Fréttablaðið - 11.03.2002, Side 2

Fréttablaðið - 11.03.2002, Side 2
KJÖRKASSINN MEIRI UPP- LÝSINGAR Átta af hverjum níu netverjum vilja meiri upplýsingar um auka- verkanir lyfja. Þarf að upplýsa betur um aukaverkanir lyfja? Niðurstöður gærdagsins á www.visir.is IZEIOL 188% 12% Spurning dagsins í dag: Stýrir ný stjórn Símans honum betur en sú gamla? Farðu inn á vísi.is og segðu þína skoðun Rannsókn á því þegar Bjarmi VE fórst: Smásjánni beint að stöðugleika bjarmaslysið Rannsóknarnefnd sjóslysa beinir nú sérstaklega sjónum að stöðugleika bátsins Bjarma VE sem fórst með tveim- ur mönnum við Vestmannaeyjar fyrir tæpum tveimur vikum. Tryggingamiðstöðin hefur óskað eftir sjóprófum vegna slyssins fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Dagsetning sjóprófanna hafði ekki verið ákveðin á föstudag. Þau eiga þó að vera í fyrri hluta þess- arar viku. „Við erum sérstaklega að skoða stöðugleika Bjarma eins og hann var þegar skipið fór frá Vestmannaeyjum," segir Guð- mundur Lárusson, starfsmaður sjóslysanefndarinnar. Að sögn Guðmundar beinist rannsóknin að því hvernig báturinn var fermdur. Ekkert bendir til annars en að bát- urinn hafi verið með fullkominn stöðugleika að öðru leyti. „Enda var búið að róa honum í ein 30 ár. Við höfum engar upplýsingar um það hann hafi verið neitt sérstak- lega hættulegur rnönnum," segir Guðmundur. Útgerðarmaður Bjarma, sem var að selja bátinn, sagði á dögun- um í samtali við Fréttablaðið að annar skipverjanna sem komst af hafi sagt að svokölluð lensport við borðstokk bátsins hafi verið lokuð daginn sem Bjarmi sökk. Guð- mundur segir að ef rétt sé þá hafi það einnig haft áhrif á stöðugleik- ann. „Sjórinn rennur seint út. Ef það er einhver ágjöf þá hefur það sitt að segja,“ segir hann. ■ [lögreglufréttirI Lögreglan í Keflavík hafði af- skipti af einum ökumanni í Grindavík aðfaranótt sunnu- dagsins grunaðan um ölvun við akstur. Að öðru leyti var rólegt. Ráðist var á 19 ára afgreiðslu- stúlku í söluturninum Tvist- inum á Lokastíg í Reykjavík á föstudag. Maðurinn hoppaði yfir búðaborðið, kýldi afgreiðslu- stúlkuna og dró hana á hárinu. Tók árásarmaðurinn með sér peninga úr kassanum auk sígar- ettna og símakort. Lögreglan handsamaði hann stuttu síðar. Hann reyndist vera 22 ára gam- all fíkniefnaneytandi. Kallað var á aðstoð slökkvi- liðsins á höfuðborgarsvæð- inu að fjölbýlishúsi við Fálka- götu um tíuleytið á laugardags- morgun. Kviknað hafði í þvotta- vél, líklega út frá rafmagni. Slökkviliðsmenn slökktu eldinn og reykræstu íbúðina. Þjóðvegurinn á Suðurlandí var opnaður um tvöleytið í gær- dag. Tugir bíla höfðu setið fastir um nóttina vegna ófærðar. Lög- reglan í Vík segir fólkið ekki hafa fundið fyrir vosbúð. Bflarnir voru iosaði í gærmorgun. FRÉTTABLAÐIÐ 11. mars 2002 MÁNUDAGUR Sönnunargögn gegn Árna frá Ríkislögreglustjóra: Arnaskjölin komin til Ríkissaksóknara lögreglumál Fulltrúar Ríkislög- reglustjóra afhentu Ríkissaksókn- ara rannsóknargögn sín í máli Árna Johnsen klukkan eitt á föstu- dag. Gögnin voru flutt í tveimur stórum pappakössum og öðrum minni. Rannsókn Ríkislögreglustjóra lauk endanlega á þriðjudag í síð- ustu viku. Afhending gagnanna til Ríkissaksóknara dróst vegna þess að starfsmenn Ríkislögreglu- stjóra þurftu að taka af þeim fjöl- da afrita, m.a. fyrir lögmenn allra sem málinu tengjast. Gagna var aflað hjá opinberum aðilum, fyrir- tækjum og einstaklingum. Mál- skjöl eru á annað þúsund talsins. Þar af eru hundruð skýrslna um yfirheyrslur og viðtöl við fólk. Auk Árna eru tólf aðrir ein- staklingar með stöðu sakborn- ings í tengslum við mál alþingis- mannsins fyrrverandi. Ekki hafði verið hafist handa við að skipta málum þeirra á einstaka starfs- menn Ríkissaksóknara síðdegis á föstudag. ■ í HÚSAKYNNUM RÍKISSAKSÓKNARA Prjá starfsmenn Rikislögreglustjóra þurfti til að flytja málsgögnin I máli Árna Johnsen til Ríkissaksóknara mafssiaiatííMi.ttmmn.'.'aímiem Fjórir bæir rýmdir vegna snjóflóðahættu Snjóflóðið hreif með sér jeppa og vörubíl sem hafnaði á skúrþaki sem tengist íbúðarhúsnæðinu á Lækjarbakka. hamfarir „Okkur brá rosalega, þetta er svo nálægt okkur. Við tök- um enga áhættu og ætlum ekki að gista heima í nótt,“ sagði Bergþóra Ágústsdóttir, húsfreyja á Reyni í Reynishverfi í Mýrdal í samtali við Fréttablaðið í gær. Um hálfníuleyt- ið í gærmorgun féll snjóflóð milli tveggja húsa á bæjunum Lækjar- bakka og Reyni í Reynishverfi. Annað snjóflóð féll síðan um þrjúleytið sunnan við bæinn Reyni. Engan sakaði og minnihátt- ar skemmdir urðu á eignum. Auk Lækjarbakka og Reyni voru bæ- irnir Presthús og Garðar einnig rýmdir. Bergþóra segir íbúa þess- ara bæja alla verða að heiman. „Það er búið að spá meiri snjó- komu og svo eru greinilegar hengjur í fjöllunum beint fyrir ofan bæinn.“ Ólafur Steinar Björnsson, bóndi á Reyni, var að aðstoða nágranna sinn, Þórólf Gíslason á Lækjar- bökkum, við snjómokstur þegar Fréttablaðið hafði samband. Hann segist sjálfur hafa orðið einskis var þegar snjóflóðið féll um morg- unin. Það hafi Guðbergur Sigurðs- son, annar bóndi á Lækjarbökkum, hins vegar gert. Guðbergur hafi verið við gegningar þegar hann heyrði drunur og sá hvar snjóflóð- ið féll. Hafi hann umsvifalaust hringt í neyðarlínuna. Ólafur segir tvo jeppa og vörubíl hafa hrifist með snjóflóðinu. Vörubíllinn hafi hafnað á skúrþaki sem tengist íbúðarhúsnæðinu á Lækjarbökk- um. Aðspurður segir hann engar skemmdir hafa orðið á húsinu. „Ég geri ráð fyrir því að við verðum við störf fram á kvöld. Við erum að AFLEIÐINGAR SNJÓFLÓÐS Þórólfur bóndi á Lækjarbakka var I óða önn að moka ofan af vörubílnum sem lenti á skúrþaki við íbúðarhús hans. reyna að ná bflunum upp og svo eru menn að moka frá hlöðum til að koma heyi inn.“ Ólafur segir mikinn snjó hafa borist sem sé fastur fyrir. Verði leitað leiða að útvega snjóblásara í dag, mánu- dag. Tvö hús vestast á Víkurbraut- inni í Vík í Mýrdal voru rýmd um fimmleytið í gærdag eftir að litlar snjóspíur höfðu fallið fyrir úr fjall- inu fyrir ofan götuna. Björgunar- sveitin Víkverji var í viðbragðs- stöðu í nótt vegna frekari hættu á snjóflóðum. Lögreglan í Vík segir von á sérfræðingum í dag til að meta ástandið. Þá hafi veginum fram í Reynishverfi verið lokað vegna snjóflóðahættu. kolbrun@frettabladid.ts EINAR SVEINSSON Þótti rétt að selja hlutinn árið 1998 og einnig rétt að kaupa hann til baka núna. Eigendum stærsta líf- tryggingafélagsins fækkar: Sjóvá keypti aftur í Samlífi líftryggingar Eftir umfangsmikil viðskipti undir lok síðustu viku eru eigendur líftryggingafélags- ins Samlífs orðnir þrír í stað átta. Sjóvá-Almennar eiga 55% eftir kaup á 30% hlut af fimm lífeyrissjóð- um og íslands- banki á 30% eftir kaup á 15% hlut Búnaðarbankans. Tryggingamið- stöðin á áfram þau 15% sem eftir lig- gja. Ætla má að heildarverðmæti viðskiptanna hafi verið um 570 milljónir króna. Samlíf er stærsta líftryggingfélag landsins með um 40.000 viðskipta- vini. Athygli vekur að Sjóvá endur- heimtir með viðskiptunum hlut sem félagið seldi lífeyrissjóðun- um fyrir um fjórum árum. Fyrir þann tíma voru TM og Sjóvá einu eigendurnir. Árni Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Lífeyrissjóðs Sjó- manna, eins þeirra sjóða sem seldu, segir fjárfestinguna hafa skilað góðum hagnaði. Á sínum tíma hafi verið litið til þess að nýta Samlíf í tengslum við sér- eignarsparnað. Nú hafi málin hins vegar þróast öðruvísi, flestir sjóð- irnir stofnað eigin séreignardeild- ir, og ekki sérstakir hagsmunir í að halda eigninni í Samlífi. „Þeir aðilar sem nú eiga Samlíf hafa sýnt félaginu mestan áhuga,“ sagði Einar Sveinsson, fram- kvæmdastjóri Sjóvár, spurður um hvort núverandi eignarhald væri til marks um aukin innbyrðis tengsl eigendanna. Sjálfur er Ein- ar er í stjórn íslandsbanka. Aðilar tengdir Orca-hópnum, stærsta hluthafa bankans, hafa ráðandi stöðu í TM. ■ Bretar draga úr fréttaflutningi um stuðning stjórnvalda við Bandaríkin: Hyggja ekki á aðgerðir í Irak ÍRAK Bresk stjórnvöld hafa dregið úr þeim fréttaflutningi að banda- rísk stjórnvöld hafi óskað þess að 25 þúsund breskir hermenn tækju þátt í árás gegn Saddam Hussein íraksforseta. Dagblaðið The Observer hafði haldið því fram að hermennina ætti að nýta í landhernað í her sem á að stey- pa Hussein af valdastóli. Talsmaður Downingsstrætis fullyrti að engar óskir hafi borist frá Bandaríkjunum og þar af leiðandi engar ákvarðanir verið teknar. John Prescott, aðstoðar for- sætisráðherra, segir allan frétta- flutning af klofningi innan þings- ins varðandi íraksmálið vera inn- antómt þvaður. Hann viðurkennir þó að ýmis áhyggjuefni hafi bor- ið á góma, bæði hjá ríkisstjórn- inni og öðrum þingmönnum, en segir þó samhug ríkjandi á milli ráðuneytanna. Utanríkisráðuneytið hefur staðfest að ráðherrann Ben Bradshaw hafi átt fund með íröskum stjórnarandstöðuhópum í London og að það verði fleiri fundir í vikunni. Talsmaður ráðu- neytisins viðurkenndi að þar hefðu verið ræddar hugsanlegar aðferðir til að ýta undir uppreisn innan íraks til að steypa Saddam af stóli og sagði umræðuna „ekki óvanalega". Bandaríkin hafa hótað aðgerð- um gegn írak ef Saddam hleypir ekki eftirlitsmönnum Sameinuðu þjóðanna aftur inn í landið. Bæði Bretar og Bandaríkjamenn eru með herflugvélar sem vakta tvö svæði í írak þar sem flugumferð hefur verið bönnuð. Loftárásir hafa verið gerðar í hefndar skyni þegar írakar hafa skotið á her- sveitirnar. ■ TONY BLAIR Bretar bera tíl baka fréttir um að óskað hafi verið eftir 25 þúsund hermönnum til átaka við írak. f 1

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.