Fréttablaðið - 14.03.2002, Page 2

Fréttablaðið - 14.03.2002, Page 2
KJÖRKASSINN LÍTIL von Einungis fimmti hver maður sem skilaði at- kvæði í kjörkassann telur friðarvon í Mið- Austurlöndum Er friðarvon í Mið-Austur- löndum? Niðurstöður gærdagsins á www.visir.is 20% Spurning dagsins í dag: Eiga sveitarfélög að styrkja grínþætti um sjálf sig? Farðu inn á vlsi.is og segðu þlna skoðun Verðbölga og rauða strikið: Markmiðin í hættu efnahagsmál Fari verðbólgan yfir 222,5 vísitölustig í maíbyrjun verð- ur það í höndum verkalýðsfélag- anna hvort launasamningum verð- ur sagt upp. Eftir síðustu verð- bólgumælingu munar einungis tæpu einu verðbólgustigi að rauða strikinu sé náð. Sérfræðingar í hagfræði auk for- sætisráðherra hafa látið hafa eft- ir sér að meira máli skipti að verð- bólguþróun sé á réttri leið en að verðbólgustigið verði nákvæmlega innan settra i=d. marka. Þá hefur arfélaganna ef veriö varað Vlð verðbólgumark- þeim vítahring og mið nást ekki. stigmögnun sem átt hefur sér stað áður í íslenskri efnahagssögu þegar laun elta verð- bólgu og verðlagið launaþróun, en það er sá óstöðugleiki í efnhagslíf- inu sem menn óttast hvað mest. „Ef okkur tekst ekki að vera undir rauða strikinu er málið alfar- ið í höndum aðildarfélaganna," sagði Grétar Þorsteinsson, forseti Alþýðusambands íslands. Hann sagði þó engu hægt að slá föstu um hvort samningum yrði sagt upp næðust markmiðin ekki. „Það kem- ur bara í ljós í maí,“ sagði hann. Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, er bjart- sýnn á að rauða strikið haldi. Hann sagði því varla tímabært að velta fyrir sér mögulegum áhrifum þess ef illa færi. „Það hljóta samt allir sem nú hafa áhrif á verðlagsá- kvarðanir að velta fyrir sér hvílík ábyrgð það er að setja mál í upp- nám þegar blasir við að við erum að komast inn í umhverfi stöðug- leika,“ sagði hann. ■ Hluthafar í Orca: Enn án at- kvæðisréttar hluthafar „Það liggur ekkert fyrir um það ennþá,“ sagði Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Fjármálaeftir- litsins, aðspurður um það hvenær eigendur Orca-félagsins fá rétt til að fara með eignarhlut sinn á fundum íslandsbanka. Á mánudaginn sendi Fjármála- eftirlitið bankastjórn íslands- banka bréf þess efnis að þeim bæri að sjá til þess að hluthafar í Orca fengju ekki að nýta atkvæð- isrétt sinn á aðalfundi bankans, sem haldinn var sama dag. Þar af leiðandi gátu eigendur Orca ekki kosið um málefni bankans á aðal- fundinum. Hluthafar í Orca fengu sent annað bréf þar sem rökstuðningur fyrir þessari ákvörðun kom fram. Það bréf hefur ekki enn verið birt. Páll Gunnar vildi ekki tjá sig um ástæður þess að málið væri enn til skoðunar hjá Fjármálaeft- irlitinu. ■ 2 FRÉTTABLAÐIÐ Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna: Hvetur til stofnunar Palestínuríkis SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR. RAMALLA. AP Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í fyrrinótt ályktun sem hvetur bæði ísraelsmenn og Palest- ínumenn til að hætta þegar í stað öllu ofbeldi, þar á meðal öllum hryðjuverkum, ögrunum, hvatn- ingu til ofbeldis og eyðiíeggingu eigna. Þá var í ályktuninni fagnað friðartilboði frá Abdúlla, krónprins Sádi-Arabíu, sem rætt verður á leiðtogafundi Arababandalagsins eftir hálfan mánuð. Einnig er í fyrsta sinn í sögu Ör- yggisráðsins samþykkt ályktun þar sem ljáð er máls á stofnun sjálf- stæðs ríkis Palestínumanna. í ályktuninni er staðfest sú „framtíð- arsýn“ að tvö ríki, ísrael og Palest- ína, lifi hlið við hlið innan örúggra og viðurkenndra landamæra. Ályktunin var lögð fram af hálfu Bandaríkjanna og samþykkt sam- hljóða með 14 atkvæðum gegn engu. Fulltrúi Sýrlands sat hjá. í dag er von á Anthony Zinni, sendifulltrúa Bandaríkjanna, til ísraels. Hann hyggst fá ísraels- menn og Palestínumenn til þess að leggja niður vopn og setjast aftur LJÓSMYNDARI FÉLL (talski Ijósmyndarinn Raffaele Ciriello hitti Jasser Arafat, leiðtoga Palestinumanna, á þriðjudaginn. Ciriello féll fyrir skotum frá ísraelskum skriðdreka snemma I gær. að samningaborði. Bandarísk stjórnvöld hvöttu til vopnahlés í til- efni af heimsókn sendifulltrúans. Lítið lát var þó á átökunum í gær. ítalskur ljósmyndari, ísraelsk- ur hermaður og hátt settur palest- ínskur embættismaður létu lífið. ■ Dómstóll tafði rannsókn sjóslyss Formaður Rannsóknarnefndar sjóslysa segir Héraðsdóm Reykjanes hafa tafið störf nefndarinnar um fimm mánuði með því að trassa að af- henda endurrit sjóprófa vegna Unu í Garði. Tveir menn fórust er bát- urinn sökk í fyrrasumar. Fjórir biðu í fimm tíma í gúmmíbát en björg- unarþyrla var ekki send til aðstoðar. sjóslys Að sögn Inga Tryggvason- ar, formanns Rannsóknarnefndar sjóslysa, er seinagangur hjá Hér- aðsdómi Reykjaness orsök þess að dregist hefur úr hömlu að skila niðurstöðu nefndarinnar varðandi það þegar togbáturinn Una í Garði fórst úti fyrir Skagafirði. —4— Una í Garði fórst um miðjan júlí í fyrrasumar. Sex skipverjar voru um borð. Tveir ungir menn fórust. Hinir fjórir velktust um í björgunarbát í fimm klukkutíma áður en þeim var bjargað um borð í rækjubátinn Húna HU-62. Eftir slysið kom upp hörð gagnrýni á Landhelgisgæsl- una fyrir að hafa —4— ekki sent þyrluna eftir skipverjunum. Hjalti Ástþór Sigurðsson, skipstjóri Unu í Garði, sagðist t.d. í samtali við Fréttablaðið í október sl. telja að Landhelgisgæslan hefði að óþörfu lengt dvöl skipbrotsmannanna í sjónum um tvo klukkutíma. „Það er ekki víst að Landhelgisgæslan verði svona heppin næst,“ sagði Hjalti. Hann vísaði þar til þess að þó Landhelgisgæslunni væri kunnugt um að mennirnir væru í björgunarbátnum hafi starfs- menn hennar ekkert vitað um líð- an þeirra. Sjópróf í málinu fóru fram í 'ngi Tryggva- son segist eiga von á því að niðurstaða sjóslysanefnd- arinnar varð- andi Unu í Garði verði send aðilum málsins til umsagnar í næsta mán- uði. I maí liggi síðan fyrir endanlega skýrsla. ÞYRLA LANDHELGISGÆSLUNNAR Skipverjar á Unu í Garði voru ósáttir við að fá ekki aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar þeg- ar þeir velktust í sjónum i fieiri tíma eftir að bátur þeirra sökk og tveir úr áhöfninni fórust. Héraðsdómi Reykjaness í fyrra- sumar. Ingi segir að þar sé að finna aðalorsök þess að ekki hefur enn verið gengið frá skýrslunni um Unu í Garði. Stefnan sé að það sé gert innan við þremur mánuð- um eftir hvert slys. „Við þurftum að bíða í fjóra eða fimm mánuði eftir því að fá endurrit á sjópróf- inu frá dómstólnum. Ég kann ekki skýringu á því,“ segir hann. Ingi segist eiga von á því að niðurstaða sjóslysanefndarinnar varðandi Unu í Garði verði send aðilum málsins til umsagnar í næsta mánuði. í maí liggi síðan fyrir endanleg skýrsla. Þess má geta að nú er verið að senda hlutaðeigandi aðilum niður- stöður sjóslysanefndarinnar varð- andi það þegar báturinn Svanborg SH 30 fórst við Svörtuloft í des- ember sl. Þar fórust þrír menn en einum var bjargað á ævintýraleg- an hátt um borð í þyrlu varnar- liðsins. Þá var gagnrýnt að þyrla Landhelgisgæslunnar hefði ekki verið send nægilega skjótt til að- stoðar. gar@frettabladid.i01 Simbabve gðeti átt von á refsiaðgerðum: Kosningarnar sagðar meingcillaðar harare, ap Stjórnvöld í Simbabve lýstu í gær Robert Mugabe sigur- vegara forsetakosninganna, sem fram fóru um helgina. Stjórnar- andstaðan tók þessa yfirlýsingu ekki gilda. „Þetta eru stærstu kosninga- svindl sem ég hef nokkru sinni orðið vitni að,“ sagði Morgan Tsvangirai, leiðtogi Lýðræðis- hreyfingarinnar og sterkasti mót- frambjóðandi Mugabes. Mugabe fékk samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum stjórn- valda 54 prósent atkvæða. Tsvangirai hlaut 40 prósent. Kosningaþátttakan var sögð rúm- lega 55 prósent. Erlendir eftirlitsmenn með kosningunum sögðu þær hafa ver- ið að mörgu leyti meingallaðar. Þúsundum manna hafi ekki verið gert kleift að greiða atkvæði. Stjórnarandstæðingar máttu sæta hótunum og ofbeldi. Nánast á öll- um stigum kosninganna hafi eitt- hvað verið athugavert. Litið hafði verið á kosningarn- ar sem eins konar prófstein á lýð- ræði í landinu. Bæði Bandaríkin og Bretland íhuga frekari refsiað- gerðir gegn Simbabve vegna þess ROBERT MUGABE Mugabe verður áfram forseti í Simbabve næstu árin. Þessi mynd var tekin á kjör- stað á laugardaginn. hvernig fór. Þá er beðið eftir við- brögðum Samveldisríkjanna, sem höfðu hótað Simbabve refsiað- gerðum ef kosningarnar yrðu ekki lýðræðislegar. ■ 14. mars 2002 FIMMTIJDAGUR Lögbannsbeiðni á heimildarmynd: Fengu frest til morguns heimildarmynp Aðstandendur heimildarmyndar um Ungfrú ísland.is fengu í gær frest til að fara yfir gögn málsins þegar lög- bannsbeiðni aðstandenda fegurð- arsamkeppninnar Ungfrú ísland.is var tekin fyrir hjá sýslumanninum í Reykjavík. Fulltrúar keppninnar sóttu mjög fast að hafna frestun. Svo fór að fulltrúi sýslumannsins gaf að- standendum myndarinnar frest til klukkan hálf tvö í dag til að fara yfir framlögð gögn. „Við trúum á réttlætið," sagði Hrönn sem myndaði atburðina. ■ Cá-i.—LL—, ..■ihÁáns. Jt. DICK CHENEY f SHARM EL-SHEIKH Varaforseti Bandaríkjanna ávarpaði banda- ríska hermenn í Egyptalandi á ferð sinni um arabaríki I gær. Cheney í arabaríkjum: Andstaða araba- leiðtoga sharm EL-SHEIK. ap Heímsókn vara- forseta Bandaríkjanna, Dick Cheney, til arabaheimsins hefur fallið í skuggann af vaxandi átök- um ísraela og Palestínumanna. Cheney ætlar sér að heim- sækja ellefu arabaríki til þess að afla Bandaríkjunum stuðnings þeirra við frekari hernað gegn hryðjuverkamönnum. Einkum er talið að hann vilji fá stuðning þeirra við stríð gegn írak. Á þriðjudaginn kom Cheney til fyrsta arabaríkisins í ferðinni, Jórdaníu, og fékk ekki upp- örvandi viðbrögð þar. Abdúlla II. Jórdaníukonungur varaði Banda- ríkjamenn eindregið við því að hefja stríð gegn Irak. Nær væri að Bandaríkin tækju virkari þátt í að draga úr átökum ísraelsmanna og Palestínumanna. í gær kom svo Cheney til Eg- yptalands þar sem hann hitti Hosni Mubarak forseta. Mubarak hefur einnig lýst andstöðu sinni við að Bandaríkin hefji stríð gegn írak. Búist er við að flest arabaríkin, sem Cheney hyggst heimsækja, séu svipaðrar skoðun- ar. Bandarískir embættismenn hafa gefið í skyn að sívaxandi hernaður ísraelsmanna gegn Palestínumönnum geri Cheney ekki auðveldara fyrir. í gær hét Cheney því að vinna að varanleg- um friði í þessum heimshluta. ■ Hundrað milljóna tæki ónýtt eftir fall: Dýrt fall tjón Ellefu tonna segull, sem verið var að flytja á nýja rannsóknastöð Hjartavei’ndar í gær, féll til jarðar og brotnaði þegar festingar gáfu sig. Segullinn er hluti af segul- ómtæki sem setja átti upp í mynd- greiningardeild og kostar á annað hundrað milljónir. Hann er gjöró- nýtur, segir Vilinundur Guðnason, forstöðulæknir Hjartaverndar. „Þetta er á vegum Heklu og General Electric sem eru að flytja þetta inn og selja okkur," sagði Vilmundur og gerði ekki ráð fyrir að óhappið myndi leiða til fjár- hagslegs taps fyrir Hjartavernd. „Það má búast við að þetta seinki einhverju hjá okkur en ég á ekki von á öðru en að það sendi hingað annan segul eins fljótt og hægt er.“ ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.