Skuld - 19.04.1882, Síða 2

Skuld - 19.04.1882, Síða 2
30 inn í her Austurríkismanna. Nú í haust fóru Austurríkismenn þ<5 að færa sig upp á skaftið og vildu skylda þjóðir þessar til landvarnar og láta þá þjóna í her Austurríkis. |>essu undu allir jafnilla, bæði kristnir og Tyrkja-trúar-menn, enda andmæltu T.yrkir rjetti Austurríkismanna til þvílíks tiltækis. Við þessa óánægju bættist nú rígur sá og óvild, er jafnan lifir milli slaf- neskra þjóða á aðra hlið og þýðverskra á hina. Róa Rússar þar undir, því að þeir eru voldug- ust þjóð slafnesk, og vilja þeir að allar slafnesk- ar þjóðir slái sjer saman, sumpart gangi á Rússa vald, en myndi sumpart sjálfstæð slaf- nesk ríki, en Rússar hafi forustu fyrir sam- bandi allra slafneskra ríkja. Er þar stutt af að segja, að af þessum tildrðgum öllum varð upp- reist í Bosníu, Herzegowina og Dalmatíu. Vildu Austurríkisblöð og stjómin þar í landi leyna því fyrst, að svo væri; kváðu vera stigamanna- flokka nokkra, almenna illræðismenn og spill- virkja, er gjörðu lítilsháttar óskunda af sjer, sem títt er í þessum löndum; hefði þetta ekk- ert að þýða og væri nokkrir hermenn sendir af stað til að handsama þá og hirta. En svo eru liðnar vikur og jafnvel mánuðir, að sífelt aukast óeirðirnar, og hafa menn fyrir satt, að Austurríkismenn hafi nú25til'30 þúsundir her- liðs undir vopnum þar suður frá, en þó hefir þeim enn eigi tekizt að bæla þessa uppreist. Mörgum stendur stuggur af þessu, því eigi hafa þeir neistar stærri verið með fyrsta, er stund- um áður hafa blásizt upp í það bál, er logað hefir um allan Balkanskaga, svo að fullnógur vermir hefir þótt af verða víðar út um Norður- álfu. Frakkland. £að kom mörgum á fiatt, hve skamma stund Gambetta var við völd sem ráðherra, og gjörðu afturhaldsblöð hvervetna um lönd mikið veður af því, að auðsætt væri á þessu, að gengi Gambetta væri nú þrotið. þ>ó hefir sú reynd eigi á orðið. J>ykjast nú marg- ir skilja á eftir, að Gambetta hafi sjálfur með vilja þreytt kapp við þingið um lista-kosning- arnar svo mjög sem hann gjörði, til þess að fá átyllu til að sleppa sem fyrst úr ráðherrasæti því, er hann settist mjög nauðugur í og hafði smeygt sjer hjá að setjast í svo lengi sem kost ur var á. Meðan hann var forseti þingsins og ráðaneytið skipað vinum hans, var hann sá maður, er mestu rjeð í Frakklandi, og þótt af og til yrði ráðgjafaskipti, þá kom hann jafnan að öðrum af sínum vinum í staðinn og hafði því in sömu ráð eftir sem áður, því ekkert það ráðaneyti getur í sessi setið á Frakklandi, er hann snýst á móti. Hann er eins og með þegjandi sam- þykki allra álitinn sjálfsagður forseta-efni, þá er Grevy fer frá völdum. fótti honum því, sem var, að ráðherratign gæti engu við völd sín aukið, en fremur orðið sjar hættuleg, ef þingið snerist móti ráðaneytinu í einhverju einu mik- ilsverðu máli, svo að hann yrði frá að fara. Og því var mikið á hættu fyrir hann að slíta áliti sínu sem ráðgjafi. fykjast nú flestir skilja að hann hafi sætt færi að sleppa úr þessari vanda- stöðu, áður en meir gránuðu leikar. Enda þykir þess vart orðið, að hann muni nú þegar hafa in sömu áhrif á þjóð sína sem áður, svo eru og þeir ráögjafar, er eftir hann komu og fylgismenn. Frá Japan er þess að geta, aö Mikadóinn hefir nú gjört þar mikla stjórnarbót. — £ess má geta hjer, að í Japan hefir lengst verið óbundin einvaldsstjórn; rjeðu lengst um tveir höfðingjar fyrir ríkinu, annar var Mikaros eða Mikadó uefndur og var æzti prestur og andlegur yfir- höfðingi þjóðarinnar, hann stýrði og dómsvaldi og var tignaður sem goð væri; hann sat í borg- inni Miakó. Hiun nefndist Taikún og sat í Jeddó (dsjeddó). Stýrði hann fjármálum og her- málum. 1867 varð stjórnarbylting þar í landi; var Taikúninn frá völdum settur, en allir höfð- ingjar gengu undir vald Míkadósins, sem varð einvaldur keisari í landinu. fessi Mikadó var inn mesti framfaramaður og sneið alt að hátt- um Norðurálfumanna. Englar og Rússar höfðu lengi reynt að ná fótfestu í landinu, en tókst eigi. En Bandaríkjamönnum (Norður-Ameríku) tókst það, og má þeirra áhrifum þakka þá framför, sem þar í landi er orðin. Nú eru þar lagðar 14 danskar mílur af járnbrautum og am 380 mílur af málþráðarlínum. 1872 var skiþulagi komið á skólamál landsins; er land- inu; skipt í 8 skólahjeröð með 1 háskóla og 32 meðalskólum; auk þessa eru 210 æðri skólar og 53,760 barnaskólar. Kennarar við ina æðri skóla eru flestir Bandaríkjamenn og nokkrir pjóðverjar og aðrir Norðurálfumenn. 1875 leiddi Mikadóinn inn þingstjórn, löggjafarþing í 2 mál- stofum; eu varð að taka þetta stjórnarfyrir- komulag aftur af, með því að þjóðin var þá eigi svo upp frædd, að hún væri því vaxin. Nú hefir hann af nýju gefið stjórnarskrá, er gjörir stjórnina þingbundna, en eigi nær stjórnarskrá þessi gildi fyrri en 1890. Hefir Mikadóinn gef- ið út auglýsing til þegna sinna, brýnt fyrir þeim, að bíða þolinmóðir til 1890 og nota vel tímann til að uppfræða sig og búa sig undir að kunna að fara með frelsi sitt. Frá Ameríku er þess helzt að geta, að Kyrrahafs-járnbrautin syðri (Kansas-Pacific) er nú fullgjör. — Byrjað er nú fyrir alvöru á sjálfum síkis-greftinum gegn um Panamaeiðið (uudirbúningsstörfin stóðu hátt á aunað ár), og er talið að verkinu muni lokið verða 1892. Auglýsing um burðareyri fyrir póstsendiugar. I. Iuuanlands. A. Brjefsendingar: 1. Almenn brjef: fyrir allt að 3 kvinta þunga.....................lOaur. fyrir 3—25 — — ....................... 20 — 25—50 — — ....................... 30 — Fyrir ófrímerkt eða ónóglega frímerkt brjef greiðist tvöfaldur burðareyrir. 2. Brjefspjöld........................................................... 3. Krossbandssendingar skal ávallt borga uudir fyrir fram; þær mega vega allt að 5 pd., og burðargjaldið er fyrir hver 10 kv. eða minna . . . . 3_ 4. Meðmælingargjald á sendingunum í 1.—3. tölul., fyrir hverja seuding . 20 — 5. Undir peningabrjef eða verðbrjef er borgað eptir vigt eins og almenn brjef (1. tölul.), og í ábyrgðargjald að auki eptir verðupphæð þeirri, er utan á brjefinu stendur, fyrir hverjar 100 kr. eða minna . , 5__ B. Böggulsendingar: 1. með landspústunum mega eigi vega yfir 5 pd.; burðareyrir fyrir hvert pund eða rainna...................................................... 2. Með strandferða-póstskipunum mega bögglar vega allt að 10 pd. (ef eigi þarf að senda þá neitt yfir land); burðareyrir fyrir hvert pd. eða minna er 10 — Sje verð tilgreint á böggulsending, hvort holdur send er á sjó eða landi greiðist í ábyrgðargjald fyrir hverjar 100 kr. eða minna.....5_____ II. Milli íslauds og Dainnerkur. A. Brjefsendingar: 1. Almenn brjef: fyrir allt að 3 kvinta þunga...................16 — — 3—25 — — ....................30 — > — 25—50 — — ..................... 50 — 2. Brjefspjöld......................................................... 3. Krossbandssendingar : allt að 25 kv..........................16_____ 25-50 — i...............................25 — 4. Meðmœlingargjald (fyrir hverja sending)......................16 — 5. Veningabrjef eptir vigt, sem að ofan (l.tölul.); þar að auki ábyrgðargjald eptir tilgreindu verði, fyrir hverjar 200 kr. eða minna......25 — Böggulsendingar mega vega allt að 10 pd. Burðareyrir greiðist með 25 a. aðalgjaldi fyrir hvern böggul og að auki fyrir hvert pund eða minna af vigt böggulsins......................................................... Ábyrgð eptir tilgreindri verðupphæð: fyrir hverjar 200 kr. eða minna ... 25 — C. P ó s t á v í s u n 11 m getur pósthúsið í Reykjavík skipzt á við öll pósthús í Danmörk; milli Reykjavíkur og Kaupmannahafnar mega póstávísanirnar ekki hærri vera en 200 kr., og railli Reykjavíkur og annara staða í Danmörku hans vinir

x

Skuld

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skuld
https://timarit.is/publication/109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.