Máni - 05.03.1881, Síða 2

Máni - 05.03.1881, Síða 2
75 M Á N I. 76 ferðamenn suður en fóru íengann fiskirdður þann dag. fetta er því leiðinlegra, sem svo lítur út, sem að hér lýsi sér manngreinar- álit, því ekki vitum vér til, að presti vorum hafi dottið í hug, að fá þá menn sektaða fyrir helgidagsbrot, sem opt og einatt fara að ríða út sér til skemtunar á sunnudögum rétt um þann tíma, sem hann er að ganga í kirkjuna, og væri þó líklegt að þeir trufluðu eins hinar guðrækilegu iðkanir surnra einsog þó nokkrir sjómenn, góðum tíma fyrir messu færu suður á nes, til þess að leita sér bjargar. Manngreinarálit ætti síst að lýsa sér hjá prestinum, og hvernig sem öðru viðvíkur, þá verður það harla torvelt að gjöra menn kirkjurækna með lagasetningum, því þó slíkt tækist, sem er þó óhugsandi, þá yrði sú guðrækni eins og hysmið utan af korninu, þegar hveitið er allt á burt. (Aðsent.) Samsæti hinua yngri verslunarmanna í Reykjavík, hinn 22. jan. 1881. þ>að hetir hingað til verið vani, að verslunarþjónar Eeykjavíkur hafa haldið ár- lega veislu, og hafa verslunarstjórarnir, hús- bændur þeirra tekið þátt í henni, bæði til þess, að skemta sjálfum sér, og líklegast til þess, með fram að sýna góðann huga sín- um samvinnumönnum. í þetta skipti var brugðið út af þessu, því svo leit út, sem sumum verslunarstjórum, þætti sér ekki samboðið, að sitja á sama bekk og þjónar þeirra, mun þessi hugsun hafa «iáglendan» uppruna, því hún ber það með sér; og því viljum vér eigi eyða fleiri orðum um hana. Hinn 22. dag janúar héldu allir hinir yngri verslunarmenn samsætiá hinu nýja «Hótelli» Consul M. Smith’s, og til þess það yrði fjölmennara og undir eins fjörugra og frjáls- lyndara, var nokkrunt bæjarmönnum boðið að taka þátt í því, og var svo séð um af forstöðumönnum samsætisins, _ (verslunar- mönnunum Guðmundi Ólsen, Helga Jóns- syni og Jporláki Ó. Johnson) að þeir væru af ýmsum stéttum, til þess að forðast alla oddborgaralega «sorteringu». Tveir heiðursgestir voru boðnir og voru þeir þessir: þjóðskáld íslands síra Matt- hias Jochumsson og cand. theol. Steingrím- ur Johnsen, sem með heiður og sórna hefir verið söngkennari í hinu nýja söngfélagi verslunarmanna er «Yðun» heitir, enn því miður gat hann ekki komið. þ>rjú minni voru drukkin við borðið, nefnilega íslands, heiðursgestanna og fyrir minni hinna yngri verslunarmanna í Reykja- vík; fyrir því minni mælti síra Matthias Jochumsson mjög fagurlega, en verslunar- maður jporl. Ó. Johnson þakkaði fyrir rneð nokkrum snjöllum orðttm, fyrir hönd versl- unarmannanna. Samsætið var yfir höfuð eitthvert hið skemtilegasta og frjálslyndasta, sern lengi mun geymast í þægilegri endur- minningu allra þeirra, sem tóku þátt íþví. Áður en seinasta minnið var drukkið, sungu menn hið fagra kvæði, er hór fylgir, eptir heiðursgestinn séta Matthias Jochumssoni Lag: Rul hen over Fjeld og Bælt. f>ú, sem oss í saii Seifs Sóttir eldinn, Prótneþeifs1! Blessuð veri börnin þín; Blessað þetta Rínarvín; J>að má heita himinglóð; Hitum anda, merg og blóð; Enginn bíður æðri kost Eptir nítján stiga frost. Eullhuginn með þrek og þor, J>ú, setn fyrsta sittn til vor Hleyptir knerri hrannarstig, Hátt í lypting sje eg þig; Glæsimann með gullin hjálm, Girtan logabjartri skálm! Hvað bar skrautleg skéiðin þín? Skarlat, hveiti, gull og vín! Brandur örfi, Bolli, Hrafn, Báru forðum kaupmannsnafn; Egill sjálfur orkustór Enskan sótti mjöð og bjór; Konungsfélag kaupmenn þá Knúðu fast um land og sjá; Ivaupmenn Eróns með frægðogseim Fundu sjálfan Vesturheim. 1) Hetja Forngrikkja, sú er fyrst náði eldinum fyrir mannkynið.

x

Máni

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Máni
https://timarit.is/publication/111

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.