Fréttablaðið - 28.01.2002, Side 24

Fréttablaðið - 28.01.2002, Side 24
FRETTABLAÐIÐ SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00 Ritstjórn: 515 7515, símbréf: 515 75 06, rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - símbréf 515 75 16 - rafpóstur auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 20 Vie SEGJUM FRÉTTIR Fréttavefurinn á VÍSÍr.ÍS Fyrstur með fréttirnar HYUNDAI Mu!ti(SS> Total IT Solution Provider Hagkvæm og traust tölva :;f%TÆKNIBÆR Skipholti 50C S: 551-6700 www.tb.is Umboðsaðili HYUNDAI á íslandi Diplómatar í fátæktargildru Það er ekki ofsögum sagt að mis- jafnt er skipt mannanna kjörum. Samt kom það harkalega við mann að lesa í Fréttablaðinu að það skuli viðgangast að láta íslenskan sendi- herra hírast í Mósambík fyrir skitna hálfa milljón á mánuði eða svipað kaup og sosum 8 röskar skúringa- konur eða kassastelpur gætu hæg- lega rifið upp hér heima. Og þessi ágæti maður verður að láta sér nægja aðeins fjórða partinn af því sem öðrum sendiherrum er borgað fyrir að fara á mis við að njóta land- kosta í Mósambík. —*— MIKILSAMKEPPNIerhér heima eins og annars staðar um þægilega og skemmtilega láglauna- vinnu og þetta mikla framboð á vinnukrafti gerir það að verkum að launin haldast lág, því að auðvitað væri ekkert vit í því að fara að bjóða há Iaun fyrir létta vinnu sem fullt af fólki sækist eftir að fá að taka að sér til að hafa eitthvað fyrir stafni frek- ar en láta sér leiðast á atvinnuleysis- bótum. FYRSTA BOÐORÐ Mammons fjallar eins og kunnugt er um fram- boð og eftirspurn og láglaunaliðið getur að sjálfsögðu aðeins sjálfu sér um kennt að fá ekki hærra kaup. Það er náttúrlega ekki við vinnuveitend- ur að sakast heldur við aðra lág- launaþræla sem halda kaupgjaldinu niðri með því að slást innbyrðis um það áhyggjulausa líf sem fylgir eft- irsóttum láglaunastörfum. —♦— EINA RÖKRÉTTA skýringin á lág- um launum sendiherrans í Mósam- bík er sú að mikil eftirspurn sé eftir því í utanríkisþjónustunni að fá að fara til Afríku og diplómatar undir- bjóði hver annan varðandi laun og staðaruppbót til að sleppa við að vistast í Tókíó eða London eða Was- hington eða öðrum hundskinnsútnár- um. Ef Mósambíkmaðurinn hefði boðist til fara til Tókíó hefði hann getað fengið 2 millur á mánuði og gerst jafnoki 33 skúringakvenna í stað þess að vera aðeins 8-kerlinga- maki í launum. Það er hins vegar varla forsvaranlegt að íslenskur diplómat skuli ekki bera úr býtum nema hálfa milljón á mánuði - og þessi eymdarkjör minna helst á þrælahald. Það væri mannúðarmál að kalla þrælana strax heim og reyna að lagfæra kjör þeirra. ■ KLJUFÐU UTGJOLDIN! .. EUROPAY / s l a n d Sími 550 1500 Með Greiðsludreifingu gefst korthöfum EUROCARD færi á að dreifa útgjöldum eins kortatímabils á allt að tólf mánuði. Ef hringt er fyrir eindaga getur korthafi skipt mánaðarreikningnum í allt að tólf greiðslur. Fyrsta greiðsla getur aldrei verið minni en 1/12 og þarf að greiðast á eindaga. Eftirstöðvar færast á kortareikninginn næstu ellefu mánuði. Nýir korthafar eiga rétt á Greiðsludreifingu strax! Látum ekki áhyggjur af fjármálunum íþyngja okkur að óþörfu. - Hringdu núna! Nú geturðu skipt greiðslukortareikningnum i allt að tólf hluta með einu símtali EUROCARD MasteiCard. 15-20% afsláttur HEIMILISTÆKI Tandurhrein tilboð á þvottavélum, þurrkurum og uppþvottavélum Lágmúla 8 • Sími 530 2800

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.