Fréttablaðið - 29.07.2002, Side 4
FRÉTTABLAÐIÐ
29. júlí 2002 IWÁNUPAGUR
Kanarísalan
er hafin
www.urvalutsyn.is
I ágmúta 4 %n% >tu<m * lltífawáig; lítið 4lntt
KetíiVll. 4.‘Ö r.niiú * Akuipytl: -lr.li ílf.Oii * ir.f.f.
(i(j Iij4 (.niln.ltmfiittuJni om 10(11} aiil
Páfinn í Kanada:
Ungmenni fjölmenna
TORONTO. ap. Kaþólsk ungmenni
létu ekki úrhelli stöðva sig í því að
sofa utandyra aðfaranótt sunnu-
dags. Þau höfðu fjölmennt í hund-
rað þúsunda tali til Toronto í
Kanada þar sem vikuhátíðarhöld-
um lauk í gær með messu páfa í
risastórri kirkju utandyra. Hinn
82 ára gamli páfi boðaði ung-
mennunum að helga sig Jesú
Kristi. í guðsþjónustu á laugar-
dagskvöld sagði páfinn píla-
grímunum, sem komnir voru víða
að, að byggja upp menningu frels-
is, friðar og ástar. Yfir hálf millj-
ón manns hlustaði á orð hans og
fagnaði honum gífurlegar.
Tveir gerólíkir viðburðir hófu
nýtt árþúsund sagði páfi. Annars
vegar för pílagríma til Rómar, í
tilefni árþúsundsins. Hins vegar
árás hryðjuverkamanna á New
York. Spurningin væri á hvaða
stoð ætti að byggja nýtt samfélag.
Vitaskuld á Kristi svaraði hann
sjálfur við gífurlegan fögnuð.
Páfinn heldur til Guatemala
og þá til Mexíkó. Þetta er 97. ferð
hans á þeim 25 árum sem hann
hefur verið páfi. Aðstoðarmenn
hans höfðu haft af því áhyggjur
að ferðin væri of erfið fyrir
hann, enda páfinn ekki heilsu-
hraustur. En öllum að óvörum
hefur hann virkað hressilegri en
oft áður. ■
LASBURÐA PÁFI
Jóhannes Páll páfi II heilsaði pílagrímum
áður en hann hóf messuna í Toronto í
Kanada sem var lokahnykkur hátíðarhalda
í tilefni alþjóðlegs ungmennadags.
|LÖGREGLUFRÉTTIRj
Mikill erill var hjá lögreglunni
í Reykjavík í fyrrinótt að
sögn talsmanns lögreglunnar.
Hópslagsmál brutust út á Ingólfs-
torgi í kjölfar handalögmála
tveggja kvenna. Urðu afskipti
aðvífandi karlmanna til þess að
slagsmálin brutust út. Þrír voru
fluttir á lögreglustöðina en var
sleppt að yfirheyrslum loknum.
Enginn slasaðist í slagsmálunum
en nokkrir voru ansi hruflaðir.
Bílvelta varð um tíuleytið á
laugardagskvöld á Súluvegi
ofan við Akureyri. Þrjú ungmenni
voru í bílnum og voru þau flutt
með sjúkrabifreið á slysadeild
Fjórðungssjúkrahússins á Akur-
eyri. Ungmennin voru öll með
beltin spennt sem kom í veg fyrir
alvarlegri áverka.
Giftusamleg björgun
námamanna
Níu mönnum bjargað úr námu í Pennsylvaníu. Voru innilokaðir í 77 klukkustundir.
I ótrúlega góðu ásigkomulagi.
SOMERSET. PENNSYLVANIU. AP. NÍU
bandarískum námamönnum var
bjargað heilum á húfi aðfaranótt
sunnudags. Þeir höfðu verið fastir
yfir 70 metra neðanjarðar í kola-
námu, Quecreek-námunni, skammt
frá Pittsburg í Pennsylvaníu, síðan
aðfaranótt fimmtudags. Þá vildi
svo illa til að þeir boruðu í gamla
nærliggjandi námu sem var full af
vatni og fylltist námustokkurinn
sem þeir voru að vinna í af vatni og
þeir lokuðust inni.
Mikil fagnaðarlæti brutust út á
meðal fjölskyldna þeirra og björg-
unarsveitarmanna þegar mennirn-
ir voru dregnir hver á fætur öðrum
upp úr námunni. Þeir voru í furðu
góðu ásigkomulagi að sögn lækna,
en voru þó allir fluttir á sjúkrahús
þar sem þeir áttu að dveljast í sól-
arhring til að jafna sig. Mennirnir,
sem eru á aldrinum 30-55, voru í
metradjúpu vatni alla dagana. „Ef
einum varð kalt þá hópuðust hinir
átta í kringum hann til að hlýja
honum,“ sagði Russell Dumire,
læknir í bænum Johnstown þar
sem nokkrir mannanna dvelja.
Björgunaraðgerðir tóku lengri
tíma en áætlað hafði verið og voru
aðstandendur orðnir mjög
áhyggjufullir. Loks tókst að bora
göng niður til mannanna aðfaranótt
sunnudags og var símalínu þá
varpað niður í klefann þar sem þeir
voru fastir. Þá fengust þær fregnir
að allir væru heilir heilsu. „Hvers
vegna voru þið svona lengi að
þessu?,“ sagði sá sem talaði við
björgunarsveitina. Aðstandendur
sem beðið höfðu milli vonar og ótta
voru skiljanlega fegnir og björgun-
arsveitarmenn voru skýjum ofar.
„Þetta eru mestu harðjaxlar í
heimi,“ sagði John Weir, forstjóri
námufyrirtækisins sem mennirnir
SÁ SÍÐASTI KOMINN UPP
Níundi námamaðurinn kominn upp göng-
in sem boruð voru til að bjarga mönnun-
um sem voru innilokaðir ( þrjá sólarhringa.
ar af vatni yfir í námastokkinn sem
mennirnir voru að vinna í og menn-
irnir lokuðust inni. Björgunarað-
gerðir töfðust um 20 klukkustundir
vegna þess að bíða þurfti eftir
borútbúnaði. Þær töfðust enn á
föstudag vegna þess að borinn bil-
aði eftir að hafa lent á björgum. ■
ÞEIR ERU Á LÍFI
Ríkisstjóri Pennsylvaníu, Mark Schweiker,
fagnaði þegar hann flutti þau gleðitíðindi
að mennirnir væru allir á llfi.
vinna fyrir, í samtali við AP-frétta-
stofuna. Samkvæmt korti sem
mennirnir notuðu við námuvinnsl-
una þá var gamla náman lengra í
„HVERS VEGNA VORU ÞIÐ
SVONA LENGI AÐ ÞESSU?"
Björgunarsveitarmaður nær sambandi við
námamennina eftir 3gja daga óvissu.
burtu en þeir héldu. Þeir boruðu
óvart í gegnum vegg sem skildi
námurnar tvær að. Hann hrundi og
við það flæddu um 200 milljón lítr-
Kanaríeyjar:
Bæringur
dæmdur
p6msmál Bæringur Guðvarðsson
hefur verið dæmdur í eins árs skil-
orðsbundið fangelsi af dómstóli á
Kanaricyjum cn Bæringur var þar
lengi í haldi eftir að sambýliskona
hans féll fram af hótel-svölum
skömmu eftir að þau komu þangað
í vetrarfrí í janúarmánuði síðast-
liðnum. Bæringur kemur þó ekki
til með að afplána fangavist því á
Spáni er það til siðs að þeir sem
hljóta fangelsisdóma skemur en í
tvö ár eru ekki látnir sitja inni séu
þeir með hreint sakavottorð og
óflekkað mannorð. Undir þá skil-
greiningu fellur Bæringur en hann
þarf engu að síður að fara aftur til
Kanaríeyja í október til að hlýöa á
og móttaka dóminn. ■
BÆRINGUR GUÐVARÐSSON
Ekki í fangelsi.
Bálför varaforseta
Indlands:
Þjóðarsorg
í landinu
nýiu pelhi, ap. Flaggað var í hálfa
- + -n-F J^A
olUii£, uiu uiii niiiiunu x u-l uu^. ru
var bálför varaforseta landsins,
Krishan Kant. Hann lést af völd-
um hjartaáfalls á laugardags-
morgun. Hann var 75 ára gamall.
Indverskir stjórnmálamenn, fjöl-
skyldan og vinir vottuðu Kant
virðingu sína. Það voru liðsmenn
hersins sem báru líkið á bálköst-
inn að siði hindúa. Kant tók við
embætti varaforseta árið 1997.
Hann var einnig forseti efri deild-
ar indverska þingsins. Forsætis-
ráðherra Indlands ,Atal Bihari
Vajpayee, hefur boðað þriggja
daga sorg á Indlandi í kjölfarið. ■
FYLGST MEÐ BÁLFÖR
Eitt af barnabörnum Krishan Kant, sem var
varaforseti Indlands, fylgist með bálförinni
í gærdag.