Fréttablaðið - 06.05.2002, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 06.05.2002, Blaðsíða 4
4 Heimilisblaðið 6. ti! 12. maí 2002 Andans þjónn sem elskar efhið fógeta forföður hennar. Biblíu- myndabókin hefur skipað stórar sess í uppeldi barna hennar tveg- gja, Önnu Maríu sem er 8 ára og Isaks sem er 11 ára. Gítarinn er Helgu sérlega kær, en við hvers kyns flutninga og til- færingar hefur hann hlotið með- höndlun líkt og hann væri úr postulíni. Loks er saumavélin orð- in mikilvægur þáttur í lífuHelgu. „Það er vegna bútasaumsins. Þeg- ar ég var í stjórn prestafélagsins árið 1997 var ég farin að finna fyrir leiða á kirkjupólitíkinni og langaði til að hleypa einhverri sköpun út á nýjum vettvangi, gera eitthvað ólíkt því vafstri sem ég hafði lifað og hrærst í svo lengi, og finna nýja vídd í sjálfri mér. Eg fór því á námskeið í bútasaumi og GÍTARINN I UPPÁHALDI Helga Soffía grípur i gítarinn. egar komið er á heimili sr. Helgu Soffíu Konráðsdóttur er bersýnilegt að hún hefur auga fyrir fögrum hlutum og litum. Þegar blaðamaður þiggur hjá henni grænt te að hætti Japana kemur í ljós að tesettið meðal þessara fögru hluta og virðist sem mikið hafi verið nostrað við að mála það. „Það sem ég tók sér- staklega eftir þegar ég bjó í Japan var að í mati þeirra, til dæmis á mat, var fegurð sett í öndvegi. Síðan kom hollusta og í þriðja lagi að maturinn var líka góður. Hérna á íslandi byrjum við yfirleitt á að dásama bragðið, og tala um hve maturinn sé góður.“ En sú til- hneiging Helgu að raða í kringum sig fallegum munum kann ein- hverjum að finnast undarleg, í ljósi þess að vera svokallaður and- ans þjónn, sem prestur. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir segir hið efnislega vera Guði þóknanlegt. Innlit í Vesturfoænum „Mér þykir bara svo vænt um hlutina mína. Ég skammast mín ekkert fyrir að viðurkenna það að ég er hálfgerður materíalisti. Og sem prestur hef ég fundið réttlæt- ingu á þessu viðhorfi í trúnni. I-Iið materíaliska er nefnilega Guði þóknanlegt. Það er rangtúlkun á hinni biblíulegu trú aö ætla að hún geri lítið úr efninu. Þvert á móti gerir Guð efnið virkt þegar hann skapar í upphafi," segir Helga. Helga segist tvívegis hafa flutt búferlum um ævina og í bæði skiptin hafi hún þurft að skilja eftir megnið af sínum persónu- legu munum. „Mér fannst það mjög erfitt bæði þegar ég fór að búa í Svíþjóð og í Japan að hafa þurft að yfirgefa hlutina mína. Ég saknaði þess að hafa ekki dótið mitt hjá mér. Mér fannst eins og ég hefði tengst þessum hlutum til- finningalega og þar af leiðandi vantaði eitthvað upp á sjálfa mig.“ Helga segist halda sérstaklega upp á nokkra hluti á heimilinu. Einn þeirra er forn, fallega blár blómavasi. Hann kemur frá Skúla FORN OG LÚIN BÓK Biblíumyndabókin hefur skipað stóran sess í uppeldi barna Helgu Soffíu. ég fann strax hvað það átti vel við mig.“ Helga segir bútasauminn vera afar ólíkan prestsstörfunum þar sem allur dagurinn er á andlegum og félagslegum nótum. Hún hafi lagt áherslu á að geta skilið vinn- una eftir í lok dags, hengt hemp- una, í víðum skilningi, á snagann og haldið heim í eitthvað allt ann- ars eðlis. „Þar þarf maður að ein- beita sér að efninu, mynstrinu, lit- unum, sníða þetta allt til og vera með þetta í höndunum. Ég er svo heilluð af litadýrðinni og efninu og fæ mikið út úr því að búa til hinar ýmsu litasamsetningar. Það má því segja að jafnframt því að vera afslappandi sé bútasaumur- inn krefjandi því maður kappkost- ar að láta tiltekna hugmynd verða að veruleika. Það er mjög jákvæð upplifun að efla á þennan hátt samstarf hugar og handar.“ Enn sem komið er saumar Helga mest dúka og teppi sem hún notar gjarnan í gjafir. Hún segir þó ekki loku fyrir það skotið að þegar hún hafi náð betri tökum á saumavél- inni fari hún að búa til myndir. Helga segir nokkrar bútasaums- konur hittast reglulega og miðla kunnáttu hver til annarrar. „Ég læri heilmikið af þeim. Það sem þær læra kannski helst af mér er djörfung í litavali, því ég kem stundum auga á samsetningar sem fyrirfram hefðu ekki virst ganga upp. Ég held þessi ánægja mín af litadýrð geti annarsvegar verið meðfædd og hins vegar geti hún stafað af því hversu prests- störfin setja okkur litaskorður, maður er alltaf í svörtu og hvítu." segir Helga að lokum. ■ LAGERRÝMING! Vegna lagerrýmingar fyrir þessum nýju vörum, bjóðum við á næstu dögum eldhúsofna, helluborð, viftur og háfa á stórlækkuðu verði. ____v&RA .stórlak1^0 VER*>!

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.