Fréttablaðið - 14.03.2002, Blaðsíða 6
SPURNING DAGSINS
Á ísland að ganga í Evrópu-
sambandið?
Ég er ekki alveg viss. Það eru bæði kostir
og gallar við inngöngu. Við verðum til
dæmis ekki eins sterk og við höldum og þá
er ég aðallega hrædd um sjávarútveginn.
Spánverjarnir eru tíl dæmis æstir í miðin.
Kristín Halldórsdóttir, meinatæknir og hönnuður.
Ökumenn í Húsavík og
nágrenni:
Aka hratt og
óspenntir
hraðakstur Mikið hefur verið um
hraðakstur og bílbeltaleysi öku-
manna í Húsavík og nágrenni und-
anfarnar tvær til þrjár vikur. Að
sögn lögreglunnar í Húsavík hefur
hraðakstur verið mikill úti á vegum
og hafa tugir ökumanna verið tekn-
ir af þeim sökum.
Er þetta meiri hraðakstur en
verið hefur áður á þessum árstíma
og lýsir lögreglan yfir áhyggjum
yfir því. Kennir hún góðum akst-
ursaðstæðum á vegum um. Hafa
ökumennirnir verið að aka á bilinu
100 til 130 kílómetra hraða. Tölu-
vert hefur einnig verið um að öku-
menn séu latir við að spenna á sig
öryggisbeltin í þéttbýlisstöðum. ■
I INNLENT I
Aallra næstu vikum skýrist
hvert verður framhald við-
ræðna um einkavæðingu Lands-
síma íslands, að sögn Olafs Dav-
íðssonar, formanns einkavæðingar-
nefndar. „Það er bara verið að
finna út úr því hvaða erlendu fyr-
irtæki það eru sem bankað hafa
upp á og hvernig hugsanlega eigi
að haga samtölum við þá, en það er
ekkert að frétta enn,“ sagði hann.
Iopinberri heimsókn Halldórs Ás-
grímssonar, utanríkisráðherra,
til Þýskalands sem stendur til 14.
mars nk., fundar hann með
Joschka Fischer, utanríkisráðherra
Þýskalands, auk annarra fyrir-
manna ytra. Hann undirritar jafn-
framt samning um lektorsstöðu við
Humboldt-háskóla og flytur Hall-
dór fyrirlestur í Deutsche Ges-
ellschaft fúr Auswartige Politik.
IlÖGREGLUFRÉTTIRI
Tveir árekstrar urðu í gærmorg-
un á Selfossi. Engin meiðsl
urðu á fólki og eru bílarnir öku-
hæfir. Að sögn lögreglunnar á Sel-
fossi er talið að hálka á götum bæj-
arins hafi valdið óhöppunum
Flutningabíll fór út af vegi í
„Taglinu“ rétt fyrir ofan Bíldu-
dal um tíuleytið í gærmorgun.
Engin slys urðu á mönnum. Aö
sögn lögreglunnar á Patreksfirði
rann bíllinn til í hálku og endaði
35-40 metrum utan vegar.
Karlmaður var handtekinn
klukkan rúmlega fjögur í
fyrrinótt er hann var að reyna að
brjóta upp stöðumæli í vesturbæ
Reykjavíkur. Notaði hann til þess
sleggju og kúbein. Að sögn lögregl-
unnar var hann handtekinn og
fluttur í fangageymslu. Mun hann
hafa verið í annarlegu ástandi.
i DÓMSMÁL i
Rúmlega fimmtugri konu voru
í gær í Héraðsdómi Reykja-
vikur dæmdar 534 þúsund krónur
frá Tryggingastofnun vegna of
lágs örorkumats. Konan þjáist
m.a. af miklum bakverkjum og
andlegu álagi vegna þeirra.
6
FRÉTTABLAÐIÐ
Frönsk stjórnvöld um forsjárdeiluna:
Afhenda skal barnið sam-
kvæmt Evrópusamningnum
forsjÁrdeila Héraðsdómur í
Frakklandi staðfesti lögsögu ís-
lenskra dómstóla þegar hann úr-
skurðaði að afhenda ætti Lauru
Sólveigu Scheefer á grundvelli
dóms um bráðabirgðaforsjá sem
féll í Héraðsdómi Reykjavíkur í
fyrra. Faðir Lauru fór með hana
til Frakklands þrátt fyrir að hafa
ekki forræði yfir henni. Hann hef-
ur áfrýjað þessari niðurstöðu til
áfrýjunardómstóls.
Kristrún Kristinsdóttir, lög-
fræðingur í dómsmálaráðuneyt-
inu, segir bæði löndin eiga
aðild að Evrópusamningi
um viðurkenningu og fulln-
ustu ákvarðana varðandi
forsjá barna. íslensk
stjórnvöld fullnusta
franskar ákvarðanir hér og
eins fullnusta Frakkar ís-
lenskar ákvarðanir í Frakk-
landi. í þessu brottnáms-
máli barnsins gildir þessi
samningur milli ríkjanna
og er hluti af íslenskum og frönsk
um réttarreglum.
SÓLVEIG
PÉTURSDÓTTIR
Hún hefur skrifað
til Frakklands.
usta
í nóvember 2001 fól
dómsmálaráðherra, Sól-
veig Pétursdóttir, ráðu-
neytisstjóra að rita frans-
ka dómsmálaráðuneytis-
stjóranum bréf þar sem
mjög ákveðið var farið
fram á aðstoð við að fram-
fylgja úrskurði um að
barnið yrði afhent móður
sinni. í svari kom fram að
ekki væri hægt að fulln-
úrskurðinn meðan málið
væri undir áfrýjun. |
Vill að bærinn
styrki lögguþátt
Hallur Helgason segir Islendinga ekki hafa staðið sig í því að „bjóða upp
á menningarefni á íslenskum forsendum“ í sjónvarpi. Hann vill bæta úr
því með gerð sjónvarpsseríu um lögreglumenn í Hafnarfirði. Hallur
biður um 5 til 10 milljónir frá Hafnarfjarðabæ.
LÖGREGLUSTÖÐIN í HAFNARFIRÐI
Sögusvið nýrrar fyrirhugaðrar sjónvarpsþáttaraðar verður í Hafnarfirði og söguefnið verður
líf og störf flokks lögreglumanna sem starfa þar í bænum. Þættimir „gerast bæði inni og
úti og að öllu leyti í Hafnarfirði," segir i erindi framleiðandans til bæjarstjórans.
sjónvarp í bígerð er að hefja
framleiðslu leikinnar sjónvarps-
þáttaraðar um lögreglumenn í
Hafnarfirði. Þegar hefur verið
ákveðið að Steinn Ármann Magn-
ússon leiki aðalhlutverkið.
Gerð þáttanna á
að kosta 31,5 millj-
ónir króna. Kvik-
myndgerðin Kaldá
ehf. stendur að
verkefninu. Félag-
ið er í eigu Halls
Helgasonar, sem
áður var leikshús-
stjóri hjá Loftkast-
alanum.
í bréfi sem
Hallur hefur sent
bæjarstjóra Hafn-
arfjarðar kemur
fram að þættirnir,
sem bera vinnu-
héitið Hafnar-
fjarðarlöggan, „gerast bæði inni
og úti og að öllu leyti í Hafnar-
firði".
Hallur vill að bæjarsjóður
styrki þáttagerðina um 5 til 10
milljónir króna. Llann óskar eftir
viðræðum við bæjaryfirvöld um
málið. Bæjarráð hefur vísað er-
indi Halls til menningarmálar-
nefndar bæjarins.
„Það er þörf á seríum í léttari
kantinum inn í sjónvarpsmiðilinn.
Þetta er stórlega vanrækt af ís-
lensku sjónvarpsstöðvunum,"
segiir Hallur í samtali við Frétta-
blaðið. Hann segist þegar hafa
fengið 2,5 milljóna króna styrk
frá Menningarsjóði útvarps-
stöðva. Þess utan verði leitað stór-
ra fyrirtækja sem kostenda vegna
þáttanna.
Að sögn Halls er þegar komin
beinagrind að þáttunum og æfing-
ar hafnar. Ef allt gangi að vonum
hefjist sýningar næsta haust.
Samningar séu í gildi við Stöð 2.
Þó sé ekki endanlega frágengið
hvar þættirnir verði sýndir. -
„Með því að gei'ast kostandi að
gamanþáttaröð sem gerist alfarið
í bænum myndi Hafnarfjarðar-
bær styrkja ímynd sína sem vina-
legt og gott sveitarfélag í huga
þjóðarinnar með meiri afgerandi
og varanlegri hætti. Samfélags-
legur áviriningur af verkefni sem
þessu myndi treysta Hafnarfjörð
enn frekar í sessi sem forystu-
sveitarfélag í þeim efnum,“ segir
Hallur í bréfinu til bæjarstjórans.
Að sögn Halls myndi Hafnar-
fjarðarbær, auk þess að vera
beint og óbeint umfjöllunarefni
þáttaraðarinnar, fá birtar kynn-
ingarstiklur í kring um sýningu
þáttanna og í annarri dagskrá.
„Auðvelt er að rökstyðja að verð-
mæti þess áreitis reiknaðist í mun
hærri krónutölu ef tekið er mið af
sekúnduverði sem tíðkast hjá
sjónvarpsstöðvunum," segir í er-
indi Halls.
gar@trettabladid.is
„Með því að
gerast kostan-
di að gaman-
þáttaröð sem
gerist alfarið í
bænum
myndi Hafnar-
fjarðarbær
styrkja ímynd
sína sem vina-
legt og gott
sveitarfélag í
huga þjóðar-
innar."
Fyrirspurnir á Alþingi:
Ahyggjur af fjarvinnslu
ALÞINGI Fjölmargir þingmenn
stjórnarandstöðu lýstu vonbrigð-
um á þingi í gær með hversu lítið
hafi orðið úr fyrirætlunum stjórn-
valda um að flytja fjarvinnslu-
verkefni út á land. Jafnframt var
lýst áhyggjum af fækkun starfa á
landsbyggðinni. í því sambandi
var vísað til fækkunar starfa úti á
landi hjá íslandspósti og eins hjá
ríkisbönkunum. Umræðurnar
spunnust í framhaldi af fyrir-
spurn Kristjáns L. Möller, þing-
manns Samfylkingarinnar.
Forsætisráðherra sagði menn
hafa fyllst mikilli bjartsýni þegar
ný tækni var talin geta valdið því
að landið yrði eitt atvinnusvæði.
„Þetta hefur ekki gengið eftir,“
sagði hann og taldi að ekkert stórt
myndi gerast í málinu, þrátt fyrir
viðleitni stjórnvalda, fyrr en at-
vinnulífið sæi sjálft árangur og
gildi þess að nýta starfskraftinn
sem úti á landi væri. ■
KRISTJÁN l. niöller
Kristján hefur ítrekað sent ráðu-
neytum fyrirspurnir um hvað
liði áætlunum um að flytja fjar-
vinnsluverkefni út á land.
14. mars 2002 FIMMTUDAGUR
Afkoma Delta:
Besta ár frá
upphafi
uppgjör Hagnaður Delta á árinu
2001 var 812 milljónir króna og
rekstrartekjur 5.360 milljónir.
Hagnaðurinn er í samræmi við spár
greiningardeilda íslandsbanka og
Búnaðarbanka frá því í haust en
rekstrartekjur eru nokkuð lægri.
Fram kemur í tilkynningu félagsins
til Verðbréfaþings að árið hafi ver-
ið það besta frá upphafi. Til marks
um þetta er að hagnaður ársins
reyndist um helmingi hærri en
áætlanir félagsins gerðu ráð fyrir í
upphafi. Efnahagur félagsins tvö-
faldaðist á árinu eftir miklar fjár-
festingar þess erlendis, meðal ann-
ars í Pharmamed á Möltu. ■
Grindvíkingar kaupa fisk-
iðjusamlag Húsavíkur:
Hringnum
er lokað
landvinnsla Sjávai’útvegsfyrir-
tækið Vísir í Grindavík hefur
keypt 45% í Fiskiðjusamlagi Húsa-
víkur fyrir um 300 milljónir króna.
Helstu seljendur voru Trygginga-
miðstöðin og Olíufélagið Esso. Fé-
lagið rekur ekki útgerð en styrkir
stöðu sína með kaupunum sem eitt
öflugasta landvinnslufyrirtækið.
Vísir er með starfsemi á Suður-
nesjum, á Djúpavogi og á Þingeyri.
Pétur Hafsteinn Pálsson, fram-
kvæmdastjóri Vísis, sagði að með
kaupunum á Húsavík mætti segja
að félagið hefði lokað hringnum.
Það reki nú landvinnslu í öllum
landshlutum. Kvóti sem samstæð-
an hefur til umráða fer úr 9.500
þorskígildistonnum í um 11.500. ■
____________
Opinberar nefndir til
uinræðu:
Nefndatil-
högun end-
urskoðuð
alþingi Davíð Oddsson, forsætis-
ráðherra, segir sjálfsagt að ráðu-
neytin í samráði við Ríkisendur-
skoðun og aðra aðila sem að mál-
um koma endurskoði tilhögun
varðandi opinberar nefndir. Óg-
mundur Jónasson, þingflokksfor-
maður Vinstri-grænna, benti á
nýja skýrslu Ríkisendurskoðunar
um nefndir, ráð og stjórnir á veg-
um ríkisins þar sem fram kemur
að 18 prósent nefnda hafi ekkert
starfað og ekki skilað neinum ár-
angri. Forsætisráðherra upplýsti
að farið hefði verið fram á fulltingi
Ríkisendurskoðunar við að endur-
skipuleggja utanumhald varðandi
nefndir og skipan þeirra. ■
Umsókn um innflutning
fósturvísa:
Ráðherra
hugsanlega
vanhæfur
landbúNAÐUR Innan Nautgripa-
ræktarfélags íslands velta menn
fyrir sér hvort fara eigi fram á að
Guðni Ágústsson, landbúnaðar-
ráðherra, verði úrskurðaður van-
hæfur til að fjalla um umsókn fé-
lagsins á innflutningi fósturvísa
NRF-kúakynsins frá Noregi. „Það
yrði þá vegna ótímabærra yfirlýs-
inga sem hann lét frá sér fara
strax eftir kosningu Bændasam-
takanna í haust. Þar lýsti hann því
nánast yfir að hann myndi segja
nei við okkur,“ sagði Jón Gíslason,
formaður Nautgriparæktarfé-
lagsins. „Þetta er samt ekkert
komið formlega af stað og ekki
ljóst hvort við munum fai'a fram á
þetta, enda veit maður ekkert
hver myndi fá málið í staðinn,"
bætti hann við. ■