Fréttablaðið - 02.05.2002, Blaðsíða 2
KJÖRKASSINN
LÍTILL
GÖNCUHUGUR
Langflestir netverja á
Vlsi.is ætlaðu ekki að
marsera í skrúðgöngu
á hátíðisdegi
verkalýðsins.
Ætiarðu í fjöldagöngu
þann 1. maí?
Niðurstöður gærdagsins
á yyww.vlsir.is
E
7%
Spurning dagsins í dag:
Kemur sumarið mai?
Farðu inn á vísi.is og segðu
þlna skoðun
ELDHAF f MADRID
Slökkviliðsmaður berst við elda eftir
bílasprengjur gærdagsins í Madrid.
Madrid:
Baskar
sprengja
hryðjuverk Mikill taugatitringur
greip um sig í Madrid um miðjan
dag í gær eftir að tvær bíla-
sprengjur sprungu þar í borginni
með háltíma millibili. Níu særðust
lítillega. Talið er aðskilnaðarsam-
tök Baska, ETA, standi að baki
sprengjunum.
Fyrri sprengingin varð nærri
leikvangi knattspyrnuliðsins Real
Madrid sem lék í gækvöld við erki-
fjendur sína frá Barcelona í und-
anúrslitum Evrópukeppni meistar-
liða. Um tíma stóð til að fresta
leiknum en af því varð þó ekki. ■
Seðlabankinn:
Vaxtalækkun
vextir Seðlabankinn hefur lækkað
vexti um 0,3 prósent.
í ársfjórðungsriti Seðlabank-
ans sem kemur út 7. maí verður
birt ný verðbólguspá til rúmlega
tveggja ára og ítarleg greining á
stöðu og horfum í efnahags- og
peningamálum. Bankinn telur
horfur á að markmið sitt og ríkis-
stjórnarinnar frá í mars í fyrra
um 2 1/2% verðbólgu náist fyrir
lok árs 2003. Einnig að verðbólgan
verði undir þessu markmiði á
fyrsta fjórðungi 2004 að því til-
skyldu að peningastefnan sé
óbreytt. Bankinn segir flesta nýj-
ustu hagvísa benda til að sam-
dráttur eftirspurnar á vöru- og
vinnumarkaði ágerist um þessar
mundir. ■
FRÉTTABLAÐIÐ
2. maí 2002 FIMMTUDAGUR
Báðar þyrlur Landhelgisgæslunnar úr leik:
Varnarliðið sækir
konu á Skjaldbreið
slys Þyrla Bandaríkjahers í Kefla-
vík flutti í gær konu sem slasaðist
á Skjaldbreið á sjúkrahús í
Reykjavík. Þyrlur Landhelgis-
gæslunnar voru ekki til taks.
Konan, sem er 26 ára gömul,
slasaðst þegar hún féll af gúmmí-
tuðru sem dregin var af vélsleða.
Björgunarsveitir frá Laugarvatni
og Selfossi héldu til aðstoðar með
lækni og lögreglumann. Óskað
var eftir aðstoð þyrlu og lenti her-
þyrlan með konuna við Landspít-
alann í Fossvogi um klukkan 18.
Óttast hafði verið að konan
væri með innvortis áverka. Sam-
kvæmt upplýsingum sem fengust
á Landspítalanum um tveimur
tímum eftir að konan kom þangað
höfðu ekki fundist alvarlegar
áverkar á konunni. Hún átti þó
eftir að fara í frekari skoðanir,
m.a. myndatökur. Hún dvaldi á
spítalanum í nótt.
Eins og áður sagði var hvorug
þyrla Landhelgisgæslunnay til
taks í gær. Sú stærri, TF-LÍF, er
nú í nokkurra vikna skoðun. TF-
TF-SIF Á ÆFINGU
Hvorug þyrla Landhelgisgæslunnar er starf-
hæf í augnablikinu. TF-LlF er í skoðun en
TF-SIF er biluð.
SIF bilaði hins vegar í fyrradag.
Vonast er til að varahlutur í vélina
berist þannig að hún verði flug-
hæf fyrir kvöldið í kvöld. ■
Rautt strik heldur:
Fasteignir
hækka
efnahagslíf Greiningardeild Kaup-
þings spáir 0,1 prósent hækkun
vísitölu neysluverðs milli mánaða
og jafngildir hækkunin 1,2 prósent
verðbólgu á ársgrundvelli. Gangi
spáin eftir fer vísitölugildið í 222,1
stig í maí og verður því undir rauða
strikinu sem samið var um.
Helstu forsendur spárinnar gera
ráð fyrir lækkun mat- og drykkjar-
vöru þriðja mánuðinn í röð. Fata- og
skóverð stendur nokkurn veginn í
stað en gert er ráð fyrir að fast-
eignaliðurinn hækki enn og skýrir
hann að verulegu leyti heildar-
hækkun vísitölunnar samkvæmt
spánni. ■
Kári kærir Gísla
vegna girðingar
Kári Stefánsson hefur snúið vörn í sókn í skipulagsdeilu sinni við
verðandi nágranna í Skerjafirði. Hann hefur kært Gísla Helgason
og Herdísi Hallvarðsdóttur fyrir framkvæmdir á lóð þeirra.
NÁGRANNAVAKT Kári Stefánsson,
forstjóri Islenskrar erfðagrein-
ingar, hefur krafist þess að verð-
andi nágrönnum hans í Skerja-
firði verði gert að fjarlægja girð-
ingu og verönd sem ekki munu
___ ___ vera í samræmi
_ . „ við deiliskipulag
Fyrir stuttu hverfisins. Skipu-
h°fu 08 lags- og bygging-
Herdis hins arnefnd Reykja-
vegar að reisa víkur hefur stað-
tæplega fest ákvörðun
tveggja metra byggingarfulltrúa
háa girðingu á borgarinnar um að
lóðamörkun- framkvæmdirnar
um. verði stöðvaðar.
^ . Eins og kunn-
ugt er hyggst Kári
reisa óvenju stórt einbýlishús á
lóðinni númer níu við Skeljatanga.
Á næstu lóð vestan við lóð Kára er
hús númer sex við Skildinga-
tanga. Þar búa hjónin Gísli Helga-
son og Herdís Hallvarðsdóttir
tónlistarmenn. Þau voru meðal
þeirra verðandi nágranna Kára
sem kærðu fyrirhugaða húsbygg-
ingu Kára í Skeljatanga. í kjölfar
þess var byggingarleyfi sem Kári
hafði áður fengið frá skipulagsyf-
irvöldum í borginni úrskurðað
ógilt.
Kári hefur stefnt þeim sem
veittu honum byggingarleyfið,
þeim sem kærðu það og úrskurð-
arnefndinni sem ógilti það fyrir
Héraðsdóm Reykjavíkur. Sátta
hefur verið leitað í því máli án ár-
angurs.
UMDEILDUR SKJÓLVEGGUR
Gísli Helgason og Herdís Hallvarðsdóttir, verðandi næstu nágrannar Kára Stefássonar, hafa
reist óleyfilegan skjólvegg á mörkum lóðar sinnar og lóðar Kára.
í skipulagi er ekki gert ráð
fyrir girðingum á lóðamörkum
við Skeljatanga og Skildinga-
tanga. Fyrir stuttu hófu Gísli og
Herdís hins vegar að reisa tæp-
lega tveggja metra háa girðingu
á lóðamörkunum. Þá hafa þau
verið að koma fyrir verönd sem
nær að lóðamörkunum. Þau hafa
ekki sótt um leyfi fyrir þessum
framkvæmdum. Að auki er eldri
girðing annars staðar á mörkum
lóðar hjónanna sem mun heldur
ekki samrýmast skilmálum.
Gísla og Herdísi hafa nú feng-
ið frest til að gera grein fyrir
sjónarmiðum sínum í málinu.
Ekki náðist í aðila þessarar nýju
deilu í gær.
gar@frettabladid.is
ANFINN
KALLSBERG
LÖGMAÐUR
FÆREYJA
Lögþingið í Færeyjum:
Pattstaða
Færeyska landstjórnin tapaði
meirihluta sínum á lögþingini í
kosningum á laugardag. Stjórnar-
flokkarnir þrír höfðu áður 18
þingsætýgegn 14 sætum minni-
hlutans. Úrslitin voru hins vegar á
þá leið að jafnt er komið á með
fylkingum, báðar hafa 16 þing-
sæti.
Aðalkosningamálið var það
hvort Færeyjar ættu að taka sér
sjálfstæði frá danska ríkinu. Al-
gjör pattstaða virðist nú komin
upp í því máli. Helsri sigurvegari
kosninganann var stjórnarand-
stöðuflokkurinn Sambandsflokk-
urinn sem jók fylgi sitt um 8 pró-
sentustig og fékk 26,0%. ■
Gallup:
R-listinn
með níu
stjórnmál Reykjavíkurlistinn nýt-
ur stuðnings 56% kjósenda, 39%
styðja Sjálfstæðisflokkinn og 4%
segjast kjósa Frjálslynda sam-
kvæmt skoðanakönnun Gallup
fyrir Ríkisútvarpið. Væru þetta
úrslit borgarstjórnarkosninga
fengi R-listinn níu borgarfulltrúa
en Sjálfstæðisflokkurinn sex.
Samkvæmt könnuninni er fylgi
flokkanna óbreytt síðustu tvær
vikur. Könnunin sýnir sömu til-
hneigingu og aðrar kannanir að
undanförnu hvað snertir það að R-
listinn nýtur fremur fylgis meðal
kvenna en karla, og að D-listinn
hefur meirihluta í Grafarvogi og
Árbæ. ■
Ársskýrsla Ibúðalánasjóðs:
370 milljóna króna tap
e az Reykjavík
KL. 22 Á VÍDALÍN Sensei sér um að halda baráttuneistanum frá
l.maí á lífi í mannskapnum. Ungt Reykjavikur-
jét listafólk býður gestum og gangandi upp á
skemmtilega dagskrá i elsta húsi bæjarins.
| wwwxR.is.xn@XR.is REYKJAVIKURLISTINN |
afkoma íbúðalánasjóður var rek-
inn með rúmlega 370 milljóna
króna tapi á seinasta ári. Árið
áður var sjóðurinn rekinn með
tæplega 470 milljóna króna hagn-
aði. Breytingar á rekstrartekjum
skýrist að mestu leyti á óhag-
stæðri þróun verðlags og gengis.
Gengistap á árinu varð 613 millj-
ónir króna.
Kostnaður við rekstur sjóðsins
nam 721 milljónum króna og
hækkaði um 7,2% milli ára. Hagn-
aður er þó af heildarrekstri íbúð-
arlánasjóðs fyrstu þrjú rekstrar-
árin.
Útlán sjóðsins í fyrra voru 355
milljarðar miðað við tæpa 300
árið 2000 og 264 á stofnárinu. Eig-
ið fé sjóðsins nam 8,4 milljörðum
eða 2,4% af eigin fé sjóðsins.
Lántakendur voru um 77 þús-
ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR
Meginverkefni íbúðalánasjóðs eru að veita einstaklingum lán til bygginga, kaupa eða lag-
færinga á íbúðarhúsnæði í eigin þágu. Einnig að veita sveitarfélögum, félögum og félaga-
samtökum lán til byggingar eða kaupa á leiguhúsnæði.
und talsins og lán voru um 150
þúsund en þess má geta að íbúðir
á landinu öllu eru um 105.000 tals-
ins. Lánafyrirgreiðsla íbúðalána-
sjóðs er tvenns konar. Annars
vegar húsbréfalán, sem nema um
80% af lánum sjóðsins, en hins
vegar peningalán, þ.e. viðbótar-
lán, leiguíbúðalán og lán til sér-
tækra verkefna. ■
I