Fróði - 24.05.1883, Blaðsíða 3
1883.
F B Ó Ð 1.
106 bl.
187
mjer virðast bæði sjáanleg og áþreifan-
leg.
Enn nó munu mennspyrja: hvað
á þá að gera ? A þingið að hætta að
skipta sjer af nokkru máli, nema, fjár-
málum og reikningamálum, og stöku
smámálum sem fyrir kunna að koma?
Ilið fyrsta sem þingið, að minni mein-
ingu á að gera, er að fá frýjari hönd-
ur til starfa sinna. I’að er að segja,
fá þingtímann hæfilega aukinn.svo þingið
geti streitulaust lokið þeim störfum sem
því eru fengin f höndur, og brýn
nauðsyn ber til , að lokið sje við. .leg
er viss um að allir sern þekkja til eru
mjer samdóma urn þetta, en menn getur
greint á um það hvernig lenging þing-
tímans á að vera löguð. Allir vilja senr
von er haía þingið sem kostnaðar
rninnst, en það er óhappalegur sparnað-
ur, að hafa þingtímann ofnauinan, til að
spara fje, þvf þar af getur leitt tvöfald-
an, eða margfaldan kostnaö. Sje lög-
unum flaustrað af, svo að á næstu þing-
um þurfi að káka við þau aptur til að
bæta um þau (eins og kirkjnmálið o. fl.)
er það tvöfaldur kostnaður. Og verði
eigi áríðandi máluin lokið á þingi hvað
eptir annað (eins og landb 1. rnálinu.,
skólamálunum o. 11), er það margfald-
ur kostnaður, því allur sá tíini sem
varið er til undir bönings því máli er
eigi verður lokið á þingi, fer að kalla
uiá til ónýtis. Þegar málið er tekið
aptur fyrir á þinginu, verður að flytja
það upp að nýju, og það gengur sama
krabbaganginn upp aptur á þinginu.
En eins og aliir vita kostar hver þing-
dagur landsjóðinn ærið fje, hvort sem
sá dagur verður að nokkru gagni eða
engu. Jeg hefi heyrt ymsar tillögur um
lengingu þingtíinans, og «kal geta þeirra
að nokkru. Sumir vilja hafa þing á
hverju ári, 2 mánuði < senn, og á
sama tíma sem nú. Aðrir vilja hafa
þingið 4 mánuði, annað hvert ár, eða
svo lengi sern með þarf, helzt á veturna.
Og hinir þriðju vilja að eins nota þá
heimild sem veitt er í stjórnarskránni
að halda auka þing stöku sinnum, til
að undir búa og meö höndla þau mál
sem hið reglulega alþingi ekki fær yfir
tekið. Skal jeg svo í íám orðum láta
uppi álit mitt um hverja þessa tillögu
fyrir sig.
Það er vafalaust, að hagfeldast og
hollast væri fyrir oss, að halda þing
á hverju ári eins og aðrar þjóðir gera,
sem hafa löggefandi þing eins og vjer.
Þinghald á hverju ári er að minni
hyggju hið eina meðal til að eyða þeim
dauða svefni eg áhugaleysi á þing og
þjóðmálum, sem allt of mjög grúfir yfir
þjóðinni í heild sinni. Eins og nú
stendur er þingsetan hrein og bein
hjáverk, sem allt of margir — ef til
vill — gera utan við sig. Þegar
hverju þingi er lokið, köstum vjer þing-
menn öllum þingsáhyggjuin frá oss,
og hugsum nauinast til þingmála fyrr
enn að 2 árum liðnum, að skyldan
kallar oss aptur á þing. það er því
eigi að furða þó riði hafi slegið á
188
þingvopnin, og þau sjeu farin að sljófg-
ast, þar sem þau Iiafa legið óhreifð í
ruslakistu gleymskunnar allan þennan
tíma. Að þjóðin sje vakandi er þvf
siður að vænta, þar sem hön ekki fær
að sjá eða vita íyrr enn seint og síðar
meir, hvað gerist á hverju þingi, af
hinum ótímabæru alþingistíðindum, sem
fæstir liirða um að sjá. Þessu svefn-
móki mnndi hrundið með þinghaldi á
hverju ári, einkum ef það fylgdi með
að kosið væri til þings að minnsta kosti
3. hvert ár. Vjer skyld im sjá hvert
ekki færðist meira pólitískt líf í oss,
væri þing átt á hverju ári, og kosið
til þess annað eða þriðja hvert ár. En
þetta kostar ærið fje, mnnumenn segja
Já, þingið yrði helmingl kostnaðar
meira með þessu íyrirkomulagi, og
það er spurningin sem úr verður að
leysa, hvort hinn aukni þingkostnaður
fæst endurgoldinn með þvf pólitíska
lífi og fjöri sem mundi færast í þing
og þjóð við þessi umskipti.
Að lengja þingtímann um helming
en halda þing að eins annað hvert ár getur
því að eins orðið hagfellt, að þingið
komi saman á veturna, enn ekki sumrin
eins og nú. Flestum þingmönnum
mun þykja sumar þingseta sú sem nú
á sjer stað nógu löng þó eigisje aukið
við hana. Þeim þingmönnuin sem fást
við búskap og það gera nálega allir
þingmenn sem ekki eru búsettir í
Reykjavík kemur ekki vel að vera all-
ann bezta bjargræðis tíma ársins frá
böum sínum, og jeg óttast fyrir að
það yrði einmitt tii að fa:la suma nýta
þingmenn frá þingsetu. það lrefir ein-
att að undan förnu komið til tals, að
hagfeldara væri að halda þingið á
veturna, enn á meðan þingið var hald-
ið í skólahúsinu, varð því eigi við kom-
ið, sökum þess að þá hefði þingið ekki
fengið nokkurt skýli yfir sig í Reykjav.
Nú er þeim anninatka rutt úr vegi með
því þingið hefir íengið sitt eigið hús til
afnota. Ilelzti annmarkinn á þinghaldi
um vetrar tímann, eru ferðirnar til og
frá þingi, er mundu verða þingmönnum
úr fjarlægari sýslunum ærið erfiðar og
kostnaðar samar, en þó ættu þeir ann-
markareigiað fæla menn frá breyting-
unni, virtist hún að öðru leyti tiltæki-
leg. Fengjum vjer gufuskip til að fara
eina ferð umhverfis landíð í október-
mánuði — og sú ferð er að mörgu leyti
mjög nauðsynleg — væri þingmönnum
innan handar að koinast til þings með
I þeirri ferð. IJá er ekki hafísinn að
óttast eða aðrar sjeilegar torfærur.
Eins væri nauðsynlegt að fá eina gulu-
skipsferð umhverfis landið í marz eða
apríl, þegar ísalög ekki hamla — og
það er sjaldan um þann tíina — og með
þeirri ferð ættu þingmenn að geta
komist áleiðis til heimila sinna. En
bregðist þetta, teljeg það engum sjer-
legum vandkvæðum hundið fyrir þing-
menn, að fara landveg, því einatt geí-
ur verið betra að fara á klökum í
marz eða apríl — og þetta mega
póstarnir hafa — enn aö fara í júni,
189
þegar aurbleytnr og vatnavextir gera
vegina nálega ófæra. Og þetta höfum
vjer þingmenn þó mátt hafa að undan
förnu, að fara til þings f júnímánuði,
þó vegir hafi stundum verið lítt færir.
Aðalkosturinn við þinghaíd á veturna er
sá, að til þingsetunnar gengur arðminsti
tími ársins, og er það mikils verð at-
riði fyrir þá þingmenn sem stunda
landbúnað. þá mundi og mega lækka
dagkaup þingmanna, og er jeg sann-
færður um að þingmcnn yrðu betur í
haldnir með 4 kr. um daginn, en þeir
eru með 6 kr. nú. Að minni mein-
ingu þyrfti þingkostnaðurinn — ef vel
væri á haldið — ekki að fara langt
fram úr þvf sem hann er nú, þó þing-
tíminn yrði lengdur allt að helmingi,
ef þing er haldið á veturnar en ekki
á sumrin, eins og nú.
Þá er þriðja og síðasta tillagan,
að halda aukaþing stöku sinnum, til
að íjalla um hin stærstu mál er hið
reglulpga alþing ekki fær yfir tekið.
í*essi tillaga hefir það til sfns ágætis
frain yfir hinar, að eigi þarf að breyta
stjórnarskránni til að fá henni fram-
gengt. Síjórnarskráin gerir einmitt
ráð fyrir, að þetta geti komið fyrir,
því að í 6. gr. hennar er konungi á-
skilinn rjettur til að stefna alþingi sam-
an til aukafunda þegar svo ber undir.
Rað ætti því ekkí að vcra nein for-
veldni á að fá þessu komið til leiðar.
Fiiigið verður að senda konungi þegn-
lega áskorun eða bænarskrá uin, að
kalla satnan sjerstakt auka þing, og er
líklegt að sú bæn fái Ijúfa áheyrn,
þegar hún er studd með skynsamleg-
um rökum. Væri ellaust rjettast að
sjerstakar kosningar fram færu tii þessa
sjcrstaka þings Eins og ástendur
mun hollast og hyggilegaet fyrir oss
að hallast að þessari tillögu eins og
hún liggur fyrir, og fara ekki frain á
aðrar stórfelldari breytingar á þinginu
að sinni. En þetta sjerstaka þingætti
meðal annars að taka til yfirvegunar,
hverjar breytingar á þingi og þing-
sköpum eru helzt nauðsynlegar, og er
einsætt að bíða eptir því.
Jeg skal svo eigi þreyta menn
lengur á þessuin Icstri urn alþing, og
bið menn virða hann á betra veg.
Mættu þessar athugasemdir verða til þess
að bæta úr einhverjum þeim annmörkum
og ófullkomlegleikum sem á þinginu eru,
kalla jeg ómaki mfnu vel varið.
Hið merkilega blað Norðanfari segir
23. apríl þ. á. að sjer þyki það merki-
legt, að Fróði skuli eigi tala um nein
stjórnarmál, það sje þó siður allra (ann-
ara) blaða um allan heim að tala um vel-
ferðarmál þjóöar sinnar, og mun lesarinn
eiga að láta sjer skiljast, að Norðanfari
standi eig: að haki öðru/n heimsblöðum
í þessum sið.
það er nú ekki öllum auðvelt að
botna í því, hver mál það eru, sem Norð-
anfari kallar stjórnarmál og velferðarmál.
Jlaðið hefir sjálfsagt sínar sjerstaklegu