Skuld - 26.09.1882, Side 3

Skuld - 26.09.1882, Side 3
91 friðarins; in sönnu tildrög liggja dýpra, og eru reyndar in sömu í Egiptalandi sem í Rússlandi. Síðan á dögum Mehemeds Ali (forföður Tew- fiks, sem nú er khediv) í byrjun þessarar ald- ar hefir það verið siður, að senda árlega nokkra unga menn til Parísar til náms. £>egar þeir koma aftur til Egiptalands, eru margir þeirra einatt orðnir sjálfbyrgingar í trúarefnum, og allir eru þeir grunaðir um að vera það. En til að koma af sjer gruninum, koma þeir oft fram sem trúarofsamenn. Stjórnin egipzka setur þá venjulega í embætti, og oft í meira lagi af handa hófi. Maður, sem er doktor í lögfræði, er ef til vill gjörður að liðsforingja; annar, sem hefir gengið á hernaðarskóla, er skipaður í heilbrigðisráðið, og svo fram eftir götunum. t*essi störf eru þeim fengin oft á móti vild þeirra, og vekur þessi aðferð oft megna óánægju meðal meðal þeirra. En aginn er strangur í Egiptalandi, og með tímanum verða þeir oft annað hvort af hræsni eða vana þægir þegnar aftur, og það því fremur, sem þeim gleymist oftast aftur á endanum sú litla mentun, er þeir höfðu fengið. En oft situr þó eftir einhver óánægjubroddur í sál þeirra undir niðri. Á stjórnarárum Ismails passja voru skól- ar stofnaðir í Kairo, Alexandríu og Tantah til að menta foringja. embættismenn og kenn- ara. Alþýðan er alveg ómentuð, en þeir, sem í þessum skólum nema, eru að eins fáir tals í samanburði við allan fjöldann; þeir ná þar nokkurskonar hálfmentun, nógri til þess, að þeir, eins og nihilistar í Rússlandi verða óá- nægðir með ófrelsi það, sem á sjer stað í land- inu bæði í stjórnmálum og allri fjelagsskipun. Frá þeim breiðist út sá óánægjustraumur, er fá hlýtur framrás í fullu upphlaupi, nær sem stjórn khedívans sýnir Ijósan vott um vanmátt sinn. Önnur orsök til þeirrar ringulreiðar, sem á öllu er í Egiptalandi, er fjárhagur ríkisins. Enskir og frakneskir auðmenn lánuðu fyrst khedívanum stórfje móti okurrentum; en þegar vanskil tóku að verða á greiðslunni, tóku stjórn- ir Englands og Frakklands í taumana. til að vernda hagsmuni þegna sinna, okurkarlanna. Nú var farið með ið egipzka ríki sem þrotabú. Nefnd var sett til að stýra ríkisskuldamálun- um og tryggja lánardrot.tna hag. þeir. sem kunnugastir voru, voru eigi spurðir til ráða. Nefndin tók fyrir góða vöru skýrslur egipzku stjórnarinnar um tekjur 02 gjðld ríkisins, og lagði svo niður afborgunarskilmálana, að lands- stjórnin var svipt öllu færi á að framkvæma nokkra minstu endurbót, sem fje þurft.i tii. Tekjunum úr ýmsum hjeruðum skyldi eingöngo til þess varið, að greiða með þeim ríkisskuldir; af tekjum hinna hjeraðanna skyldi fyrst greiða kostnaðinn við umboðsstjórn landsins; af því. sem afgangs yrði, skvldi verja sls til greiðslu ríkisskulda, en 2/s af afganginum mátti verja ti! ýmislegra útgjalda í landsins þarfir. Til þess að tryggja það. að þessum fyrirmælum væri nú fylgt, skyldi skipa rnenn til eftirlits. England og Frakkland setf.u sinn yfirumsjónar- manninn hvort um sig; þeir áttu sæti í ráða- neytinu og höfðu rjett til að leggja bann fyrir hvorja stjórnarályktun, sem þeim gazt eigi að. Með þessu móti urðu þessir yfirumsjónarmenn eða eftirlitsmenn í rauninni þeir, sem lögum og lofum rjeðu í landinu. En þeir áunnu sjer eigi hylli landsbúa. |>vert á móti juku þeir orsak- sakirnar til óstands þess, er nú er á komið. Fyrst var nú það, að eftirlitsmenn þessir ljetu sjer ekki skiljast það, að það gat varla hafa verið tilgangur ríkisskulda-nefndarinnar, að svipta Egiptaland öllum efnum til að endurbæta stofn- anir landsins, akuryrkju, verzlun og aðra at- vinnuvegi; og heldur eigi gat það hafa verið tilgangurinn, að ríkisskuldirnar, sem námu 90 millíónum punda (1620 millíónum króna) skyldu fullgoldnar upp í topp á 25 til 30 árum. — £>á var það annað, að eftirlitsmennirnir drógu heilan her norðurálfu-manna inn í landið, eink- um landa sína Engla og Frakka, og tróðu þeir þeim inn í öll æðri embætti með óhæfilega há- um launum. Sjálfir höfðu eftirlitsmennirnir hvor um sig 5000 pund (90,000 kr.) um árið í laun; forstjórarnir fyrir rikisskulda-skrifstofunni, járnbrautunum, póstmálunum, þjóðjörðunum 0. s. frv. höfðu í árslaun 3000 pund (45000 kr.) og þar yfir hver fyrir sig. í öllum greinum umboðsstjórnarinnar var norðurálfumönnum troðið í embætti, og hvervetna fengu þeir miklu hærri laun, en innlendir menn í ámóta embætt- um. f>etta skóp öfund og óánægju. Auk þessa ber þess að geta, að allir þessir útlendingar voru skattfríir, þar sem innlendir menn eru flegnir með geysiháum sköttum. — Ofan á alt þetta bættist nú svo það, að Tewfik kedívi vat mesta nátthúfa og alveg í klónum á þessum eftirlitsmönnum, svo að frumreglan fyrir öllu, sem hann gjörði, var það, hversu þessir útlend- ingar vildu vera láta, en hitt eigi, hvað í raun rjettri væri landi og þegnum heillavænlegast. pað eru nú inir innlendu þjóðernismenn og frelsismenn, er hafa fylkt sjer um Arabí. Flokkur þeirra og ráð voru svo vaxandi í landinu, að Eng- lendingar álitu nauðsyn til bera að kúgaþá, og því var leitað að ófriðarefni, og má nærri geta, að svo kænum mönnum sem Englum varð eigi leit á, að finna sjer tilefni. l>að eru þannig inir mentuðu og frjáls- lyndu Englendingar, sem koma hjer sem oftar fram sem erlendir ofríkismenn og kúgarar, til að bæla niður sjálfstæði vaknandi þjóðar. H l T T 0 G J> E T T A. Bjornstjerne Bjornsou og kristimlómurinn. — í veizlunni á Aulestad mintist Bj. í ræðu þeirii, er liann hjelt til svars heillaóskum gest- anna, á sig og trúarbrögðin, og sagði meðal annars: «aldrei hefir það verið tilgangur minn að særa trúar-tilfinning nokkurs manns á neinn liátt eður að ráðast á nokkra hreinskilna trú; alt það, sem jeg hefi óskað að koma til íeiðar í trúarefnum, er, að leiða menn til að leita sannleikans, hugsa sjálfir og rannsaka alvarlega, í stað þess að tafsa upp gamlar trúarjátningar af éintómum vana og liugsunarleysi, því að slíka trú álít jeg dauða, en eigi lifandi». Henrik Ibsen 11111 Bjornson. — Meðal þeirra, sem sendu Björnson kveðju 10. ágúst, var skáld- ið Henrilc Ibsen. Frá honum kom bæði langt brjef, og svo málþráðar-ávarp »með þökk fyrir samvinnu í frelsisins þjónustu í 25 ár». — Úr brjefinu viljum vjer færa til þessi orð: «Rit þín standa í fremstu röð í bókment- asögunni og tnunu jafnan það sæti skipa. En ætti jeg að ákveða, hvað rista skal á minnis- varða þinn, þá vildi jeg velja þessi orð: líflians var hans fegursti skáldskapur? Og það, að framkvæma hugsjónir sínar í lífsstarfi sínu, á- lít jeg það æðsta, er nokkur maður getur náð. J>etta er lífs-mið okkar allra, en langflestir fara fjarri því ■>, Uppskeran í Bandaríkjunum er talið að muni hafa orðið með langbezta móti í sumar. Með því að uppskera þar að auki yfir höfuð má teljast betri en í meðallagi í Norðurálfunni yfir höfuð, þá er líklegt, að korn verði eigi mjög hátt í verði. Síldarafliim við Skotland og Hjaltlands- eyjar hefir verið meiri í sumar, en nokkru sinni fyrr í manna rninnum. í Noregi geta konur nú tekið stúdents- próf (exam. art.) og heimspekis-próf (exam. philos ). Bókmentir. Arni Thorsteinsson: Laxkyujaðir fiskar og fiskirækt. Rvík. 1881. (73—163. bls. sjer- prentun úr tímariti bókmentafjelagsins 1881). — þessi ritgjörtð erönnurin þarfasta, er komið hefir út í tímariti þessu. f>að er svo víða veiði hjer á landi, að það getur enginn efi leikið á, að það er stórfjár virði, hvort vel eða illa er með hana farið, hvort hún er efld eða nídd. En til þess, að efla veiði, þarf einatt lítinn sem als engan kostnað; það þarf miklu fremur aðeins að þekkja eðli fiskanna og skil- yrðin fyrir þrifnaði þeirra og fjölgun. Höf. hefir með mestu alúð kynt sjer það, er útlendir menn, sem reynslu hafa fyrir sjer, hafa ritað um þetta, og setur hann ljóslega og auðveld- lega fram það, sem helzt er og þarflegast að vita um eðlisháttu laxa og silunga, og bendir til, hve mikils vert sje að kynna sjer þetta. Eins og höf. kemst sjálfur að orði (á 111. bls.): »í>að, sem mest ríður á fyrir þá, sem eiga veiði i ám og vötnum, er að þekkja vel eðli og lífs- háttu fiskanna. Ef menn afla sjer þeirrar þekkingar og láta sjer eins ant um þá og bú- mennirnir um skepnurnar eða varpeigendur um fuglana, má í hendi sjer með skynsamlegum ráðstöfunum og framkvæmdum auka fjöldann, veiðina eða arðinn». — Vjer viljum ráða öllum til að lesa þessa ritgjörð, sem er í alla staði svo vel rituð, að höf. hennar verðskuldar sann- arlegt þakklæti. Torfliildur porsteinsdóttir Hohn: Brynj- óltúr Sveinsson. saga frá 17. öld. Rvík. 1882. — £>að er allrar virðingarvert af kvennmanni, að hafa áræði til þess með ekki meiri mentun en konur hjer á landi eiga kost á, að rita bók, og það skáldsógu, og ofan á alt saman: skáld- sögu sögulegs efnis, sem sannlega er ekkert við- vaninga-færi. Einhver kynni því að ælla, að hjer væri að líkindum um tvent að gjöra, annaðhvort mundi það vera óvenjuleag öflug og rík skáldskap- argáfa höf.,er hefði knúð hana til að sprengja öll torveldishöft og venju-bönd, og ryðja sjer til rúms í því formi, er bezt ætti við hana, — eða þá, að mentunarleysi höf. hefði vakið henni það oftraust á sjálfri sjer, að hún hefði leiðzt til að færast það í fang, er henni væri svo gjörsamlega ofvaxið, að engin þolauleg mynd yrði á verki hennar. — En það þarf ekki langt að lesa í sögu hennar til að sjá, að hvorugt af þessu hefir átt sjer stað.

x

Skuld

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skuld
https://timarit.is/publication/109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.