Fréttablaðið - 06.05.2002, Blaðsíða 7

Fréttablaðið - 06.05.2002, Blaðsíða 7
4RA HERBERGJA BÓLSTAÐARHLÍÐ 4ra herb. 101,4 fm. íbúð á 2. h. í fjölbýlis húsi. 3 svefnherb., rúmgóð stofa með parketi á gólfi, vestur- svalir og baðherbergi með glugga. Húsið steypuviðgert og málað í fyrra. V. 11,4 m. EYJABAKKI Góð 95 fm. íbúða á fyrstu hæð í vel útlítandi fjölbýli. Þrjú svefnherb., rúmgóð stofa með suðursvölum út af, þvottaherbergi og búr í íbúð. Búið að klæða húsið að mestu leyti að utan og verður því verki lokið sumar 2002. Áhv. 6,0 m. V. 11,3 m. KAMBASEL - BÍLSKÚR Góð 93 fm 3-4ra herb. íbúð ásamt 26 fm bílskúr. Þrjú svefnherb., rúm- gott eldhús, parketlögð stofa með suðvestur svölum út af, nýlega end- urnýjað baðherb. og þvottaherb. í íbúð. Bílskúr með geymslulofti. Áhv. 5,8 m. V. 12,9 m. LÆKJASMÁRI - LYFTUHÚS Mjög falleg 4ra herb. 112 fm. endai- búð á 2. hæðí lyftuhúsi. Þrjú park- etlögð svefnherb. með skápum, flísalagt baðherb. með baðkari og sturtuklefa, fallegt eldhús og rúm- góð parketlögö stofa með suður- svölum út af og þvottaherbergi í íbúð. Áhv. 6,8 m. V. 14,9 m. ÆGISÍÐA 4ra herb. íbúð á 1. hæð á þessum vinsæla stað í Vesturbænum. íbúðin er tvær samliggjandi stofur með suðursv., tvö svefnherb., nýlegt eld- hús, nýlegt flísalagt bað. Hús ný- málað að utan. Áhv. 6,0 m. húsbréf og veðdeild. 3JA HERBERGJA FURUGRUND Falleg 3ja-4ra herb. íbúð á annari hæð í litlu fjölbýli. Tvö rúmgóð svefnherb. og 12 fm herb. í kjallara sem má leigja út. Rúmgóð stofa með parketi á gólfi og suður-svöl- um út af. Eldhús með ágætri inn- réttingu. Stutt í alla þjónustu og skóla. Áhv. 9,2 m. V. 12,3 m. HRAUNBÆR Góð 3ja herb. 90 fm íbúð á annari hæð. Tvö rúmgóð svefnherb., flísa- lagt baðherb., eldhús með snyrti- legri innréttingu og góðum tækjum og rúmgóð stofa með suðursvölum út af. Áhv. 4,2 m. V. 10,8 m. HRÍSMÓAR Vorum að fá í sölu til okkar stór- glæsilega 100 fm, nýinnréttaða 3ja (4) herb. íbúð á 2 hæöum. Allar inn- réttingar eru nýjar, m.a. ný eld- húsinnrétting úr gegnheilu ma- hogny, ný vönduð tæki, allt nýtt á baði, fallegar flísar, ný tæki og inn- réttingar, loft klædd með kirsuberja- viði, nýtt parket á gólfum og nýir fataskápar úr kirsuberjaviði. Stórar suðursvalir. Getur losnað strax. Sjá nánar myndir á vefsíðu okkar. HAG- STÆÐ LÁN! KLEPPSVEGUR Mjög falleg og vel skipulögð 3ja herb. 91 fm íbúð á 2. hæð í litlu fjöl- býli við sundin blá. Nýlegt parket er á gangi og í stofu og nýleg eld- húsinnrétting. Svefnherbergin eru mjög rúmgóð. Stofan er stór og björt með vestursvölum. Baðher- bergið er snyrtilegt, mósaík á veggj- um, góð innrétting og tæki og tengt fyrir þvottavél. 30 fm herbergi sem leigt er út en leigutekjur renna í hússjóð fyrir stigaganginn. Skoðið nánar myndir á vefnum. Áhv. 3.1 m. REYKJAVÍKURVEGUR - HF Góð 2ja til 3ja herb. íbúð í tvíbýli rétt við miðbæ Hafnarfjarðar. 1 til 2 svefnherb, rúmgott eldhús með góðu borðplássi, 1 til 2 stofur. íbúð- inni fylgir hálfur kjallari sem ekki er inn í fermetratölu eignar. V. 9,2 MIÐBÆR - LAUGAVEGUR Snotur 3ja herb. íbúð í miðbænum 61,2 fm ásamt góðum geymslum. Sérinngangur er fyrir íbúðina, stof- an er stór með nýjum flísum á gólfi, þá eru 2 herbergi og eldhús með nýlegri innréttingu. Baðherbergi er með sturtuklefa, tæki upprunaleg. Sameiginlegt þvottaherbergi er í húsinu. Áhvílandi lán ca. 5,4 m. þar af 4,2 m. húsbréf og í viðb. láni 1,2 m. Kjörið fyrir fjárfesta til að leigja út. TILBOÐ ÓSKAST! VESTURBÆR - ÚTSÝNI 3ja - 4ra herb. íbúð (106 fm gólfflöt- ur) á efstu hæð og risi ásamt stæði í bílskýli á þessum vinsæla stað á Grandanum. Mikið útsýni. Gengið er inn í húsið á 2. hæð frá bílaplani. Áhv. 5,5 m. byggsj. og húsbréf. Verð 12,9 m. NJÁLSGATA Góð 3ja herb. 67 fm. íbúð á þriðju hæð í snyrtilegu fjölbýli. Tvö park- etlögð svefnherb., parketlögð stofa með vestursvölum út af, rúmgott eldhús og baðherb. með flísum á gólfi. Nýtt þak á húsi og nýtt gler í íbúð. Áhv. 4,7 m. V. 8,9 m. 2JA HERBERGJA GRANDAVEGUR - VEST- URBÆR 2ja herb. íbúð á 1. hæð með sér- inngangi. fbúðin er m.a. stofa, svefnherb,. eldhús, bað o.fl. Áhv. 3.5 m. húsbréf. Verð 5,6 m. KRUMMAHÓLAR - BÍL- SKÝLI Góð tæplega 50 fm. íbúð á 2.h. í lyftuhúsi. Parketlögð stofa með út- sýni, rúmgott svefnherb. með norð- ursvölum út af og stæði í bíla- geymslu. Hús og sameign í góðu viðhaldi. Húsvörður. Áhv. 1,1 m. V. 7.5 m. NÝBYGGINGAR Heimilisblaðið 7 Gerir allt í rúminu nema læra Mér líður best í rúminu mínu það er ekki spurning," segir Anna Katrín Þórarinsdóttir. Hún segist eiga þar góðar stundir og það fari afskaplega vel um hana þar. „Ég geri allt í rúminu mínu nema læra því þangað fer ég til að komast hjá því að læra. Eg les stundum aðrar bókmenntir þar og Önnu Katrínu líður best í rúminu. HHHBBHBBOaHnHM horfi á sjónvarp.“ Anna Katrín segist þó ekki borða þar en henni finnst óskaplega gott að kúra. „Ég horfi á sjónvarp frammi líka en ef ég vil láta fara vel um mig geri það inni hjá mér. Friends er mitt uppáhalds sjónvarpsefni og ég reyni að missa ekki af þeim þætti." ■ ANNA KATRIN ÞÓRARINSDÓTTIR Skríóur upp i rúm til dó kom dst hjá því að loera. tísftes-'ííðsí' OLGA FÆRSETH Olgu finnst gott að fara heim í bað eftir æfingar. GLÓSALIR 7 í KÓPAVOGI Til sölu vandaðar og rúmgóðar 3ja og 4ra herbergja íbúðir með sér- þvottaherbergi, í 8 hæða álklæddu 29 íbúða fjölbýlishúsi ásamt stæði í bílgeymsluhúsi. í húsinu eru tvær lyftur. Stórar suður- og vestursvalir. Glæsilegt útsýni. Góð staðsetning og stutt í alla þjónustu. Ein, 3ja herb. á jarðhæð á kr. 12,6 m. án stæðis í bílgeymsluhúsi, óseld og fimm, 4ra herb. á 2. til 6. hæð frá kr. 15,9 m., með stæði í bíl- geymsluhúsi, óseldar. Innangengt er úr bílgeymsluhúsi. Afhending í júní 2002. Byggingaraðili er Bygg- ing ehf. LÖGBÝLI MÚLAKOT - LUNDA- REYKJADAL Til sölu er jörðin Múlakot í Lunda- reykjadal. Jörðin er í um klukku- stundar akstursleið frá Reykjavík. Landið er 330 hektarar og eru 43 hektarar af ræktuðum túnum. Grímsá sker landið til suðurs (bakkalengd 3 km.) og eru af henni góðar veiðitekjur. (búðarhús er byggt 1997 og er um 150 fm. Úti- hús eru rúmlega 1.000 fm og eru þau almennt í góðu ástandi. Jörð- inni fylgir 2,27% hlutur í jörðinni Gullberastaðir. Þarna eru miklir möguleikar fyrir rétta aðila. Áhvíl- andi hagstæð lán. Allar nánari upp- lýsingar á skrifstofu Unir sér vel í baðkarinu að má segja að baðkarið sé bæði uppáhaldshluturinn og uppáhaldsstaðurinn minn á heim- ilinu,“ segir Olga Færseth knatt- spyrnukona úr KR. Olga, sem starfar hjá Dreifingarmiðstöð- inni, segist alltaf velja baðið frek- Olga Færseth knatt- spyrnukona velur baðkarið einatt fram- yfir sturtuna. ar en sturtuna sem er þó til staðar líka. En varla gefst mikill tími til að slaka á í baði áður en haldið er til vinnu á morgnana; fara ekki flestir í sturtu þá? „Nei, ég fer aldrei í bað á morgnana því ég er alltaf á æfingum á kvöldin. Síðan fer ég heim í bað eftir æfingu, því mér finnst það miklu meira af- slappandi að geta bara legið í ró- legheitunum og lokað augunum. Baðherbergið mitt er líka svo „kósý“, úr baðkarinu blasir við glerveggur sem hálf-sést í gegn- um. Þegar dimmt er úti er svo notalegt að kveikja þar á kertum,“ segir Olga. Blaðamaður undrar sig á að stelpurnar fari ekki saman í sturtu eftir æfingar. Er „sturtu- stemningin" í búningsherbergjun- um að líða undir lok? „Já, kannski að einhverju leyti. Nú orðið er það bara mjög einstaklingsbundið hvort fólk fer í sturtu á staðnum eða fer heim til að þvo sér,“ segir Olga að lokum. ■ Euronics opnar verslun í Kringlunni: 60 daga skilaréttur á vörum Síðastliðinn fimmtudag opnaði Euronics á íslandi nýja verslun í Kringlunni. Euronics sem er stærsta verslunarkeðja með raf- tæki í Evrópu rekur yfir 9000 verslanir í 18 löndum og sameig- inleg innkaup upp á 870.000.000.000 kr. Að sögn for- ráðamanna verslunarinnar er þetta ein ástæða þess að hægt er að bjóða góðar vörur á lágu verði, í þægilegu umhverfi, ásamt því að tefla fram starfsfólki sem hlotið hefur þjálfun og fræðslu sem nauðsynleg er til að sinna við- skiptavinum á sem bestan hátt. „Með sameiginlegum magninn- kaupum rúmlega 9000 verslana náum við að hjálpa þér að lækka rekstrarkostnað heimilisins án þess að kvika frá gæðum,“ segir í fréttatilkynningu frá versluninni. Euronics hafa rekið verslun í Smáralind frá upphafi. í verslun- inni í Kringlunni verður áhersla lögð á sölu heimilisraftækja og smátækja, auk mynd- og hljóm- tækja. Áherslan verður einnig á að bjóða bestu verðin, þægilegt umhverfi og fagkunnáttu starfs- fólks, eins og í öðrum Euronics verslunum. Ein af þeim nýjungum sem Euronicsverslanirnar bjóða upp á er 60 daga skilaréttur. „Við- skiptavinurinn getur því alltaf verið viss um að varan sem hann í KRINGLUNNI Euronics hefur verið með verslun í Smáralind en opnar nú einnig i Kringlunni. kaupir standist gæðakröfur," seg- ir í fréttatilkynningunni. Euronics verslunin í Kringl- unni er staðsett þar sem Heimskringlan var áður. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.