Fréttablaðið - 14.03.2002, Side 24
FRETTABLAÐIÐ
SfMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00 Ritstjórn: 515 7515, símbréf: 515 75 06, rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - símbréf 515 75 16 - rafpóstur auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 20
VlP SECJUM FRÉTTIR Fréttavefurinn á VÍSÍf.ÍS Fyrstur með fréttirnar
Sumarhús -frá
HÚSogheimili
www.husogheimili.is
Bjálkahús ehf sími 511-1818 fax 511-1822
Hamborgari og Kók
laugatvegi Í18
Bakþankar
STEINUNN STEFANSDÓTTIR
Börn verða
bitbein
Hátt hlutfall hjónabanda sem enda
með skilnaði er afar hátt. Ég tel
afar litlar líkur á að þetta muni
breytast nokkuð að ráði í framtíðinni,
nema í þá átt að skilnuðum muni
heldur fjölga. Þetta er út af fyrir sig
ósköp dapurlegt en á einhvern hátt
samt svo rökrétt í því samfélagi sem
við lifum. Þá á ég bæði við hraða dag-
lega lífsins og streð og hitt að samfé-
lagið er svo breytilegt. Það er til
dæmis að verða liðin tíð að fólk sé
alla starfsævina í sama starfi. Hvers
vegna skyldi þá fólk endilega vera
alla hjónalífsævina í sama hjóna-
bandi?
—♦—
Það er mikil skuldbinding í
því fólgin að eiga böm, sú mesta sem
við tökumst á við á lífsleiðinni. Það er
verkefni beggja foreldra að ala upp
börn, hvort sem þeir búa saman eða
ekki. Ef fólk hefur tekið ákvörðun
um að eiga saman börn verður það að
bindast samtökum um að hafa vel-
ferð þeirra alltaf að leiðarljósi,
hvernig sem veltist með hjónabandið.
Þetta er eiginlega lágmarkskrafa
barna á hendur foreldrum sínum.
—♦—
Eitthvað það ömurlegasta sem
maður horfir upp á er þegar börn
verða bitbein í hjónaskilnuðum eða
sambúðarslitum. Reglulega verður
maður vitni að því að saklaus böm
verða fómarlömb beiskju foreldr-
anna hvort í annars garð. Þetta er
Ijótur leikur. Ljótastur er leikurinn
þegar börn eru numin á brott, í annað
land, að foreldrum forspurðum og úr
verður einhver furðuleg milliríkja-
deila. Þjóðin fylgdist með máli
Sophiu Hansen fyrir nokkmm árum
en dætur hennar eru nú svo gott sem
fullorðnar án þess að hafa fengið að
hitta móður sína svo nokkru nemi í
áraraðir. Á síðustu misserum höfum
við orðið vitni að fleiri slíkum málum
í fjölmiðlum, börn eru numin á brott
án þess að vera spurð hvað þau vilja
sjálf, jafnvel ómálga smábörn tekin
frá mæðrum sínum.
—»—
Það er kúnst að fóta sig í hinu
flókna samfélagi nútímans. Eitt af
því sem fólk þarf að tileinka sér er að
taka ábyrgð á foreldrahlutverkinu.
Hagur barnanna verður alltaf að vera
í fyrirrúmi. Foreldrarnir tóku þá
skuldbindingu á hendur við fæðingu
þeirra að hafa velferð þeirra að leið-
arljósi og í fullri samvinnu.
599 kr.
Páskabegonia
Heimsækið Páskaiandið.
ís og lítió páskaegg m. málshætti,
%4nd, yS&'
Reykjavík sími 580 0500
Selfossi sími 480 0800
www.blomaval.is
Páska-krýst
Páskaliljur í potti
r 9 Te