Fréttablaðið - 28.01.2002, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 28.01.2002, Blaðsíða 12
FRÉTTABLAÐIÐ 28. janúar 2002 MÁNUDflCUR Fyrirtæki tii sölu, t.d.: • Langar þig í eigin rekstur. Höfum til sölu nokkur lítil en góð fyrir- tæki sem auðvelt er að byrja á. Jafnvel auðveldara en þú heldur. • Kristján IX í Grundarfirði. Vinsæl- asti veitinga- og skemmtistaður- inn á Snæfellsnesi. Ársvelta 20 MKR. • Þekkt einingahúsafyrirtæki í góð- um rekstri. Miklir framtíðarmögu- leikar. Hentugt fyrir smiði. • Tvö gistihús miðsvæðis í Reykja- vík. 7-15 herbergi. • Lítill sport pub í úthverfi. Mikil matsala. Auðveld kaup. • Heildverslun með þekktar heilsu- vörur. Ársvelta 27 MKR í fyrra en núverandi eigendur ráða ekki við ört vaxandi eftirspurn. • Lítil en mjög efnileg heildverslun með umhverfisvæn hreinsefni. • Þekkt austurlenskt veitingahús í miðbænum. Velta 4 MKR á mán- uði og vaxandi. Góður hagnaður. • Lítil heildverslun með kex og sælgæti. Ársvelta 10 MKR. • Unglingafataverslun í Kringlunni. 24 MKR ársvelta. Auðveld kaup. • Mjög góður söluturn í Hafnarfirði með bílalúgum, grilli og video. 6,5 MKR mánaðarvelta og vax- andi. • Falleg lítil blómabúð í Breiðholti. Mjög einfaldur og öruggur rekst- ur. Auðveld kaup. • Stór útivistarverslun í góðum rek- stri. Ársvelta140 MKR. • Skyndibitastaður í atvinnuhverfi. Ársvelta 20 MKR. Þægilegt fyrir einn kokk. • Falleg og nýstandsett hár- greiðsiustofa í Hlíðunum. Mikið að gera. Lágt verð af sérstökum ástæðum. • Heildverslun með tæki og vörur fyrir byggingariðnaðinn. Ársvelta 100 MKR. • Góð videósjoppa í Breiðholti með 4 MKR veltu á mánuði. Auðveld kaup. • Stórt og fjölbreytt heilsustúdíó. Eurowave, Ijósalampar, sogæða- nudd, leirvafningar og fi. Mjög góð staðsetning. • Rótgróið veitingahús við Bláa Lónið. Góður og vaxandi rekstur í eigin húsnæði. • Lítil heildverslun með góða markaðsstöðu í matvöru óskar eftir sameiningu við fjársterkt fyr- irtæki til að nýta góð tækifæri. • Veitingahús á Akranesi • Lítið verktakafyrirtæki sem star- far nær eingöngu á sumrin. Fastir viðskiptavinir, stofnanir og stór- fyrirtæki. Hagnaður 7-8 MKR á ári. • Verslun, bensínsala og veitinga- rekstur í Búðardal. Eigið hús- næði. Mjög góður rekstur. Árs- velta 160 MKR. • Efnalaug/þvottahús í stóru hverfi. Arðbær rekstur og miklir vaxta- möguleikar fyrir hendi. Mjög hentugt fyrir fjölskyldu. • Þekkt bílabónstöð með 15 MKR ársveltu. Stórir viðskiptavinir í föstum viðskiptum. Gott hús- næði, ný tæki. • Lítil en vaxandi tískuverslun í góðu hverfi. Þægilegur og örugg- ur rekstur með ágætan hagnað. • Góð blómabúð í Grafarvogi. Til sölu af sérstökum ástæðum. • Falleg gjafavöruverslun við Laugaveginn, heildsala og net- verslun. Mikil tækifæri. • Ein besta sólbaðsstofa borgar- innar. Góður hagnaður. Skipti möguleg á góðu atvinnuhús- næði. • Þekkt barnafataverslun við Laugaveg.. Eigin innflutningur. • Stór og mjög vinsæll pub í út- hverfi. Einn sá heitasti í borginni. • Söluturn á Akureyri. Lottó, video og grill. Ársvelta 20-24 MKR. Auðveld kaup. • Sérverslun á Djúpavogi. Eigið húsnæði á besta stað. 20 MKR ársvelta. • Skyndibitastaðurinn THIS í Lækj- argötu (áður Skalli). Nýlegar inn- réttingar og góð tæki. m FASTEIGNASALA • Suðurlandsbraut 50 (bláu húsin) • Sími 533 4300 • Gsm 820 8658 Samgönguáætlun 2003 til 2014: Einbreiðum brúm útrýmt á þjóðvegi eitt samgöngur Einbreiðum brúm á þjóðvegi númer eitt verður út- rýmt fyrir árið 2014 nái tillögur stýrihóps um samgönguáætlun fram að ganga. Umhverfis og ör- yggismál skipa stóran þátt í áætl- uninni sem nær frá árinu 2003 til ársins 2014. „Við viljum miða okk- ur við það sem best gerist meðal nágrannaþjóðanna og bendum á leiðir til að það megi verða,“ segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, sem fór fyrir stýrihópnum og benti á sívaxandi samstarf við Evrópu- sambandið og Norðurlandaþjóðir í öryggismálum. Vilhjálmur taldi að í dag væri öryggi í samgöngum á svipuðu róli og hjá þeim þjóðum sem við miðum okkur við. „En sí- fellt er verið að herða kröfurnar," sagði hann og nefndi auknar kröf- ur í flugöryggismálum í kjölfar hryðjuverkanna í Bandaríkjunum í september sl. „Það á að fækka og helst út- rýma alveg einbreiðum brúm. Það tekst okkur reyndar ekki á þjóð- vegakerfinu öllu á tímanum en ætti þó að takast á þjóðvegi eitt verði okkar tillögum fylgt,“ sagði hann en áréttaði að Alþingi ætti eftir að f jalla um tillögurnar. ■ BRUARVINNA Engar einbreiðar b'ryr verða á þjóðvegi eitt innan 12 ára gangi samgönguátæun eftir. Seinna verður unnið að því að útrýma ein- breiðum brúm á öðrum vegum. Oddi í Vesturbyggð: Áætlar 100% aukningu í útflutningi með flugi siávarútvegur Sjávarútvegsfyrir- tækið Oddi í Vesturbyggð var rek- ið með rúmlega 40 milljón króna hagnaði í fyrra. Það er álíka og var árið þar á undan en fyrirtæk- ið hefur sl. þrjú ár skilað hagnaði. Sigurður Viggósson fram- kvæmdastjóri Odda segir að þetta sé afleiðing af því hagkvæma um- hverfi sem verið hefur eftir að tókst að ná tökum á rekstrinum. Þá hefur afurðaverð verið hátt. Athygli vekur að í ár er áætlað að útflutningur fiskafurða með flugi frá Keflavíkurflugvelli verði um 160 tonn. Það er um 100% aukning frá fyrra ári. Þessi þáttur í rekstr- inum hefur numið um 10-15% af heildartekjum sem að öðru leyti samanstendur af frystingu og söltun á bolfiski. Um 40-50 manns vinna hjá fyr- irtækinu í landi og um 20 manns á sjó en Oddi er meðal stærstu fyr- irtækja á svæðinu. Það fær hrá- efni til vinnslunnar frá eigin bát- um, auk þess að vera í beinum við- skiptum við aðrar útgerðir. Um 20% hráefnisins er keyptur á fisk- mörkuðum. Sigurður segir að það séu einkum þrír áhrifavaldar sem skipta mestu um reksturinn til næstu framtíðar. Hættulegasti áhrifavaldurinn er sagður vera stjórnvöld á hverjum tíma sem geta umturnað öllum áætlunum með verkum sínum. Að öðru leyti sé það afurðamarkaðurinn al- mennt, þ.e. heimsmarkaðurinn með matvæli, aflabrögð og gæftir. Sigurður segir að það sé því erfitt um vik að ætla að spá eitthvað um framtíðina í þessari atvinnugrein þar sem margir óvissuþættir geta haft áhrif á reksturinn. ■ SIGURÐUR VIGGÓSSON Segir að mikið sé unnið þegar menn séu orðnir samkeppnishæfir við aðra fiskkaupendur um hráefnið. Jóhann Ársælsson: Kerfið verð- ur lokaðra fiskveiðistjórn „Þetta er sam- komulag milli hagsmunaðila í sjávarútvegi og þeir eru að hugsa um sína eigin hagsmuni. Það er svo sem ekkert við það að at- Guðjón A. Kristjánsson: Osanngjörn útfærsla fiskveiðistiórn Guðjón A. Krist- jánsson, þingmaður Frjálslynda- flokksins, segist ekki hafa séð tillögu útvegs- og sjómanna. Hann hafi heyrt af þeim í út- Steingrímur J. Sigfússon: Lækning með plástri fiskveiðistjórn „Með þessu er ekki verið að hrófla við kerfinu sjálfu. Það er ekki verið að tak- marka varanlegt fi-amsal. Ef ég hef skilið rétt hefur þetta einung- huga,“ sagði Jóhann Ár- varpsfréttum. „Út af fyrir is áhrif á leigu innan ársins sælsson, þing- sig er ég ekki á mm og mér sýnist maður Sam- ósáttur við að þetta gott * w mif? fylkingarinn- þeir sem hafi ”p>~*% - ■ dæmi um þeg- . ar. „Sjómenn veiðiheimildir fjgjl Jél ar menn hafa verið að I4 \ / eigi að veiða JP* : lækna djúp \ 3$L reyna að kom- i / ■ j# ^ af þeim. Hinn sár með ast undan því endinn sem p 1 a s t r u m . að taka þátt í kvótakaupum * m maður hefur heyrt, ég tek «» __j Þegar menn leysa eitt ÁRSÆLSSON Ekki verið að laga neitt í stóru út- gerðinni. og þeir laga sína stöðu svo- lítið með þessu. Að vísu er ekki verið að laga neitt í stóru útgerðinni. Þær geta hringlað með kvótann á milli báta sem þær eiga, innan sömu útgerðar. Þetta hefur samt ekkert með deilumálið um stjórn fiskveiða að gera. Þetta er ekki sátt við þjóðina um það deilumál. Þetta er bara sátt þeirra sem eru að nýta auðlindina." Jóhann segir einnig að spurn- ing sé hvort tillögurnar standist lög. Með Valdimarsdómnum, svo- nefnda, áttu menn að fá veiðileyfi sem vildu stunda sjó. Þá var sagt að menn gætu keypt eða leigt veiðiheimildir af þeim sem fyrir væru. „Það er alveg klárt að með tillögunum geta menn ekki leigt til sín eitt einasta kíló nema kaupa fyrst einhverjar veiði- heimildir á skipið fyrir mikla peninga. Aðaláhrifin verða að kerfið verður lokað enn meira og kyrfilegar en áður.“ ■ GUÐJON A. þafl fram að kristánsson é hef ekki Stangast senmlega a r* við hæstarréttardóm. se<5 Pappinnn, að menn geti ekki leigt til sin eitt tonn ef þeir eiga bara eitt tonn gengur aldrei upp. Að mönnum sé meinað að leigja til sín miðað við hvað þeir eiga mörg tonn gengur aldrei upp. Að mínu viti er það mjög ósann- gjörn útfærsla. Ekki bara gagn- vart þeim sem eiga og reka fiski- skip heldur er þetta afar ósann- gjörn útfærsla gagnvart þeim byggðarlögum sem á undanförn- um árum hafa misst svo til allar veiðiheimildir vegna hins frjálsa kvótabrasksframsals. Það stang- ast sennilega á við stjórnarskrá og hæstarréttadóminn frá því í desember 1998. Fyrir utan það tel ég að þetta sé mjög ósann- gjarnt gagnvart þeim byggða- lögum og útgerðaraðilum sem hafa verið að vinna eftir því kerfi sem er í gildi.“ ■ íhciiviikiiviuh j. vandamál sigfusson verður til ann- Þegar menn leysa eitt , „ « • vandamál verður “°\ , S3®111 annað til. Steingrimur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna. „Ég hef ekki verið talsmaður leiguviðskipta í þessu efni en ég átta mig á þeirri hugmynd að draga úr leigubraski og setja því skorður. Á hinn bóginn er þetta mjög þungt högg á þá sem hafa verið að reyna koma undir sig fótunum og gera út á leigukvóta.“ Steingrímur J. veltir því ein- nig fyrir sér hvort útgerðir sem geri út mörg skip megi reikna all- an kvótann í einn pott og nýta hann sem heild. „Spurningin er þá hvort það megi leigja út frá sér 25% af heildarkvóta margra fiskiskipa. Ef sú verður útfærslan hefur þetta fyrst og fremst áhrif á ein- yrkja og minni fyrirtæki en kem- ur ekkert við stóru fyrirtækin. Þetta atriði þarf að liggja ljóst fyrir áður en hægt er að taka endanlega afstöðu." ■ FLUGTURNINN í REYKJAVÍK Miklar tafir vegna veik- inda flugumferðarstjóra: Ahyggjur af heilsufarinu flugumferð Talsverð röskun varð á flugi í gær þar sem 15 af 23 flug- umferðarstjórum í Reykjavík og Keflavík tilkynntu veikindi. Að sögn Heimis Más Pétursson, upp- lýsingafulltrúa Flugmálastjórnar, urðu talsvert miklar tafir á milli- landaflugi. Innanlandsflug gekk þó vel fyrir sig þar sem flugveður var gott. Á Egilsstöðum var að vísu snjókoma svo ekki var leyfð blind- flugsþjónusta nema til sjúkravélar sem lenti um tvö leytið í gær. „Við vitum nú ekki hvað er að hrjá þessa menn en höfum auðvit- að áhyggjur af heilsufari starfs- manna okkar. Við fáum væntalega að vita hvað er að hrjá fólk.“ Heimir Már segir að lítið sé hægt að gera þegar svona mál koma upp. „Við erum með viðbún- aðaráætlun og það er aldrei þannig að það er enginn á vakt. Það eru lágmarkskröfur sem eru gerðar til þess. Þetta hefur fyrst og fremst tafir í för með sér. Á alþjóðaflugi, yfirflugi yfir íslenska svæðið hafa ekki orðið tafir.“ Aðspurður hvort Flugmála- stjórn líti svo á að um samantekin ráð sé að ræða sagði Heimir Már. „Við getum ekki fullyrt neinn skapað hlut um það. Við reiknum með því að fólk sé veikt þegar það tilkynnir um það. Trúnaðarlæknir flugmálastjórnar mun væntanlega skoða það mál.“ En mun hann þá skoða hvern flugumferðarstjóra fyrir sig? „Hann hefur það í sínum höndum hvort hann sinni því.“ ■ ---♦-- Tafir hjá Flugleiðum: Tapa tíu milljónum samgöngur „Áætlun Flugleiða fór gjörsamlega úr skorðum," sagði Guðjón Arngrímsson, upplýsinga- fulltrúi Flugleiða um röskun á flugi í gær vegna veikinda flug- umferðarstjóra. „Þetta olli mikl- um töfum þegar vélarnar voru að fara frá íslandi til Evrópu. Það hafði síðan þær afleiðingar að þeim seinkaði mikið þegar þær voru að koma frá Evrópu. Niður- staðan varð sú að það voru felld niður þrjú flug. Þetta olli mikilli röskun og óvíst með framhaldið." Guðjón áætlar að fjárhagslegt tjón Flugleiða vegna röskunar sé um tíu milljónir en það er lítið sem félagið getur gert. „Við verðum bara að taka þessu. Við eigum ekki aðild að þessari deilu. Ríkið semur við flugumferðarstjóra. Auðvitað er þetta ástand óviðunandi fyrir flugrekendur sem og farþega. Þetta kostar of mikið.“ ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.