Fréttablaðið - 04.03.2002, Page 2

Fréttablaðið - 04.03.2002, Page 2
2 Heimilisblaðið 4. til 10. mars 2002 FALLECT Á BORÐI Ekki amalegt að bjóða gestum í mat og dekka upp með þessu stelli. Glæsilegt stell Þetta glæsilega stell frá enska fyr- andi mynstri. Stellið er úr beinpostu- irtækinu Wedgwood heitir líni og þolir að falla á gólfið án þess Samurai. Hér er teflt saman mismun- að brotna. Það fæst í Debenhams. ■ Langar í hund Bergdís Örlygsdóttir á vísast ekki tök að halda hund á meðan hún býr í fíölbýli. Bergdís Örlygsdóttir hefur bæði átt fiska og páfagauk sem hún hafði mjög gaman af þegar hún var barn. „Eg reyndi að kenna gauksa að tala en hafði ekki þolinmæði. Hann lærði hins vegar að drekka munnvatn og flaug öxl af öxl enda var hann alltaf laus. Hann dó ekki fyrr en hann var orðin gamall og fór þá úr hjartaslagi.“ Bergdís segir að sig langi í hund en er ekki viss um að hún hafi tök á því í bráð. „Ég bý í fjölbýli og er ekki viss um að allir myndu samþykkja að ég héldi hund. Hver veit hvað síðar verður og kannski flyt ég í sveit einhvern tíma.“ ■ FLAUG ÖXL AF ÖXL Páfagaukurinn hennar Bergdísar var alltaf laus. www.linan.is Vill brenna vid að annað glepji Hilmar Oddsson kvik- myndagerðarmaður eignaðist nýlega lítinn prins. Því er erfiðar en oft áður að halda sér að vinnu í næsta herbergi. GAIWALDAGS ELDAVÉLARKATLAR Einfaldir og sniðugir katlar. Fyrir raf- magn og gas Þessa katla má nota bæði á raf- magn og gas. Katlarnir fást í Ikea. Þeir eru úr stáli og hægt er að fá þá bæði með gulu og bláu haldi. ■ Á KALDA FÆTUR Dúninniskór eru afar hlýir Inniskór fýrir fótkalda Margir eru fótkaldir og finnst þeir aldrei ná hita á fótun- um. Þessir hlýlegu inniskór eru einmitt ætlaðir þeim því engum ætti að verða kalt sem komnir eru með tærnar í inniskó úr dún. Inniskórnir fást í Rúmfatala- gernum. ■ Þegar Hilmar Oddsson kvik- myndagerðarmaður heldur til vinnu á morgnana gengur hann aðeins nokkur skref inn í næsta herbergi og sest þar við skrifborð. Á skrifborðinu er tölvan hans en gegnt því píanóið. „í þessu her- bergi eru allir mínar andlegu þarfir. Þar er líka bókahilla, önnur hljóðfæri og magnari. Það fer því nokkuð eftir því hvernig ég er stemmdur hvoru megin ég sest; skrifborðsmegin eða píanómegin. Hilmar segist vera svo lánsamur að vinnan sé ekki aðeins vinna heldur ekki síður áhugamál og í vinnuhorninu hans er sambræð- ingur af öllu sem hann hefur gam- an af að fást við og tengist vinn- unni. „Ég hef verið með skrifstofu úti í bæ en eigi að síður hef ég alltaf haft vinnuaðstöðu heima. Vinnuna flutti ég alfarið heim fyr- ir nokkru og líkar það prýðilega. Einkum vegna þess að ég eignað- ist nýlega lítinn prins sem ég hvorki vil né get hugsað mér að vera án heilan dag. Vitaskuld hef- ur það bæði ljósa kosti og galla að hafa vinnuna svo nærri heimilinu og fjölskyldunni en kosturinn að vera heima er augljós. Ekki síst vegna þess að ég er nokkuð slæm- ur með að fá frábærar hugmyndir svona um það bil sem ég geng til náða.“ Hilmar viðurkennir að það krefjist nokkurs aga að vinna heima. Oft vilji brenna við að eitt- hvað annað glepji og það komi fyrir að erfitt sé að koma sér að verki. „Ég þarf þó ekki að kvarta yfir því að mér sé ekki gefinn friður til vinnu heima því fjöl- skyldan sýnir mér fyllstu tillit- semi. Mun oftar er það ég sem vil vera frammi og dást að yngsta fjölskyldumeðliminum. Um þess- ar mundir er ég hins vegar að vinna úti í bæ að ákveðnu verk- efni og get því ekki verið eins mikið heima og ég vildi.“ Vinnuherbergið hans Hilmars er minnsta herbergið í íbúðinni og segir hann ekki annað herbergi hafa komið til greina þegar hann flutti í íbúðina. „Það kemur einnig til að sem barn bjó ég í þessu sama húsi í eins íbúð. Herbergið sem var staðsett á sama stað var drengjaherbergið mitt. Það var ALLAR ANDLEGAR ÞARFIR Hilmar Oddsson kvikmyndagerðar- maður hefur allt sem hugurinn girnist I vinnuherbergi sínu, skrifborð.tölvu, píanó og ýmis önnur hljóðfæri, bóka- hillu og magnara. aldrei annað rætt þegar ég flutti í þessa íbúð en að það sem tilheyrði vinnu minni færi þangað inn.“ ■ ehf. STRAUIMLÍNA í STOFUNA Baststólar gefa létt og skemmti- legt yfirbragð. Fallegur baststóll Þessi skemmtilegi baststóll heitir Karlskrona. Hann er til- valinn fyrir þá sem njóta þess að slaka á með góða bók. Stóllinn er fallegur í stofu en gæti líka átt vel heima í sólstofunni. Höfuðpúðinn er hæðarstillanlegur. Stóllinn fæst í Ikea. ■ HLAÐ RÚM

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.