Fréttablaðið - 29.07.2002, Side 16
FRÉTTABLAÐIÐ
29. júlí 2002 MÁNUDAGUR
Listasafn Akureyrar:
Nútímalist frá
arabaheiminum
HVAÐA BÓK ERTU AÐ LESA?
Ég er að iesa norskan reyfara sem heitir Sá
er úlfinn óttast eftir Karin Fossum. Mjög
spennandi.
Katrín Guðmundsdóttir, verkefnisstjóri
myndlist í Listasafni Akureyrar
hefur verið opnuð sýningin Milli
goðsagnar og veruleika - nútíma-
list frá arabaheiminum". Sýning-
in sem hér kemur íslenskum al-
menningi fyrir sjónir er frá Kon-
unglega fagurlistasafni Jórdaníu
£ Amman er ætlað að varpa nýju
ljósi á heim araba sem verið hef-
ur svo mikið £ kastljósi vest-
rænna fjölmiðla að undanförnu.
Á sýningunni er reynt að draga
upp mynd af stöðu nútímalistar £
þessum heimshluta með úrvali
verka eftir bæði karla og konur
frá sextán arabalöndum.
Sýningunni i Listasafninu á
Akureyri lýkur 8. september.
Safnið er opið alla daga nema
mánudaga milli kl. 12 og 17. Að-
gangseyrir kr. 350. Fritt fyrir
börn og eldri borgara og frítt fyr-
ir alla á fimmtudögum. ■
FRAMANDI HEIMUR
I listasafni Akureyrar gefst fólki kostur á að
kynnast myndlist frá arabaheiminum.
Bretland:
Ríkisstjórnin
styrkir einka-
rekin söfn
menning Nýlega samþykkti rík-
isstjórnin £ Bretlandi að veita
bestu einkareknu söfnunum i
landinu styrk upp á 5,2 milljónir
punda. 49 söfn, vítt og breitt um
landið, munu njóta góðs af þessari
fjárveitingu. Menningarmálaráð-
herra Breta, Tessa Jowell, til-
kynnti þetta síðastliðinn miðviku-
dag og sagði fjárveitinguna munu
verða listalífi í landinu mikil lyfti-
stöng. Peningarnir renna til verk-
efna sem eru fyrirhuguð á söfnun-
um til ársins 2004. ■
METSÖLUUSTI VIKURITA
(| HELLO
V Bretland
NORSK UKEBLAD
V Noregur
ÖOK!
Bretland
THE SUNDAY TIMES
Bretland
NOW
Bretland
0 T|ME
Alþióðlegt
ONEWSWEEK
Alþióðlegt
DER SPIEGEL
Þýskaland
HJEMMET
Noregur
©
THE ECONOMIST
Albióðlegt
Tíu vinsælustu tímaritin:
Engin
dönsk blöð
á listanum
tímarit Á metsölulista Pennans
yfir vikurit kemur á óvart að dön-
sku blöðin eru þar
ekki meðal tíu
efstu. Norsk uke-
blad og norska
Hjemmet eru þó á
listanum og bend-
ir til að minni
ásókn sé í dönsku
blöðin, sem í eina
tíð voru lesin á
nánast hverju
heimili. Blöð fyrir
ungu kynslóðina,
Hello, OK! og
Now njóta alltaf
vinsælda og al-
þjóðleg frétta-
tengd tímarit eins
og The Sunday Times, Newsweek,
Times og The Economist höfða til
margra. Þýska tímaritið Der Spi-
egel er i áttunda sæti listans. ■
MARGRÉT
ÞÓRHILDUR
DANADROTTN-
ING
íslendingar eru
greinilega ekki
eins spenntir fyrir
dönsku slúðri og
áður.
MÁNUDAGURINN
29. JULI
SÝNINGAR_____________________________
Ljósmyndasýningin World Press Photo
2002 stendur nú í Kringlunni. World
Press Photo er þekktasta samkeppni í
heiminum á sviði fréttaljósmyndunar.
Sýningin stendur tíl 6. ágúst
MYNDLIST_____________________________
í Hafnarborg stendur sýning á verkum
austurrísku listakonunnar Maria Elisa-
beth Prigge. Sýningin er opin alla daga
nema þriðjudaga frá kl. 11 til 17 og
henni lýkur 12. ágúst.
I Sverrissal og Apótekinu í Hafnar-
borg. stendur sýning hópa úr félaginu
islensk grafík. Hópurinn hefur einnig
skipulagt sýningu í Grænlandi 2001 og
næst í Færeyjum árið 2003.
Tinna Kvaran, Magnús Helgason, Þur-
íður Helga Kristjánsdóttir, Ditta (Arn-
þrúður Dagsdóttir og Steinþór Carl
Karlsson sýna f Gallerí Skugga, Hverfis-
götu 39. Sýningin stendur til 18. ágúst
og er opin alla daga nema mánudaga
kl. 13-17. Aðgangur er ókeypis.
í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur
stendur yfir sýning á textílverkum Heidi
Kristiansen. Sýningin er opin til 5. ágúst
á opnunartíma Ráðhússins.
Ríkharð Valtingojer hefur opnað sýn-
ingu á grafíkverkum í Gallerí Klaustri á
Skriðuklaustri. Verkin á sýningunni eru
unnin með aðferð sem Ríkharður hefur
verið að þróa að undanförnu og kallar
„ferrotinta". Sýningin stendur til 2. ágúst.
Gallerí Klaustur er opið frá kl. 11-17 alla
daga vikunnar.
Díana Hrafnsdóttir, myndlistarmaður,
heldur stuttmyndasýninguna Sýnir í
Gallerí Reykjavík. Sýningin stendur til
31. júlí
I Café Kultura, Alþjóðahúsínu, Hverfis-
götu, stendur yfir sýning á vegum spæn-
sku listakonunnar Marijo Murillo.
( Grafarvogskirkju stendur sýning á
vatnslitamyndum eftir Björgu Þorsteins-
dóttur. Sýningin ber heitið Spunnið úr
trúartáknum. Sýningin er opin daglega á
opnunartíma kirkjunnar og stendur til
18. ágúst.
Listin meðal fólksins er yfirskrift sýningar
Listasafns Reykjavíkur í Asmundarsafni.
Á sýningunni eru verk Ásmundar Sveins-
sonar myndhöggvara skoðuð út frá þeir-
ri hugsjón hans að myndlistin ætti að
vera hluti af daglegu umhverfi fólks en
ekki lokuð inni á söfnum. Sýningin
stendur til ársloka.
Skemmtileg innsýn
í íslenska menningu
Ferðaleikhúsið Light Nights hefur starfað í áratugi.
I sýningu þess í Hlaðvarpanum eru leikin atriði úr íslenskum
þjóðsögum, víkingum gerð skil og fluttar íslenskar rímur.
leikhús í Kaffileikhúsinu í Hlað-
varpanum standa yfir sýningar
Ferðaleikhússins á Light Nights.
Ferðaleikhúsið er atvinnuleik-
hús sem var stofnað í Reykjavík
árið 1965. íslenskir og erlendir
fræðimenn, skáld, tónskáld, ljós-
myndarar, söng- og tónlistarfólk
svo og leikarar hafa í gegnum
árin lagt sýningunum lið. Allt
efni sýningarinnar er íslenskt en
flutt á ensku að undanskildum
nokkrum þjóðlagatextum og
rímum. Tilgang-
ur sýningarinnar
er að gefa innsýn
í íslenska menn-
ingu og forna
arfleifð þjóðar-
innar á skemmti-
legan og fróðleg-
an hátt. í sýning-
unni eru leikin
atriði úr þekkt-
um þjóðsögum.
Má þar nefna
Djáknann á
Myrká, Sæmund
fróða og Móður
mína í kví kví. Þá
eru í sýningunni
atriði tileinkuð
víkingunum og
hluti af
Ragnarökum úr Völuspá er svið-
settur. Milli atriða eru sýndar
skyggnur sem eru samtengdar
leikhljóðum, tónlist og tali.
Margvíslegar uppfærslur
hafa verið sýndar undir samheit-
inu Light Nights síðastliðin 30
ár. „Við höfum verið mikið á far-
KRISTÍN G. MAGNÚS
Hér er Kristín í hlutverki sínu i
Ragnarökum.
aldsfæti," seg-
ir Kristín G.
Magnús, leik-
kona, „farið
vítt og breitt
um Bandarík-
in, og allstaðar
þar sem við
höfum komið
höfum við ver-
ið frumkvöðl-
ar að því að
flytja íslenskt
efni á ensku. Við fórum tvisvar
með leikrit eftir íslenska höf-
unda á Edinborgarhátíð. í fyrra
skiptið vorum við fyrsti íslenski
leikhópurinn sem tók þátt í há-
tíðinni. Við höfum einnig sýnt í
West End, barnaleikritið
Storyland, og vorum fyrst ís-
ÚR HLAÐVARPANUM
Hlaðvarpinn hýsir Ferðaleikhúsið Light
Nights sem sýnir íslenskt efni á ensku
fyrir ferðamenn.
lendinga til að sýna þar.“
í þessari uppfærslu eru leik-
ararnir tveir, Kristín G. Magnús
og Ólafur Þór Jóhannesson.
Einnig birtist ónafngreindur
draugur í Djáknanum á Myrká. í
tengslum við sýninguna er boðið
upp á Light Nights-kvöldverð
fyrir þá sem þess óska. Sýningar
eru föstudaga til mánudaga og
hefjast klukkan 20.30.
Áðgöngumiðar eru seldir í
miðaafgreiðslu leikhússins
klukkutíma fyrir sýníngu og í
Upplýsingamiðstöð ferðamála,
Bankastræti 2.
edda@frettabladid.is
I í GÖMLU JAPIS BÚÐINNI, Brautarholti 2 SOM fE I
Ný sending af geisladiskum!
Ný sending af DVD 356 titlar '
POPP-ROCK og HEIMSTÓNLIST - fjölbreytt flóra
Virðum rétt
verslunarmanna:
L0KAÐ UM
VERSLUNARMANNAHELGINA!
TÖLVULEIKIR í úrvali
SOM T
SlSSoOSofl-
^ðfrá
OPID ALLA DAGA KL