Skuld - 01.07.1879, Blaðsíða 4

Skuld - 01.07.1879, Blaðsíða 4
III. ár, nr. 19.J S K U LI). x/7 1879. 232 í næsta blaði skulum vér skýra frá inum helztu gjörðum fundarins í málum pessum. Siglingin eykst á Eskifjörð nú. 3 ný síldarveiðaskip frá Noregi (Hauge- sund) cru komin hér síðan um daginn, útgjörð af öðru félagi en infyrri; pað eru alt stórar „galeas“-ir; svo núliggja hér 6 norsk skip, sem ætla að stunda síldarveiði í sumar, og munu háðir ætla að hyggja hér hús, ef peim lízt svo á sig í sumar ogveiðin heppnast. — Saltskip frá Gránufélagikom hér inn á föstudagskvöldið með ca. 400 tn. salts, og á að kosta 6 Kr. tn. móti borgun út í hönd, og er pað 1 til 172 krónu dýrara, en saltverð hér; en saltið kvað aftr vera nokkuð stærra en ið venjulega Liverpool-salt („Com- mon-salt“), en pó er pað enskt salt. Diana kom hér að morgni ákveð- ins dags með urmul farpegja, alping- ismenn að norðan og vestan (séra Stefán úr ísafjarðarsýslu og Ásgeir úr Húnavatnssýslu voru einnig með). Með henni voru og auk annara inir norðlenzku meðlimir sálmahókarnefnd- arinnar (séra Björn í Laufási og séra Páll í Viðvík); einnig fröken Sigríðr Jónassen á skemtiferð kringum land, séra Stefán á Skútustöðum í kynnis- ferð austr hingað. Héðan tveir far- pegjar með henni til lieykjavikr. Hr. Jón Pétrsson, inn nýkosni pingmaðr vor, ætlaði og nú með „Dí- önu“ suðr héðan. En á leiðinni varð hann svo yfirkomin af veikindum (hann hafði altaf lasinn verið frá pví á kjör- fundi), að hann komst eigi nema að Berufirði; varð hann eftir dagsdvöl par að senda orð hingað og hréf um, að hann treystist eigi til ferðar, og verðrpví auttí ár sæti annars ping- manns Suðr-Múlasýslu. ____ BÓKMEÍÍTIK. „Om kelrim i forste og tredie linie af' regelmæssigt jlróttkvætt4 og thrynlienda‘”. Af Konr. G-isla- son. (Boðsrit Kmhafnar háskóla 1877). |>að er kunnugt af Eddu, að pað er aðalregla í dróttkvæðum hætti og hryn- hendu, að aðalhendingar sé í 2., 4., 6. og 8. vísuorði, en skothendingar í 1., 3., 5. og 7. vo. — í pessu riti leit- ast höf. við að sýna og sanna, að aðal- hendingar í 2. og 4. vo. (o. s. frv.) sé regla, sem að réttu lagi muni eigi eiga sér undantekningar; en að hin reglan um skothendingar í 1. og 3. vo. (o. s. frv.) sé als eigi svo föst, heldr háð allmörgum undantekningum, pann- ig, að aðalhendingar megi par hafa í stað skothendinga. Alt ritið lýsir peim lærdómi og glöggsæi, sem höf. er svo frægr fyrir. „Sagan af néðni og Illöðvi44 er ómerkileg riddarasaga, illa útgefin eftirhrak- legu handriti. Er ekki þar með nóg sagt um 'hana? Réttritun fyrirfinst engin í þeirrihók, eða að minsta kosti skiptir um reglur hennar stundum í sömu línunní: ,,-ur“ er sumstaðar liaft fyrir í niðrlagi orðstofna og orða; 233 en aftr ,,-r“ fyrir ,,-ur“ á öðrum stöðum (t. d. „maður“ fyrir „maðr“; en „komr“ fyrir „komur“ o. s. frv.) Af þess kyns dóti höfum vér tínt að gamni voru dæmin af fyrstu 4 bls. textans, og eru þau 36!! — Hún er að stærð 22 bls. (að titilblaði meðtöldu) og kostar 25 Au., meira en eyri síðan, og er það nóg fyrir svo gott! Dómr landsyfirréttarins í prentfrelsis-máli (tilsk. 9. maí 1855, § 11.) Fyrir liðugu ári höfðaði Eyjólfr bóndi porsteinsson á Stuðlum mál á hönd ritstjóra „Skuldar11, til að fá hann skyldaðan til að taka svar-grein, er E. p. kallaði leiðr étting, inn í „Skuld“. Aukaréttr Suðrmúlasýslu dæmdi ritstj. til að taka greinina upp í 1. eða 2. nr. blaðsins, er út kæmi, að viðlagðri 1. Kr. sekt um hvern dag, og að greiða 30 Kr. sekt og 20 Kr. máls- kostnað. Yfirdómrinn (24. febr. þ. á.) kemst með- al annars svo að orði: „Tilsk. 9. maí 1855, 11. gr., sem veitir þeim, er æskir að leiðrétta það, sem sagt er um hann í riti, rótt til að heimta, að leiðrétting á því, sem ranghermt er, verði tekin upp íritið, er þannig orðuð, að enginn vafi getr verið á, að réttr þessi ekki nær lengra, en til þess að leiðrétta missögnina, og sé .lengra farið, þá hefir hann mist hann“.............Og „verðr yfirdómr- inn að álíta, að grein þessi só ekki þannig rituð, að stefndi [E. p.| eigi heimting á, að áfrýjandi [J. 0.] taki hana í blað sitt“. . . . „pví dæmist rétt að vera: Afrýjandi máls þessa, ritstjóri Jón Ólafs- son, á að vera sýkn af kærum og kröfum ins stefnda Eyjólfs porsteinssonar í þessu máli. Málskostnaðr fyrir báðuin réttum falli niðr“. Dómr þessi, sem sker úr skilningi nefndr- ar lagagreinar, hefir mikla þýðingu fyrir ís- lenzka blaðamenn. Eftir að vér höfum yfirfarið tíð- indi frá seinasta alpingi, finnum vér oss knúða til opinberlega að votta vorum heiðraða pingmanni séra Arn- ljóti Ólafssyni, vort hreinskilið og inni- legt pakklæti fyrir hans skörulegu og ráðföstu frammistöðu fyrir málum vor- um á téðu pingi, sem augljóslega her vott um pá hugarstefnu hans, að létta, en eigi pyngja peirri hyrði sem á oss hefir legið, og liggur enn, hvað álögurn- ar snertir, og sem oss veitir erfitt undir að risa; samróma oss í pessu efni munu flestir, ef ei allir stéttar- hræðr vorir í kjördæminu, og munu við tækifæri vilja taka undir petta með hljómsterkum röddum. Yér biðjum pví inn alvalda að gefa téðum ping- manni vorum líf og krafta til að tala máli voru framvegis. Nokkrlr alþýðuincnn í Norðr-Múlasýslu. Auglýsingar. — Auglýsing a-verð (hvert letr sem erj: heill dálkr kostar 5 Kr.; hver 1 þuml. af lengd dálks: 50 Au. Minst auglýsing: 25Au. Á s k o r u n. Hérmeð skora ég á alla, sem eftirleiðis kynnu að leita mín fyrir sjúklinga, er hafa viöhaft meðul frá einhverjum smáskamtalækni hér eystra, að fá mér í hendr skriflegt vottorð frá emáskamtalækni þeim, er hlut á að máli, um hvað haun hafi álitið sjúkdómiun, livaða 234 meðul hann hafi viðhaft og í hvaða þynningu, áðr en þeir fara.að viðhafa meöul frá mér, og um leið færa mér nákvæma lýsingu yfir veikindin frá því fyrsta þau byrjuðu. Eskifirði, 26. jún. ’79. E. Zeutlien. 1,00] (héraðslæknir) NAUÐSY NLEtt II U G y E Ií J A eftir Séra Jón Bjarnason. (Prent. i prentsm. prentfél. Nýja-íslands). Kostar heft 50 Au. Fæst á Austrlandi hjá: Eaktor P. Gudjohnsen á Yopnafirði, séra Lárusi Haldórssyni á Val- pjófsstað, séra Bergi Jónssyni í Yallanesi, hr. Sveini Bjarnasyni á Stafafelli og hjá ritstjóra „Skuldar“. „Lýsiug Jþingeyrakyrkju og ræður við vígslu hennar“ (eftir séra Eirík prófast Briem og Ásgeir alpingism. Einarsson). Með stein- prentuðum uppdráttum. ltvík 1878. Kostar 35 Au. Fæst á Eskífirði hjá ritstjóra „Skuldar44. Eftir 12. júlí fæst hjá mér: „MÍNIR VINIR“. Dálítil skemtisaga eftir |>orlák Ó. Johnson, verzlunarm. Yerð 75 Au. Ititstj. „Skuldar44. „I Ð II N N44 sögurit, útgefið af séra Sigurði sál. Gunnarssyni, I. árg. Niðr- sett verð 50 Au. Eæst áEskif.hjá Zeuthen lækni og hjá ritstj. „Skuldar11. Eftirleiðis sel ég allan þann greiöa, sem ég get í té látið, án þess ég skuldbindi mig til að hafa til reiðu alt það, er menn kynnu að þarfnast. Búðaroyri við Seyðisfjörð, 9.júní 1879. 0,50] Stefán Steíánsson. Hér með gjörum við undirskrifaðir vitan- legt að eftir inn 30. júlí næstkomandi seljum við öllu ferðafólki greiða, þó án þess að skuld- binda okkr að útiláta þaö, sem um kann að verða beðið. Hámundarstööum í Vopnafirði 22. júní 1879. Guðvaldr Jónsson. Einar Jónsson. 0,75] Eg undirskrifaðr vil kaupa kú, snemm- bæra, sem kann að éta rask og annað sjófang, og bið þá, er selja vilja, að semja við mig. Vestdalseyri við Seyðisfjörð, 25.júní 1879.' Bjarni Siggeirsson. I»cir, scm cigi voru búnir að horga pctta (III.) ár„Skuldar44 í gær, vcrða að borga pað ineð fullum fjórum krónum. fetta hið ég alia, hæði útsðlumcnn og cinstaka kaupendr, að atliuga. Útgofandin n. Eigandi og ritstjóri: JÓll ÓlafsSOIl. Prentsmiöja „Skuldar11. Th. OlftniBnl '.en-

x

Skuld

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skuld
https://timarit.is/publication/109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.