Fréttablaðið - 11.03.2002, Síða 10

Fréttablaðið - 11.03.2002, Síða 10
{ H\ I í Al5Í.Aí>H> FRÉTTABLAÐIÐ 11. mars 2002 MÁNUDAGUR Útgáfufélag: Fréttablaðið ehf. Útgáfustjórí: Eyjólfur Sveinsson Ritstjórar: Cunnar Smári Egilsson og Jónas Kristjánsson Fréttastjórar: Pétur Gunnarsson og Sigurjón M. Egilsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Þverholti 9, 105 Reykjavík Aðalsími: 515 75 00 Símbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjom@frettabladid.is Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16 Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Fréttablaðið ehf. Plötugerð: iP-prentþjónustan ehf. Prentun: Isafoldarprentsmiðja hf. Fréttaþjónusta á Netinu: Vísir.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis til allra heimila á höf- uðborgarsvæðinu. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn grei&lu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins (stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. BRÉF TIL BLAÐSINS Brýtur alla gíra Baldur Andrésson skrifar Okuþórarnir voru próflausir kjánar, sem keyrðu niður um- ferðarmerki og út af góðum veg- um. Á endanum höfðu þeir klesst afabílinn svo ásjóna hans versn- aði. Enginn bílagæi vildi þá kaupa drusluna - enda höfðu ökuþórarn- ir einnig fórnað bílskúrnum henn- ar við Austurvöll - keyptir vara- hlutir reyndust ónýtt pappírs- drasl. Sturla var sem afi í sífelldum vafa um ökuþóra þessa og kippti ótt og títt í stýrið. Stjórnin sat bíl- veik og aðgerðarlaus í aftursæt- inu, öll nema stjórnarformaður- inn, sem líka teygði sig í stýrið eins og afinn og voru þá margar hendur á stýrinu. Nú eru ökuþór- arinn próflausi burtrekinn grát- andi. Þeir sem höfðu veðjað á drusluna fá nú endurgreitt vegna glæfraaksturs afans og strák- anna. Afinn situr einn uppi með óseljanlega vöru og veit ekki sitt rjúkandi ráð. Hann kann ekki að stýra og brýtur alla gíra, sem sannast hefur. Aumingja afi biður nú um annan bílstjóra! Hver vill keyra - börnin góð? ■ 10 Stálin stinn vegna verndartolla Leiðarahöfundur Chicago Tribune segir Bush skaða hagkerfi Banda- ríkjanna með ákvörðun sinni. Toll- arnir séu ekkert annað en tilfærsla fjármuna og starfa. Með ákvörð- uninni hafi Bush látið tækifæri fram hjá sér fara til að leggja sitt af mörkum til að örva heimsvið- skiptin. „Hann ákvað að störf þeirra sem framleiða bíla, vinnu- vélar og ísskápa væru ekki nærri því eins mikilvæg og það að stinga dúsu upp í stáliðnaöinn." Blaðið segir kaldhæðnislegt að þessi ákvörðun muni alls ekki gera stál- iðnaðinn ánægðan. „Þessi ákvörð- un skaðar neytendur og fækkar störfum. Hún býður heim gagnað- gerðum ríkja Evrópu, Asíu og Suð- ur-Ameríku.“ £iic ÍUasIjintiton |Jost Washington Post segir að Bush geri grín að eigin yfirlýsingum um frelsi í viðskiptum. Clinton hafi staðið fastur á fótunum og ekki lát- ið undan þrýstingi stáliönaðarins sem hafi verið í öndunarvél við- skiptaverndar um áratuga skeið. „Hagfræðilega er þetta óverjandi. Fyrir hvert starf sem er bjargað í stáliðnaði, munu 10 tapast í grein- um sem nýta stál í framleiðslu. Ein- hverjir framleiðendur munu flytja starfsemi úr landi til að forðast toll- ana.“ Blaðið segir þó ljósan punkt í svartnættinu. Ákvörðunin muni Ákvarðun Bush, Bandarikjaforseta um að leggja á verndartolla á stáliðnaðlnn heima- fyrir hefur verið umdeild. Ekki aðeins hefur hún vakið hörð viðbrögð meðal forystu- manna ríkja sem fyrir tollunum verða. Heimafyrir er Bush harðlega gagnrýndur fyrir ákvörðunina. ekki verða til að bjarga stáliðnaðin- um eins og hann er. Hins vegar muni hún seinka nauðsynlegum umbótum í greininni. SVENSKA DAGBLADET Það er auðvelt að skilja aðdraganda ákvörðunar Bush, segir leiðarahöf- undur Svenska Dagbladet. Ástæðan sé að kosningar séu framundan og Bush þurfi að standa við loforð úr kosningabaráttunni. Hann hafi hins vegar aldrei átt að gefa slíkt loforð. Þekkingu á því að að þetta sé hag- fræðilega heimskuleg ákvörðun vanti ekki. Einnig megi efast um að pólitískt verði þetta Bush til fram- dráttar. Kjósendur spyrji sig hvers vegna þeir séu að borga svo hátt verð fyrir vörur úr stáli. Sú stað- reynd geti orðið dýrkeypt. Sérstak- lega í fylkjum þar sem bílaiðnaður er sterkur. ■ JÓNAS SKRIFAR: Ótímabær gestur Nú er ekki rétti tíminn til að taka með viðhöfn á móti nýjum sendiherra ísraels á íslandi, sem á að afhenda trúnaðarbréf á miðvikudaginn. Oft hefur ísrael gengið fram af okkur, en aldrei eins og þessa síðustu daga, þegar herinn þar í landi gerir árásir á sjúkrabíla og hindrar umönnun slasaðra. Island hefur að vísu diplómatískar skyldur gagnvart ríkjum í stjórnmálasambandi. En hægur vandi er að fresta um óákveðinn tíma ýmsum formsatriðum til að sýna milda útgáfu af óánægju með framvinduna í stefnu ísraels gagnvart þrautkúgaðri þjóð á hernumdu svæðunum. Ekki er síður óviðkunnanlegt að halda um þessar mundir ráðstefnu í Reykjavík um ferðalög til ísraels. Hvað á sýna ferðamönnum, hvernig ís- raelsher myrðir sjúkraliða í Betlehem eða allar hinar hundrað tegundir brota ísraels á Genfar- sáttmálanum um meðferð hernumins fólks? íslendingum er þetta einkar sorgleg framvinda, því að sú var tíðin, að sérstaklega gott samband var milli þjóðanna. Þá var ástæða til að taka vel á móti sendiherrum ísraels og mæta á ráðstefnur til að skipuleggja ferðir fólks um sögustaði biblíunnar. Sá notalegi tími er liðinn fyrir löngu. Um langt skeið hefur ísrael verið að breytast í æxli, sem ógnar heimsfriðnum. í skjóli neitunar- valds Bandaríkjanna í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna, sækir ísrael óþvingað fram með sífellt fjölbreyttari brotum á Genfarsáttmála, sem ísrael og Bandaríkin hafa raunar ritað undir. Þetta er ekki verk einnar ríkisstjórnar ísraels, heldur hefur æxlið vaxið á löngum tíma. Þjóðin þar í landi ber ábyrgð á stjórnarskrá sinni, sem heimil- ar pyndingar, og stjórnmálamönnum sínum, sem sækja sér fylgi með því að láta skýrt koma fram, að þeir líti á Palestínumenn sem hunda. Ástandið hefur hríðversnað, síðan ísraelsmenn völdu sér Ariel Sharon sem forsætisráðherra, af því að hann lofaði að sýna Palestínumönnum í tvo heimana. Það hefur alltaf verið stefna Sharon að „Þá var ástœða til að taka vel á móti sendiherrum Israels og mæta á ráðstefnur til að skipuleggja ferðir fólks um sögustaði biblíunnar. Sá notalegi tími er liðinnfyrir löngu. “ efla byggðir ísraelskra landtökumanna og hindra samningaviðræður með hörðum skilyrðum. Frá upphafi hefur það líka verið stefna núver- andi ríkisstjórnar að reyna að kúga Palestínumenn til hlýðni með því niðurlægja þá sem allra mest og eyðileggja efnahagslíf þeirra. Nú hefur ofbeldið verið hert og Sharon segir opinberlega, að drepa verði Palestínumenn, unz þeir hlýði. Stefna ríkisstjórnar ísraels og forvera hennar er ein helzta forsenda hatursins á Vesturlöndum, sem oft brýst út í löndum íslams og mælist skýrt í skoðanakönnunum. Alvarlegasta birtingarmynd þessa haturs eru tilraunir múslima til að fremja hryðjuverk á Veturlöndum í hefndarskyni. Hatur múslima á raunar eingöngu að beinast að Bandaríkjunum, því að þau bera ein fjárhagslega, hernaðarlega og pólitíska ábyrgð á Israelsríki. I skjóli ofurvalds Bandaríkjanna á alþjóðavettvangi eru Palestínumenn drepnir með bandarískum vopnum fyrir bandarískt gjafafé. Því miður gefur Evrópa líka höggstað á sér með því að taka ísrael inn í evrópskan ríkjahóp á ýmsum sviðum. ísland hefur gengið skrefinu lengra með stuðningi við ísrael eða hjásetu í fjöl- þjóðlegum atkvæðagreiðslum. Þennan óbeina stuðning íslands þarf að stöðva þegar í stað. íslendingar mega ekki taka neina óbeina ábyrgð á krabbameini Miðausturlanda, sem mest ógnar heimsfriðnum um þessar mundir, og allra sízt láta ferðaskrifstofur ginna sig til ófriðarsvæða. iónas Kristjánsson INNHERJAR Skýringar Framsóknar Það var fyndið að heyra Halldðr Ásgrímsson formann Fram- sóknarflokksins útskýra fylgis- aukningu flokksins í DV könnun- inni. Hann sagði aukninguna helst skýrast af Evrópuumræðunni, þar sem Framsóknarflokkurinn hefði verið í forystuhlutverki. Ef litið er til fylgissveiflna flokksins í skoð- anakönnunum má sjá að fylgi hans fer upp í hvert sinn sem hann lend- ir í andófi við Sjálfstæðisflokkinn. Á Síðasta vori var hatrömm barátta um fiskveiðistjórnunarkerfið þar sem Kristinn H. Gunnarsson þing- flokksformaður Framsóknar- flokksins var í haröri andstöðu við Sjálfstæðisflokkinn. í kjölfar þess bætti flokkurinn sig í skoðunar- könnunum. Þá gaf Halldór þá skýr- ingu að fólk væri ánægt með ábyrga efnahagsstefnu ríkisstjórn- arinnar og flokkurinn væri að njóta þess. Þetta sagði hann á sama tíma ■og gengið var að hrynja um 30 af hundraði og fyrirsjáanlegt að verð- bólgan væri að komast á skrið. Lín- urnar á milli stjórnarflokkanna hafa verið að skýrast og auðsjáan- leg átök á milli þeirra í ýmsum mál- um. Nýjasta dæmið eru átökin í Landsímamálinu þar sem Davíð Oddsson hefur lýst því yfir að hann vilji skipta um alla stjórn Símans. Framsóknarþingmenn hafa staðið upp í hárinu á honum. Nú reynir á forystu flokksins að draga lærdóm af þessum niðurstöðum. ■ Úr bréfi Innherja á Vísi.is. Yfírhafnír í miklu úrvali fyrir (111911 stúlkuna ORÐRETT kr 11.900 og langömmuna 2 fyrir I af eldri vörum (borgar fyrir dýrari flíkina) Nýjar vörur mokkajakkar stuttir og síðir með og án hettu A#Htf5IÐ Mörkinni 6, sími 588 5518 HVAD UM TÖL- FRÆÐINA OG HVAÐ MEÐ GALLUP? „Ég hef haft á tilfinn- ingunni að við vær- um að bæta okkur og þessi könnun sýnir það. Þetta er í fyrsta skipti í lang- an tíma sem flokkurinn fær góða könnun.“ Halldór Ásgrímsson í DV. Framsóknar- flokkurinn mældist með mikla fylgisaukn- ingu í könnun blaðsins. Fyrir fáum dögum fékk flokkurinn mun lakari útkomu hjá Gallup og síðan aðeins verri hjá Frétta- blaðinu. Þá bar ráðherrann því við að hann efaðist um könnunina. Sagðist kunna nokkuð í tölfræði og auk þess tæki hann helst mark á könnunum Gallup. HÖGGIN ÞUNGU „Enron-fyrirtækið bjó til sjóði um skuldir sínar til að sýna sem besta stöðu út á við. Þetta er einmitt það, sem R- listinn hefur verið að gera til að fegra borgarsjóð." Björn Bjarnason á heimasíðu sinni. BOND OG BYGGÐA- MÁLIN „Það er ekki flókið reikningsdæmi að finna út hversu gíf- urleg umsvif skapast í kringum kvik- myndagerð og þá ekki síður á landsbyggðinni. Nýjasta verkefn- ið á þessu sviði er taka nokkurra atriða nýrrar James Bond mynd- ar við Jökulsárlón." Valgerður Sverrisdóttir á heimasíðunni að ræða árangur starfa sinna. ENGUM ÖÐRUrVI BETUR TREYSTANDI „Það er að mínu mati mjög mikilvægt að samgönguráðherra hafi öfluga forystú á sviði fjarskipta- og upplýsinga- tækni og ég hef lagt á það áherslu í mínu starfi." Sturla Böðvarsson samgönguráðherra á Alþingi. VIÐTAKANDAMEG- INN? HVAÐ ER ÞAÐ? „Fyrir nokkrum mán- uðum sendi ungur eldhugi stórum hópi þingmanna netpóst, þar sem hann lýsti sárum vonbrigðum sínum með 1> óræðislega niðurstöðu á tilteknu máli. Bréfinu fylgdi níð- vísa. Ég svaraði unga manninum að bragði, sem leiddi til þess að hann áttaði sig á því að viðtak- andameginn var persóna af holdi og blóði, en ekki einhver óljós massi fólks. Afsökunarbréf hans geymi ég enn og hefur hann síðar sagt mér að hann lærði sína lex- íu. Síðan hefur hann ekki sent netpóst, nema íhuga fyrst áhrif þess á viðtakandann og ekki síður afleiðingar fyrir hann sjálfan." Ásta Möller alþingismaður að greina frá viðbrögðum sínum vegna bréf sem henni barst. ANÆGÐ „Við verðum vör við aukna bjart- sýni bæjarbúa og ánægju þeirra með okkar störf.“ Oktavía Jóhannesdóttur verðandi for- ystumaður Samfylkingarinnar á Akureyri. Morgunblaðið. ,% .2.3 ,n ,

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.