Fréttablaðið - 02.05.2002, Side 4

Fréttablaðið - 02.05.2002, Side 4
4 F RÉTTABLAÐIÐ 2. maí 2002 FIMMTUDAGUR SVONA ERUM VIÐ Landjæknisembættið hefur á heimasiðu sinni flokkun dánarorsaka landsmanna á því herrans ári 1995. Hér að neðan getur að llta nokkrar valdar dánarorsakir það árið: Orsök/SjúkdómurDauðsföll % Æxli 475 24,7% Sjúkdómar í blóðrásarfærum 824 42,8% Sjúkdómar í öndunarfærum Sjúkdómar 255 13,2% í meltingarfræum Sjúkdómar 43 2,2% I bvag- ob kvnfærum 27 1.4% Meðfæddur van- skapnaður og ástand sem á upptök í burðarmáli 36 1,9% Slysfarir, eitrun og ofbeldi 151 7,9% Mótmæla ríkisábyrgð vegna IE: Þingmenn skrifi upp á víxil iwÓTMÆll „Við afhentum formönn- um þingflokkanna tryggingavíxil fyrir ábyrgðinni til Islenskrar erfðagreiningar og báðum þá um að koma þessu til skila til sinna þingmanna svo þeir gætu tekið eigin ákvörðun um hvort þeir vildu skrifa undir víxilinn," segir Bryndís ísfold Hlöðversdóttir, formaður Ungra jafnaðarmanna í Reykjavik. Ungir jafnaðarmenn afhentu þingflokksformönnunum trygg- ingavíxla upp á 69.862 krónur og vildu þannig ítreka andstöðu sína við áform stjórnvalda um að veita ríkisábyrgð vegna upp- byggingar lyfjaþróunarfyrirtæk- is IE. ■ —♦— Ahrif veðurfars á fuglalíf: Tafír á varpi fuglar „Veður seinustu daga hef- ur fyrst og fremst haft áhrif á far- fugla sem komu til landsins áður en veðrið skall á. Sumir þeirra komu nú óvenju snemma," segir Guðmundur Guðmundsson fugla- fræðingur á Náttúrufræðistofnun íslands. „Hugsanlega getur orðið svelti og tafir á varpi. Það voru margir fuglar farnir að leita í varpstöðvar snemma." Guðmundur segir að stór hóp- ur fugla sem hafi verið kominn inn í landið, hafi leitað aftur til strandar. Þó séu fáar tegundir komnar af stað með varp en það hefst hjá flestum um miðjan maí. Fyrir tveimur árum kom hret í júnímánuði. Guðmundur segir að á þessum tíma sé hættan lítil en ef hretið nái svo langt fram á sumar geti það haft alvarlegri afleiðing- ar í för með sér. ■ Kennarar gagnrýna stærðfræðipróf: Próflð ekki nægilega vel samið SAMRÆMD próf Kennarar gagn- rýna samræmt próf í stærðfræði, segja það ekki hafa tekið nægilegt mið af því námsefni sem hefur verið notað. Langflestir skólar nota bókina Almenn stærðfræði, sem hefur verið kennd í nokkur ár. Námsskráin var endurskoðuð árið 1999 en nýtt námsefni er ekki komið. Steinn Ólafsson, stærð- fræðikennari í Álftamýrarskóla, segist telja að stærðfræðiprófið hafi byggst um of á námsskránni en ekki þeim námsgögnum sem flestir nota. Birgir Sigurðsson, stærðfræði- kennari í Réttarholtsskóla, segir kennara vissulega leggja auka- verkefni fyrir nemendur, til að mæta námsskránni. En hann gagnrýnir að allt of mikið hafi verið um flóknari útfærslu á að- ferðum stærðfræðinnar. Sigurgrímur Skúlason, sviðs- stjóri samræmdra prófa, segir að bæði skólar og foreldrar hafi gert athugasemdir við prófið. Hann segir hugsanlegt að einhver dæmi verð felld úr prófinu, ef það kem- ur mjög illa út. Niðurstöður úr prófinu koma eftir um þrjár vik- ur. ■ NEMENDUR í PRÓFI Margir fengu áfall í stærð- fræðiprófinu sl. mánudag. íslandsbanki: Milljarður í hagnað uppgjör Hagnaður íslandsbanka á fyrstu þremur mánuðum ársins 2002 eftir skatta var 979 milljónir króna. Hagnaðurinn jókst um 32 prósent á milli ára. Arðsemi eigin fjár eftir skatta var 20,7 prósent. Hreinar vaxtatekjur jukust um 21 prósent milli ára. Bjarni Ármannsson, forstjóri, segir að framlög á afskriftar- reikning séu enn há. Launakostn- aður hafi aukist en annar almenn- ur rekstrarkostnaður dregist saman. Niðurstaðan renni stoðum undir að að kostnaðarhlutfall verði um 50 prósent á þessu ári. ■ Árangur íslenskra líf- eyrissjóða ásættanlegur Ef borin er saman ávöxtun lífeyrissjóða í nágrannalöndum okkar sést að íslenskir lífeyrissjóðir hafa staðið sig sæmilega. Samsetning eigna og íjárfesting í innlendum skuldabréfum bætir árangur. HRAFN MAGNÚSSON Menn halda að sér höndum þegar svona niðursveiflur verða; hvort sem það er hérlendis eða erlendis. lífeyrissjóðir „Það er augljóst að fjárfestingaárangur íslenskra líf- eyrissjóða á síðasta ári er viðun- andi í samanburði við lífeyrissjóði í nálægum löndum,“ segir Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Landssambands lífeyrissjóða. Hann segir þó ekki ásættanlegt að sýna neikvæða ávöxtun tvö ár í röð. í samanburði á ávöxtun lífeyr- issjóða í nokkrum löndum í kring- um okkur, sem tímaritið Pensions & Investments gerði, sést að ár- angur íslensku lífeyrissjóðanna er ekki sá lakasti. Sérstaklega ef horft er á lækkun hlutabréfavísi- talna fyrirtækja hér á íslandi og í Bandaríkjunum. Hluti fjárfest- inga lífeyrissjóða er í hlutabréfum fyrirtækja. „í þessum samanburði njótum við þess að okkar eignarsöfn eru frábrugðin því sem aðrir sjóðir eru með. Erlendir sjóðir eru yfir- leitt með meira bundið í hlutabréf- um. íslenskir lífeyrissjóðir eru ÁVÖXTUN 200: SAMANBURÐUR MILLI LANDA* 1 Bretland -11,8% Sviss -7,40% Japan -5,80% Bandaríkin -5,70% ísland -3,25% Kanada -1,30% Ástralía 4,2% Lækkun vísitalna 1 S&P 500 -11,88% 1 Aðallisti VÞl -11,25% 1 *Samantekt Pensions & Investments. Talan fyrir ísland hefur bara að geyma 1 ávöxtun stærstu lífeyrissjóða. með stærstan hluta af sinni fjár- festingu í innlendum skuldabréf- um, sem hafa ávaxtast vel. í því liggur þessi munur,“ segir Hrafn. Ástralía sker sig þó úr í þessum samanburði. Þar var ávöxtun líf- eyrissjóða 4,2 prósent og eina landið þar sem eignir sjóðsfélaga uxu. Samkvæmt Pensions & In- vestments, sem er fagtímarit um fjárfestingar lífeyrissjóða, hafði hækkun hlutabréfa á mörkuðum í Ástralíu á síðasta ári þar mest að segja. Hlutabréfavísitalan hækk- aði um 10,5 prósent í fyrra. Fá fyr- irtæki í upplýsingaiðnaði, vöxtur frumvinnslufyrirtækja og umfang banka á markaðnum hafði þau áhrif að vísitalan hækkaði. Hrafn segir alla halda að sér höndum í niðursveiflu á mörkuð- um. Áhættudreifing íslenskra líf- eyrissjóða í erlendum hlutabréf- um hefur verið meiri en í öðrum ríkjum. Stjórn á áhættu í fjárfest- ingu hafi fleygt fram. „Þekking á þessu sviði hefur eflst mjög mikið hjá lífeyrissjóðunum á liðnum árum.“ bjorgvin@frettabladid.is Verkalýðsfélag Húsavíkur: 25 milljónir í bætur til 210 félagsmanna verkalýðsmál Á sl. ári fengu 210 fé- lagsmenn í Verkalýðsfélagi Húsa- víkur greiddar samtals um 25 millj: ónir króna í atvinnuleysisbætur. í þessum hópi voru 93 karlar og 117 konur. Um sl. áramóti voru 912 manns skráðir í félagið . Skráðir at- vinnuleysisdagar voru rúmlega 10 þúsund. Þetta kom fram á aðalfundi félagsins sem haldinn var fyrir skömmu. Aðalsteinn Á. Baldursson for- maður félagsins segir að það hefði komið stjórn félagsins á óvart hvað þessar bótagreiðslur voru miklar til félagsmanna á síðasta ári. Hann segir að menn eigi eftir að skoða það nánar hvað hefur valdið þessu. Sérstaklega í ljósi þess að mönnum hefur fundist að veruleg sókn hafi verið í atvinnumálum á félags- svæðinu á síðustu misserum. ■ —♦— Vöruskipti við útlönd: 14 milljarða afgangur efnahagsmál Vöruskiptajöfnuður við útlönd á fyrsta ársfjórðungi þessa árs var 13,8 milljörðum skárri en á sama tíma í fyrra, samkvæmt samantekt Hagstofu Islands. Vöruskiptaafgangur nú nemur 5,6 milljörðum króna með- an skiptin voru óhagstæð um 8,2 milljarða á sama tíma á síðasta ári. Fluttar voru út vörur fyrir 53,4 milljarð króna en inn fyrir 47,8 milljarða króna. í marsmánuði einum og sér var hins vegar 2,4 milljarða króna halli, en þá var flutt til landsins flugvél fyrir 5,9 milljarða og hefði staðan því að öðrum kosti verið já- kvæð. í fyrra voru vöruskipti í mars óhagstæð um 7,3 milljarða króna á sama gengi. ■ iVið erum 5 ára i frábær afmælistilboá Norðlingaölduveita: Sögð vera hagkvæmasti kosturinn Viðbúið er að einhverjar athugasemdir verði gerðar við fyrirhugaða framkvæmd sem er sunnan Hofsjökuls. Svæðið er á afrétti Ásahrepps, Djúpárhrepps og Gnúpverjarétts. landsvirkjun Landsvirkjun telur að Norðlingaölduveita sé hagkvæm- asti kosturinn til orkuöflunar með skömmum fyrirvara. Fyrirtækið er einnig þeirrar skoðunar að niður- stöður mats á umhverfisáhrifum bendi eindregið til þess að friðland Þjórsárvera haldi einkennum sín- um þrátt fyrir tilkomu veitunnar. Þessi framkvæmd muni því ekki koma til með að hafa umtalsverð neikvæð áhrif á umhverfið. Nýting og verndun Þjórsárvera geti því farið saman. Þetta kemur m.a. fram í skýrslu um mat á umhverfisáhrif- um sem Landsvirkjun hefur lagt fram vegna áforma um byggingu þessarar veitu. í skýrslunni kemur ennfremur fram að alls færu um 8% af hreið- ursstæðum heiðargæsarinnar í Þjórsársverum og nágrenni undir vatn. Það samsvarar um 550 af 6.800 hreiðrum á öllu svæðinu. Norðlingaölduveita hefði því áhrif á innan við 2% af heildarvarpstofni heiðargæsarinnar. Með þessu lóni mundu fara um 2,3 ferkílómetrar af votlendi undir vatn og 7,2 fer- kílómetrar af grónu landi. Þar af 1,5 km2 í friðlandi Þjórsárvera. Áformað er að stífla Þjórsá austan við Norðlingaöldu og mynda 29 km2 lón í 575 metra hæð yfir sjávar- máli. Vatni verður síðan dælt úr lóninu um 13 km göng yfir í Þóris- vatnsmiðlun. Landsvirkjun telur að með veitunni sé hægt að auka orku- framleiðslu í virkjunum á Þjórsár- og Tungnasvæðinu á mjög hag- kvæman hátt. Það er í Vatnsfells- stöð, Sigöldustöð, Hrauneyjafoss- stöð og væntanlegri Búðarháls- virkjun. ■

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.