Fróði - 14.04.1882, Síða 1

Fróði - 14.04.1882, Síða 1
1882- 70. blað. AKUREYEI, FÖSTUDAGINN 14. APRÍL 109 Biiuadar»k<)lamálíð vestanlands. (Niðurl.). fað er ekki nóg, eins og reynsl- an hefir sýnt hingað til, að fá búfræðinga, nema jafnframt sje svo fyrir sjeð, að peir verði notaðir eptir að peir koma úr skól- unum. J>eir sem eitthvað hafa verið notaðir hingað til hafa allflestir verið styrktir af stjórninni, en paðmundi verða litið úr pví, ef peir fjölguðu og vjer fengjum 15 skólagengin húmannaefni á ári. Búmannaefnin koma flestir alls- lausir á torgið og pó öllu pví fje, sem til er fyrir hendi, væri varið til að fá peim verkfæri í hendur, pá er óvíst að marg- ir treystu sjer til að leigja pá, meðan hver vinnur sjer og engin samtök eru til neins. Búfræðingarnir eru kostaðir af alpýðu eða almennings fje og eiga að vera verkamenn alþýðunnar, en ekki stjórnarinnar. Yerkfæri til búnaðar eru ópæg í flutningum og svo marghreyttog mikil, að pað er óhægð á pví, að peir eigi sjálfir verkfærin. Alpýðan verður sjálf að vera sjer úti um nægileg verk- íæri og vinnu handa peim. J>eir eiga ekki heldur að vinna einir sjer eins og trje- eða málmasmiðir, heldur eiga peir að kenna út frá sjer með pví að vinna með alpýðunni, peir eiga að vera verk- stjórar yfir hæfilega mörgum mönnum, sem vinna með peim ; en pessu verður ekki í veg komið nema ífjelagsskap ogmeð samtökum. Fyrst verðum vjer að stofna búnaðarfjelög í hverjum hrepp ; og augna- mið búnaðarfjelaga pessara á að vera pað, að útvega nægileg áhöld og verk- færi til jarðabóta og allt sem til pess parf að endurbæta jarðirnar í hreppn- um, og útvega og launa nægilega marga búfræðinga til að standa fyrir jarðabót- unum. Hreppsmenn verða einnig að leggja til nægilega vÍDnu, ekki hver hjá sjer, heldur í fjelagi, og fer bezt á pví, að hver hreppur skipti sjer í smá vinnu- fjelög, svo að næstu bæir vinni saman; pað er ekki par með sagt, að búfræðing- arnir purfi að vera eins margir eins og samvinnufjelögin, en bezt væri að bú- fræðingur stæði sem optast fyrir verkinu. J>að er örðugast með fyrstu að fá fje til verkfærakaupa, og ekki hugsandi aðpað verði nema með nokkrum útlátum, en menn ættu ekki að horfa í nokkurn kostn- að, pegar umbót á jörðuuum og efling búnaðarins er í aðra hönd, og pað pó 110 að menn yrðu til pess að spara við sig munaðarvöru kaup. Ef hver fjelags- maður greiddi dálítið í eitt skipti í fje- lagssjóð, svo sem 5 kr. minnst, og peir efnaðri meira í inntökugjald, og auk pess greiddi hver, sem unnið væri hjá at fje- lagsmönnum utan heimilis, 50 a. til 1 kr. í fjelagssjóð, gæti smám saman orðið úr pví nægilegur sjóður til verkfæra kaupa og viðurhalds. Sá sem tæki búfræðing til að standa fyrir vinnu hjá sjer ætti ekki að purfa að borga honum nema hálf laun, en hitt ætti að greiðast af fje- lagssjóðnum með tilstyrk frá sýslufjelag- inu, sem einkum ætti að taka að sjer að launa búfræðingum með pví fje, sem pað hefði undir höndum. Alpingi hefir ætl- ast til, að helmingur af pví fje, sem veitt er til eflingar búnaði, sje fengið sýslu- nefndunum til umráða, og ætti pað að vera hvöt fyrir menn til pess að stofna búnaðarfjelög í sýslunum. Ef hver mað- ur sem gengi í sýslufjelagið legði 2 kr. á ári eða 25 kr. í eitt skipti í fjelags- sjóð, pá yrði pað viðauki við pað fje, sem veitt er úr landsjóði, og ætti fjelag- ið í sameiningu við sýslunefndina að út- hluta fjenu, svo fleiri fengju atkvæðis- rjett um pað, hvernig pví sje varið, en sýslunefndin ein, og eins að gera uppá- stungur um pað, hvernig verja skuli pví fje, sem landshöfðinginn og amtsráðin úthluta. — Hreppafjelögin ættu að vera eins og deildir af sýslufjelögunum og hvortveggja að vinna i einingu. J>að sem sýslufjelögin ættu einkum að hafa fyrir augnamið er að styrkja hreppafje- lögin og koma á samkeppni milli hrepp- anna í pví, að vinna sem mest aðjarða- bótum með kunnáttu og lagi undir um- sjón eða verkstjórn búfræðings i sam- vinnu, með pví að veita hreppafjelögun- um styrk jafnan með pví skilyrði, að hreppafjelögin verji jafn miklu til hins sama; og eins með pví að koma á gripa- sýningum í sýslunum ættu pau að hvetja til ástundunar í búfjárrækt og keppni í pví að haga sem bezt meðferð á búfjen- aði. |>að mun óhætt að fullyrða, að bún- aðarfjelög hafa erlendis hjálpað búnað- inum eins mikið upp og skólarnir, og pví ættum vjer að reyna að koma upp byrjun til hvorstveggja jafnframt, og pó vjer höfum ekki mikið fje fyrir hendi, vona jeg að menn sjái, að sje pví hyggi- lega og sparlega varið, mætti petta tak- ast, ef ekki vantar vilja og samheldi. 111 Land vort má heita óræktað eptir meira enn púsund ára ábúð, og vjer erum eins og fákunnandi nýlendumenn, sem ætlum að veslast upp af örbyrgð og sveitar- pyngslum. J>etta kemur ekki svo mjög af pví, að vjer höfum verra land að búa á enn margar aðrar pjóðir, sem betur vegnar; pví pó pað sje nú mjög mikið gengið úr sjer fyrir ráðlauslega ábúð, þar sem pað er ekki algjörlega eyðilagt af umbrotum náttúrunnar, pá hefir reynsl- an sýnt og sýnir árlega, að jarðabætur geta vel borgað sig og að sveitarbú- skapur getur vel blessazt. J>að sem mest stendur oss fyrir prifum er pví ein- mitt pað, að vjer skoðum oss ekki eins og nýlendumenn, heldur látum leiðast af gömlum ómennsku vana í hugsunarleysi, og pó frelsis andi hafi á seinni árum rutt sjer nokkuð til rúms í hugsun manna, pá hefir hann ekki orðið eins affarasæll og við mætti búast; pví hann hefir, eink- um hjá hinni yngri kynslóð, helzt ofmik- ið komið í ljós í taumlausu sjálfræði og sjálfbyrgingskap, sundurgerð og óparfa eyðslu, í sfað pess að koma fram í fram- faralöngun og keppni á að efla fullkomn- un og velgengni sjálfs sín og almenn- ings heill. Nú á næst liðnum árum hafa Norð- menn sýnt oss útsjón til nýs atvinnu- vegar í síldarveiðunum svo að kalla upp í landsteinum, sem enginn sinnti áður, en pað er vonandi að hin næstu ár bjer á eptir opni oss nýja auðsuppsprettu með fiskiræktinni, og gæti rækt hinna lax- kynjuðu fiska orðið mjög arðsöm og al- menn atvinnugrein, með pví að svo að kalla hver jörð á öllu landinu hefir til- kall tíl einhverrar ár, lækjar eða vatns, sem lax og silungur geta lifað í. |>ó að pessi atvinnugrein sje ung enn pá, pá hafa dæmi annara landa sýnt, að hún hlýtur að mega verða einnig pessu landi mjög arðsöm í samanburði við tilkostn- aðinn og mikill styrkur fyrir sveitarbú- skapinn, og er vonandi að bæði alpingi og landstjórnin gefi henni gaum. Um petta málefni er mjög fróðleg ritgjörð í tímariti Bókmenntafjelagsins optir landfógeta Á. Thorsteinsson og ætti alpýða að kynna sjer hana, og jafnframt að ræða um pað og rita peir menn, sem bezt eru til þess færir. Menn ættu að senda ávarp til næsta alþingis um að þingið legði fje til fiskihlutastofnunar í landinu og semdi lög til verndar peim,

x

Fróði

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fróði
https://timarit.is/publication/115

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.