Fróði - 10.03.1884, Síða 2

Fróði - 10.03.1884, Síða 2
T26. bl. F R Ó Ð 1. 1884. 64 Jakob Guðmundsson hafði stofnað, og Lopti Gíslasyni á Yatnsnesií Grímsnesi talsvert af jarðyrkjuverkfærum og 2 ung svín. Fjelagið hafði pá verið beðið um fjárstyrk til að koma upp kalkofni í Reykjavík, en við pví gat pað eigi gefið sig, heldur útvegaði uppdrátt og skrif- aðan leiðarvísi til að byggja slíkan ofn eptir. 1875: pó fjelagið hefði lengi haft áhuga á pvi að styrkja til búnaðarframfara á íslandi, og pó pað hefði reynt að upp- fylla sem bezt pær óskir, er hjeðan höfðu komið til pess, pá var fjelaginu pað ljóst, að styrkur þess gæti eigi orð- ið að fullum notum, par sem fjelagið vantaði kunnugleika og yfirlit yfir, hversu bjer hagar til. í pessum vandræðum hafði fjelagið árið 1865 skrifað dóms- málastjórninni til, er pá hafði málefni Islands undir höndum, og beðið hana um skýrslur um búnaðarásigkomulag landsins. En hefði stjórnin engar slík- ar skýrslur, ljet fjelagið í ljós pá skoð- un sína, að æskilegt væri að útvega pær, og kvað sig fúst til að styrkja unga og ötula menn, sem bæri gott skyn á búfræði, til að ferðast um ísland til rannsókna og síðan að semja tillögur um, hver ráð og aðferð heppilegust myndi til að efla framfarir búnaðarins á landinu. Stjórnin hafði svarað fjelaginu pví, að hún hefði engar pær skýrslur sem pað óskaði eptir, en fjellst á, að æski- legt mundi vera að láta búfræðinga ferð- ast um landið. Hún drap og á pað, að pá væri um tvennt að tefla, annað- hvort að fá til þessara ferða íslendinga, sem hefðu lært búnað í Danmörku, og síðan setzt að á íslandi, eða pá að fá danskan mann til þessa. Fjelagið áleit nú, að hver sá, er fenginn yrði í svo vandasama sendiferð, pyrfti að vera mjög fjölfróður, hann yrði að pekkja út í æsar bæði allt hið verk- lega, er lyti að alls konar jarðrækt og 65 kvikfjárrækt, og engu síður hinar vis- indalegu grundvallarreglur, sem pessar greinir landbúnaðarins hvíla á, pví ella væri hann eigi fær að dæma rjett um slíka hluti I landi, par sem svo ein- kennilega hagaði til. En fjelagið átti pá ekki völ á neinum slikum manni. Nú, 10 árum seinna, pótti sem Feil- bex-g umsjónarmaður mundi vel fallinn til að ferðast um ísland í pessum er- indum, og var hann fenginn til pess og sendur til Islands sumarið eptir. 1876: Feilberg fór til íslands eins og á- kveðið var árið á undan, og ferðaðist nm Suðurland til að kynna sjer jarð- veginn, fjenaðinn, grasvöxtinn, loptslag- ið, fólkið, vinnukraptinn, búnaðarlögin, búhaginn, verzlunarhaginn o. s. frv., svo hann gæti gert sjer glöggva hugmynd um þetta, og pegar hann næsta sumar hefði ferðast um Norðurland, lagt ráð til, hvernig bæta ætti búskap íslend- inga. Honum voi-u fengnar til ferðar- innar 1000 kr., og lagði fjelagið til helm- inginn, en ráðgjafi íslands hinn helming- inn úr landsjóði. Sveinn Sveinsson fjekk hjá fjelag- inu 400 kr. til að kynna sjer aðferð við í framskurði mýra og uppgræðslu fok- sanda í Danmörku, og til að stunda nám við búnaðarháskólann. 1877: Feilberg var aptur sendur til Is- lands um sumarið og átti nú að fara um Norðurland. Hann fjekk til ferðar- innar 2000 kr., að hálfu frá fjelaginu en hálfu úr landsjóði. Af pessu skilaði hann aptur helmingnum, eður 1000 kr., en kaus að fá pær aptur næsta sumar til að fara til Noregs og skoða sig par um við líka norðarlega eins og fsland liggur. Aleit hann petta mjög gagn- legt fyrir sig, áður enn hann kvæði upp álit sitt um framfarir búnaðarins á ís- landi. Eptir tillögu landshöfðingja veitti landbúnaðarfjelagið petta ár 200 kr. og Alexandreu, og komst til Lissabon 9. jóní 187 9 og var honurn þar tekið með mesta fögnuði. Ferð Serpa Pinto’s er rnikil og merkileg, það er hættulegt að ferðast urn slík lönd og cigi alira næðíæri. Pó Pinto hafi eigi fundiö mörg óþckkt lönd og þjóðir, eins og sumir aðrir, t. d. Livingstone og ymsir fleiri, er hafa rannsakað töluvert hjerum slóðir, þá er ferðin þó eigi að síður til mik- illa nota fyrir vísindin og þekkingu manna á Suðurafríku, því Pinto hefir gert ágætar rannsóknir í náttúrufræöi og landafræði, og það, sem mest er f varið, hann hefir gert ótal mælingar, svo nú rná gera nákvæma landsupp- drætti af þessum hjeruðum, sem eigi var hægt áður. Ferð þessi var miklu kostnaðar minni, enn menn höfðu bóist við, hón kostaöi alls 19,000 krónur, og er það mjög lítið í samanburði við aðrar ferðir í Afríku. Pegar Stanley fór að leita Livingstones kostaði ferð hans 72 þósundir króna, og seinasta ferð hans 4 eða 5 sinnura meira. Peg- ar á slíkan kostnað er litið og alla þá fyrirhöfn og hættur, sem berjast má við, þá sjá menn, að það er ekki lítið, sem Iagt er í sölurnar, til að rannsaka þessi fjarlægu lönd, og þó kosta þessar íerðir ekkert f saman- burði við ferðirnar til norðurheitnskaut- anna. Ferðir Englendinga til að leita að Franklin í íshalinu norður af Ame- ríku, kostuðu t. d. 30 milfónir króna, og þó eru í öllum siðuðum löndum árlega margar milíónir veittar af al- menningsfje til vísindalegra rannsókna heima fyrir. 66 búnaðarfjelagi Suðuramtsins upp í kostn- að pess til pess að láta Svein Sveinsson ferðast um og leiðbeina bændum í jarða- bótum. Aðrar 200 kr. veitti pað Jóni Jónssyni til að kynna sjer vatnsveiting- ar á Jótlandi. Enn fremur voru Sveini Sveinssyni veittar 200 kr. til að ferð- ast til Skotlands að kynna sjer par fjár- hirðing o. fl. 1878: petta ár fór Feilberg til Noregs, sem ráð var fyrir gert, og síðan samdi hann og sendi landbúnaðarfjelaginu skýrslu um athuganir sínar á íslandi. þessari skýrslu hans var útbýtt prentaðri meðal fjelagsmanna, og fjekk hann sjer- stakt þakklæti hjá fjelaginu fyrir pað hve vel hann hefði leyst petta verk af hendi. |>á fjekk búnaðarfjelag Suðuramts- ins enn 200 kr. styrk til að láta Svein Sveinsson ferðast um til að leiðbeina bændum. Eins og áður er getið, hafði Sveinn fengið styrk til að fara til Skot- lands. veturinn 1877—78, en nú fjekk hann loforð hjá fjelaginu um fjárstyrk til að læra 2 eða 3 vetur við landbún- aðarháskólann svo hann gæti tekið par reglulegt próf í búfræði, og tók ráðgjafi íslands að sjer að greiða helminginn af þeim kostnaði úr landsjóði. Oddur bóndi Eyjólfsson á Sámsstöðum í Fljóts- hlíð fjekk silfurbikar hjá fjelaginu sem heiðurslaun fyrir jarðabætur. 1879: Sveinn búfræðingur Sveinsson var veturinn 1878—79 á landbúnaðarháskól- anum, og var kostaður að hálfu af fje- laginu en hálfu 'af landsjóði íslands. Hann fjekk 7 5 kr. um mánuðinn, og sömu kosti hafði hann veturinn 1879— 80. |>ann vetur voru 2 aðrir íslend- ingar í Danmörku, sem höfðu lært bú- fræði í Noregi, Ólafur Ólafsson og Jó- sep Bjarnarson, fengu peir hver fyrir sig 300 kr. styrk hjá fjelaginu og fyrir pess tilstilli fengu peir að vera tíma og tíma í stað hjá nokkrum beztu búhöld- um til að kynna sjer danskan búskap, rajólkurmeðferð, sauðfjárrækt, nautpen- ingsrækt, uppgræðslu foksanda og vatns- veitingar á engi. 1880: Sveinn Sveinsson fjekk enn priðja veturinn 1880—81 75 kr. styrk um mán- uðinn til að nema við landbúnaðarhá- skólann og galt fjelagið helming pessa fjár, en ráðgjafi Islands helminginn úr landsjóði, en búfræðispróf tók þó Seinn ekki, sem áskilið hafði veríð. J>á var og Björn Bjarnarson íslendingur í Dan- mörku um veturinn, og fjekk 200 kr. styrk frá fjelaginu til að kynna sjer danskan búskap. 1881: Fjekk Sigurbjörg Friðriksdóttir 100 kr. styrk til að læra mjólkur meðferð. 1882: Fjekk Jónas Eiríksson 300 kr. styrk til að halda áfram námi við landbúnað-

x

Fróði

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fróði
https://timarit.is/publication/115

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.