Fréttablaðið - 14.03.2002, Page 14
14
FRETTABLAÐIÐ
14. mars 2002 FIMMTUDAGUR
i am
sam
HÁSKÓLABÍÓ
MAtiAÍOAM - 5 i MI ÍIO 11 I V ‘ I /t III A WMIMOAIÍI {A1 I) lAND'.IN*.
smnnn^ niú
HARRYSON S FLOWER kl. 10.30
SiMi 564 0000 * www.smarablo.is
VELALAIMD
VÉLASALA • TURBÍNUR
VARAHLUTIR • VIÐGERÐIR
BEHINDEMEMY
Véla-
viðgerðir
Vagnhöfði 21 • 110 Reykjavík
Sími: 577 4500
velaland@velaland.is
kl. 7|
kL s|
NABBI|
FÍDEL
Janus Bragi (trommur), Jón Atli (bassi), Andri „Freysi" (gítar) og Búi (gítar). Strákarnir skipta söngnum á milli sin. Jón Atli segir að
platan eigi að koma með nýjan straum í íslenskt tónlistarlíf.
Hefur farid fé betra?
Á morgun kemur út frumraun rokkhljómsveitarinnar Fídel. Piltarn-
ir hafa síðustu daga verið í óðaönn að klára að handlíma ljósmyndir á
fyrstu 700 eintökin.
tónlist Liðsmenn Fídel hafa í
nafni listarinnar tekið 234 ljós-
myndir, klippt þær í þrjá jafn-
stóra hluta sem þeir líma svo á
fyrstu 700 eintökin sem seld
verða. „Þetta eru allt mismun-
andi myndir sem við tókum
sjálfir,“ segir Jón Atli Helgason
klippari en rokkbassaleikari af
guðs náð í frítíma sínum. „Þetta
eru myndir af hundum, köttum,
okkur og húsnæðinu okkar. Við
tökum hverja ljósmynd og
klippum hana í þrennt, þannig
að hver einasta ljósmynd dreif-
ist á þrjá diska.“
Fídel var stofnuð fyrir tæp-
um þremur árum en hefur starf-
að í núverandi mynd í eitt og
hálft ár. Á stuttum starfstíma
sínum hafa piltarnir kafað djúpt
ofan í rokkdjúpin og náð að
komast upp á yfirborðið aftur
með fínan hristing af rokki í
anda Sonic Youth, Fugazi,
Unwound og Trans Am.
„Við byrjuðum að taka plöt-
una upp um verslunarmanna-
helgina árið 2001. Þannig að
þetta er alveg „loksins" plata.
Um miðjan september fórum
við út til Sviss og hljóðblönduð-
um hana þar ásamt Swell, sem
er upptökustjórinn okkar. Hann
var búinn að fikta eitthvað í
þessu áður og fínpússaði þetta
þar. Svo fórum við í ógeðslega
fínt hljóðver sem Tina Turner
hefur m.a. notað og kláruðum
plötuna.“
Jón Atli segir helstu ástæð-
una fyrir því að platan kom ekki
út fyrr vera þá að liðsmenn
sveitarinnar kærðu sig ekki um
að drukkna í jólaplötuflóðinu.
Upptökustjórinn Swell er Sviss-
lendingur sem bjó hér á landi í
hálft ár. Á þeim tíma kynntist
hann Andra Frey Viðarssyni gít-
arleikara Fídel, sem m.a. var
fjórði maður Botnleðju um tíma,
og héldu þeir sambandi eftir að
hann yfirgaf klakann.
Swell kom svo aftur hingað
til lands til að hljóðrita fyrstu
breiðskífu Fídels.
„Platan heitir „Good Ridd-
ance = New Entrance", sem að
þýðir eiginlega „Farið hefur fé
betra = Nýr inngangur". Á plöt-
unni er allt það sem hljómsveit-
in hefur verið að basla frá stofn-
un hennar. Við byrjuðum að
syngja þegar Andri kom inn
og stefnan breyttist. Platan er
því samblanda af ólíku efni.“
í hljómsveitinni Fídel ríkir
svipað söngvaralýðræði og í
Bítlunum. „Búi [BendtsenJ sér
um faglegu sönghliðina. Eg sé
um rassgata partinn og Andri
sér um „indí“ sönghliðina. Þetta
virkar bara þannig að sá syngur
eiginlega bara sem er með ein-
hverja sönglínu í huganum þeg-
ar við erum að semja lagið."
Lagið „Liquid Lips“ hefur
verið í spilun á Radíó X, Jón Atli
vonast til þess að lagði „Focus
on the split“ komist einnig þar
að. „Liquid Lips braut ísinn. En
„Focus on the split“ er meira í
anda sveitarinnar. Það er rokk
og ról og ætti að henta flestum
sem eru eiginlega ekkert að
hlusta á rokk og ról.“
biggi@frettabladid.is
Sýnd kl. 7 og 9.30
VANILLA SKY
IMONSTER m/ísl tali
ÍINTIMACY
Ef þú ert karlmaður á lausu og
hefur ekkert að gera þann
24.mars, af hverju ekki að bjóða
þig fram sem
förunaut fyrir
leikkonuna Nicole
Kidman á Ósk-
arsverðlaunahá-
tíðina. Hana vant-
ar víst enn karl-
förunaut. Hún
mætti með föður
sínum á Golden
Globe-verðlaunahátíðina en segist
vera að bíða eftir þeim rétta til að
mæta í fjörið hjá ðskari frænda.
Leikkonan Halle Berry segist
oft hafa fundið fyrir kynþátta-
fordómum í Hollywood. Hún seg-
ist stöðugt fá synj-
un á eftirsóknar-
verð hlutverk af
þeirri einni
ástæðu að hún sé
svört. Framleið-
endurnir vilji oft-
ar fá hvíta konu á
móti hvítum karl-
leikara og því fái
hún ekki flest rómantísk hlutverk
ef búið sé að ráða hvítan karlleik-
ara. Þetta kallar hún kynþáttafor-
dóma og segir framleiðendur
gjörsamlega blinda fyrir þeim.
Berry er staðráðin í því að vinna
Óskarsverðlaunin í ár fyrir leik
sinn í „Monsters Ball“. Stúlkan
ætti líka að vera á leiðinni hingað
á klakann í tökur fyrir næstu
James Bond-mynd.
Og meira um Bond, því nú hefur
verið ákveðinn titill á væntan-
lega mynd um njósnarann. Hún á
að heita „Die
Another Day“ og
kemst Bond víst
nær dauðanum en
nokkru sinni fyrr í
þessari 20. mynd
um þann hrista en
óhrærða. Myndin
er væntanleg í bíó
í nóvember.
Angelina Jolie og eiginmaður-
inn Billy Bob Thomton skírðu
ný ættleiddan son sinn Maddox.
Hann er sjö mánaða snáði frá
Kambódíu og komust þau fyrst í
kynni við son sinn í nóvember.
Hann mun einnig fá kambódískt
nafn. Leikarahjónin eru víst í
skýjunum.
Iellinc
Sýnd kl. 5, 8 og 10 - í
kl. 5.30
|NOT ANOTHER TEEN-. kl. «, 6 og 81 [ÖÖN T SAY A WORD kl.8~ogl0.3ol
(Úff!) Við erum bara al-
veg hælt oð lala saman.
kL9.1S
AMELIE
kl. 5.30 og 81
Sýnd kl. 8 og 10.30
[LORD OF THE RINCS kl. 41
kl. 5 og 8 ISHALLOW HAL
EE3
I.',l,t.l71-Jlnl»-Í7
[SNOW DOGS 350,5.55, 8 og 10.10 in [MQNSTER m/ens tali
ICOILATERAL DAMAGE 8 og lo.li] □ IREGÍNA
143,45]
FRÉTTIR AF FÓLKI
Sýnd kL 5.30, 8 og 1030 vrr 335
Sýnd kl. 530, 8 og 10.40 vit 335
MONSIERm/lsltaD M.3J0og535 |CT
mTwIPI
[SPY GAME
Id 5.35, 8 og 10.30 |[uTt| iHARRY POTTER m/ ísL tali
Sýnd kl. 8 og 1030 vrr 351