Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.05.2002, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 02.05.2002, Qupperneq 16
HVER ER TILGANGUR LÍFSINS? Pakkað í vörn „Tilgangur lífsins er að fjölga sér. Ég er bú- inn að uppfylla hann og get því bara hætt og pakkað I vörn. Það er lífsmottóið: Gera eitthvað eitt gott snemma og pakka svo í vörn." Gunnar Hansson leikari. EU Steikt ýsa, laukfeiti, kart- öflur & hrásalat Svikinn héri með kart- öflumús, sósu og sultu Bjúgu með hvítri sósu, kartöflum og grænmeti 5VARTISVANUPJNN LAUGAVEGUR 118 Viðarofíur klæðning^ f\M. % MAi WjíNPllK'F:RÍTTlíR. BnV c.m. 16 FRETTABLAÐIÐ 2. maí 2002 FIMMTUDAGUR Sinfóníuhljómsveit íslands:'" Islandsvinur við sellóið tónleikar Danski sellósnillingur- inn Erling Blöndal Bengtsson leikur í kvöld einleik með Sinfón- íuhljómsveit íslands. Stjórnandi er kínverski stjórnandinn Zuohu- ang Chen. Erling, sem fagnar sjö- tugsafmaeli í ár, er íslenskum tónleikagestum að góðu kunnur, enda hefur hann heimsótt ísland reglulega um áratuga skeið. í gegnum árin hefur Erling Blön- dal kennt mörgum af fremstu sellóleikurum Norðurlanda og annarra landa, jafnhliða því sem hann hefur komið fram sem ein- leikari um víðan heim og leikið með flestum af fremstu hljóm- sveitum veraldar. Hann hefur hlotið mikla viðurkenningu fyrir leik sinn, hvort sem er á tónleik- um eða á hljómdiskum, og verið sæmdur margs konar viðurkenn- ingum. Efnisskrá hans er afar viða- mikil. Auk þess sem hann hefur öll klassísk verk sellóbókmennt- -anna á valdi sínu, leikur hann gjarna nýrri verk, sem mörg hver hafa verið tileinkuð honum. Erling Blöndal flytur í kvöld verk eftir sir William Walton, sem hefði einmitt orðið hundrað ára á þessu ári. Þeir félagar tengjast á fleiri vegu, því að sir William tileinkaði sellókonsert- inn kennara Erlings Blöndals sem bér því sérstakar tilfinning- ar til þessa mikla verks. ■ ERLING BLÖNDAL BENGTSSON Ekki er laust við að islendingar fyllist stolti þegar fréttist af afrekum Erlings enda er hann einn fjórði (slendingur. Verkin sem flutt verða I kvöld eru: forleikur eftir Carl Maria von Weber: Oberon, Sellókonsert William Walton og Sinfónía nr. 7 eftir Beethoven. FIMMTUDAGUR 2. MAÍ FYRIRLESTUR 16.00 Inga Dóra Bjömsdóttir mann- fræðingur flytur I dag opinberan fyrirlestur á vegum Rannsókna- stofu I kvennafræðum. Inga Dóra mun greina frá rannsókn sinni á llfi Ólafar Sölvadóttur, sem þekkt var f Bandaríkjunum undir nafn- inu Olof Krarer. Fyrirlesturinn nefnist Ólöf eskimói og verður fluttur f Norræna húsinu. 20.30 Svavar Sigmundsson, nafnfræð- ingur, heldur fyrirlestur I Sjó- minjasafni fslands, Vesturgötu 8 I Hafnarfirði, I kvöld. Fyrirlesturinn nefnir Svavar „Örnefni til sjávar" og er hann I boði Rannsóknarset- urs I sjávarútvegssögu og Sjó- minjasafns íslands. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. NÁMSSTEFNA 9.30 Útflutningsráð fslands hefur feng- ið til liðs við sig valinkunna menn úr tónlistarlífinu til að miðla þekk- ingu á því hvernig er hægt að standa að útrás íslenskrar dæg- urlagatónlistar. Námstefnan, sem er ætluð fyrirtækjum og tónlistar- mönnum sem huga að útflutningi á tónlist, verður í formi pall- borðsumræðna. Pallborðin fara fram á ensku og verður öllum þátttakendum frjálst að taka þátt í umræðum. Námstefnan verður í Versölum að Hallveigarstíg 1. FUNDUR 20.00 Félag eldri borgara í Kópvogi stendur í kvöld fyrir framboðs- fundi um málefni Kópavogsbæjar I Félagsheimili Kópavogs, Fann- borg 2. Frambjóðendur allra flokka sem bjóða fram í Kópavogi kynna stefnumál sín og svara fyr- irspurnum um málefni Kópavogs. KVIKMYNDIR 22.30 Filmundur forsýnir nýjustu mynd Woody Allen The Curse of the Jade Scorpion í Háskólabíói mið- vikudaginn 1. maí, kl. 20:00, fimmtudaginn 2. maí kl. 22:30, TÓNLEIKAR 19.30 Sinfóníuhljómsveit fslands held- ur tónleika í Háskólabíói í kvöld. Einleikari er sellóleikarinn Erling Blöndal Bengtsson og hljóm- sveitarstjóri Zuahuang Chen. Hótd RarQamesi lígiítsbuiii? &<eskaups$t Vjidiailiiim- %. UimgólfstiBirf FoST. 3. MA) DÚMDtUiR'F RETT ! R VitomTs t mw\ k:k D'j OíIii PV311 i HLJOMAR. HiAifT I H'fOiR’U V'raillhióil I £siH:if»rc' i VfidiÆilun b iiwiiif’swf Kalfi R«|l|a'V# P’bfers Koip«*gii Tl jl| jl| i ser ur veru í virtan fyrirlesara Inga Dóra Björnsdóttir, mannfræðingur, Qallar í fyrirlestri sínum í dag um líf og störf Ólafar Sölvadóttur, betur þekkt sem Olof Krarer. FYRIRLESTUW Líf Og StÖrf Ólafar Sölvadóttur verður í öndvegi í kvöld í fyrir- lestri Ingu Dóru Björns- dóttur, mannfræðings og stundakennara við Há- skólann í Kaliforníu, á vegum Rannsóknastofu í kvennafræðum. Ólöf fæddist árið 1858 á ís- landi en fluttist ásamt föður sínum og systkinum til Vesturheims árið 1876. Ólöf var dvergur og fljót- lega eftir að hún kom vestur fékk hún starf í bandarísku fjölleikahúsi þar sem hún sýndi sig sem furðuveru eða „freak“. Ólöf yfirgaf fjöl- leikahúsið að nokkrum árum liðnum, brá sér í gervi eskimóakonu og hóf að flytja fyrirlestra um líf sitt á Grænlandi og menn- ingu eskimóa. Hún varð brátt eftirsóttur fyrirlesari og einn helsti sérfræðingur Banda- ríkjanna um menningu og líf eskimóa. Inga Dóra segir upp- gang Ólafar sem fyrirlesara hafa verið í beinum tengslum við þann tíðaranda er var í Banda- ríkjunum, kapphlaupið á Norð- urpólinn. Robert Peary hafði fyrstur manna komist á pólinn og almenningur hafði ótrúlegan áhuga á öllu er tengdist þessum heimshluta. Það voru nokkrir sem vissu hið sanna um Ólöfu en kusu að þegja. Inga Dóra segir hags- munasjónarmið hafa ráðið hjá nokkrum til dæmis umboðs- ÓLÖF SÖLVADÓTTIR/OLOF KRARER Ólöf mældist fjögur fet eða 1,22 metrar á hæð. Inga Dóra skoðaði feril Ólafar ekki síst út frá kynjafræðinni og ætlar í fyrirlestri sínum m.a. að fjalla um menningarbundna merkingu líkamans. „Með því að breyta sér úr dverg f eskimóa gjörbreyttist viðhorf fólks til hennar og allt í einu fór hún að geta nýtt hæfileika sem hún hafði aldrei geta gert sem dvergur. Hún fékk allt annan status og sýnir saga hennar vel hvað þetta er menningarbundið." manni hennar og Robert Peary, sem var í mun að hún héldi töfr- um norðursins á lofti. „Svo voru það íslendingarnir. Þeir létu ekk- ert uppi því þeir skömmuðust sín fyrir hana um leið og þeir höfðu meðaumkun með henni.“ Inga Dóra segir alla þessa sögu óvenjulega og skemmti- lega. Sérstaklega hvað henni hafi tekist vel að standa á sínu og leika þetta hlutverk. Ólöf starf- aði sem fyrirlesari í þrjátíu ár og skipaði sér á bekk með fremstu hugsuðum Bandaríkjanna á þeim tíma. Erindi hennar voru ætíð flutt í háskólum og fínni stofnunum. Inga Dóra segir Ólöfu hafa lifað góðu lífi. Hún hafi aldrei snúið aftur til íslands þrátt fyrir að hafa lýst yfir löng- un sinni til þess. Hún giftist aldrei og lést í Chicago árið 1934. kolbrun@frettabladid.is LAUG. 4. MAt D'ONDÍIRFRETTIR KA HNsimÍjnB Aiaareyri KK Dj O'li Palli HLJO'MAR. HAL.FT I HVO'RU SUN. 5. 1.AI k;k M,AK, 6. MAI KX Mlð. 3. MAI MIÐNE'S BSC. B.UTTE.RCUP.... F'im. I. IHMi Skaftfel I i S«yð isfirð i Vl'dalrn t. I nigioilfstorg Kaffi Reykjavik Pl.ayers Kop.a wg:i Hetel Hera'ð i EgiissL Feil.a*gsJi.. Barigarf. Ey V l da.l I n t„ tagiO'ilfs.í'Oir-g Kaffi Rey'kj.av'iík . Players K oip«av'0*gii Ho-te-l Hiffoibir, i'jfit. FRj*MUMD*M FÖST. 10. *»[ KK B.orq í 6riiœa*ssl PLA.ST Vídáin «. tagsitterf STXTIES Katffi ReitjaTil P'A.PA.R Piayers Koip.a"*''o<gií LAUG. n. NUI KK Utl.aigainyim Ftaðm HiUiN.A,NiG MöillíiímifnS VesMmae;. P1A.ST ViidiaAúm i. jntufefciri SJ.XTIES Kaiffi RsYÉprik P'A.P'A.R, P'l.ai'ers K o*p.av-i''©*qii 111. 15. EAl JCK. Fj,l„ 16 Eii.1 II Samtoimiufc, i.n-s X»affi Ðiuims fe'ircamisa. fii» !W fstkmiáiiT

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.