Skuld - 10.04.1880, Blaðsíða 4
IV., 105.]
S K U L D.
['% 1880.
58
59
60
í g 1 a n d.
Eskifirði, 9. apríl.
— Lengra að fréttist ekkert. Veðrið
hefir nú snúizt til einstakrar blíðu. I
gær gekk hann til vestanáttar síðari
part dags með miklum hita í vindin-
um, pó sóllaust væri. Kl. hálf-níu í
gærkvöld var snarpr vestanvindr með
nærri 10 gr. hita. í morgun kl. 7V2
var 11 gr. hiti í forsælunni og síðan,
er hann hvesti meir og snéri sér til
suðrs, steig hitinn til 13 gr. R., og
hefir pó eigi sól séð.
— Afli virðist nýgenginn nokkur,
par sem menn hafa fengið 150 til 200
á dag af nýgenginni ýsu (ogþorski?).
— Von er daglega á saltskipi stóru
(liðugar 100 lestir) til Tuliniusar verzl-
unar með 2000 tn. af salti frá Eng-
landi. Eigi vitum vér enn um verð
á því annað en það, að hann kveðst
skuli láta tunnuna fyrir 4 Kr. ef hún
sé tekin við skipshlið meðan skipið
liggr hér við hryggjuna.
— „S o p h i e“ á að vera ferðbúin
héðan til Englands á Mánudagsmorg-
un. Með henni fara frönsku strand-
mennirnir.
— Verðlag hjá Tulinius kaup-
manni hefir síðan skipið kom á engri
útl. vöru hækkað, að því er vérvitum
bezt, á sumu stendr verð við sama,
sem það var í vetr, á fiestum hlutum
hefir það lækkað og það að mun.
Sumt hvað er sagt með lægra verði
núen það hefir verið þar í mörg ár.
|>að er annars undarlegt, að kaup-
menn hér austanlands skuli allir eins
og forðast að láta blað vort fá vitn-
eskju um verðlag sitt. Annarsstaðar
leitast kaupmenn við að gjöra verðlag
vöru sinnar heyrum kunnugt og verja
talsverðu fé til að auglýsa það; en
hér pukrar hver sem betr getr með
verð sitt í laumi. Allir verzlunar-
stjórar á Seyðisfirði buðust eitt sinn
opinberl. til að láta Skuld fá að vita
verðlag hjá sér ef hún óskaði þess.
Vér óskuðum þess, þeir lofuðu oss
því — en hafa eigi efnt það til þessa
dags. Hér á Eskifirði er inu sama
að hoilsa—annar kaupmaðrin hér skoð-
ar það sem persónulega móðgun af oss,
ef vér skýrum lesendum vorum frá verð-
lagi hér á almennustu vörutegundum,
sem er þó mál, er að minsta kosti %
allra kaupenda vorra varðar að vita.
Vér viljum nota þetta tæki-
færi til að skora á alla kaupmenn og
verzlunarstjóra hér eystra, að láta oss
ávalt fá að vita verðlag og verðbreyt-
ingar á helztu vörutegundum hjá sér.
Oss getr eigi annað skilizt, en að það
sé sjálfra þeirra hagr, að slíks sé á-
valt getið í blöðum og það helzt sem
fyrst í hvert sinn.
Borgarfirði austr, 24. rnarz 1880.
Herra ritstjóri! Síðan ég skrifaði
yðr seinast um tíðarfarið hér í sveit,
hafa sömu blíðurnar haldizt, en fyrri
partr Góu var óstiltr og stormasamr.
Menn hafa haft allgóða heilsu í
vetr og fáir dáið. Stúlka sálaðist á
Góunni, þá hún fæddi tvíbura, Guð-
rún að nafni, góð stúlka og efnileg,
og gamall maðr dó í vetr af krabba-
meini, er hann fékk í varirnar og
munninn. Fénaðr hefir allgóða heilsu
víðast hér í sveit, og gengr nú að
mestu sjálfala. Á fundi, er flestir
sveitarbændr áttu með sér á Góunni,
tóku þeir sig saman um að kaupa
ekkert vín eftirleiðis nema til húsmeð-
ala, nema öl og brennivín, og álitu þessi
samtök miklu frjálslegri en að ganga
í bindindi, og ímynda sér, að þeim,
sem verðr að kaupa vín til að drekka
sjálfr eða veita öðrum, þrátt fyrir frjáls-
legt loforð sitt, muni máske geta orð-
ið það á, þótt þeir séu í bindindi; að
minsta kosti kom mönnum samanum,
að reyna þessa frjálslegu aðferð fyrst.
]pað var líka talað um, að þörf væri
á, að minkuð væri kaup á kaffi og
annari óhófs og munaðarvöru. J>á var
enn fremr rætt um, að foreldrar og
húsbændr hver á sínu heimili létu sér
umhugað um, að fá ungmenni til að
ganga í tóbaksbindindi, áðr en þeir
vendust á nautn þess óþarfa. J>örf
væri sem víðast á frjálslegum samtök-
um í þessum og þvilíkum efnum, og
ættu þau málefni sem oftast að sjást
í blöðum vorum. A sama fundi var
rætt um verzlun sveitarmanna og
minnzt á jarðabætr.
St. B.
II EIMSKRINGL A.
(Smágreinir eftir útl. blöðum og tímaritum).
— Cfould forstjóri stjörnuturnsins í
Cordova (í argentíska þjóðveldinu) fann
ífebr. þ. á. nýja halastjörnu, sem
gengr yfir suðr-himinhvolfið og stefnir
í átt til sólarinnar.
— Ný járnbrautafyrirtæki í Amc-
ríku. Eins og vér gátum um í 101.
nr. „Skuldar“, er nú úti verzlunar og
fyrirtækja deyfðartímabilið, sem hófst
1873, og létti því fyrst í Bandaríkjun-
um í Ameríku. Nú þegar fór að lifna
fjör í fyrirtækjum, bryddi líka þegar
á framhaldi af þeim mörgu járnbraut-
arleggingum, sem voru áðr í gengi, en
hætta varð við meðan á þessu tíma-
bili stóð.
Af öllum slíkum fyrirtækjum er
ekkert, sem eins vekr eftirtekt vor
Norðrálfumanna, eins og járnbrauta-
leggingarnar yfir þvera Ameríku. Til
þessa hefir að eins ein braut legið
yfir álfuna þvera, nl. inar svo nefndu
Union-Pacific og Central-Pacific braut-
ir, sem eru framhald hvor af annari
og liggja frá Omaha í Nebrasca til
Ogdení Utah (Union Pacific), og svo
þaðan aftr til San Francisco (Central
Pacific). Frá Omaha og austr liggja
ótal brautir.
J>egar er þessi fyrsta braut var
lögð (ið langmesta og djarfasta járn-
brautarþrekvirki í heimi), komu þegar
fram uppástungur um ýmsar aðrar
þverbrautir, til að keppa við þessa,
og það var engu öðru að kenna, en
verzlunardeyfðar-tímabilinu, að þessi
fyrirtæki, sem sum voru þegar byrjuð,
hafa orðið að hvíla aðgjörðalaus í 6
ár. Fólk var orðið svo livekt á prett-
um og fjárbrögðum, að það þorði eng-
inn lengr að verja peningum sínum í
hlutabréfa-fyrirtæki. Kú er óttinn af
liðinn, og nú streyma peningarnir aftr
ljúflega til þessara stórfyrirtækja.
Kanadamenn eru teknir að enda
loforð það, er þeir um mörg ár hafa
gefið íbúum og nýlendumönnum vestr-
landanna í eignum Breta, nl. að leggja
járnbraut milli Quebeck Atlantshafs-
megin og Yictoria Kyrrahafs-megin.
Nokkru fyrir sunnan landamæri
Kanada er verið að byggja Norðr-
Pacific-brautina, sem þegar nær vestr
að inum víðfræga Yellowstone Park.
Bygging brautar þessarar stansaði
fyrir nokkrum árum við það, að þeir,
sem byggja vildu hana, fóru á höfuðið
og urðu gjaldþrota (Jay Cooko & Co.
að oss minnir). Síðan tók lilutafélag
við fyrirtækinu af þrotabúinu, og pótt
það félag ætti erfitt fyrst, þá hefir
hagr þess batnað svo upp á síðkastið
að nú þykir ekkert munu geta hamlað
því, að brautin verði fullgjör innan 2
ára. J>essi braut liggr um líttbygð
héruð, gegn um norðrhluta fylkjanna
Dacota, Idaho og Montana og suðr-
hlut Washington-fylkis. Hún hefst að
austan frá Dulutli við Lake Supirior
og á að enda í Puget Sound í Was-
hington-fylkinu, sem er ein in bezta
höfn á vestrströnd Ameríku, þar sem
annars er eigi mikið um góðarhafnir.
J>riðja fyrirtæki, sem nú er tekið
að starfa að, er braut, sem á að ganga
frá Ogden við Salt Lako í Utah (þar
sem Union Pacific endar og Central
Pacific byrjar) og vestr um Idaho
sunnanvert til Portland, sem erhöfuð-
borgin í Oregon. J>essi braut verðr
lögð gegn um tómar óbygðir, þar til
hún kemr yfir Cascade-fjöllin og niðr í
Willamette-daliun, sem Portland liggr í.
Lengst á veg komið er fjórða
fyrirtækið, Suðr-Pacific-brautin frá Los
Angelos í Suðr-Californíu til Texas
nálægt Rio Grande; þangað á austr-
endinn að ná, og er ætlað að þessi
braut verði fullbúiu í sumar.
— Ferd. de Lesseps hefir fengíð 2
ára lengingu á frestinum til að koma í gang
hlutafélagi til að kosta skurðargröftinn yfir
Panama-eiðið. — í gildi, sem landafræðifé-
lagið í New York hélt honum í fehrúar, fór
Lesseps þeim orðum um, að hann legði þar
við alt það álit, er hann hefði aflað sér til þessa,
--' lii „iii í tVinm + íAinrii Q A Ponomo.obní'Al'lflll
og álit sitt íframtíðinni, að Panama-skurðrinn
skyldi framgang fá. — þykir hann hafa hör svo
mikið um mælt, að víst megi telja að fyrír-
tækið nái vonum bráðar fram að gauga.
Eigandiogritstjóri:JÓIl 0111 fSSO
Prentsmiöja „Skuldar11. Th. C1 e m e n t z c - j