Fróði - 06.11.1880, Blaðsíða 2

Fróði - 06.11.1880, Blaðsíða 2
25. bl. 292 F R Ó Ð I. 293 291 fyrir mörgum, að árangurinn af vetrar- verkunum verður litill, og er pó vetrar- tíminn venjulega talsvert lengri hjá oss enn sumartiminn. |>etta ernúaðnokkru leyti eðiilegt, en margt mundi þó mega telja til pess. að menn noti veturinn al- mennt langtum miður að sínu leyti enn sumarið, því einatt má sjá, að verk, sem auðunnin eru að vetrarlagi, eru óunnin þegar sumarið kemur, svo þá þarf að eyða hinum dvrari tíma til þeirra, Er eigi bóndanum t. a. m. jafn auðvelt að laga til orf sin og hrífur, reiðfæri og önnur áhöld á vetrardag sem sumardag? Og þó má allopt sjá, að ekki er hugsað til að gera þetta fvrri enn að því er koniið að nota þarf verkfærin. J*ó næg orsök væri til þess að tala margt um þetta efni og skrifa um það búskaparhugvekju til húslesturs í byrjun vetrarins, þá er nú reyndar eigi áform mitt að gera það í þetta skipti, heldur ætla jeg að eins að minnast á eitt ein- stakt starf, sem raunar er eitt af vetrar- verkunum, en það er fræðsla ungling- anna. Menn muna að von minni eptir því, að síðasta alþingi samdi lög um upp- fræðing barna í skrift og reikningi, og gera þessi lög foreldrum og húsbændum að skyldu að kenna eða láta kenna hverju barni, sem þeim heyrir til, bæði að skrifa og líka að reikna að minnsta kosti með heilum tölum og tugabrotum. Prófastar, prestar og meðhjálparar, það er að segja sóknarnefndirnar, eiga að sjá um að þessum lögum sje hlvtt, og þau eigi troðin undir fótum. Sjerstaklega er hverjum presti skipað að hafa afskipti af þessu í sókn sinni eða sóknum sin- um, og skal hann á ári hverju gefa hverju barni vitnisburð um kunnáttu þess í skrift og reikningi, og rita vitnisburð- inn í húsvitjunarbók sína eður sálna- registur. Prófasti er skipað að líta ná- kvæmiega eptir, að prestar vanræki þetta eigi, 0g verður hann því á yfirferðum sínuin eigi að eins að lesa húsvitjunar- bækdr prestanna, heldur einnig að prófa hörnin í skrift og reikningi til þess að geta sjeð, hvort vitnisburðirnir eru sann- ir. í lögum, er eínnig voru sa.min á síðasta þ'íng'i, um stjórn safnaðafmála og skipun sóknarnefnda og lijeraðsnefnda, •er sókuarnefndarmiinnum skipað að vera prestinum til aðstoðár í því að fræða ungmenni, og hjeraðsnefndarmönnum að skýra frá þvi á hjeraðsfundum, hvernig prestar og sóknarnefndir gegni köilun sinni í því, en lýtur að menntun og fræðÍBgu uagmenna. A lijeraðsfundun- um að Jiausti komanda verður það þann- ig eitt af ætluuarverkum hiuna kosnu safnaðarMltrúa, að hver þejrra skvri þar í heyranda ldjóði frá því, hvað prest- ur og sóknamefnd í hans söfnuði hefir gert til þess, að börnin lærðu nú í vetur að skrifa og reikna. jþað er vonanda, að það sje ein- dæmi (frb. endemi), sem „Skuld“ skýrir nýlega frá um menn 1 einni sókn fyrir irnstan, er hvorki vildu kjósa sjer sóknar- nefnd nje fulltrúa á hjeraðsfund. Svo lítur iit, sem þessir menn hafi þótzt uppgötva það, að þeir væru ekki skyld- ugir til þessa, hvorki við þjóðfjelagið, sem hafði skipað sóknarnefndir og hjer- aðsfundi, nje við sjálfa sig eða börnin í sókninni, heldur að lögin að eins gæíi þeim heimild og leyfi til að kjósa — eins og þau hefðu bannað sóknarnefndir að undanförnu — og þeir væru nú sjálfráðir um, hvort þeir notuðu þessa heimild eður eigi. þeir uppgötva líklega bráð- um, að því er eins varið með kosning hreppsnefndar, og fer ef til vill svo mikið fram í sömu stefnu, að þeir áhta hreppsnefnd óþarfa og hætta að kjósa hana. Eitt af helztu ætlunarverkum hreppsnefndar er að sjá um, að munað- arlaus börn, örsnauð gamalmenni og sjúklingar, sem eigi geta af sjálfsdáðum bjargað sínu líkamlega lífi, fái helztu lífsnauðsynjar sínar, fæði og skýli. En eitt af helztu ætlunarverkum sóknar- nefndar er að sjá um, að vesalings börn, er eigi fá hjá foreldrum sínum eða hús- bændum nema ónóga menntun og upp- eldi, sem er lítið hetur vandað enn það, sem kálfar og kettlingar fá — að þau, seS* je&; geti fengið nokkuð meira af hinum andlegu lífsnauðsynjum, er þau þarlnast til þess að geta orðið menn að meiru enu myndinni einni, eða sköpu- laginu einu saman. þó get jeg látið mjer koma í hug, að þessir góðu menn beri betur skyn á mat enn menntun, og álíti fyrir þær sakir hreppsnefndina þarf- ari enn sóknarnefndina. En sannlega er heldur ekki nóg fyrir söfnuði landsins að koma á safn- aðarfund sem íijótast einu sinni hvert vor, rjett til þess að kjósa sóknarnefnd og hjeraðsfulltrúa, og hugsa svo ekki framar um málefni safnaðarins. Enga fundi er eins hægt að sækja sem safn- aðarfundi, þar sera söfnuðurinn hvort sem er kemur saman, eða ætti að koma saman hvern messudag. Mönnum ætti að vera Ijúft að halda safnaðarfundi sem optast í kirkjunum eptir messu á helg- um dögum til að ræða um kirkjumál sín og fræðslumál, og gætu þessir fundir verið mjög menntandi bæði fyrir eldri menn og yngri í söfnuðinum. Mönnum er það andleg lífsnauðsyn að koma sam- an og hera saman skoðariir sínar; að taka opt þátt í umræðum um skynsam- leg málefhi og hlýða á slíkar umræður, er mjög gott menntunarmeðal, og þetta meðal er ekki köstnaðarsámt, ef það ráð er tekið að halda iðuglega sáfnaðarfundi, þar sem allir, yngri og eldri, konur og karlar, geta hlýtt á það sem frain fer og lagt eitthvað til málanna, ef þeir vilja og eru færir um. f fámenniiiu og strjálbyggðínni hjá oss elst hver upp í sínu horni, fær sjaldan tækifæri til að heyra tilhreytilegar skoðanir um hlutina og lærir því ekki að hugsa um þá nema lauslega. Maður verður ófróður, hjá- rænulegur og heimskur, sein von er til, fær eigi nema óljósa hugmynd rnn allt fjelagslíf og daufa tilfinningu fyrir þvi- liann verður ei nema hálfur maður. Új þessu mikla meini mætti stórmikið bæta með iðuglegum safnaðarfundum, þar sem börnin, sem lakast eru farin i þessu til- liti, fá að vera við og hlvða á ræður hinna eldri; þau hljóta að vakna við það til að hugsa fvrri enn ella og ljós- ara og skvrara enn ella. .Teg vil biðja prestaiia að hugleiða þetta, jeg vil skjóta þeirri spumingu til þeima, livort að þeir mundu eigi nieð tiðum safnaðarfundum geta eflt og útbreitt vemlega menntun i söfnuðum sínum, ef til vill betur enri með nokkru öðrn ráði, og þó með minni fyrirhöfn. Allur þorz-i presta vorra eru góðir, menntaðir og samvizkusamir inenn, en þeir eru bundnir við venjuna eigi síð- ur enn hverjir aðrir, og það er errttt að hrista hennar fjötra af sjer. |>ó þeir hati verið settir til mennta og gengið í skóla, þá hafa þeir alizt upp á undan því í sama fámenni og tjelagsleysi sem önnur hörn, og þekkja því fæstir af reynslunni hvað gott það er fvrir börn- in að geta verið á mannfunduin ineð hinum eldri og heyrt á skynsamlegar samræður þeiiTa. En af reynslunni get- ur hver og einn þeirra þekkt — ef þeir viija sína barnæsku muna — að langar ræður, eða rjettara sagt upplesnar rit- gjörðir, eru eigi börnum hentugar til uppfræðingar; börn taka eptir samræð- mn betur enn löngum lostri. .Teg veit að prestar telja það eitt sitt helzta ætl- unarverk að mennta æskulýðinn, sem það og lika er, jeg veit þeir vilja gera það meira enn að nafninu tómu, en jeg veit ekki hvort þeir hafa hugsað nógu vand- lcga um, hverja aðferð bezt er að hafa til þess. |>eir hafa sjálfir sem fullorðn- ir menn heyrt lesnar yfir sjer í presta- skólanuiu skrifaðar ritgjörðir, og vera má að þeim hafi fnndizt þetta vera hin eðlilegasta og bezta kennsluaðferð. En þótt svo kunni að vera fyrir fullorðna rnenn —- jeg skal nú ekici um það dæma — þá er jeg viss um, að hún á ekki rið börn. Samræður á safnaðarfundi geta haft meiri og betri áhrif á hina ungu, heidur enn upplesnar skrifaðar ræður, þó góðar ktinni að vera. Hið skrifaða orð er hotra að lesa enn hevra les- ið fyrir þá, er eiga að hafa þess not, sem eðlilegt er, og börn eru sízt upj>- lögð til að hlýða á upplestur: þeim gengur bezt að taka eptir því sem talað ei' einfaldlega upp frá brjóstinu. Menn heimta aimönnt, að alþíngi semji lög um alia skapaða hluti. eins og allt sje fengið, ef nóg lög eru smíðuð. En það þarf meira, menn þurfa að hlýða lögunum og gera rækiloga það sem þau skipa. Nú heíir síðasta alþingi samið þessi lög, sem skipa hverjum föð- ur og hverri móður, hverjum húsbónda og hverri húsmóður, að láta öll börn sín og fósturbörn, sem fær eru orðin til þess, læra að skrifa og reikna. Enginn inun geta sagt, að þetta sjeu ill eður órjettvís lög, heldur verða allir að lcannast við,

x

Fróði

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fróði
https://timarit.is/publication/115

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.