Máni - 05.03.1881, Qupperneq 4
79
MÁSI.
80
bún gengur og fyrir handafli og prentar
1200 á tíraa, þetta er talsverð framför í
prentlistinni og meiri heldur en í nokkru
öðru handverki hér, svo vér þekkjum.
— Verðlagsskrárnar fyrir suður og vest-
urumdæmið eru útgengnar, og er meðalverð
atlra meðaherða þannig: hundr. alin.
Kr. aur. Aur.
í Austur-Skaptafellssýslu . . 60 32 50
- Vestur-Skaptafellssýslu . . 55 12 46
- Rangárvallasýslu .... 56 » 47
- Vestmanneyjasýslu .... 58 90 49
- Árnessýslu 64 44 54
- Gullbr.-og Kjósarsýslu ogRvík 66 91 56
- Borgarfjarðarsýslu . . . 68 49 57
- Mýrasýslu 71 1 59
- Strandasýslu 69 15 58
- ísafjarðars. og ísafjarðarkaupst. 68 2 57
- Barðastrandarsýslu .... 68 67 57
- Dalasýslu 69 7 58
- Snæfellsness- og Hnappadalss. 69 50 58
Veðrátta í febrúarmán. Hiun 6. kafalds-
hríð af austri, 7. hvass á austan 2° fr. 8.—
10. hægviðri af suðri 2° fr. með hinum 11.
gjörði.umhleypinga með snjókomum af út-
suðri og frostleysum að mestu til hins 18.
skemmdist síðan jörð og gjörði hagleysur af
snjóhríð er kyngdi niður dagana 17. og 18.
Nóttina hins 19. gjörði ofsarigning af suöri
og tók upp allan snjó að mestu, dagana 19.
til 20., gjörði þá svo mikið vatnsflóð í
Reykjavík á þorraþrælinn að víða var farið
á hátum milli húsa. 20.—21. kólnaði apt-
ur, en þó með hægviðri. 22. kom aptur
hláka, en með kveldinu sletti í og gjörði á-
freða, svo illt varð til haga í nærsveitunum,
en alstaðar austanfjalls kom eigi áfreðinn
og er þar auð jörð eptir hlákuna. Frá þeim
23. og til enda mánaðarins var stilt veður
með hæst 6° frosti. í miðjum mánuðinum
fréttist að hafísinn væri að reka að austan,
vestur með suðurströnd landsins, allt vest-
ur í Eyrarbakkabót, og varð þar svo mikill
að tók fyrir róðra, svo afli varð eigi sóttur
er nógur var þó fyrir. Seinast þegar frétt-
ist var ísinn horfinn þaðan.
— Afli mun kominn hér inn á mið ef
hans yrði sætt, sökum ógæfta og frosta. í
Garðsjó er og afli kominn, en vandlátur er
fiskur að beitu, nema hrogna úr sjálfum
honum.
— Sagt er, að frostið í jörðinni sé sum-
staðar hátt á 4. alin.
Handiðnamannafélagið í Reykjavík.
Hvernig stendnr á því, að handiðna-
mannafélagið, sem á svo marga nýta og
góða menn, er allt á sundrungu, og getur
því ekki neytt hinna góðu krapta, sem það
annars hefði. Með vorinu ættu menn að
hugsa alvarlega um það, að félagið gæti
unnið saman í einingu, bæði sér sjálfu og
öðrum til gagns, og umfram allt, að reyna
að drepa allan apturfararanda og annað því
um líkt, er kynni að hafa læðst inn í það.
(Aðsent). Er nokkur eiðstafur í trú mor-
móna? Sé ekki svo, þá er eiðtaka þýðing-
arlaus af þeim ? Forvitinn.
(Asent.)
Oleoilegur atburour fyrir heiminn!?
Hraðfregn (Telegram) frá Reykjavík til
Norður-Athenuborya r !
Nýtt félag myndað á norðurskauti heimsins,
sem heitir «Maim-hrodda-félagið».
Auglýsing.
Eg skildi eptir á Lækjarbotni hjá Hall-
beru í vetur trefll; kostaði eina krónu að fá
hann aptur. Ferðamenn! varið yður á slíku
ef yður skortir peninga sem mig.
25. febrúar 1881.
Ferðamaður.
Útgefandi: «Félag eitt í Reykjavík».
Prentaður í prentstofu Einars pórðarsonar.