar frét-
tist að uppleysti Sykurmolinn Margrét Ornólfsdóttir og Sjón væru að
gera kvikmyndahandrit með þessu nafni. Nú hefur María Sigurðar-
dóttir leikstýrt mynd eftir handritinu. Von er á Regínu á föstudag.
kvikmynpir „Nei, þetta er alls ekki
sama Regína, þetta er skortur
hugmyndaflugs," útskýrir Mar-
grét Ornólfsdóttir og hlær létti-
lega vinalegum en upplýsandi
ömmuhlátri. „Þetta er bara svo
fallegt nafn, það þýðir líka drottn-
ing. Það var einhver annar sem
benti mér á þetta með Sykur-
molalagið, ég veit ekki hvað það
segir um mig.“
Margrét vill eklci kalla Regínu
„fyrstu íslensku dans- og söngva-
myndina" þar sem henni finnst
Stuðmannamyndin „Með allt á
hreinu" eiga þann titill. Fjögur ár
eru síðan hún fékk hugmyndina
að sögunni og fljótlega sótti hún
um handritastyrk í kvikmynda-
sjóð og fékk úthlutað. „Þegar ég
byrjaði að skrifa Regínu, fattaði
ég ekki strax að þetta væri barna-
mynd. Ég og Sjón ræddum það
ekki einu sinni, það skipti engu
máli, við vorum bara að skrifa
söguna. Ég held að maður eigi
ekki að setja sig í einhverjar stell-
ingar af því að maður er að skapa
fyrir börn. Ef fullorðnir hafa ekki
gaman af hlutum, þá hafa börn
það ekkert endilega heldur."
MARGRÉT ÖRNÓLFSDÓTTIR
„Fjögur ár þykja ekki langur tími í kvik-
myndabransanum, en þetta er langur
meðgöngutímí fyrir tónlistarmann."
Myndin fjallar um ævintýri
Regínu, ósköp venjulega stelpu í
Reykjavík sem uppgötvar að með
söng sínum getur hún látið alls
konar hluti gerast. Hún hrindir af
stað áætlun með Pétri vini sínum
sem varðar framtíð þeirra og for-
eldra þeirra. En svo flækjast hlut-
irnir þegar óheiðarlegi hárkollu-
sölumaðurinn ívar blandast í leik-
inn. Hann hefur sitthvað grug-
gugt í pokahorninu.
„Hún er ekki gullgerðamaður,
eða eitthvað svoleiðis, en húri get-
ur fengið fólk til að gera hluti
sem það myndi annars ekki gera.
Þetta er hálfgerð dáleiðsla."
Auk þess að skrifa handritið í
samvinnu við Sjón samdi Mar-
grét tónlistina. Hún segir að
handritið hafi komið fyrst og svo
hafi hún samið lögin út frá þeirri
tilfinningu sem átti við hverju
sinni. Þannig hafi öll lögin tilgang
og verði óhreyfanlegúr hluti af
myndinni. Olga Guðrún Árnadótt-
ir, sem m.a. gerði barnaplötuna
„Eninga Meninga", sá um texta-
smíðar laganna. „Hún er föður-
systir mín og átrúnaðargoð frá
því að ég man eftir mér. Hún
gerði barnaplötu fyrir 5 - 6 árum
sem hét „Babbídíbú" þar sá ég
um upptökustjórn. Okkur gengur
vel að vinna saman.“
Aðalhlutverk myndarinnar
eru í höndum hinnar 10 ára Sigur-
björgu Ölmu Ingólfsdóttur og
hinum 8 ára Benedikt Clausen.
Þau voru valin úr stórum hópi
umsækjanda. Ögn reyndari leik-
arar, eins og Baltasar Kormákur,
Halldóra Geirharðsdóttir, Stefán
Karl, Magnús Ólafsson og Rúrik
Haraldsson sjá um aukahlutverk.
biggi@frettabladíd.is