Fréttablaðið - 02.05.2002, Blaðsíða 8
FRÉTTABLAÐIÐ
2. maí 2002 FIMMTUDACUR
og svarið er?
FRETTABLAÐIÐ
Útgáfufélag: Fréttablaðið ehf.
Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjórar: Gunnar Smári Egilsson
og Jónas Kristjánsson
Fréttastjórar: Pétur Gunnarsson
og Sigurjón M. Egilsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Þverholti 9, 105 Reykjavík
Aðalsími: 515 75 00
Símbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjom@frettabladid.is
Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Fréttablaðið ehf.
Plötugerð: (P-prentþjónustan ehf.
Prentun: Isafoldarprentsmiðja hf.
Fréttaþjónusta á Netinu: Vlsir.is
Fréttablaðinu er dreift ókeypis til allra heimila á höf-
uðborgarsvæðinu. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn
greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins E stafrænu formi og I gagnabönkum
án endurgjalds.
| BRÉF TIL BLAÐSINS]
Lok lok
og læs og
allt í gleri
ELULÍFEYRISÞECI1 KÓPAVOGI SKRIFAR:
ig langar að beina spurning-
um til bæjaryfirvalda í
Kópavogi og Strætó bs. Þær eru
um skiptistöðina í Kópavogi sem
stendur við Digranesveg. I kulda
og trekki höfum við farþegar
þurft að bíða mislengi eftir vögn-
unum í vetur í alls konar veðri,
eins og fólk veit sem notar stræt-
isvagnana hér í bæ. Skiptistöðin
er oft á tíðum harðlæst svo dögum
skiptir, stundum er búið að brjóta
rúður og þá er bara lokað, án þess
að huga að því að laga og opna. Við
farþegarnir getum bara beðið í
hvaða veðri sem er. Ég man þá
daga þegar ég var mun yngri, íbúi
í þessum bæ, að þegar eitthvað
var skemmt og eyðilagt, þá var
bara drifið í að lagfæra og opna
strax. Það var þegar S.V.K. var og
hét. Þá var hægt að stóla á strætó.
En tímarnir breytast . Hvers
vegna er ekki löngu búið að setja
myndavélakerfi í skiptistöðina?
Eins og víðast hvar í borginni
hennar Ingibjargar Sólrúnar þá
mundu þessir skemmdarvargar
hugsa sig tvisvar um, áður en þeir
létu til skara skríða. Mig langar að
beina þeirri spurningu til bæjar-
yfirvalda og strætó, hvort þeir
ætli ekki að koma skiptistöðinni í
lag fyrir okkur farþegana sem
ennþá notum strætó? ■
Þingmaður
Hvers vegna á ríkissjóður, fyr-
irtækin og fólkið í landinu að
skrifa upp á víxil að fjárhæð
20.000.000.000 - tuttugu þúsund
milljónir króna til handa einum
lögaðila, herra þingmaður?
„Af því bara.“
Óttast þú ekki að illa geti farið?
„Nei.“
Hvers vegna segir þú það?
„Af því bara.“
En þessi mikla fyrirgreiðsla er
hún ekki fordæmisgefandi?
„Nei.“
Hvers vegna ekki?
„Af því bara.“
Nú var skammur tími til að
fara yfir þetta mikla mál og þing-
heimur varð að afgreiða það í
flýti. Var það ekki slæmt?
„Nei.“
Hvernig má það vera?
„Af því bara.„
Þingmenn hafa sagt að ekki sé
á það sættandi að þjóðin missi af
miklu tækifæri sem felist í
ábyrgðinni. Ert þú þeirra skoðun-
ar?
„Já.“
Hvaða er það sem sannfærir
þig um að svo sé.“
„Það er nauðsynlegt að vera í
farabroddi í hátækniiðnaði.“
Hvað sem það kostar?
„Já.“
Hvers vegna er það svo mikil-
vægt að hægt að er að réttlæta
ábyrgðir upp á 20.000.000.000
þess vegna?
„Af því bara.“
.Mál...DMiiia
Sigurjón M. Egilsson
skrifar um afstöðu
Nú er vissulega hætta á að
ábyrgðin falli á þjóðina, skerði
hennar lífskjör um langan tíma.
Veldur það þér ekki áhyggjum?
„Nei.“
Hvers vegna ekki?
„Af því bara.“
Alþingi er að fara lengsta sum-
afrí landsmanna. Þingmenn koma
aftur til þingstarfa á þeim tíma
sem degi verður tekið að halla.
Sennilega í október. Það er von-
andi að þeir njóti hvíldarinnar.
Hvað sem hver segir eru þeir vel
að hvíldinni komnir, er ekki svo?
Örþreyttir eftir fyrirgreiðslu síð-
ustu daga. Það er ekki lítið á þá
blessaða lagt. Sumir tala og tala
og tala. Aðrir tala helst ekki og
nenna ekki fyrir nokkurn mun að
hlusta á þá sem tala og tala og
tala.
Halldór Blöndal sagði aðspurð-
ur í útvarpi í vikunni að þingmenn
komi alltaf að gagni. Dæmi hver
fyrir sig. ■
KVIÐDÓMUR
Spennandi kosningar framundan
Bilið milli stóru framboðanna í Reykjavík hefur minnkað ef marka má kannanir. Bilið er mismunandi eftir könn-
unum og hjá Talnakönnun fór Sjálfstæðisflokkur yfir. Það stefnir í spennandi lokasprett kosninganna í borginni.
ÓLAFUR Þ. HARÐARSON
PRÓFESSOR
Spennandi
barátta
„Kannanirnar sem hafa
verið að birtast bera það
allar með sér að það hefur
dregið saman
með framboð-
unum. Þetta er
orðið miklu
meira spenn-
andi en það
var. Hins vegar er ekki við
því að búast að kannanirnar
séu nákvæmlega eins. Það
geta ýmsar ástæður legið
að baki því að könnun
Talnakönnunar sker sig
nokkuð úr. Tímasetning
getur skipt máli og svo
sveiflast kannanir alltaf
svolítið til. Maður getur
ekki dregið of víðtækar
ályktanir af einni könnun.
Túlkunin er fyrst og fremst
sú að munurinn hefur
minnkað. Sjálfstæðisflokk-
urinn hefur verið í skel-
eggri og harðri kosninga-
baráttu að undanförnu án
þess að hinir hafi svarað.
Nú hljóta þeir að slá í mer-
ina. Ég geri ráð fyrir að
þeir svari af fullri hörku og
að þetta verði lífleg kosn-
ingabarátta." ■
CUNNAR H. KRISTINSSON
PRÓFESSOR
Úrslit
ekki ráðin
„Það sem hægt er að segja
með nokkurri vissu út frá
könnunum er að staða D
listans hefur
batnað. Það
virðist ekki
mikill munur á
könnun DV og
Félagsvísinda-
stofnunar en Talnakönnun
er öðruvísi. Það kemur
alltaf fyrir að úrtak er
skakkt. Hver sem er getur
lent í því. Það getur verið
að Talnakönnun hafi lent í
því. Hins vegar getur það
líka verið að þetta sé ennþá
svo óráðið að svona sveifl-
ur séu eðlilegar. Ég hugsa
að einhver hluti fylgisins
sé á hreyfingu. Sjálfstæðis-
flokkurinn er augljóslega
ekki með tapaða kosningu.
Á sama hátt fær R-listinn
viðvörun. Ég veit ekki hvað
maður á að gera mikið úr
áhrifum kannana á kosn-
ingabaráttuna, nema þegar
þær drepa framboð. Það
virtist stefna í það með
Sjálfstæðisflokkinn á tíma-
bili. Það er alls ekki hægt
að tala um ráðin úrslit.“ ■
STEFANÍA ÓSKARSDÓTTIR
STJÓRNMÁLAFRÆÐINGUR
D-listi
sækir á
„Það eru há skekkjumörk í
þessum könnunum. Það
hefur verið stígandi í þess-
um könnunum
fyrir Sjálf-
stæðisflokk-
inn. Könnun
Talnakönnun-
ar virðist
skera sig nokkuð úr. Fylg-
ið virðist vera einhvers
staðar á bili þessara kann-
anna. Ég held að Sjálf-
stæðisflokkurinn hljóti að
sækja á. Hann fékk ríflega
45% í síðustu kosningum.
Hann hlýtur að stefna á að
sækja meira fylgi en það.
Það er erfitt að sækja það
fylgi, en það er enn þá
tími til þess. Sóknarfærið
er kvennafylgið. R- listinn
er kominn í varnarbaráttu.
Það er von á því að slagur-
inn verði harður. Svo er að
sjá hvort Frjálslyndi
flokkurinn nái að setja
mark sitt á kosningarnar
og taki mann frá öðru
hvoru framboðinu." ■
BJÖRGVIN C. SIGURÐSSON
SAMFYLKINGUNNI
Forskotið
mun halda
„Marktækar kannanir
segja mér að Reykjavík-
urlistinn virðist halda
nokkuð ör-
uggu forskoti,
þrátt fyrir
fordæmalaus-
an fjáraustur
Sjálfstæðis-
flokksins síðustu vikur.
Að vissu leyti má segja að
Sjálfstæðisflokkurinn hafi
verið að ná vopnum sín-
um. Nú þegar Reykjavík-
urlistinn fer að keyra bar-
áttu sína af fullum krafti
má búast við því að ör-
uggt forskot hans haldist
allt til enda. Könnun Fé-
lagsvísindastofnunar virð-
ist gefa það til kynna.
Þetta verður hins vegar
spennandi slagur og spurt
að leikslokum eins og í
öllum kosningum." ■
EYÞÓR ARNALDS
SJÁLFSTÆÐISFLOKKI
Fylgið á
hreyfingu
„Fylgið virðist vera á
meiri hreyfingu en margir
héldu. Óákveðnir virðast
vera fleiri en
gefið er upp í
hvert sinn.
Baráttan virð-
ist standa á
milli stóru
framboðanna, Sjálfstæðis-
flokks og R-lista. Ef eitt-
hvað er að marka síðustu
kannanir virðist hreyfing-
in vera í áttina til Sjálf-
stæðisflokksins. Ég held
að mönnum hlaupi kapp í
kinn við að sjá að það er
hægt sem menn héldu
kannski um tíma að væri
ekki hægt. Fylgið er á það
mikilli hreyfingu að það
er góður möguleiki fyrir
Sjálfstæðisflokkinn að
vinna kosningarnar." ■
súpuleikurinn
Maggi-súpur eru vel þekktará íslenskum heimilum fyrirgott bragð og
einfalda eldamennsku. Þú geturvalið á milli 11 súputegunda sem
• eru hverannarri Ijúffengari.
Taktu þátt í léttum leik!
Sendu inn toppa af 7 súpupökkum og þú ert með í ieiknum.
( þottinum eru 20 glæsilegir vinningar:
1. Utanlandsferð að eigin vali að andvirði 120.000 kr.
2. Heimilistæki að eigin vali fyrir 80.000 kr.
3. Heimilistæki að eigin vali fyrir 50.000 kr.
4.-9. Glæsilegt pottasett að andvirði 15.000 kr.
10.-20. Gjafakarfa full af góðgæti.
21.-70. Bíómiðar í Háskólabíó.
Sendu inn 7 toppa fyrír 20. maí ásamt upplýsingum um
nafn, heimili og sfma til: Maggi-leikur, Pósthólf 4132,124 Rvík.
ORÐRÉTT
AÐ SLÖKKVA ÞORSTA MED
HUNCRI
Björn Bjarnason er alger and-
stæða hins kalda og fjarlæga
valdhroka sem ríkt hefur í Ráð-
húsi Reykjavíkur sl. átta ár.
Jakob F. Ásgeirsson, Morgunblaðið, 30.
apríl
EKKI SEINNA VÆNNA
Sigur heimavinnandi húsmæðra
Fyrirsögn leiðara. Morgunblaðið,
30. apríl
KANNAST MAÐUR VIÐ ÞAÐ
Nemendur tóku þessu ekki vel.
Sumir brotnuðu saman og brustu
í grát
Sveinn Ingimarsson, stærðfræðikennari
um samræmt próf í stærðfræði. Frétta-
blaðið, 30. apríl
VÖN AÐ KREPPA
TÆRNAR
Þetta er starf sem á
ágætlega við mig
vegna þess að ég
þekki nokkuð vel hvar
skórinn kreppir
Ingibjörg Pálmadóttir, fyrrverandi heil-
brigðisráðherra og framkvæmdastjóri Vel-
ferðarsjóðs barna. Fréttablaðið, 30 apríl.
HEILACT JÓHÖNNU
SKAMM
Það er ekki annað
hægt en að lýsa
skömm sinni á svona
vinnubrögðum.
Jóhanna Sigurðardóttir um frumvarpið
um að leggja Þjóðhagsstofnun niður.
Fréttablaðið, 30. apríl
EILÍFT FERÐALAC
En það er einn hlutur
sem er skrýtinn. Alla
ævina hef ég aldrei
haft þá tilfinningu að
ég væri heima hjá
mér, hvorki á Islandi né erlendis.
Það voru einungis þrír dagar í
Dublin árið 1966, sem ég hafði
þessa tilfinningu.
Þorgeir Þorgeirsson, rithöfundur.
Fréttablaðið, 30. april
FÁ HELDUREKKERTFYRIR
SINN SNÚÐ
Mesta athygli mína vakti hörmu-
leg frammistaða áhorfenda. Ekki
í fyrsta sinn sem maður verður
vitni að því. Þegar keppandi leit-
ar aðstoðar þeirra eru þeir alltof
oft úti að aka.
Kolbrún Bergþórsdóttir, blaðamaður
um Viltu vinna milljón. DV, 30 apríl.
EN ANNARS ERUM VIÐ MIKL-
IR HEIMSBORGARAR
Erlendir alþjóðajöfrar líta á okk-
ur íslendinga sem auðtrúa sveita-
menn, þegar kemur að viðræðum
um stóriðjuframkvæmdir.
Jón G. Hauksson, ritstjóri Frjálsrar
verslunar. DV, 30. apríl
HALDA MENN KANNSKI AÐ
ÞAÐ SÉ GAMAN í BRUSSEL?
í stað þess að refsa embættis-
mönnum eins og vera ber, með
uppsögn, á víst að senda þá í út-
legð þar sem þeir fá enn betri og
tryggari sess að launum.
Valdimar Jónsson,
DV, 30. apríl.